Morgunblaðið - 18.02.2021, Side 53
ÍÞRÓTTIR 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021
Það vakti athygli mína á
dögunum þegar tilkynnt var að
Hollywood-stjörnurnar Ryan
Reynolds og Rob McElhenney
hefðu fest kaup á velska knatt-
spyrnufélaginu Wrexham, sem
leikur í E-deild Englands.
Reynolds hefur verið þekktur
leikari um meira en tveggja ára-
tuga skeið og er líklega þekkt-
astur fyrir að leika titilhlutverkið
í Deadpool-myndunum. McEl-
henney er ekki jafn þekktur en
hann skapaði og leikur eitt aðal-
hlutverkanna í gamanþáttunum
It‘s Always Sunny in Phila-
delphia.
Ekki hef ég orðið var við
íþróttaáhuga Reynolds en McEl-
henney er dyggur stuðnings-
maður Philadelphia Eagles í NFL-
deildinni í amerískum fótbolta.
Hann tók enda þátt í margra
daga fagnaðarlátum borgarbúa
þegar Eagles unnu Ofurskálina
árið 2018, þá einu í sögu félags-
ins, og skrifaði tvo þætti af Al-
ways Sunny sem fjölluðu á
spaugilegan hátt um sigurinn.
En af hverju vildu þessar
Hollywood-stjörnur taka yfir lið í
E-deildinni. „Af hverju Wrexham?
Af hverju ekki!?“ spurði McEl-
henney. Þessi spurning hans
svarar vitanlega ekki nokkrum
sköpuðum hlut en þannig er að
Reynolds og McElhenney hafa
staðið í fjárfestingum í samein-
ingu undanfarin ár og vildu færa
sig í átt að eignarhaldi á íþrótta-
félagi. Það að Wrexham var alfar-
ið í eigu stuðningsmanna gerði
yfirtökuna svo fýsilega og til-
tölulega auðvelda.
Þeir félagar hafa þegar kom-
ið með fjárhagslega innspýtingu
upp á tvær milljónir punda inn í
félagið og vilja gera það að al-
þjóðlegu stórveldi. „Þetta er
þriðja elsta knattspyrnufélagið í
heiminum og við getum ekki séð
annað en það geti náð til fólks á
alþjóðavísu,“ sagði Reynolds.
Einn liður í því að ná til al-
þjóðamarkaðar er Netflix-
heimildasería sem er í bígerð í
tengslum við yfirtöku þeirra fé-
laga og hvernig framhaldið verð-
ur. Svei mér þá ef það verður
ekki bara ansi áhugavert hám-
horf þegar þar að kemur.
BAKVÖRÐUR
Gunnar Egill
Daníelsson
gunnaregill@mbl.isRafael Nadal, einn sigursælasti
tennisspilari sögunnar, er úr leik á
Opna ástralska meistaramótinu.
Nadal tapaði fyrir Grikkjanum
unga, Stefanos Tsitsipas, í fjórð-
ungsúrslitum mótsins.
Tsitsipas, sem er 22 ára gamall,
lenti tveimur settum undir, 3:6 og
2:6, en vann þrjú næstu, 7:6 eftir
upphækkun, 6:4 og 7:5 og þar með
frábæran 3:2 endurkomusigur.
Tsitsipas mun mæta Rússanum
Daniil Medvedev í undanúrslitum
mótsins á morgun en mótið er
fyrsta risamót ársins í íþróttinni.
22 ára Grikki
sló Nadal út
AFP
Sigur Stefanos Tsitsipas gat verið
ánægður með dagsverkið.
Sænskur leikmaður, Johannes Vall,
er að ganga til liðs við Íslandsmeist-
ara Vals í knattspyrnu, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Vall,
sem er 28 ára gamall, lék með
Ljungskile í sænsku B-deildinni á
síðustu leiktíð, þar sem hann byrj-
aði 27 leiki liðsins.
Vall leikur yfirleitt sem vinstri
bakvörður og er uppalinn hjá Fal-
kenbergs, en hann hefur einnig
leikið með Norrköping og Östers á
ferlinum. Þá á hann á að baki leiki
með yngri landsliðum Svíþjóðar.
bjarnih@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Valur Srdjan Tufegdzic og Heimir
Guðjónsson, þjálfarar Vals.
