Morgunblaðið - 18.02.2021, Page 40

Morgunblaðið - 18.02.2021, Page 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2 Laserlyfting Náttúruleg andlitslyfting Byltingarkennd tækni ímeðferð á línum, hrukkumog slappri húð! Þéttir slappa húð á andliti og hálsi! Styrkir húðina og losar þig við hrukkur og slappa húð á andliti, hálsi, svæði undir höku, bringu og handarbökum. Spornar einnig við öldrun húðarinnar ásamt því að lífga upp á útlit þitt. Páll Gíslason palli@fi.is Mosfellsheiði er víðlent heiðarflæmi á suðvesturhorni landsins. Má með nokkurri einföldun segja að Þing- vallavegur og Suðurlandsvegur rammi heiðina inn að norðan- og sunnanverðu, hún nái að íbúðarbyggð í Mosfellsbæ að vestanverðu og lang- leiðina að Þingvallavatni í austri. Heiðin er innan lögsögumarka sex sveitarfélaga. Þau eru Mosfellsbær, Reykjavíkurborg, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Sveitarfélagið Ölfus og Kópavogs- bær. Eignarhaldið er ýmist á hendi sveitarfélaganna sjálfra eða ein- stakra bújarða en nafn heiðarinnar vísar til prestssetursins á Mosfelli í Mosfellsdal sem átti vesturhluta heiðarinnar til ársins 1933 þegar ís- lenska ríkið festi kaup á þeim hluta. Mosfellsheiði rís hæst 410 m y.s. í Borgarhólum sem eru kulnuð eld- stöð. Eldvirkni hefur verið víðar á há- heiðinni enda er hún að stórum hluta þakin grónum hraunum. Víðfeðmir melar og móar, grashvammar og tjarnir setja einnig sterkan svip á náttúru heiðarinnar. Fyrir tveimur árum kom út göngu- leiðaritið Mosfellsheiðarleiðir sem Ferðafélag Íslands gaf út. Í ritinu eru lýsingar á samtals 23 leiðum. Tólf þeirra eru gamlar þjóðleiðir, sex hringleiðir og fimm línuvegir. Höfundarnir Bjarki Bjarnason, Jón Svanþórsson og Margrét Svein- björnsdóttir eru öll þaulkunnug heið- inni og hafa gengið hana þvera og endilanga á undanförnum árum. Nokkrir lykilstaðir eru á Mosfells- heiði og frá þeim liggja síðan áhuga- verðar gönguleiðir. Bringur Ekið er austur Mosfellsdal í átt til Þingvalla. Beygt er til hægri af Þing- vallavegi ofan við Gljúfrastein og síð- an farið eftir allgrófum malarvegi um 900 metra leið að eyðijörðinni Bring- um, þar sem hægt er að leggja bílum. Náttúrufegurð er mikil í Bringum, útsýni til hafs og mannvistarleifar frá þeim tíma þegar búseta var þar. Náttúran og sagan voru aðal- ástæður þess að hluti af Bringna- jörðinni var gerður að fólkvangi árið 2014. Hægt er að ganga hringleið um fólkvanginn eftir göngustíg sem ligg- ur frá bílastæðinu, fyrst niður að Köldukvísl, þar sem getur að líta tóft- ir Helgusels, síðan upp með ánni að Helgufossi og loks í norðurátt að bæj- arrústum ofarlega í túninu og til baka á bílastæðið. Sú ganga tekur um 40 mínútur. Þeir sem kjósa lengri ferðir geta valið um sjö leiðir sem eiga upp- haf sitt hér. Skeggjastaðir Leiðin að Skeggjastöðum liggur til norðurs af Þingvallavegi efst í Mos- fellsdal, á móts við bæinn Selja- brekku. Eftir að hafa ekið 2,2 km í norðurátt komum við að Skeggja- stöðum sem var landnámsjörðin í Mosfellssveit eins og fram kemur í Landnámu: „Þórðr skeggi hét maðr. Hann var sonr Hrapps Bjarnarsonar bunu. Þórðr átti Vilborgu Ósvalds- dóttur. Helga hét dóttir þeira. Hana átti Ketilbjörn inn gamli. Þórðr fór til Íslands ok nam land með ráði Ingólfs í hans landnámi á milli Úlfarsár ok Leiruvágs. Hann bjó á Skeggjastöð- um. Frá Þórði er margt stórmenni komit á Íslandi.“ Með þennan fróð- leiksmola úr Landnámu í veganesti hefjum við för okkar um Stardalsleið. Vilborgarkelda Vilborgarkelda, oft kölluð Keldan, er blautlent og grasi gróið landsvæði í 220 metra hæð yfir sjávarmáli, aust- arlega á Mosfellsheiði. Þeir sem hyggjast fara þangað og koma akandi yfir Mosfellsheiði eftir Þingvallavegi beygja til hægri inn á Grafningsveg og síðan fljótlega aftur til hægri við Gísl- hól, á móts við gámasvæði sem þar er. Þá erum við komin á Þingvallaveginn frá árinu 1930 sem liggur hér ofan á Gamla Þingvallaveginum frá 1896. Farið er um Harðavöll, Ferða- mannahorn og Þorgerðarflöt. Eftir 2,8 km akstur komum við í Vilborgar- keldu. Draugatjörn Leiðin að Draugatjörn liggur frá Suðurlandsvegi fyrst í áttina að Hellisheiðarvirkjun, fram hjá stöðv- arhúsinu og síðan til vinstri, inn á gamla þjóðveginn sem lagður var frá Reykjavík og austur yfir Hellisheiði á árunum 1876-1878 og var þjóðbrautin austur fyrir Fjall til ársins 1958. Á mótum nýja og gamla vegarins er við hæfi að staldra við og horfa heim að Kolviðarhóli og jafnvel að aka þangað