Morgunblaðið - 18.02.2021, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 18.02.2021, Qupperneq 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021 SANDBLÁSTUR Sundaborg 3 104Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is Ráðgjöf Tilboð Hönnun Uppsetning Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Þetta er samsýning þriggja kvenna, myndlistarkvennanna Bjarkar Guðnadóttur og Helgu Páleyjar Frið- þjófsdóttur og sviðslistakonunnar Yelenu Arakelow. Sýningin hefur þann skemmtilega titil á og í; og vísar til þess að líkaminn tekur á sig frá umhverfinu og semikomman stendur fyrir hreyfinguna,“ segir Helga Þórs- dóttir, forstöðumaður Listasafns Reykjanesbæjar, en þar verður opn- un á fyrrnefndri sýningu næstkom- andi laugardag. Helga segir skemmtilegt hvernig það kom til að þessar þrjár listakonur voru leiddar saman til að halda sýningu. „Ég hitti Björk Guðnadóttur á sýn- ingaropnun hjá Helgu Páley og sagði henni að mér liði næstum eins og ég væri á opnun hjá henni, því líkindin á efnistökum verka þeirra eru mikil. Björk játaði að henni liði svipað, enda eru báðar að nálgast upplifun mann- eskjunnar út frá skala líkamans. Mér fannst því heillaráð að stefna þessum tveimur myndlistarkonum saman með því að setja upp sýningu með verkum þeirra. Fyrst þetta var svona líkamlegt þá ákveð ég að hafa sam- band við Dansverkstæðið, sem eru samtök danslistafólks og þar var ég kynnt fyrir ungum danslistamanni, Yelenu Arakelow. Hún hefur gengið til liðs við okkur á sýningu Bjarkar og Helgu Páleyjar. Yelena ætlar að vera með innsetningu á sýningunni en það verða líka myndbönd af henni að dansa. Þær þrjár, Björk, Helga Páley og Yelena, eru með mjög svip- aðar pælingar í sinni listsköpun um mannslíkamann og nálgun hans við umhverfi sitt. Þessi sýning verður virkilega fersk og skemmtileg, ég hlakka mikið til.“ Hluti af ímynd bæjarfélags Helga tók á síðasta ári við sem for- stöðumaður Listasafns Reykjanes- bæjar og ekki úr vegi að inna hana eftir því hvaða hugmyndir hún hafi, hvað hana langi að gera og hvort hún ætli að breyta einhverju. „Ég er með heilmiklar hugmyndir um fyrir hvað ég vil standa hér í þessu safni og miklar framkvæmda- áætlanir í farvatninu. Það var auglýst eftir safnstjóra með eldmóð og ég ætla mér sannarlega að blása eld- móði í mína vinnu fyrir safnið. Ég mun leggja þunga áherslu á sam- tímalist og Listasafn Reykjanes- bæjar ætlar að vera eitt framsækn- asta samtímalistasafn Íslands. Reykjanesbær á það skilið að vera í framlínunni listrænt séð enda fjórða stærsta bæjarfélag Íslands og því eðlilegt að sýna metnað. Ég vil að sýningar safnsins endurspegli and- rúmsloft samfélagsins á hverjum tíma fyrir sig. Á sama tíma vil ég að sýningar safnsins eigi erindi við íbúa Reykjanesbæjar og að safnið sinni fræðslu sem útvíkkar skilning bæjar- búa á myndlist. Þannig verður safnið partur af ímynd bæjarfélagsins, drif- in áfram af eldmóði og hluti af barn- vænu samfélagi,“ segir Helga og bætir við að sér finnist það vera jafn- réttismál að einstaklingar utan höfuðborgarsvæðisins eigi greiðan aðgang að myndlist sem er hugvíkk- andi og hjálpi hugverunni að kynnast myndlæsi. „Samfélag samtímans er byggt á myndtáknum sem almenningur hef- ur ekki hlotið þjálfun í að afkóða, en Listasafn Reykjanesbæjar tekur fræðsluhlutverk sitt alvarlega á vett- vangi myndlæsis almennings.