Morgunblaðið - 18.02.2021, Qupperneq 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021
KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS
Lítið verð 11.900,-
Stórt verð 14.900,-
Margir litir
BRAUÐBOX
Afurðaverð á markaði
16. febrúar 2021, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 291,57
Þorskur, slægður 350,74
Ýsa, óslægð 279,21
Ýsa, slægð 294,79
Ufsi, óslægður 148,23
Ufsi, slægður 175,00
Djúpkarfi 189,00
Gullkarfi 264,06
Blálanga, slægð 259,28
Langa, óslægð 201,33
Langa, slægð 212,65
Keila, óslægð 26,73
Keila, slægð 75,07
Steinbítur, óslægður 138,50
Steinbítur, slægður 165,88
Skötuselur, slægður 724,80
Skarkoli, slægður 420,53
Þykkvalúra, slægð 642,87
Sandkoli, óslægður 83,00
Áll 132,00
Bleikja, flök 1.444,00
Regnbogasilungur, flök 3.176,00
Gellur 880,00
Grásleppa, óslægð 63,64
Hlýri, óslægður 38,00
Hlýri, slægður 256,84
Hrogn/þorskur 427,34
Lúða, slægð 224,17
Lýsa, óslægð 39,16
Lýsa, slægð 42,91
Náskata, slægð 32,00
Rauðmagi, óslægður 13,96
Skata, slægð 49,30
Undirmálsýsa, óslægð 117,02
Undirmálsýsa, slægð 137,00
Undirmálsþorskur, óslægður 151,71
Undirmálsþorskur, slægður 159,00
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Nýr bátur Norðureyrar ehf. á Suð-
ureyri, Einar Guðnason ÍS 303, reri
sinn fyrsta róður um miðjan janúar
sl. og hefur síðan verið með rúm 10
tonn í afla að meðaltali á línu.
Báturinn ber sama nafn og fyrri
bátur útgerðarinnar sem strandaði í
nóvember árið 2019 við Gölt í utan-
verðum Súgandafirði.
Til þess að brúa bilið á milli þess
að nýr bátur sigldi í höfn festi Norð-
ureyri kaup á Von, þá GK og nú ÍS.
Nú hefur nýsmíði Norðureyrar verið
tekin í gagnið.
Óðinn Gestsson, framkvæmda-
stjóri útgerðarinnar, segist í samtali
við 200 mílur vera ánægður með bát-
inn og allt gangi sem skyldi.
„Þetta lofar góðu og allt svínvirk-
ar,“ segir Óðinn.
Hrósar Trefjum
„Hann er með rúm 10 tonn að
meðaltali í róðri á 19.200 króka.
Þetta hefur í stórum dráttum allt
reynst mjög vel, vélbúnaður og bún-
aður á dekki hefur staðið undir
væntingum. Auðvitað er hægt að
telja upp eitt og annað sem kemur
upp í nýjum báti en stóra myndin er
öll að ganga upp,“ segir Óðinn og
hrósar Trefjum fyrir vönduð vinnu-
brögð við gerð bátsins, sem tók rúm-
lega ár í smíðum og er yfirbyggð
Cleoparta 50.
Mest er veitt af þorski og segir
Óðinn hann vænan og stutt á miðin.
„Við höfum bara verið hérna
tveimur til þremur tímum frá firð-
inum, þ.e. alls í stím, núna undan-
farið. Bara á heimaslóð.“
Óðinn segir aðra báta á svæðinu
einnig fiska vel svo að aflabrögð hafa
verið með eindæmum góð miðað við
árstíma.
Lagt er upp hjá fiskvinnslunni Ís-
landssögu á Suðureyri sem er í
meirihlutaeigu Norðureyrar. Óðinn
er framkvæmdastjóri beggja ein-
inga.
Ferskt frá Suðureyri
Fiskurinn er unninn í fersk flök og
keyrður til Keflavíkur þar sem hann
fer í flug. Áður en nýr bátur sigldi í
höfn voru gerðar úrbætur á vinnslu
Íslandssögu og ný vinnslulína frá
Marel tekin í notkun.
Tvær fjögurra manna áhafnir eru
um borð, róið er í tvær vikur og hvílt
í tvær vikur að sögn Óðins.
Báturinn Einar Guðnason er 15
metrar að lengd og mælist 30
brúttótonn. Hann er sem fyrr segir
útbúinn fyrir línuveiðar og vel búinn
til lengri útiveru ef þarf og aðbún-
aður um borð fyrir áhöfn í takt við
það.
Rými er fyrir allt að 43 stykki 460
lítra kör í lest bátsins. Millidekk er
lokað með aðgreindu dráttarrými og
upphitaðri stakkageymslu.
Frá Suðureyri róa tveir stærri
línubátar og nokkrir minni á hand-
færum og línu. Þá leggur Tindur, 26
metra togari frá Flateyri, upp hjá
Íslandssögu að sögn Óðins. Hann
segir Íslandssögu vinna á milli 3.500
til 4.000 tonn á ári. „Þetta er tiltölu-
lega einföld vinnsla, ekki flókinn
skurður né úrvinnsla,“ segir Óðinn.
Meðalafli upp á tíu tonn á
nýjum línubát Norðureyrar
Góður afli og vænn þorskur Framkvæmdastjóri segir bátinn vel heppnaðan
Ljósmynd/Trefjar
Línubátur Einar Guðnason er nýsmíði Norðureyrar ehf. á Suðureyri. Hann er yfirbyggður beitningavélarbátur.
Rannsóknarskip Hafrannsókna-
stofnunar, Bjarni Sæmundsson,
hélt af stað í vikunni í árlegan vetr-
arleiðangur til að kanna ástand
sjávar. Könnunin er hluti af
langtímavöktun á ástandi sjávar
umhverfis Ísland og er það kannað
fjórum sinnum á ári.
Hitastig, selta og súrefni eru
könnuð á yfir 70 stöðum umhverfis
landið, bæði á landgrunninu og ut-
an þess. Einnig verða gerðar mæl-
ingar á næringarefnum við Faxa-
flóa, Langanes og Stokksnes.
Mikilvægt er að gera þessar mæl-
ingar nú að vetri til vegna þess að
lóðrétt blöndun yfirborðslaga sjáv-
ar er í hámarki og ljóstillífun þör-
unga og upptaka þeirra á næring-
arefnum og kolefni er í lágmarki að
því er kemur fram á vef Hafrann-
sóknastofnunar. karitas@mbl.is
Ljósmynd/Hafró
Hafró mælir ástand sjávar umhverf-
is landið fjórum sinnum á ári.
Bjarni Sæm.
í leiðangri