Morgunblaðið - 18.02.2021, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Laserlyfting
Náttúruleg andlitslyfting
Byltingarkennd tækni ímeðferð á línum,
hrukkumog slappri húð!
Þéttir
slappa húð
á andliti og
hálsi!
Styrkir húðina og losar þig
við hrukkur og slappa húð á
andliti, hálsi, svæði undir höku,
bringu og handarbökum.
Spornar einnig við öldrun
húðarinnar ásamt því
að lífga upp á útlit þitt.
Páll Gíslason
palli@fi.is
Mosfellsheiði er víðlent heiðarflæmi á
suðvesturhorni landsins. Má með
nokkurri einföldun segja að Þing-
vallavegur og Suðurlandsvegur
rammi heiðina inn að norðan- og
sunnanverðu, hún nái að íbúðarbyggð
í Mosfellsbæ að vestanverðu og lang-
leiðina að Þingvallavatni í austri.
Heiðin er innan lögsögumarka sex
sveitarfélaga. Þau eru Mosfellsbær,
Reykjavíkurborg, Bláskógabyggð,
Grímsnes- og Grafningshreppur,
Sveitarfélagið Ölfus og Kópavogs-
bær. Eignarhaldið er ýmist á hendi
sveitarfélaganna sjálfra eða ein-
stakra bújarða en nafn heiðarinnar
vísar til prestssetursins á Mosfelli í
Mosfellsdal sem átti vesturhluta
heiðarinnar til ársins 1933 þegar ís-
lenska ríkið festi kaup á þeim hluta.
Mosfellsheiði rís hæst 410 m y.s. í
Borgarhólum sem eru kulnuð eld-
stöð. Eldvirkni hefur verið víðar á há-
heiðinni enda er hún að stórum hluta
þakin grónum hraunum. Víðfeðmir
melar og móar, grashvammar og
tjarnir setja einnig sterkan svip á
náttúru heiðarinnar.
Fyrir tveimur árum kom út göngu-
leiðaritið Mosfellsheiðarleiðir sem
Ferðafélag Íslands gaf út. Í ritinu eru
lýsingar á samtals 23 leiðum. Tólf
þeirra eru gamlar þjóðleiðir, sex
hringleiðir og fimm línuvegir.
Höfundarnir Bjarki Bjarnason,
Jón Svanþórsson og Margrét Svein-
björnsdóttir eru öll þaulkunnug heið-
inni og hafa gengið hana þvera og
endilanga á undanförnum árum.
Nokkrir lykilstaðir eru á Mosfells-
heiði og frá þeim liggja síðan áhuga-
verðar gönguleiðir.
Bringur
Ekið er austur Mosfellsdal í átt til
Þingvalla. Beygt er til hægri af Þing-
vallavegi ofan við Gljúfrastein og síð-
an farið eftir allgrófum malarvegi um
900 metra leið að eyðijörðinni Bring-
um, þar sem hægt er að leggja bílum.
Náttúrufegurð er mikil í Bringum,
útsýni til hafs og mannvistarleifar frá
þeim tíma þegar búseta var þar.
Náttúran og sagan voru aðal-
ástæður þess að hluti af Bringna-
jörðinni var gerður að fólkvangi árið
2014. Hægt er að ganga hringleið um
fólkvanginn eftir göngustíg sem ligg-
ur frá bílastæðinu, fyrst niður að
Köldukvísl, þar sem getur að líta tóft-
ir Helgusels, síðan upp með ánni að
Helgufossi og loks í norðurátt að bæj-
arrústum ofarlega í túninu og til baka
á bílastæðið. Sú ganga tekur um 40
mínútur. Þeir sem kjósa lengri ferðir
geta valið um sjö leiðir sem eiga upp-
haf sitt hér.
Skeggjastaðir
Leiðin að Skeggjastöðum liggur til
norðurs af Þingvallavegi efst í Mos-
fellsdal, á móts við bæinn Selja-
brekku. Eftir að hafa ekið 2,2 km í
norðurátt komum við að Skeggja-
stöðum sem var landnámsjörðin í
Mosfellssveit eins og fram kemur í
Landnámu: „Þórðr skeggi hét maðr.
