Morgunblaðið - 18.02.2021, Blaðsíða 59
MENNING 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021
Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is www.danco.is
Heildsöludreifing
Loksins er Greppikló og sögupersónur komar
í yndislega fallega mjúka línu af böngsum
- Tilvalið að safna öllum sem elska þessa yndislegu sögupersónur
Sagan um Greppikló hefur notið mikilla vinsælda um allan heim undanfarin
ár og er hefur bókin með vandaðri þýðingu Þórarins Eldjárns verið vinsæl
í skólum og leikskólum ásamt öllum bókaunnendum hér á landi.
Greppikló 23 c
Greppikló 41 cm
Mouse 23 cm
m
Mouse 41 cm
Greppikló
fingrabrúður
5 teg. 20 cm
Greppikló
- tuskudýr 5 teg.
Displ-12. 18 cm
-
Greppikló
- lykklakippa
12 cm
Embla Thermore® Ecodown®
dúnjakki fyrir konur
kr. 17.990.-
Eina málverkið sem Winston Churc-
hill forsætisráðherra Bretlands mál-
aði meðan seinni heimsstyrjöldin
geisaði verður boðið upp hjá upp-
boðshúsinu Christie’s í London 1.
mars. Verkið, sem nefnist „Tower of
the Koutoubia Mosque“, er metið á
1,5-2,5 milljónir punda. Churchill
málaði það í janúar 1943. Sagan seg-
ir að hann hafi boðið Franklin D.
Roosevelt Bandaríkjaforseta að
eyða með sér deginum í Marrakech
eftir að ráðstefnu í Casablanca lauk.
Roosevelt hreifst af borginni og birt-
unni sem varð Churchill hvatning til
að fanga stemninguna á mynd.
Bjóða upp mál-
verk Churchills
AFP
Turn Starfsmenn uppboðshússins Christie’s sýna málverk Churchills sem bjóða á upp.
Hljómsveitin Árstíðir hlaut nýverið
verðlaun alþjóðlegu samtakanna
IAMA, International Acoustic
Music Awards, sem eru veitt árlega
til tónlistarfólks og hljómsveita sem
hafa þótt framúrskarandi á sviði
órafmagnaðrar tónlistar. Lag
hljómsveitarinnar „Þar sem enginn
fer“ hlaut fyrstu verðlaun í flokki
bestu hljómsveita (best group) og
er það af síðustu hljómplötu hljóm-
sveitarinnar, Nivalis, sem kom út
2018. Þetta er þriðja árið í röð sem
Árstíðir hljóta verðlaun á alþjóð-
legum vettvangi. Árið 2019 var
Nivalis valin plata ársins í indie/alt.
rokk-flokki á IMA (Independent
Music Awards) og í fyrra hlaut
myndband við lagið „Entangled“
verðlaun á sömu hátíð fyrir besta
handrit sem var skrifað af Mörtu
Óskarsdóttur sem einnig leikstýrði
myndbandinu. Í báðum tilvikunum
sátu Tom Waits, Robert Smith og
Beth Gibbons í dómnefnd.
Árstíðir hlutu verðlaun IAMA
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Verðlaunasveit Hljómsveitin Árstíðir hefur
gert það gott á erlendri grundu.
Norræn tónlist er í forgrunni á tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands undir stjórn Evu Ollikainen
aðalhljómsveitarstjóra í Eldborg
Hörpu í kvöld kl. 20. Á efnisskránni
eru Helios-forleikur eftir danska
tónskáldið Carl Nielsen, Songs of
the Ice eftir finnska tónskáldið Outi
Tarkiainen og Tapiola eftir Jean
Sibelius sem einnig var finnskur.
Þá verður fluttur Konsert fyrir
bassabásúnu eftir bandaríska tón-
skáldið Kenneth Fuchs.
Nielsen samdi verk sitt í Grikk-
landi 1903, en þangað hafði eigin-
konu hans, Anne-Marie, sem var
myndhöggvari, verið boðið til að
vinna að list sinni. Tapiola samdi
Sibelius undir áhrifum frá finnsk-
um arfi þjóðkvæða og þjóðtrúar, en
um er að ræða síðustu stóru tón-
smíð tónskáldsins áður en hann
lagði tónsmíðar á hilluna.
