Morgunblaðið - 18.02.2021, Blaðsíða 42
Þannig hefst grein í tímariti Opruh
Winfrey um undravöruna Fresh-
Paper sem farið hefur eins og eldur í
sinu um heiminn. Shukla nýtti form-
úlu ömmu sinnar til að búa til þunn,
niðurbrjótanleg blöð sem á að setja í
grænmetis- eða ávaxtageymslur og
margfalda líftíma þess sem þar er
geymt.
Varan hefur verið kölluð
byltingarkennd en það er aðeins brot
af því sem sagt hefur verið og skrifað
um Kavitu Shukla og FreshPaper.
Blöð á borð við TIME, The New
York Times, Forbes og Washington
Post hafa keppst við að hlaða hana og
FreshPaper lofi og tala um vöruna
sem byltingarkennda.
FreshPaper hefur með-
al annars fengið hin virtu
INDEX-verðlaun sem
verðlaunar hönnun sem
eykur lífsgæði jarðarbúa en
meðal fyrri verðlaunahafa
eru Apple og Tesla.
Shukla er í samstarfi við
góðgerðarsamtök víða um
heim til að koma FreshPaper
til fólks í þróunarlöndum sem
hefur lélega aðstöðu til að
geyma mat og til smábænda á
Indlandi og Afríku til að afurðir
þeirra skemmist ekki á leiðinni
á markað.
Blöðin eru uppbyggð úr líf-
rænum kryddum sem hindra vöxt
baktería og sveppa og koma þannig í
veg fyrir vöxt ensíma sem valda of-
þroskun náttúruafurða.
Blöðin virka á ávexti, grænmeti og
mikið magn af vörum þá má fjölga
blöðunum.
Eftir að blöðin eru tekin í notkun
endast þau í allt að mánuð en auðvelt
er að finna hvenær þau hætta að
virka, því þá hverfur lyktin af þeim.
Blöðin geta enst í allt að tvö ár í upp-
haflegum umbúðum.
Kraftaverkablöðin sem
eru að breyta heiminum
Þegar Kavita Shukla heimsótti ömmu sína til Indlands sem ung stúlka burst-
aði hún tennurnar óvart upp úr kranavatni. Amma hennar bjó til blöndu fyrir
hana úr nokkrum kryddtegundum sem hún lét hana drekka til að hún yrði ekki
veik. Heima í Bandaríkjunum uppgötvaði Shukla að kryddblandan kom í veg
fyrir að bakteríur fjölguðu sér og þannig hófst ævintýrið.
ferskar krydd-
jurtir. Það eina
sem þarf að gera er að setja blað í
opna ísskápsskúffu, öskju, poka eða
ílát sem inniheldur ofangreindar
vörur.
Ekki er þörf á að einangra hverja
vöru fyrir sig en ef um er að ræða
Konur sem breyta
heiminum Kavita
Shukla ásamt Op-
ruh Winfrey.
Að sögn Jóhannesar Ásbjörnssonar, eins eig-
enda Gleðipinna sem reka Hamborgrara-
fabrikkuna, er Vargurinn vinsælasti „off menu“-
hamborgari Hamborgarafabrikkunnar
sem klárast alltaf fljótt. Borgarinn sé
aðeins seinna á ferðinni en venjulega
þar sem Vargurinn hafi sjálfur
skotið og verkað allar gæsirnar.
Það er meistarakokkurinn Eyþór
Rúnarsson, sem hefur umsjón með
allri vöruþróun Fabrikkunnar, sem sá
um hönnun. „Við erum að tala um 130
gramma gæsaborgara í dúnmjúku
kartöflubrauði með villisveppa-
ostasósu, hindberjalauksultu og
rambósalati,“ segir Jóhannes og
segist í skýjunum með útkomuna.
Hver er þessi Vargur?
Vargurinn ætti að vera flestum kunnugur
en hans rétta nafn er Snorri Rafnsson og er
hann einn afkastamesti og reyndasti veiðimaður
landsins. Hefur Snorri stundað veiðimennsku
alla sína tíð og í dag er hann veiðimaður að at-
vinnu og veiðir mink, ref, gæs og önd. Snorri á
fjölda veiðihunda sem hann hefur þjálfað sjálfur
frá grunni. Snorri er vinsæll á samfélagsmiðlum
enda gefur veiðimennska hans innsýn í veröld
sem er mörgum hulin.
Morgunblaðið/Eggert
Tveir hressir Jóhannes Ásbjörnsson og Snorri Rafnsson, betur þekktur sem Vargurinn.
Vargurinn er kom-
inn í nýrri útfærslu
Villibráðarunnendur geta tekið gleði sína því einn vinsælasti
hamborgari allra tíma er kominn aftur í sölu. Um er að ræða hinn
goðsagnakennda gæsaborgara sem kemur alltaf í takmarkaðan
tíma og vekur verðskuldaða athygli.
Kominn aftur Vargurinn
hefur verið vinsælasti
„off menu“-hamborg-
arinn á Fabrikkunni.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021
Expended - 2 litir
Verð: 15.995.-
Stærðir: 41 - 47,5
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Glæsileg borðstofuhúsgögnum
frá CASÖ í Danmörku