Hann var sonr Hrapps Bjarnarsonar
bunu. Þórðr átti Vilborgu Ósvalds-
dóttur. Helga hét dóttir þeira. Hana
átti Ketilbjörn inn gamli. Þórðr fór til
Íslands ok nam land með ráði Ingólfs
í hans landnámi á milli Úlfarsár ok
Leiruvágs. Hann bjó á Skeggjastöð-
um. Frá Þórði er margt stórmenni
komit á Íslandi.“ Með þennan fróð-
leiksmola úr Landnámu í veganesti
hefjum við för okkar um Stardalsleið.
Vilborgarkelda
Vilborgarkelda, oft kölluð Keldan,
er blautlent og grasi gróið landsvæði
í 220 metra hæð yfir sjávarmáli, aust-
arlega á Mosfellsheiði. Þeir sem
hyggjast fara þangað og koma akandi
yfir Mosfellsheiði eftir Þingvallavegi
beygja til hægri inn á Grafningsveg og
síðan fljótlega aftur til hægri við Gísl-
hól, á móts við gámasvæði sem þar er.
Þá erum við komin á Þingvallaveginn
frá árinu 1930 sem liggur hér ofan á
Gamla Þingvallaveginum frá 1896.
Farið er um Harðavöll, Ferða-
mannahorn og Þorgerðarflöt. Eftir 2,8
km akstur komum við í Vilborgar-
keldu.
Draugatjörn
Leiðin að Draugatjörn liggur frá
Suðurlandsvegi fyrst í áttina að
Hellisheiðarvirkjun, fram hjá stöðv-
arhúsinu og síðan til vinstri, inn á
gamla þjóðveginn sem lagður var frá
Reykjavík og austur yfir Hellisheiði á
árunum 1876-1878 og var þjóðbrautin
austur fyrir Fjall til ársins 1958.
Á mótum nýja og gamla vegarins er
við hæfi að staldra við og horfa heim
að Kolviðarhóli og jafnvel að aka
þangað um leið og við rifjum upp þá
tíma þegar staðurinn var í alfaraleið
og gestkvæmt var á Hólnum. Grasi
gróin veggjabrot minna á blómlegt
mannlíf og merka sögu á horfinni öld
og skammt frá bæjarhólnum má sjá
stóran, stakan klett. Þetta er Búa-
steinn, nefndur eftir Búa Andríðssyni
í Kjalnesingasögu en samkvæmt
henni banaði hann Kolfinni og mönn-
um hans á þessum slóðum.
Eftir þennan krók á vit sögunnar
ökum við stuttan spöl eftir veginum í
vesturátt, fram hjá Húsmúlarétt sem
var byggð árið 1967 og endurbyggð
2006. Loks er beygt til hægri á vega-
mótum og fljótlega komum við að
læstu hliði á veginum. Þar leggjum við
bílnum.
Lyklafell
Við Lyklafell á sunnanverðri Mos-
fellsheiði eru hreppamörk, sýslumörk
og vegamót margra leiða sem áður
voru fjölfarnar. Lyklafell var því sann-
kallaður lykilstaður og gæti það verið
skýring á nafninu, þótt þjóðsögur hafi
tengt það við lykla Skálholtsstaðar.
Sunnan við fellið eru Vatnavellir við
Fóelluvötn sem voru algengur nátt-
staður ferðamanna á fyrri tíð.
Hægt er að aka í áttina að Lyklafelli
eftir vegi sem liggur með fram Búr-
fellslínu 3. Beygt er af Suðurlandsvegi
til norðurs inn á línuveginn en vegna
aðgreiningar akstursleiða á Suður-
landsvegi er aðeins hægt að aka inn á
hann þegar komið er úr austri. Þeir
sem eru á austurleið þurfa því að aka
að Bláfjallavegi, snúa þar við og aka til
baka smáspöl í áttina að Reykjavík
þar til beygt er til hægri inn á línuveg-
inn. Hafa skal allan varann á, því að
þarna þrengist þjóðvegurinn í eina ak-
rein í hvora átt og þar er engin vegöxl.