Svíi á leið til
Valsmanna
KÖRFUBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Keflavík sigraði Snæfell í Stykkis-
hólmi 91:79 í gærkvöldi í Dominos-
deild kvenna í körfuknattleik. Kefla-
vík er með 14 stig eftir sjö leiki og
fór á toppinn í deildinni með sigr-
inum. Heil umferð var leikin í gær og
var þremur leikjum lokið af fjórum
þegar blaðið fór í prentun.
Hólmurum gekk illa að ráða við
Danielu Wallen sem skoraði 37 stig
fyrir Keflavík. Hún sýndi afar góða
alhliða frammistöðu því hún tók
einnig 17 fráköst og stal boltanum
sjö sinnum. Katla Rún Garðarsdóttir
skoraði 16 stig fyrir Keflavík sem
skoraði 54 stig í fyrri hálfleik og
lagði þá grunninn að sigrinum.
Keflavík hefur byrjað tímabilið af
krafti og unnið fyrstu sjö leikina.
Mikil sigurhefð er hjá kvennaliði
Keflavíkur og þar tekst nánast ávallt
að tefla fram samkeppnishæfu liði.
Emese Vida var atkvæðamest hjá
Snæfelli með 22 stig og tók hún 18
fráköst en Snæfell er með 4 stig rétt
eins og Breiðablik.
Hafnfirðingar sterkari
Haukar höfðu betur gegn Breiða-
bliki þegar liðin mættust í Smár-
anum. Hafnfirðingar slitu sig frá
Blikum á síðustu tveimur mín-
útunum eða svo og tryggðu sér bæði
stigin. Haukar eru þá með 12 stig og
eru eins og áður tveimur stigum á
eftir Keflavík. Fjölnir var einnig
með 12 stig fyrir umferðina og gat
því jafnað Keflavík aftur að stigum.
Breiðablik er með 4 stig eins og
Snæfell og eru þau fjórum stigum
fyrir ofan botnliðið KR.
Landsliðskonan Þóra Kristín
Jónsdóttir var stigahæst hjá Hauk-
um með 17 stig, tók 7 fráköst og gaf
3 stoðsendingar. Eva Margrét Krist-
insdóttir skoraði 14 stig fyrir Hauka.
Birgit Ósk Snorradóttir var stiga-
hæst hjá Breiðabliki með 15 stig.
Hún stal boltanum þrívegis og tók
fimm fráköst. Sóllilja Bjarnadóttir
skoraði 11 stig fyrir Breiðablik.
Öruggt hjá Skallagrími
Bikarmeistararnir í Skallagrími
þokuðu sér lengra frá liðunum í
neðri hlutanum með öruggum sigri á
KR, 67:53, í Borgarnesi. Góð vörn
tryggði Borgnesingum stigin því
leikmenn liðsins hittu afar illa í sókn-
inni. Liðið tók alls 33 skot fyrir utan
þriggja stiga línuna og hittti aðeins
úr sex þeirra.
Sanja Orozovic skoraði 18 stig fyr-
ir Skallagrím, tók 10 fráköst og gaf 6
stoðsendingar en hún lék með KR á
síðasta keppnistímabili.
Taryn Cutcheon skoraði 17 stig
fyrir KR í leiknum og gaf 9 stoð-
sendingar. KR-liðið sem var öflugt á
síðasta tímabili bíður enn eftir sínum
fyrsta sigri á Íslandsmótinu á þessu
keppnistímabili.
Liðin hafa leikið mismarga leiki
eins og sjá má í töflunni hér til hlið-
ar. Haukar hafa til að mynda leikið
tveimur leikjum meira en Keflavík
sem hefur aðeins leikið sjö leiki. Sum
hafa lokið átta leikjum og önnur níu.
Leik Vals og Fjölnis var ekki
lokið þegar blaðið fór í prentun en
sagt er frá honum á mbl.is/sport/
korfubolti.
Keflavík með fullt
hús stiga eftir sjö leiki
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í Smáranum Þóra Kristín og Sólilja í Kópavoginum í gær.
