Morgunblaðið - 18.02.2021, Page 20

Morgunblaðið - 18.02.2021, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021 Öryggisíbúðir Eirar til leigu Eirborgum Grafarvogi Tveggja og þriggja herbergja vandaðar öryggisíbúðir Eirar til langtíma leigu í Grafarvogi, Eirborgir, Fróðengi 1-11, 112 Reykjavík. Eir öryggisíbúðir ehf. Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík. Sími 522 5700 Hafið samband í síma 522 5700 milli 8 og 16 virka daga eða pantið gögn og nánari upplýsingar ásamt skoðun á netfangið sveinn@eir.is • Rólegt og notarlegt umhverfi með aðgengi að metnaðarfullri aðstöðu og þjónustu með það að markmiði að einstaklingurinn geti búið lengur heima. • Öryggisvöktun allan sólarhringinn • Aðgengi að mötuneyti og félagsmiðstöð • Góðar gönguleiðir í nágrenninu Guðni Einarsson gudni@mbl.is Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa undanfarna mánuði frestað greiðslu- þátttöku vegna heilbrigðisþjónustu erlendis sem ekki telst lífsbjargandi. Er þetta gert vegna mikillar óvissu í heiminum vegna Covid-19. Ákvörð- un um þetta var tekin að höfðu sam- ráði við landlækni og sóttvarna- lækni, samkvæmt frétt SÍ. Meginreglan er sú að ekki verða gefnar út greiðsluábyrgðir vegna slíkrar þjónustu fyrr en áhætta telst ásættanleg, í samræmi við leiðbein- ingar sóttvarnayfirvalda. Fólk sem fékk samþykkta greiðsluþátttöku í kostnaði vegna meðferðar erlendis, áður en heims- faraldurinn hófst, fellur einnig undir þetta. Almennt verða ekki gefnar út greiðsluábyrgðir til flugfélaga vegna þeirra fyrr en áhætta telst ásættan- leg. Þrátt fyrir fyrrnefnda meginreglu segja SÍ að hvert mál sé skoðað sér- staklega. Auk læknisfræðilegs ástands sjúklings er horft til ný- gengis sýkinga á því svæði sem hann hyggst fara til. Lífsbjargandi aðgerðir gerðar „Ákveði einstaklingur, þrátt fyrir framangreint, að ferðast utan til þess að sækja heilbrigðisþjónustu sem krefst fyrirframsamþykkis SÍ, fellur allur kostnaður á viðkomandi og greiðsluþátttaka af hálfu SÍ verð- ur engin. Einnig er vert að benda á að SÍ er ekki heimilt að taka þátt í kostnaði vegna mögulegrar sóttkví- ar, hvorki erlendis né hér á landi,“ segir í frétt SÍ. Þessi framkvæmd verður endurskoðuð reglulega. Samkvæmt skriflegu svari frá SÍ til Morgunblaðsins var árið 2020 kaflaskipt varðandi meðferðir er- lendis. „Fyrstu mánuði ársins voru litlar breytingar, en eftir því sem faraldurinn jókst breyttist það. Smá gluggi opnaðist um tíma um mitt ár- ið, en seinni hluta ársins var staðan mjög slæm í Evrópu og er enn,“ seg- ir í svarinu. SÍ segja að allar aðgerðir sem töldust lífsbjargandi hafi verið gerð- ar og sjúklingar sendir út vegna þeirra. „Hjá SÍ hefur farið fram mik- il vinna við að auðvelda ferðalög þessara einstaklinga, sem oft hafa verið flókin vegna ferðatakmarkana og lokana á landamærum erlendis,“ segir í svarinu. Öðrum aðgerðum sem gátu beðið var frestað stóran hluta af árinu. Fram kom í frétt SÍ að umsóknir sem berast væru afgreiddar áfram þótt ekki væri hægt að samþykkja ferð á þeim tíma sem sótt er um. Samkvæmt upplýsingum frá SÍ bár- ust 185 umsóknir vegna biðtímamála árið 2019 og var greitt vegna 106 mála það ár. SÍ bárust 110 umsóknir árið 2020 vegna biðtímamála og var greitt vegna 54 mála það ár. „Læknismeðferðir erlendis vegna meðferða sem ekki eru í boði hér á landi og eru lífsbjargandi eru á svip- uðum stað bæði árin, enda ekki um neitt stopp að ræða varðandi þær meðferðir. SÍ bárust 230 umsóknir vegna brýnna meðferða erlendis árið 2020,“ segir í svari stofnunarinnar. Morgunblaðið spurði hvort komið hefði til tals að SÍ tækju þátt í kostn- aði t.d. við liðskiptaaðgerðir hjá einkareknum skurðstofum hér á landi á meðan þetta ástand varir. SÍ segir að stofnuninni hafi ekki verið falið að semja um slíkar aðgerðir. Færri komast í aðgerðir erlendis  Greiðsluþátttöku vegna aðgerða frestað vegna faraldurs Morgunblaðið/Ásdís Skurðaðgerð Fólk sem beðið hafði ákveðið lengi eftir aðgerð gat sótt um að fá meðferð erlendis. Faraldurinn hefur truflað það. Mynd úr safni. Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpun- arráðherra, Þórdís Kolbrún Reyk- fjörð Gylfadóttir, hefur lagt fram á Alþingi skýrslu um langtímaorku- stefnu og aðgerðaáætlun sem ætlað er að framfylgja markmiðum henn- ar, að sögn atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytisins. Orkustefnan felur í sér framtíðar- sýn og leiðarljós í orkumálum fyrir Ísland til 2050. Hún byggist á vinnu starfshóps sem skipaður var af ráð- herra 2018 með fulltrúum allra þing- flokka og fjögurra ráðuneyta. Orku- stefnan (orkustefna.is) var kynnt í október sl. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytið hefur gert aðgerðaáætlun á grundvelli orkustefnunnar. Þar eru 38 skilgreindar aðgerðir og verkefni sem er ætlað að framfylgja stefnunni og styðja við hana. Aðgerðaáætlunin er nú lögð fram með skýrslu ráð- herra til Alþingis sem fylgiskjal við orkustefnuna. Áætlunin fylgir fimm meginstoðum orkustefnunnar um orkuöryggi, orkuskipti, orkunýtni, samfélag og efnahag og umhverfi. Undir hverri meginstoð er að finna skilgreind verkefni og aðgerðir, stöðu hverrar aðgerðar og tengingu hennar við texta orkustefnu. „Sem dæmi um aðgerðir má nefna að stutt verði við uppbyggingu vetn- is- og rafeldsneytisframleiðslu, end- urbætur gerðar á regluverki um framkvæmdir, raforkuöryggi skil- greint í lögum, viðmið sett um dreifða framleiðslu og flutningsgetu milli landshluta í þágu orkuöryggis, betri yfirsýn fáist yfir jafnvægi framboðs og eftirspurnar raforku, sviðsmyndir unnar um orkuskipti á hafi, möguleikar Íslands til að verða leiðandi í orkuskiptum í flugi greind- ir, tækifæri til nýtingar glatvarma kortlagðar, leyfisveitingar einfaldað- ar vegna uppfærslu á eldri virkjun- um, dreifikostnaður raforku jafnað- ur um landið og breytingar gerðar á regluverki flutnings- og dreififyrir- tækja með aukna hagkvæmni og lægra verð til neytenda að leiðar- ljósi. Sumar aðgerðirnar eru þegar komnar vel á veg,“ segir í tilkynning- unni. gudni@mbl.is Langtímaorku- stefna og aðgerðir  Skýrsla um orku- mál og aðgerðaáætl- un lögð fyrir Alþingi Morgunblaðið/Birkir Fanndal Orkustefnan Aðgerðaáætlunin út- listar leiðir að markmiðunum. Stofnun Hollvinasamtaka Húsa- víkurkirkju var á dagskrá sóknar- nefndar kirkjunnar í gærkvöld. Fundinum var ekki lokið þegar Morgunblaðið fór í prentun. Til- gangur samtakanna verður að safna fé til kostnaðarsamra viðgerða á kirkjunni. Helga Kristinsdóttir, formaður sóknarnefndar, sagði í gær að fyrir- huguð stofnun hollvinasamtaka hafi fengið mjög góðar undirtektir. „Ég geri mér vonir um að sóknarnefndin leggi blessun sína yfir hollvina- samtökin og að þetta verði að veru- leika,“ sagði Helga. Hún sagði að gerð hefðu verið drög að sam- þykktum hollvinasamtakanna. „Tónninn í heimamönnum og öðr- um velunnurum kirkjunnar hefur verið svo jákvæður og dásamlegur. Þetta er algjörlega yndislegt. Þetta hefur líka fengið mjög góðar undir- tektir á samfélagsmiðlum. Menn bíða eftir ákvörðun sóknarnefndar- innar til að geta byrjað,“ sagði Helga. Hún sagði að nú þegar hafi verið gefin loforð um stuðning við verkefnið. „Það er með hreinum ólíkindum hvað margt flott fólk er þarna úti og það kemur víða að af landinu,“ sagði Helga. Þingeyingar og aðrir sem tengjast Húsavík eru framarlega í flokki. Nákvæm kostnaðaráætlun vegna framkvæmdanna liggur ekki enn fyrir. Helga sagði hugmyndina þá að laga kirkjuturninn og koma í veg fyrir frekari skemmdir. Einnig er vilji til að samræma heildarsvipinn á safnaðarheimilinu Bjarnahúsi og kirkjunni en Rögnvaldur Ólafsson arkitekt teiknaði bæði húsin. Eins verði umhverfi húsanna samræmt. „Það liggur á að laga kirkjuturn- inn og það þarf að gera strax í vor. Þegar er byrjað að smíða nýja krossa á kirkjuna. Þeir verða smíð- aðir úr eðalharðviði hjá Trésmiðj- unni Val hér á Húsavík. Einnig munu heimamenn annast málning- arvinnu. Við vinnum þetta í samráði við Minjastofnun,“ sagði Helga. „Það er svo gott að hafa mikla gleði í hjartanu sínu, þá líður manni svo óskaplega vel. Viðbrögðin hafa gefið mér mikla gleði.“ gudni@mbl.is Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Húsavíkurkirkja Turninn er illa farinn vegna fúa og krossarnir ónýtir. Byrjaðir að smíða nýju krossana  Hollvinasamtök Húsavíkurkirkju

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.