Tarkianen hefur hlotið mikið lof
fyrir tónlist sína og var tilnefnd til
Tónlistarverðlauna Norðurlanda-
ráðs 2018. Verkið sem hljómsveitin
frumflytur á Íslandi í kvöld var
pantað í sameiningu af Finnsku
útvarpshljómsveitinni og Sinfóníu-
hljómsveit Íslands.
Einleikari kvöldsins er David
Bobroff, sem hefur verið bassabás-
únuleikari Sinfóníuhljómsveitar
Íslands svo áratugum skiptir. Í til-
kynningu frá sveitinni kemur fram
að Fuchs hafi hlotið fjölda viður-
kenninga fyrir tónlist sína, meðal
annars Grammy-verðlaun 2018.
Vitnað er til BBC Music Magazine
sem segir Fuchs vera „meistara í
því að semja fyrir hljómsveit“ og
„tónlist hans ber vott um ríkt
ímyndunarafl“.
Norræn tónlist hjá Sinfóníunni í kvöld
Eldborg Eva Ollikainen aðalhljómsveitarstjóri á æfingu með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Hljómsveitin hist og fagnar plöt-
unni Hits of með útgáfutónleikum í
Mengi föstudaginn 19. febrúar og
laugardaginn 20. febrúar. Sér-
stakur gestur á tónleikunum er Páll
Ivan frá Eiðum. Tríóið hist og var
stofnað í lok árs 2017 fyrir tónlist-
arhátíðina „Norður Og Niður“ sem
haldin var af liðsmönnum Sigur
Rósar. Tríóið skipa Eiríkur Orri
Ólafsson á trompet, trommuheila
og hljómboð, Róbert Sturla Reynis-
son á gítar, bassa og hljómborð og
Magnús Trygvason Eliassen á
trommur, slagverk og ekki-
slagverk. Liðsmenn hist og hafa
starfað saman um árabil í ýmsum
hljómsveitum, svo sem múm,
amiinu og Sin Fang. Undir merkj-
um hist og beina þeir stækkunar-
glerinu að sameiginlegum snerti-
fleti sínum. „Tónlistin er innhverf,
úthverf og slagþung blanda af
djass-, raf- og spunatónlist sem
kemur víða við,“ eins og segir í til-
kynningu. Platan sem kynnt verður
á útgáfutónleikunum inniheldur
„slagþunga slagara, hitablásna hitt-
ara og naglalakkaðar neglur í ætt
við fyrri plötu tríósins, Days of
Tundra, sem hlaut góðar viðtökur
og var meðal annars tilnefnd til
þriggja verðlauna á Íslensku tón-
listarverðlaununum 2019.“
Hljómsveitin hist og fagnar nýrri plötu
Spunatónlist Hljómsveitin hist og fagnar
nýrri plötu á útgáfutónleikum um helgina.
Vegna eftirspurnar hefur verið
bætt við aukasýningu á söng-
leiknum Fimm ár eftir Jason Ro-
bert Brown í leikstjórn Völu Krist-
ínar Eiríksdóttur sem sýndur er í
Kaldalóni Hörpu. Sýningin verður
laugardaginn 20. febrúar kl. 13.
Í uppfærslunni fara Rúnar Krist-
inn Rúnarsson og Viktoría
Sigurðardóttir með hlutverk Jamie
og Cathy. Áhorfendur fá að fylgjast
með ástarsambandi þeirra frá upp-
hafi til enda, en sambandið stendur
í fimm ár. Jamie fjallar um sam-
bandið í réttri tímaröð en saga
Cathy gerist í öfugri tímaröð. Þau
mætast því aðeins einu sinni í miðju
verksins. Um er að ræða frumflutn-
ing verksins á Íslandi. Íslenska þýð-
ingu gerði Jóhann Axel Andersen.
Sýningin er 75 mínútur í flutningi.
Aukasýning á söngleiknum Fimm ár
Morgunblaðið/Eggert
Saga Viktoría Sigurðardóttir leikur Cathy.