Bikarmeistararnir í Skallagrími mjökuðu sér frá Snæfelli og Breiðabliki
„Auðvitað hefði ég viljað fara með liðið á þetta
mót og spila þessa leiki eins og til stóð,“ sagði
Þorsteinn Halldórsson, nýráðinn þjálfari íslenska
kvennalandsliðsins í knattspyrnu, í samtali við
Morgunblaðið.
Þorsteinn tók við þjálfun kvennalandsliðsins í
lok janúar og átti liðið að taka þátt í alþjóðlegu
móti í Seden í Frakklandi seinni part febrúar-
mánaðar ásamt Frakklandi, Noregi og Sviss.
Noregur ákvað hins vegar að draga sig úr
keppni vegna kórónuveirufaraldursins 9. febrúar
og degi síðar var mótinu svo aflýst.
„Aðstæður eru hins vegar eins og þær eru í
Evrópu í dag og þetta hefði í raun aldrei gengið
upp því miður. Það eru staðlaðir landsleikja-
gluggar í apríl og júní og því verður ekki breytt
þannig að ég sé ekki fram á að bæta við ein-
hverjum verkefnum hjá liðinu. Undankeppni HM
hefst í september og það er næsta stóra verkefni
hjá liðinu.
Tíminn verður að leiða það í ljós hvort það
muni hafa einhver áhrif á okkur að þessu móti var
aflýst en ég tel mig þekkja ágætlega til leikmanna
liðsins og trúi því að þetta muni ekki hafa nein
áhrif á okkur þannig lagað,“ sagði Þorsteinn.
Þjálfarinn valdi 26 manna æfingahóp á dög-
unum fyrir æfingar, dagana 16.-19. febrúar, en
aðeins leikmenn sem leika á Íslandi eru í hópnum.
„Ég vonast fyrst og fremst til þess að sjá hvar
leikmennirnir standa. Mig langar að kynnast
þeim leikmönnum, sem ég hef ekki þjálfað áður,
betur og sjá hvar þeir standa gagnvart öðrum
leikmönnum hér á landi. Eins langar mig aðeins
að fara yfir það hvernig ég vil að liðið spili undir
minni stjórn.
Ég á ekki von á því að gera einhverjar stór-
kostlegar breytingar á þeim leikmannakjarna
sem hefur verið viðloðandi landsliðið á undan-
förnum árum. Það verða hins vegar alltaf ein-
hverjar breytingar eins og gengur og gerist
vegna meiðsla og þess háttar,“ bætti landsliðs-
þjálfarinn við. bjarnih@mbl.is
Hefur vonandi engin áhrif
Morgunblaðið/Eggert
Þjálfari Þorsteinn Halldórsson tók við íslenska
kvennalandsliðinu hinn 28. janúar.
Handknattleikur
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Varmá: Afturelding – ÍBV........................ 18
Höllin Ak.: Þór – Stjarnan................... 18.30
KA-heimilið: KA – Valur...................... 19.30
Kaplakriki: FH – ÍR............................. 19.30
Hertz-höllin: Grótta – Fram................ 19.40
Í KVÖLD!
Dominos-deild kvenna
Breiðablik – Haukar............................. 60:70
Snæfell – Keflavík ................................ 79:91
Skallagrímur – ..................................... 67:53
Valur – Fjölnir ................................... (60:46)
Ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í
gærkvöldi. Sjá mbl.is/sport/korfubolti.
Staðan fyrir leik Vals og Fjölnis:
Keflavík 7 7 0 601:494 14
Haukar 9 6 3 586:543 12
Fjölnir 8 6 2 575:541 12
Valur 7 5 2 496:426 10
Skallagrímur 8 4 4 536:558 8
Snæfell 8 2 6 567:624 4
Breiðablik 9 2 7 521:571 4
KR 8 0 8 549:674 0
NBA-deildin
Boston – Denver ................................. 112:99
Memphis – New Orleans ................. 113:144
Milwaukee – Toronto ....................... 113:124
Minnesota – LA Lakers................... 104:112
Oklahoma City – Portland............... 104:115
Phoenix – Brooklyn.......................... 124:128