Morgunblaðið - 18.02.2021, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 18.02.2021, Blaðsíða 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021 ✝ Erla Stef-ánsdóttir fæddist á Ak- ureyri 4. ágúst árið 1936. Hún lést á Dval- arheimilinu Hlíð 19. janúar 2021. Foreldrar hennar voru hjón- in Sigurleif Að- alrós Tryggva- dóttir og Stefán Kristinn Kristjánsson. Systir Erlu, Oddný Sigurrós, lést ár- ið 2015. Erla fæddist í Sand- vík, Bótinni á Akureyri, en fluttist á barnsaldri í húsið Straumnes sem nú er Lyng- holt 11. Foreldrar hennar byggðu það hús og þar var Erla búsett allt þar til hún fór á hjúkrunarheim- ilið Lögmannshlíð fyrir sex árum. Dvöl hennar var þó ekki löng þar því hún flutti sig fljótlega á hjúkr- unarheimilið Hlíð. Erla bjó lengi með móður sinni eftir að faðir hennar féll frá árið 1958. Erla gerðist starfsmaður Kaupfélags Eyfirðinga, vann síðan hjá Slippstöðinni þar til hún hætti að vinna. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þessi frænka mín var mér mjög kær og höfum við átt margar gæðastundir saman í gegnum árin. Mínar fyrstu minningar tengjast dvöl þeirra mæðgna, Erlu og móður hennar Sig- urleifar, hjá foreldrum mínum á Rauðarárstíg í Reykjavík. Ég var barn að aldri og þær komu til að leita sér lækn- ishjálpar, man ég að þær mæðgur sváfu á eldhúsgólfinu hjá okkur. Húsnæðið var þröngt, 1 herbergi og örlítið eldhús. Það fylgdu þeim skemmtilegar umræður og prjónaskapur. Ég kom fyrst til Akureyrar 15 ára gömul og dvaldi hjá þeim mæðgum í Lyngholti. Síðar á ævinni átti ég eftir að búa 20 ár á Akureyri. Sam- band mitt við Erlu á þessum árum einkenndist af gaman- semi, vináttu og virðingu. Erla hafði farið í skórækt- arferð til Noregs, með í þeirri för var tengdafaðir minn, Baldur Kristjánsson. Það var greinilegt að förin var vel heppnuð og þeim varð tíðrætt um þessa sameiginlegu ferð. Okkur þraut því aldrei um- ræðuefni um náttúru Noregs, firðina og fjöllin. Við höfðum afar gaman af hannyrðum sem og öðrum skapandi verkefnum. Erla ól upp að mestu leyti Sigurrós Karlsdóttur. Hún hvatti hana til dáða, til að stunda íþróttir og þá sérstak- lega sund og að ógleymdum hjólreiðum. Það að sjá Sigurrós hjóla á fullri ferð um Akureyri gleym- ist seint. Sigurrós var fyrsti Íslend- ingurinn til að vinna til gull- verðlauna á Ólympíumóti fatl- aðra 1980. Erlu var sérlega annt um dætur mínar fjórar og fylgdist vel með þroska þeirra og fram- tíðaráformum. Þegar við hjónin opnuðum sumarkaffihús á Hjalteyri í gömlu og afar niðurníddu húsi Thorsaranna á Hjalteyri, var hún tíður gestur hjá okkur og kom þá gjarnan með meðlæti með sér til okkar. Erla taldi það næringu fyrir sálina að dvelja á Hjalteyri í nálægð hafsins, flóðs og fjöru. Erla var ósérhlífin, sjálfstæð í orðum og athöfnum og skemmtileg heim að sækja, enda gisti ég oft hjá þeim mæðgum á árum áður. Þakka frænku minni sam- fylgdina öll þessi ár. Þórey Eyþórsdóttir. Erla Stefánsdóttir Ingimar Erlend- ur Sigurðsson ljóð- skáld er látinn. Ég kynntist honum fyrst árið 1994, er við lásum upp ljóð okk- ar á upplestrarsamkundu hjá Andblæ á Málstöðum. Kynnti hann sig þá fyrir okkur yngri skáldunum með því að árétta hrifningu sína á breskum ljóða- arfi. Virtist mér þá ekki bara að hann væri að prísa hin trú- hneigðari kristnu skáld þar á sautjándu og átjándu öld, held- ur hinn augljósa dugnað Breta við að halda á lofti sinni þjóð- skáldaröð, sjálfum sér og öðr- um til fordæmis og eftirbreytni. (Hefði hann einnig getað nefnt þar til lárviðarskáld Breta á nítjándu og tuttugustu öld; kosnum til lífstíðar sem op- inber hirðskáld, en sú fyrir- mynd olli því