Morgunblaðið - 18.02.2021, Síða 55

Morgunblaðið - 18.02.2021, Síða 55
MENNING 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021 Barb og Star skreppa tilVista del Mar hefst ásvörtum skjá með orða-bókarskýringu á enska orðinu culottes, sem er eins konar buxnapils (útvíðar og hnésíðar bux- ur sem líkjast pilsi). Tvær slíkar lit- ríkar flíkur (en áhorfendur komast að óvæntum eiginleikum þeirra fyrr en varir) prýða furðu listrænt og smekklegt veggspjald myndarinnar við Laugarásbíó en þær lýsa vel sér- stæðum persónuleika titilpersón- anna. Perluvinirnir Barb (Annie Mum- olo) og Star (Kristen Wiig) eru frá- skildar konur á fimmtudagsaldri frá bænum Soft Rock í Nebraskaríki. Þær eru mestu mátar, vinna saman í húsgagnaverslun þar sem þær masa út í eitt og mæta gjarnan báðar í vinnuna þrátt fyrir að aðeins önnur þeirra eigi vakt. Í raun gera þær allt saman, deila meira að segja svefn- herbergi með samstæðum rúmum. Þegar hér er komið sögu vilja örlagaöflin þó fá fljóðin fyndnu á ferð. Sófasamsteypan verður gjald- þrota og fleira leiðir til þess að allir vegir liggja til Vista del Mar og munaðarlífsins við strendur Flórída. Furðufrúrnar hafa líklega aldrei far- ið frá heimahögum sínum og er förin því býsna framandi. Fyrir sunnan bíður þeirra mikið fjör og ævintýri. Frásögnin hefst þó ekki á grín- tvíeykinu óviðjafnanlega heldur ferðast upphafssenan inn í neðan- jarðarbyrgi andhetjunnar, sem er afar váleg illvættur. Fröken vonda er fannhvít á hörund með svartan stall og alhvít klæði og á sér nokkur handbendi sem styðja við áform hennar um að sprengja strandbæinn Vista del Mar í loft upp. Kristen Wiig fer einnig með hlutverk óþokk- ans en rík hefð er fyrir tvöföldum eða margföldum hlutverkum í grín- leik (sjá verk Mikes Myers og Pet- ers Sellers t.a.m.). Wiig er auðvitað ekki óreynt illmenni en hún lék Barböru Mínervu í framhaldi Undrakonunnar, sem er enn í kvik- myndahúsum. Þessi hálfruglaði angi myndarinnar minnir einna helst á kvikmyndirnar um Austin Powers eða Njósnakrakkana í furðuleika sínum. Þráðurinn slær ýktan tón og er nokkuð greinilega hannaður til að setja hjól framvindunnar af stað en fær of mikið mikið pláss í heildar- myndinni. Helsti leppur þorparans er rjóma- drengurinn Edgar en hann dreymir um að vera opinberlega „á föstu“ með Fröken vondu. Jamie Dornan, sem lék titilgreyið í Fimmtíu gráum skuggum, er skemmtilegt val í hlut- verkið og sýnir á sér spaugilega hlið og fær skemmtilegt tónlistaratriði í „Lonely Island“-stíl. Þrátt fyrir sykurhúðað yfirborð er snúðurinn sá með sjálfsmyndarvanda og þarfnast ástar og viðurkenningar. Til að sinna erindi drottnara síns fer Edg- ar suður með sjó og hittir óvænt fyr- ir sprellarana Barb og Star á hótel- barnum. Morguninn eftir stjórn- laust fyllerí og alsælu (en dóp og drykkir eru einatt gleðiefni í amer- ísku gríni af SNL-arfleifðinni og hluti af meðalinu) myndar þríeykið sjónræna samloku á rekkjunni. Seinna sama dag geta stöllurnar ekki viðurkennt hvor fyrir annarri að hugur þeirra leiti til kappans knáa og gera miklar ráðstafanir til að leyna fyrirætlunum sínum. Báðar banka upp á og eiga stefnumót með karli sama kvöld, án þess að hin viti af. Upphefst mikið leynimakk þeirra á milli en hvor um sig uppgötvar nýja spennandi hluti og er þetta skemmtilegasti þráður mynd- arinnar. Sögn hennar er líklega sú að heiðarleiki sé kjarninn í vináttu- samböndum en ekki sé síður mik- ilvægt að vera sjálfstæður og gefa öðrum andrými endrum og eins. Aðalleikonurnar Mumolo og Wiig eru einnig handritshöfundar Barb og Star en áður hafa þær skrifað handrit hinnar frábæru Brúðar- meyja (Bridesmaids, 2011), sem skaut Wiig sem grínleikkonu upp á stjörnuhimininn. Brúðarmeyjar er tímamótaverk – gamanreið kvenna- sextetts þar sem líkamsvessar og brúðarkjólar fara saman. Reynslu- heimi kvenna höfðu ekki verið gerð skil á viðlíka hátt í amerísku grínbíói áður (ekki má gleyma hvað þessi menningarkimi var (og er) karllæg- ur). Lítið gagn er í því að bera Barb og Star saman við Brúðarmeyjar en fyrra verkið skýrir samhengið sem titilpersónurnar spretta upp úr. Karakterarnir ku vera langlífur einkahúmor sem loks hefur verið fundinn farvegur. Þetta nostur skil- ar af sér einstökum týpum og vina- sambandi. Samleikur þeirra Mu- molo og Wiig er frábær og er líkt og þær hafi verið samofnar frá fæð- ingu. Myndin er fyrsta kvikmynd leik- stjórans Josh Greenbaums í fullri lengd og er hann nokkuð öruggur í aftursætinu með Wiig og Mumolo við stýrið. Reyndari hendur hefðu eflaust mundað skurðhnífinn í meira mæli en þegar líður á verður fléttan fullfyrirferðarmikil á kostnað brand- aranna. Heilt yfir er Barb og Star skreppa til Vista del Mar fyndin og vel heppnuð gamanræma þótt hún sé aldrei beinlínis sprenghlægileg. Buxnapils hefur sig til flugs Einkagrín „Karakterarnir ku vera langlífur einkahúmor sem loks hefur verið fundinn farvegur,“ skrifar gagnrýnandi meðal annars um Barb og Star. Borgarbíó Akureyri, Háskólabíó, Laugarásbíó og Smárabíó Barb og Star skreppa til Vista del Mar/Barb and Star Go to Vista Del Mar bbbnn Leikstjórn: Josh Greenbaum. Handrit: Kristen Wiig, Annie Mumolo. Kvik- myndataka: Toby Oliver. Aðalleikarar: Kristen Wiig, Annie Mumolo, Jamie Dornan, Damon Wayans Jr. Bandaríkin, 2021. 107 mín. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.