Morgunblaðið - 18.02.2021, Page 30

Morgunblaðið - 18.02.2021, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021 KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS Lítið verð 11.900,- Stórt verð 14.900,- Margir litir BRAUÐBOX Afurðaverð á markaði 16. febrúar 2021, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 291,57 Þorskur, slægður 350,74 Ýsa, óslægð 279,21 Ýsa, slægð 294,79 Ufsi, óslægður 148,23 Ufsi, slægður 175,00 Djúpkarfi 189,00 Gullkarfi 264,06 Blálanga, slægð 259,28 Langa, óslægð 201,33 Langa, slægð 212,65 Keila, óslægð 26,73 Keila, slægð 75,07 Steinbítur, óslægður 138,50 Steinbítur, slægður 165,88 Skötuselur, slægður 724,80 Skarkoli, slægður 420,53 Þykkvalúra, slægð 642,87 Sandkoli, óslægður 83,00 Áll 132,00 Bleikja, flök 1.444,00 Regnbogasilungur, flök 3.176,00 Gellur 880,00 Grásleppa, óslægð 63,64 Hlýri, óslægður 38,00 Hlýri, slægður 256,84 Hrogn/þorskur 427,34 Lúða, slægð 224,17 Lýsa, óslægð 39,16 Lýsa, slægð 42,91 Náskata, slægð 32,00 Rauðmagi, óslægður 13,96 Skata, slægð 49,30 Undirmálsýsa, óslægð 117,02 Undirmálsýsa, slægð 137,00 Undirmálsþorskur, óslægður 151,71 Undirmálsþorskur, slægður 159,00 Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is Nýr bátur Norðureyrar ehf. á Suð- ureyri, Einar Guðnason ÍS 303, reri sinn fyrsta róður um miðjan janúar sl. og hefur síðan verið með rúm 10 tonn í afla að meðaltali á línu. Báturinn ber sama nafn og fyrri bátur útgerðarinnar sem strandaði í nóvember árið 2019 við Gölt í utan- verðum Súgandafirði. Til þess að brúa bilið á milli þess að nýr bátur sigldi í höfn festi Norð- ureyri kaup á Von, þá GK og nú ÍS. Nú hefur nýsmíði Norðureyrar verið tekin í gagnið. Óðinn Gestsson, framkvæmda- stjóri útgerðarinnar, segist í samtali við 200 mílur vera ánægður með bát- inn og allt gangi sem skyldi. „Þetta lofar góðu og allt svínvirk- ar,“ segir Óðinn. Hrósar Trefjum „Hann er með rúm 10 tonn að meðaltali í róðri á 19.200 króka. Þetta hefur í stórum dráttum allt reynst mjög vel, vélbúnaður og bún- aður á dekki hefur staðið undir væntingum. Auðvitað er hægt að telja upp eitt og annað sem kemur upp í nýjum báti en stóra myndin er öll að ganga upp,“ segir Óðinn og hrósar Trefjum fyrir vönduð vinnu- brögð við gerð bátsins, sem tók rúm- lega ár í smíðum og er yfirbyggð Cleoparta 50. Mest er veitt af þorski og segir Óðinn hann vænan og stutt á miðin. „Við höfum bara verið hérna tveimur til þremur tímum frá firð- inum, þ.e. alls í stím, núna undan- farið. Bara á heimaslóð.“ Óðinn segir aðra báta á svæðinu einnig fiska vel svo að aflabrögð hafa verið með eindæmum góð miðað við árstíma. Lagt er upp hjá fiskvinnslunni Ís- landssögu á Suðureyri sem er í meirihlutaeigu Norðureyrar. Óðinn er framkvæmdastjóri beggja ein- inga. Ferskt frá Suðureyri Fiskurinn er unninn í fersk flök og keyrður til Keflavíkur þar sem hann fer í flug. Áður en nýr bátur sigldi í höfn voru gerðar úrbætur á vinnslu Íslandssögu og ný vinnslulína frá Marel tekin í notkun. Tvær fjögurra manna áhafnir eru um borð, róið er í tvær vikur og hvílt í tvær vikur að sögn Óðins. Báturinn Einar Guðnason er 15 metrar að lengd og mælist 30 brúttótonn. Hann er sem fyrr segir útbúinn fyrir línuveiðar og vel búinn til lengri útiveru ef þarf og aðbún- aður um borð fyrir áhöfn í takt við það. Rými er fyrir allt að 43 stykki 460 lítra kör í lest bátsins. Millidekk er lokað með aðgreindu dráttarrými og upphitaðri stakkageymslu. Frá Suðureyri róa tveir stærri línubátar og nokkrir minni á hand- færum og línu. Þá leggur Tindur, 26 metra togari frá Flateyri, upp hjá Íslandssögu að sögn Óðins. Hann segir Íslandssögu vinna á milli 3.500 til 4.000 tonn á ári. „Þetta er tiltölu- lega einföld vinnsla, ekki flókinn skurður né úrvinnsla,“ segir Óðinn. Meðalafli upp á tíu tonn á nýjum línubát Norðureyrar  Góður afli og vænn þorskur  Framkvæmdastjóri segir bátinn vel heppnaðan Ljósmynd/Trefjar Línubátur Einar Guðnason er nýsmíði Norðureyrar ehf. á Suðureyri. Hann er yfirbyggður beitningavélarbátur. Rannsóknarskip Hafrannsókna- stofnunar, Bjarni Sæmundsson, hélt af stað í vikunni í árlegan vetr- arleiðangur til að kanna ástand sjávar. Könnunin er hluti af langtímavöktun á ástandi sjávar umhverfis Ísland og er það kannað fjórum sinnum á ári. Hitastig, selta og súrefni eru könnuð á yfir 70 stöðum umhverfis landið, bæði á landgrunninu og ut- an þess. Einnig verða gerðar mæl- ingar á næringarefnum við Faxa- flóa, Langanes og Stokksnes. Mikilvægt er að gera þessar mæl- ingar nú að vetri til vegna þess að lóðrétt blöndun yfirborðslaga sjáv- ar er í hámarki og ljóstillífun þör- unga og upptaka þeirra á næring- arefnum og kolefni er í lágmarki að því er kemur fram á vef Hafrann- sóknastofnunar. karitas@mbl.is Ljósmynd/Hafró Hafró mælir ástand sjávar umhverf- is landið fjórum sinnum á ári. Bjarni Sæm. í leiðangri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.