Morgunblaðið - 18.02.2021, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021
viðlegu. Nýr hafnarbakki yrði 200
metra langur með viðlegudýpi og
snúningssvæði sem nýst gæti núver-
andi skipum Samskipa. Einnig
næstu kynslóð skipa félagsins, sem
yrðu stærri en þau skip sem nú eru í
eigu þess.
Lengingu Vogabakka til norðurs
fylgir að framkvæmdasvæði bakka-
gerðar og viðlegu er komið inn á
svæði þar sem klappardýpi er allt of
lítið fyrir stór og djúprist skip.
Sprengja þarf þar klöpp á um 4.000
fermetra svæði og dýpka viðlegu-
bakka. Kostnaður við bakkagerð
verður því í hærri kanti meðalverðs
á hvern metra bakkans. Gróft metið
myndi nýr hafnarbakki kosta um 8,5
milljónir króna á hvern metra eða
um 1,7-2,0 milljarða króna án nauð-
synlegra dýpkunarframkvæmda við
aðsiglingu og snúningssvæði skipa.
Sankomulag aðila mikilvægt
„Á framkvæmdatíma yrði eflaust
rask á starfsemi Samskipa, en við
undirbúning framkvæmdarinnar er
mikilvægt að gert yrði samkomulag
ríkis, Faxaflóahafna og Samskipa
um framgang mála, breytingu á
lóðaleigusamningum og gerð nýs
hafnarbakka,“ segir í skýrslu starfs-
hópsins. Hópurinn gerir tillögu að
1.172 metra langri brú í 14 höfum.
Um helmingur brúarinnar er yfir
Kleppsvík en helmingur á landi að
vestanverðu. Brúin rís í um 35 metra
hæð yfir hafflötinn og siglingahæð
er áætluð um 30 metrar með um 100
metra breiðri siglingarrennu. Af
teikningum má áætla að tvær til
þrjár undirstöður brúarinnar verði á
núverandi gámasvæði.
Mestu áhrifin verða á Samskip
Mikilvægt talið að búið verði að lengja Vogabakka áður en framkvæmdir hefjast við Sundabrúna
Ljósmynd/Wikipedia
Sortlandbrúin í Noregi Hún er sambærileg og Sundabrú varðandi lengd (948 metrar) og siglingarrennu. Gefur hugmynd um mögulegt útlit Sundabrúarinnar.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Ef áform um Sundabrú yfir Klepps-
vík verða að veruleika mun það hafa
mikil áhrif á starfsemi Samskipa,
bæði á framkvæmdatíma og til fram-
tíðar. Athafnasvæði Eimskips er ut-
an brúar og framkvæmdin myndi því
hafa óveruleg áhrif á starfsemi þess.
Samskip hefur aðsetur við Voga-
bakka, innarlega í Elliðaárvogi. Fé-
lagið hefur bent á að verði Sundabrú
fyrir valinu sé nauðsynlegt að fyrst
komi til lengingar Vogabakka til
norðurs og sú aðgerð kláruð áður en
brúarsmíðin hefst.
Í nýútkominni skýrslu starfshóps
um Sundabraut er mælt með brú
frekar en göngum í Sundahöfn. Eins
og gefur að skilja er ekki búið að
hanna brúna en hér á síðunni er birt,
samkvæmt ábendingu Vegagerðar-
innar, mynd af Sortlandbrúnni í
Noregi. Hún er sambærileg varð-
andi hæð og siglingarrennu. Einnig
er birt kort af langsniði Sundabrúar-
innar sem Sigurður B. Sigurðsson,
kortagerðarmaður Morgunblaðsins,
vann upp úr gögnum í skýrslu
starfshópsins.
Mörgum spurningum ósvarað
Forráðamenn Samskipa hafa átt
fund með Vegagerðinni þar sem far-
ið var yfir verkferla. „Það er mjög
mörgum spurningum ósvarað á
þessu stigi málsins,“ segir Birkir
Hólm Guðnason, forstjóri Samskipa,
í samtali við Morgunblaðið. Hann
bendir á að Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri hafi sagt að nú þurfi að
fara fram heildarmat á kostnaði,
svokölluð félagshagfræðileg grein-
ing, til að meta hliðarkostnað, m.a. á
hafnarsvæðinu og íbúðabyggð.