um leið og við rifjum upp þá tíma þegar staðurinn var í alfaraleið og gestkvæmt var á Hólnum. Grasi gróin veggjabrot minna á blómlegt mannlíf og merka sögu á horfinni öld og skammt frá bæjarhólnum má sjá stóran, stakan klett. Þetta er Búa- steinn, nefndur eftir Búa Andríðssyni í Kjalnesingasögu en samkvæmt henni banaði hann Kolfinni og mönn- um hans á þessum slóðum. Eftir þennan krók á vit sögunnar ökum við stuttan spöl eftir veginum í vesturátt, fram hjá Húsmúlarétt sem var byggð árið 1967 og endurbyggð 2006. Loks er beygt til hægri á vega- mótum og fljótlega komum við að læstu hliði á veginum. Þar leggjum við bílnum. Lyklafell Við Lyklafell á sunnanverðri Mos- fellsheiði eru hreppamörk, sýslumörk og vegamót margra leiða sem áður voru fjölfarnar. Lyklafell var því sann- kallaður lykilstaður og gæti það verið skýring á nafninu, þótt þjóðsögur hafi tengt það við lykla Skálholtsstaðar. Sunnan við fellið eru Vatnavellir við Fóelluvötn sem voru algengur nátt- staður ferðamanna á fyrri tíð. Hægt er að aka í áttina að Lyklafelli eftir vegi sem liggur með fram Búr- fellslínu 3. Beygt er af Suðurlandsvegi til norðurs inn á línuveginn en vegna aðgreiningar akstursleiða á Suður- landsvegi er aðeins hægt að aka inn á hann þegar komið er úr austri. Þeir sem eru á austurleið þurfa því að aka að Bláfjallavegi, snúa þar við og aka til baka smáspöl í áttina að Reykjavík þar til beygt er til hægri inn á línuveg- inn. Hafa skal allan varann á, því að þarna þrengist þjóðvegurinn í eina ak- rein í hvora átt og þar er engin vegöxl. Línuvegurinn liggur norður yfir Fossvallaá um Vatnahæð að vega- mótum við dælustöð. Þar er beygt til hægri og ekið í áttina að fjallinu eftir vegi sem lagður var vegna lagningar á heitavatnsleiðslu. Þegar við komum að öðrum vegamótum beygjum við til vinstri inn á línuveg og komum fljót- lega á stórt plan þar sem gott er að leggja bílum. Elliðakot Elliðakot er fornt býli í sunnan- verðri Mosfellssveit. Það hét fyrst Hellar og síðan Helliskot fram á síð- ari hluta 19. aldar. Bærinn fór í eyði um miðja síðustu öld en fyrrum var Elliðakot þekktur áningarstaður ferðamanna af Suðurlandi sem gistu þar gjarnan áður en þeir lögðu í síð- asta áfangann til Reykjavíkur. Þeir sem koma akandi úr Reykjavík og hyggjast fara að Elliðakoti beygja af Suðurlandsvegi (nr. 1) til vinstri skammt austan við býlið Gunn- arshólma. Við vegamótin er skilti með bæjarnafninu Elliðakot. Ekið er yfir brú á Hólmsá og gegnum sum- arhúsahverfi og þá komum við fljót- lega að rústum Elliðakots þar sem við leggjum bílnum og höldum af stað, gangandi eða ríðandi. Djúpidalur Stysta leiðin frá Reykjavík í Djúpadal liggur um Suðurlandsveg og síðan er beygt inn á Hafravatns- veg. Eftir 4,6 km akstur eftir þeim vegi er komið að gatnamótum. Á vinstri hönd liggur vegur að Hafra- vatni en við höldum áfram inn á Nesjavallaleið. Okkur ber fljótlega upp á Rjúpnaás þar sem við beygjum til hægri inn á sumarbústaðaveg og leggjum bílnum þar á litlu stæði. Hér blasir Djúpidalur við okkur en hann var fyrrum vinsæll áningarstaður hestamanna. Þar var haldin mikil veisla til heiðurs Friðriki VIII. kon- ungi og föruneyti hans þegar hann ferðaðist til Þingvalla sumarið 1907. Seljadalur Til að komast að lykilstaðnum Seljadal er beygt af Hafravatnsvegi inn á veg sem liggur að bænum Þor- móðsdal. Á hægri hönd niðar Selja- dalsá en snemma á 20. öld var grafið eftir gulli við ána með litlum árangri. Leið okkar liggur fram hjá Þormóðs- dal og áfram að stórri grjótnámu þar sem unnið hefur verið efni í malbik. Þar beygjum við til hægri og komum fljótlega á malarplan sem er ágætt bíla stæði. Þar tökum við fram gönguskóna, fjallahjólið eða leggjum hnakk á hest. Heimildir: www.fi.is Mosfellsheiðarleiðir, 2019, Ferðafélag Íslands. Mosfells- heiðarleiðir Mosfellsheiði er víðlent heiðarflæmi á suðvestur- horni landsins. Má með nokkurri einföldun segja að Þingvallavegur og Suðurlandsvegur rammi heiðina inn að norðan- og sunnanverðu, hún nái að íbúðarbyggð í Mosfellsbæ að vestanverðu og langleiðina að Þingvallavatni í austri. Ljósmynd/Sigurjón Pétursson Guðnahellir undir Illaklifi skammt frá Leirvogsvatni. Ljósmynd/Þóra Hrönn Njálsdóttir Tröllafoss í Leirvogsá er á náttúruminjaskrá. Ljósmynd/Sigurjón PéturssonÞað er víða mikil náttúrufegurð á Mosfellsheiði. Guggavarðan stendur við Seljadalsleið á norðanverðri Mosfellsheiði. Ferðalög á

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.