Línuvegurinn liggur norður yfir
Fossvallaá um Vatnahæð að vega-
mótum við dælustöð. Þar er beygt til
hægri og ekið í áttina að fjallinu eftir
vegi sem lagður var vegna lagningar
á heitavatnsleiðslu. Þegar við komum
að öðrum vegamótum beygjum við til
vinstri inn á línuveg og komum fljót-
lega á stórt plan þar sem gott er að
leggja bílum.
Elliðakot
Elliðakot er fornt býli í sunnan-
verðri Mosfellssveit. Það hét fyrst
Hellar og síðan Helliskot fram á síð-
ari hluta 19. aldar. Bærinn fór í eyði
um miðja síðustu öld en fyrrum var
Elliðakot þekktur áningarstaður
ferðamanna af Suðurlandi sem gistu
þar gjarnan áður en þeir lögðu í síð-
asta áfangann til Reykjavíkur. Þeir
sem koma akandi úr Reykjavík og
hyggjast fara að Elliðakoti beygja af
Suðurlandsvegi (nr. 1) til vinstri
skammt austan við býlið Gunn-
arshólma. Við vegamótin er skilti
með bæjarnafninu Elliðakot. Ekið er
yfir brú á Hólmsá og gegnum sum-
arhúsahverfi og þá komum við fljót-
lega að rústum Elliðakots þar sem
við leggjum bílnum og höldum af
stað, gangandi eða ríðandi.
Djúpidalur
Stysta leiðin frá Reykjavík í
Djúpadal liggur um Suðurlandsveg
og síðan er beygt inn á Hafravatns-
veg. Eftir 4,6 km akstur eftir þeim
vegi er komið að gatnamótum. Á
vinstri hönd liggur vegur að Hafra-
vatni en við höldum áfram inn á
Nesjavallaleið. Okkur ber fljótlega
upp á Rjúpnaás þar sem við beygjum
til hægri inn á sumarbústaðaveg og
leggjum bílnum þar á litlu stæði. Hér
blasir Djúpidalur við okkur en hann
var fyrrum vinsæll áningarstaður
hestamanna. Þar var haldin mikil
veisla til heiðurs Friðriki VIII. kon-
ungi og föruneyti hans þegar hann
ferðaðist til Þingvalla sumarið 1907.
Seljadalur
Til að komast að lykilstaðnum
Seljadal er beygt af Hafravatnsvegi
inn á veg sem liggur að bænum Þor-
móðsdal. Á hægri hönd niðar Selja-
dalsá en snemma á 20. öld var grafið
eftir gulli við ána með litlum árangri.
Leið okkar liggur fram hjá Þormóðs-
dal og áfram að stórri grjótnámu þar
sem unnið hefur verið efni í malbik.
Þar beygjum við til hægri og komum
fljótlega á malarplan sem er ágætt
bíla stæði. Þar tökum við fram
gönguskóna, fjallahjólið eða leggjum
hnakk á hest.
Heimildir: www.fi.is
Mosfellsheiðarleiðir, 2019,
Ferðafélag Íslands.
Mosfells-
heiðarleiðir
Mosfellsheiði er víðlent heiðarflæmi á suðvestur-
horni landsins. Má með nokkurri einföldun segja
að Þingvallavegur og Suðurlandsvegur rammi
heiðina inn að norðan- og sunnanverðu, hún nái
að íbúðarbyggð í Mosfellsbæ að vestanverðu og
langleiðina að Þingvallavatni í austri.
Ljósmynd/Sigurjón Pétursson
Guðnahellir undir Illaklifi skammt frá Leirvogsvatni.
Ljósmynd/Þóra Hrönn Njálsdóttir
Tröllafoss í Leirvogsá er á náttúruminjaskrá.
Ljósmynd/Sigurjón PéturssonÞað er víða mikil náttúrufegurð á Mosfellsheiði.
Guggavarðan
stendur við
Seljadalsleið á
norðanverðri
Mosfellsheiði.
Ferðalög á