„Það er mikilvægt fyrir okkur að
búið verði að lengja hafnarkantinn
til norðurs áður en raskið vegna brú-
arsmíðarinnar hefst,“ segir Birkir.
Samskip er nú með fjögur skip í
Íslandssiglingum og koma tvö í viku
hverri að Vogabakka og liggja þar í
tvo til þrjá daga. Þetta eru gámaskip
sem ekki munu komast undir brúna
þegar hún hefur verið byggð. Þau
verður því að þjónusta norðan við
brúna eftir að hún er komin. „Fram-
tíðarsýnin er svo að taka í notkun
stærri skip, því við sjáum vaxtar-
möguleika þegar heimsfaraldurinn
er yfirstaðinn,“ segir Birkir.
Hann segir að Samskip sé með
langtímaleigusamning við Faxaflóa-
hafnir um Vogabakkasvæðið og
verði í viðræðum við fyrirtækið um
breytingar á svæðinu. Það sé ljóst að
akstursleiðir lyftara og annarra far-
artækja að gámavöllum og frysti-
geymslum muni lengjast.
Starfshópurinn um Sundabraut
bendir á í skýrslunni að augljóst sé
að með byggingu brúar myndi ein
viðlega við Vogabakka verða ónot-
hæf. Ætla megi að 150-200 metra
svæði yrði ekki nýtilegt sem viðlega
og því þyrfti að mæta með nýjum
viðlegubakka norðan við núverandi
Fyrirhuguð Sundabrú yfi r Kleppsvík
Langsnið
Sæbraut/
Holtavegur
Skútuvogur
B arkarvogur
Sundahöfn
Landfylling
Siglingarrenna, 100 m breið og 30 m háKvarði á teikningu er hæð : lengd = 8 : 1
Gufunes
Lengd alls: 1.172 m
Mesta hæð: 35 m yfi r haffl eti
Fjórar akreinar og göngu- og hjólastígur
Breidd: um 26 m
Þær tillögur, sem allt frá árinu 1984
hafa verið sýndar á aðalskipulagi
Reykjavíkur um legu Sundabrautar,
hafa legið um hafnarsvæðið í Sunda-
höfn. Þetta er svokölluð leið I, milli
Kleppsspítala og verslunarmiðstöðv-
arinnar Holtagarða.
Í nýju skýrslunni er lögð til önnur
leið, frá Gufunesi yfir á Holtaveg,
sunnan Holtagarða. Á kortinu hér að
ofan má sjá hvernig brúin mun
liggja yfir Vogabakkann, athafna-
svæði Samskipa.
Sundahöfn er meginvörugátt
landsins og því munu framkvæmdir
við meiriháttar umferðarmannvirki
á svæðinu hafa mikil áhrif. Tekjur
Faxaflóahafna af starfsemi Sunda-
hafnar eru stór hluti allra rekstrar-
tekna hafnarsjóðsins. Staðsetning
hafnarinnar er heppileg, því stutt er
að fara með vörur til helstu mark-
aðssvæða suðvestanlands.
Skilgreint hafnarsvæði í Sunda-
höfn er um 180 hektarar, sem skipt-
ist í almennt þjónustusvæði (um 125
hektarar) og farmsvæði skipafélag-
anna (um 55 hektarar). Lengd
hafnarbakka í Sundahöfn er alls um
3,1 kílómetri.
Heildargámaflutningar til Faxa-
flóahafna árið 2019 voru liðlega
330.000 TEU (tuttugu feta gámar).
Þar af voru gámaflutningar um
Sundahöfn það ár um 295.000 TEU
(hlaðnir gámar 195.000 TEU og
tómir 100.000 TEU). Skipakomur
voru 1.130, sem er helmingur allra
skipakoma til Faxaflóahafna. Flutn-
ingaskip voru langflest eða 950, far-
þegaskip næstflest eða 108 og fiski-
skip 61.
Kleppsvík
Hallsvegur
Sæ
braut
Kleppsspítali
SUNDAHÖFN
H AMRA R
HO LTAGARÐAR
G R A FA RVOGUR
GUFUNES
Holtavegur
Hábrú yfi r
Kleppsvík
Fjórar akreinar
Lengd: 1.172 m
Mesta hæð: 35 m
Sundahöfn er mikil-
vægasta vöruhöfnin