“ Allir bátarnir á nýrri sýningu Hvers vegna var tekin niður sýn- ing í einum sal listasafnsins sem lengi hafði stað þar og geymir bátasafn Gríms Karlssonar, rúmlega 100 líkön af bátum og skipum? Hvernig ætlar safnið að nýta þann sal og hvað verð- ur um bátana? „Sýning bátasafns Gríms Karls- sonar uppfyllti ekki þær kröfur sem við gerum í dag til samtímamiðlunar, sem er eðlilegt þar sem hún hefur staðið uppi í um 18 ár. Við miðlum sýningum með allt öðrum hætti núna, það er ekki nóg að setja muni í kassa og stilla þeim upp, slíkt miðlar tak- mörkuðu og gestir verða litlu nær um söguna með þeim hætti. Einnig kom í ljós að undirstöður bátanna voru ryðgaðar í sundur og fyrir vikið bók- staflega hættulegar. Fólk verður að hafa í huga að það lifir engin sýning lengur en tíu til tólf ár í samtímanum. Við erum að reka lifandi menningar- hús þar sem við erum með ýmsa við- burði og listasafnið stendur fyrir mjög framsækinni sýningardagskrá, húsin verða að vera með lifandi sýn- ingar. Bátarnir fá aftur á móti nýtt hlutverk í nýrri sýningu þar sem lífi þeirra verður miðlað. Byggðasafnið er með mjög færan mann, Eirík Pál Jörundsson safnstjóra, á sínum snærum sem er að setja upp nýja bátasýningu uppi á loftinu, þar sem tenging næst við sjóinn. Mér finnst virkilega gaman að segja frá því að allir bátar Gríms í eigu Reykjanes- bæjar verða á þessari nýju sýningu, um 130 talsins, líka bátar sem voru í geymslum safnsins, þar sem ekki var pláss fyrir þá í eldri sýningunni. Þeir verða settir í samhengi við það hlut- verk sem þeir höfðu þegar þeir voru í notkun. Bátarnir verða settir í um- hverfi sem hæfir hverjum og einum, flokkaðir eftir aldri, eftir því hvers- konar fiskvinnsla var unnin á þeim og svo framvegis. Þannig fær fólk skýr- ari mynd af því um hvers konar út- gerð er verið að ræða, hvaða þátt þessir bátar eiga í útgerðarsögunni og í raun í Íslandssögunni. Það er verið að gera bátunum betri skil,“ segir Helga og bætir við að listasafn- ið muni setja upp sýningar í salnum þar sem bátarnir voru áður, enda þurfi safnið að ákveða sýningardag- skrá ár fram í tímann. Ætlar að blása eldmóði í vinnu sína  Helga Þórsdóttir er með heilmiklar hugmyndir um fyrir hvað hún vill standa sem forstöðumaður Listasafns Reykjanesbæjar  Þrjár listakonur opna saman sýningu um helgina í safninu Morgunblaðið/Eggert Myndlistarkonur Björk og Helga Páley að undirbúa sýningu sína. Helga „Það er jafnréttismál að einstaklingar utan höfuðborgar- svæðisins eigi greiðan aðgang að myndlist sem er hugvíkkandi.“ Stjórnendur Breska þjóðleikhúss- ins (NT) hafa sett allar áætlanir sínar um leikferð til meginlands Evrópu á ís vegna þeirrar óvissu sem ríkir um vegabréfsáritanir og atvinnuleyfi listamanna í kjölfar Brexit. Leikhúsið hugðist fara með margverðlaunaða uppfærslu sína á Furðulegu háttalagi hunds um nótt í leikferð um meginland Evrópu, en af því verður ekki. BBC greinir frá. Eftir að Bretland sagði sig form- lega úr Evrópusambandinu hafa breskir listamenn ekki átt mögu- leika á að ferðast um meginland Evrópu til að vinna. Fyrr í vikunni fengust þær upplýsingar frá bresku ríkisstjórninni að þar á bæ gerðu menn sér vonir um að geta hafið samningaviðræður við stjórnvöld einstakra Evrópuríkja til að auð- velda bresku listafólki að fara í sýn- ingar- og tónleikaferðalög. Sam- kvæmt frétt BBC hefur Caroline Dinenage, menningarmálaráð- herra Breta, viðurkennt að „um mikla áskorun“ sé að ræða eftir að hafa fengið þær upplýsingar frá virtu listafólki að útgöngusamning- urinn hafi skapað „algjört kaos“. Stutt er síðan meira en hundrað listamenn í Bretlandi skrifuðu und- ir sameiginlegt bréf til bresku ríkisstjórnarinnar þar sem skorað er á Boris Johnson, forsætisráð- herra Breta, að semja við Evrópu- sambandið þannig að breskir lista- menn geti ferðast til og innan landa Evrópusambandsins vinnu sinnar vegna án þess að þurfa vegabréfs- áritun. Meðal þeirra sem skrifuðu undir bréfið voru leikararnir Ian McKellen og Julie Walters. Fréttir hafa borist af því að mikill fjöldi breskra tónlistarmanna hafi þurft að aflýsa tónleikaferðum sínum til meginlands Evrópu og breskir hljóðfæraleikarar hafi misst störf sín í sinfóníuhljómsveitum á megin- landinu og hyggist í kjölfarið leggja tónlistina alfarið á hilluna. Brexit setur strik í leikferð til Evrópu  „Algjört kaos“ eftir útgönguna Ljósmynd/The National Theatre í London Aflýst Úr uppfærslu NT á Furðu- legu háttalagi hunds um nótt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.