Morgunblaðið - 18.02.2021, Side 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021
Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is
LÉTTU ÞÉR LÍFIÐ
Fagfólk STOÐAR veitir nánari
upplýsingar og ráðgjöf.
Fjölbreytt úrval göngugrinda
sem auka öryggi og tækifæri
til hreyfingar og útivistar
Verð frá 39.800,-
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
VAGABOND ZOE
19.995.-
S K Ó V E R S L U N
STEINAR WAAGE
FALLEGIR SKÓR FYRIR
FERMINGARNAR
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Framkvæmdir eru hafnar að nýju við
endurgerð Tryggvagötu í Kvosinni í
Reykjavík. Haldið verður áfram með
verk sem hafið var í fyrra og byrjað á
öðrum áfanga vestar í götunni.
Reykjavíkurborg samdi í fyrra við
lægstbjóðanda, Bjössa ehf., að vinna
verkið fyrir tæpar 400 milljónir
króna.
Framkvæmdir eru að hefjast á ný í
Tryggvagötu gegnt Tollhúsinu. „Ver-
ið er að endurnýja götuna og skapa í
leiðinni spennandi dvalarsvæði þar
sem mannlífið fær að njóta sín, sem
kristallast í nýju sólartorgi við lista-
verk Gerðar Helgadóttur,“ segir í
frétt á heimasíðu Reykjavíkurborgar.
Ætla að nýta hagstæða tíð
Borgin og Veitur hófu fram-
kvæmdir á þessum hluta Tryggva-
götu í fyrra en yfirborðsfrágangur er
eftir. Lagnir voru endurnýjaðar auk
þess sem gatan fær nýtt yfirborð.
Margar þessara lagna voru komnar
til ára sinna. Skólplögnin og kalda-
vatnslögnin voru frá árinu 1925 og
hafa því þjónað íbúum og fyrir-
tækjum í miðbænum í tæpa öld.
Markmiðið er að nýta þessa góðu
tíð til að klára þennan hluta verksins
á vetramánuðum, segir í fréttinni á
heimasíðu borgarinnar. Stefnt er að
því að klára stéttina sunnan megin í
apríl en að torgið sjálft við listaverkið
verði klárt fyrir sumarið. Gönguleið
meðfram Tryggvagötu sunnanverðri
verður haldið opinni og aðgengi
rekstraraðila tryggt.
Framkvæmdirnar hafa áhrif á bíla-
umferð en svæðið verður lokað fyrir
akandi umferð meðan á fram-
kvæmdatíma stendur. Umferðin
verður með sama hætti og á meðan
framkvæmdum stóð á síðasta ári.
Umferðarstefnu verður snúið við í
hluta Tryggvagötu á milli Pósthús-
strætis og Lækjargötu.
Tryggvagatan verður síðan lokuð á
milli Grófarinnar, frá Grillhúsinu að
Naustum. Það svæði breytist svo í
vor í botnlanga sem er aðgengilegur
frá Naustum þegar framkvæmda-
svæðið færist yfir á gatnamót Gróf-
arinnar.
Framkvæmdir á öðrum áfanga,
fyrir framan Listasafn Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu, hófust í byrjun mán-
aðar. Annar áfangi nær frá Naustum
að Grófinni en verkinu er skipt upp í
smærri einingar til að tryggja sem
best aðgengi að nærliggjandi rekstri.
Með þessu verklagi sé til að mynda
hægt að sjá til þess að aðgengi að
Listasafni Reykjavíkur haldist
óbreytt á framkvæmdatímanum. Bú-
ist er við því að vinnu við þennan
hluta götunnar verði einnig lokið fyr-
ir sumarið.
Hin góða tíð undanfarið var nýtt til
að að kanna hvort mögulegar forn-
leifar lægju þarna í jörðu. Engar
fornleifar hafa komið í ljós á þessum
kafla.
Mikil uppbygging á svæðinu
Undanfarin ár hefur verið unnið að
því að fegra Tryggvagötuna. Gatan
var endurgerð frá Lækjargötu að
Bæjartorgi. Torgið sjálft, þar sem
hinn sögufrægi veitingastaður Bæj-
arins bestu stendur, var einnig end-
urgert. Við þessar framkvæmdir
kom hin fræga Steinbryggja í ljós og
var ákveðið að hafa hluta hennar
sýnilegan í framtíðinni.
Mikil uppbygging hefur átt sér
stað á þessu svæði í Kvosinni undan-
farin ár. Meðal annars hafa risið stór-
ar byggingar á Hafnartorgi, austan
Tollhússins.
Tölvumyndir/Reykjavíkurborg
Tryggvagata austur Fyrir sunnan Tollhúsið verður útbúið sólartorg. En þar mun einnig rigna, eins og hér sést.
Tryggvagata vestur Lagfæringar eru hafnar fyrir framan Hafnarhúsið. M.a. verður skipt um yfirborð götunnar.
Halda áfram að
endurbyggja
Tryggvagötuna
Nýtt torg sunnan Tollhússins verður
tilbúið í sumar Byrjað við Naustin
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?