Morgunblaðið - 18.02.2021, Qupperneq 35
FRÉTTIR 35Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355
Vefverslun selena.is
konudaginnMUNIÐ
Ný sending frá
Vefverslun
selena.is
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Ursula von der Leyen, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, tilkynnti í gær að sambandið
hefði fest kaup á allt að 300 millj-
ónum skammta af bóluefni Moderna
til viðbótar við það sem þegar hafði
verið keypt.
Von der Leyen sagði að með
þessum kaupum hefði ESB nú að-
gang að 2,6 milljörðum skammta frá
þremur mismunandi framleiðendum
sem hafa fengið markaðsleyfi og
þremur til viðbótar sem séu á leið-
inni. Verða skammtarnir afhentir í
ár og næsta ár, en sambandið stefn-
ir að því að 70% allra fullorðinna
einstaklinga innan þess hafi fengið
tvær bólusetningar fyrir miðjan
september.
Evrópusambandið hefur nú
tryggt sér mun fleiri skammta en
það þarf til þess að bólusetja þær
450 milljónir manna sem búa í aðild-
arríkjunum 27. Sagði von der Leyen
að umframbirgðirnar myndu renna
til nágrannaríkja sambandsins, og
bætti við að ESB vildi einnig með
þessu tryggja sig fyrir því ef frekari
stökkbreytingar kæmu fram á kór-
ónuveirunni. „Við þurfum ávallt að
vera á verði til að geta, ef afbrigði
sleppa laus, barist við þau með
bættum bóluefnum,“ sagði von der
Leyen.
Kallar eftir alheimsáætlun
Antonio Guterres, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, kallaði í
gær eftir því að ríki heims kæmu
sér saman um allsherjaráætlun til
að bólusetja gegn kórónuveirunni,
þar sem ójöfnuður í bólusetningar-
herferðum gæti ógnað bæði heilsu-
fari og efnahag allra ríkja.
Guterres lét ummælin falla í upp-
hafi sérstaks fundar utanríkisráð-
herra ríkjanna sem nú skipa örygg-
isráð Sameinuðu þjóðanna. Sagði
hann að tíu þjóðir hefðu séð um 75%
allra þeirra bólusetninga sem þegar
hafa átt sér stað, og að 130 ríki
hefðu ekki náð að bólusetja neinn.
„Fái veiran að dreifa sér eins og
sinueldur um suðurhvel jarðar mun
hún stökkbreytast aftur og aftur.
Ný afbrigði gætu orðið meira smit-
andi, banvænni og ógnað virkni nú-
verandi bóluefna og meðferðar-
úrræða,“ sagði Guterres, og varaði
við að slíkt gæti framlengt heims-
faraldurinn verulega.
Kaupa 300 milljónir skammta
Evrópusambandið hefur tryggt sér 2,6 milljarða skammta af bóluefni gegn kór-
ónuveirunni Guterres varar við afleiðingum þess að suðurhvelið verði út undan
Að minnsta kosti 21 maður hefur lát-
ist af völdum vetrarstormsins, sem
geisað hefur um suðurhluta Banda-
ríkjanna undanfarna daga. Þá þurftu
milljónir Bandaríkjamanna að glíma
við afleiðingar kuldans án aðgangs
að hita eða rafmagni.
Ástandið er sagt einna verst í Tex-
as, en áætlað var að um 2,5 milljónir
manna væru enn án rafmagns þar í
gær og fyrrinótt, en orkuinnviðir
ríkisins þoldu ekki aukna eftirspurn
vegna kuldans. Hafa margir Tex-
asbúar því verið án rafmagns síðan
um helgina þegar kuldakastið hófst.
Snjór er einkar sjaldséður í Texas-
ríki en engu að síður hafa viðbrögð
ríkisins þótt vera slæleg. Hafa reiðir
íbúar þar kallað eftir því að rann-
sakað verði hvers vegna ríkið var
ekki betur undirbúið fyrir óveður
sem þetta, og þá sérstaklega hvað
fór úrskeiðis í orkukerfi Texas.