nýlega að ég fékk mig hér útnefndan sem Lárvið- arskáld Íslands!) Aftur lásum við svo saman upp það árið, í Bókabúð Máls og menningar, og svo sendi ég honum eintak af nýrri ljóðabók minni, sem hann svaraði mér óðara með því að senda mér eina af sínum eigin, til að halda Ingimar Erlendur Sigurðsson ✝ Ingimar Er-lendur Sig- urðsson fæddist 11. desember 1933. Hann lést 2. febr- úar 2021. Útför Ingimars Erlendar fór fram 9. febrúar 2021. sér í athyglis- strauminum! Ég fylgdist síðan með honum í um- ræðunni og var síð- ast frá að segja er hann sendi frá sér myndskreyttu ljóðabókina sína stóru, til myndlist- armanns nokkurs sem ég var þá að annast um á elli- heimilinu Grund! Ég held að Ingimar hefði viljað að ég minntist hans hér og nú vegna samstöðu okkar um að varðveita breska ljóða- bókmenntasýn, sem fyrirmynd að fortíðarsýn okkar eigin bók- menntasögu. Því þykir mér nú við hæfi að vitna í eitt ljóð mitt sem jafnvel Bretar gætu sett kapp sitt í, en það heitir: El- ísabet les sinn Svetóníus. Þar læt ég Elísabetu fyrstu Eng- landsdrottningu vera að hneykslast á frásögn róm- verska sagnaritarans Svetóní- usar af fyrirrennara hennar, Ágústusi Rómarkeisara; en þar læt ég hana segja svo um það í lokin: En kannski hafði þó Svetóníus skrif- að þetta í tíð seinni og verri keisara; er illt umtal var orðið kærkomið um syndir goðumlíkra fyrirrennara er afkomendurnir voru orðnir sér miklu verri …! Tryggvi V. Líndal. Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru aðgengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum. Á vefnum er að finna upplýsingar um þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber að höndum og aðrar gagnlegar upplýsingar ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Minningargreinar Hægt er að lesaminningargreinar, skrifa minningargrein ogæviágrip. Þjónustuskrá Listi yfir aðila og fyrirtæki sem aðstoða þegar andlár ber að höndum. Gagnlegar upplýsingar Upplýsingar og gátlisti fyrir aðstandendum við fráfall ástvina Minningarvefur á mbl.is Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUNNARS A. ÞORMAR tannlæknis. Kristín Þormar Andrea Þormar Atli Már Jósafatsson Ólafur Þormar Sveinbjörn Þormar Kristín Þórsdóttir Þórey, Þór, Bryndís, Elísabet, Gunnar, Jósef, Thelma Rós, Gunnar Már, Guðbjörg, Brynjar, Rakel Emma, Ísey Gunnur og Elvar Nóel Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, LAURU FREDERIKKE CLAESSEN, Aflagranda 40. Hjörtur H.R. Hjartarson Signý Halla Helgadóttir Halla Hjartardóttir Kristinn Valtýsson Eggert Hjartarson Claessen Gríma Huld Blængsdóttir Laura Hjartardóttir Walter Ragnar Kristjánsson barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir til allra er sýndu okkur hlýhug og stuðning við fráfall okkar elsku BLÆS Á.S. ÁSTRÁÐSSONAR (Ásdísar Jennu Ástráðsdóttur). Kevin Kristofer Oliversson Adam Ástráður Kristófersson Ástráður B. Hreiðarsson Anna Ingibjörg Gunnarsdóttir Arnar Ástráðsson Þorsteinn H. Ástráðsson Berglind Þóra Árnadóttir Ása María Ástráðsdóttir Soffía Sóllilja Ástráðsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, sonar, föður, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR ÁRNASONAR viðskiptafræðings, frá Litla-Hvammi, Mýrdal. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landakots, Maríuhúss og Skógarbæjar fyrir góða og hlýja umönnun. Guðlaug Ragnarsdóttir Helga Sigurðardóttir Gunnar Sigurðsson Rósa Hrönn Árnadóttir Bryngeir Sigurðsson Jóhanna Arnþórsdóttir Ragnar Steinar Bentsson Fjóla Jensen Anný Elín Bentsdóttir Jóhannes Hauksson Róbert Michael O'Neill afa- og langafabörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.