Rúmlega 71% undir snjó
Veðurstofa Bandaríkjanna greindi
frá því í gær að meira en 150 millj-
ónir Bandaríkjamanna byggju á
svæðum þar sem viðvaranir vegna
vetrarveðursins hafa verið gefnar út.
Þá var rúmlega 71% Bandaríkjanna
sagt snævi þakið í gær.
Talið er að vetrarhörkurnar muni
vara fram að helgi hið minnsta, en
dauðsföll vegna þeirra hafa verið
skráð í ríkjunum Texas, Louisiana,
Kentucky, Norður-Karólínu og
Missouri.
Sum dauðsföllin voru rakin til um-
ferðarslysa, en lögreglan í Houston
greindi frá því að kona og dóttir
hennar hefðu dáið eftir að þær sátu í
bifreið í lokuðum bílskúr, sem höfð
var í gangi til að halda á þeim hita.
Höfðu fleiri dáið í borginni vegna
kolmonoxíð-eitrunar, þar sem þeir
höfðu sett upp rafala innandyra til
þess að halda á sér hita. Sagði emb-
ættismaður í heilbrigðiskerfi Hou-
ston-borgar að um algjört neyðar-
ástand væri að ræða.
Vetrarhörkur
kalla á rannsókn
Minnst 21 látinn vegna kuldakastsins
AFP
Texas Langar raðir hafa myndast
fyrir framan stórmarkaði og versl-
anir í Texas vegna kuldakastsins.
Dominic Raab, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði í gær að mynd-
bönd sem birst hafa af Latífu prins-
essu, dóttur emírsins af Dúbaí, á
netinu, yllu sér miklum áhyggjum.
Munu Bretar fylgjast grannt með
viðbrögðum Sameinuðu þjóðanna
við myndböndunum, en þar lýsir
Latífa því hvernig henni sé haldið í
stofufangelsi í villu sinni.
Latífa reyndi að flýja Sameinuðu
arabísku furstadæmin í mars 2018
á báti, en var gripin af landhelgis-
gæslu ríkisins. Síðan þá hefur hún
ekki sést á almannafæri.
Myndböndin voru tekin upp í
fyrra, en vinir hennar ákváðu að
birta þau nú, þar sem þeir hafa ekki
heyrt frá henni í nokkurn tíma.
BRETLAND
Ákall Latífa í einu af myndböndunum
þar sem hún lýsir neyð sinni.
Ákall prinsessunnar
veldur áhyggjum
Tugþúsundir komu saman í Jangon, stærstu
borg Búrma, í gær til þess að mótmæla valdaráni
hersins þar í landi. Voru þetta fjölmennustu mót-
mælin síðan herforingjastjórnin fór að beita auk-
inni hörku til að kveða þau niður.
Tom Andrews, sérstakur fulltrúi SÞ, varaði
við því að herinn kynni brátt að grípa til ör-
þrifaráða, en aukinn liðstyrkur var sendur til
Jangon vegna mótmælanna í gær.
AFP
Ein fjölmennustu mótmælin til þessa
Bandaríski útvarpsmaðurinn Rush
Limbaugh er látinn, 70 ára að aldri.
Eiginkona hans, Kathryn Adams,
greindi frá andlátinu í útvarpsþætti
hans í gær en Limbaugh glímdi við
lungnakrabbamein.
Limbaugh, sem fæddist 12. janúar
1951, var í gegnum tíðina áhrifa-
mikill álitsgjafi á hægri væng
bandarískra stjórnmála og stjórnaði
eigin útvarpsþætti í áraraðir. Þótti
hann sérlega umdeildur vegna skoð-
ana sinna og hafa ýmis ummæli
hans verið sögð bera vott um kven-
fyrirlitningu, hommahatur og kyn-
þáttahyggju.
Þrír forsetar komu sem gestir í
þátt hans og Limbaugh hlaut frels-
isverðlaun Bandaríkjaforseta í
fyrra. Hann var ákafur stuðnings-
maður Donalds Trumps, fyrrver-
andi forseta. Um 27 milljónir manna
hlustuðu á þátt hans í hverri viku.
BANDARÍKIN
Hinn umdeildi Rush
Limbaugh látinn