Morgunblaðið - 18.02.2021, Page 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2021
Eru þær ekki frekar fáséðará fjölunum, sýningarnarsem hafa augljóslega ogmeðvitað þann tilgang
einan að skemmta áhorfendum með
nýju og sérsniðnu efni um samtíma
okkar? Hefur leikhúsið gefist upp á
revíuforminu og eftirlátið sjónvarp-
inu sketsakvótann, sem það er síðan
ekkert að sinna heldur? Það má
alveg líta á Fullorðin hjá Leikfélagi
Akureyrar sem undantekninguna
sem sannar regluna, alla vega meðan
Veislan sem Borgarleikhúsið boðaði
til fyrir að manni finnst eilífð síðan er
ósýnd enn. Mengið „atvinnuleikhús á
Íslandi“ er sannarlega lítið svo
kannski eru tvær sýningar til marks
um stefnubreytingu og blómaskeið.
Þetta er alla vega kærkomið og ætti
að vera fastur stallur í listrænum
fæðupýramída þjóðarinnar.
Konfektmolinn á gamlárskvöld er
ekki nóg.
Fullorðin er sem sagt sketsasýn-
ing og viðfangsefnið kemur fram í
titlinum. Fullorðinsfræðsla í bók-
staflegri merkingu orðsins: skýrsla
um lífshætti miðaldra meðaljóna
með þá rannsóknartilgátu að þótt
almennt sé gert ráð fyrir að fólk á
þeim aldri sé komið með bæði skiln-
ing og tök á listinni að lifa þá fer því
auðvitað fjarri. Ef svo væri er óvíst
að mannfræðirannsókn hópsins væri
svona gráthlægileg þegar best tekst
til.
Því það er hún. Hugmyndirnar eru
margar snjallar, sumar algerlega
augljósar og standa og falla með út-
færslunni. Sumar falla vissulega, en
nógu margar standa til að Fullorðin
sé hin besta skemmtun heilt á litið.
Margt kemur þar til. Nefna má
hvað textinn er oftast áberandi vel
mótaður, bæði ræður sem beint er að
áhorfendum og samtölin. Ófáar
replikkur smella eins og svipuhögg.
Þótt Fullorðin sé afrakstur hópvinnu
er búið að pússa og lakka textann
víðast hvar. Það sést kannski ekki
síst vegna þess að eina spunaatriðið,
þar sem samtal er spunnið út frá til-
lögu áhorfenda, var augljósasti fall-
isti sýningarinnar.
Það sama má segja um söngtext-
ana. Þar voru fingraför Vilhjálms B.
Bragasonar auðþekkt, en hann held-
ur ásamt Sesselju Ólafsdóttur úti
gamanvísnasönghópnum Vandræða-
skáldum, sem finna má ummerki um
á samfélagsmiðlum sé vel leitað. Hér
er sami blær á kveðskap og laga-
smíðum, sem mætti kannski líkja við
það sem gerðist ef bandaríski píanó-
háðfuglinn Tom Lehrer reyndi að
gera barnaplötu. Það eru nú ekki öll
rímorð Vilhjálms beinlínis prenthæf,
og stundum eru klúrheitin heldur
ódýr, en þess fyndnari í réttu sam-
hengi og þegar best tekst til.
Viðfangsefnin spanna flest svið
daglegs lífs: Tómstundir, fjárhags-
lega velgengni, tilhugalíf, barneignir,
framgang í vinnu. Allt skoðað með
ýkjuaðferðum revíunnar, en alltaf
með einhvern kjarna sem áhorf-
endur geta tengt eigin lífi, eða alla
vega samferðafólks síns.
Eftirminnilegasta stóra atriðið er
hrollvekjandi grótesk mynd af
endurfundapartíi gamalla bekkjar-
félaga, með tilheyrandi öfgum í fjár-
hagslegri velgengni, hroðalegum
slysförum, upprifjun á kynlífi sem
betur mætti gleyma og einelti sem
það sama mætti segja um. Þar eiga
þremenningarnir allir flotta spretti í
týpusmíði. Vel hefði mátt hugsa sér
þetta partí sem ramma utan um
heila sýningu í mun hefðbundnari
byggingu. Það sem síst tekst er trú-
lega sagan af hjónunum sem eru
ekki fyrr laus við síðasta afkvæmið
úr hýbílum sínum en sambandið
springur í loft upp. Það er ekki gott
að segja hvort samleiknum við
klaufagang hljóðeffektastjórans var
ofaukið eða þá góð hugmynd sem
þarfnaðist miklu meira nosturs,
nákvæmni og orku til að skila tilætl-
uðum hlátri. Synd, því hjónin voru
sérlega skemmtilega útfærðar per-
sónur hjá Vilhjálmi og Birnu Péturs-
dóttur.
Birna er eftirtektarvert flink
týpugerðarkona og neglir hverja
staðalmyndina á fætur annarri. Ætli
námskeiðshaldarinn ofurhressi
standi þar ekki fremst meðal hroll-
vekjandi jafningja. Vilhjálmur og
Árni Beinteinn Árnason náðu ekki
alveg sömu raunsæisjarðtengingu
með sína kalla, en snarvirka engu að
síður í því sameiginlega verkefni
leikhópsins að halda stuðinu gang-
andi og orkustiginu uppi.
Það er lipur og fumlaus gangur í
sýningunni og oft áberandi sniðug-
lega komist úr einum skets í annan,
en leikstjórar sýningarinnar, þær
Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir og
Marta Nordal, hafa skipulagt þetta
vel. Einföld leikmynd Auðar Aspar
Guðmundsdóttur og Jasminu Woj-
tyla þjónar gangverkinu vel og gerir
búninga Bjargar Mörtu Gunnars-
dóttur auðveldlega aðgengilega þeg-
ar handagangurinn er hvað mestur.
Það er þakkarvert að bjóða upp á
svona einbeitta grínsýningu á þess-
um döpru tímum. Það verður að
segjast að Covid-gisinn salurinn í
Hofi eru ekki kjöraðstæður fyrir
spaug af þessu tagi, þar sem hlátur-
smit eru eitt af mikilvægustu inni-
haldsefnunum í vel heppnaðri kvöld-
stund. Stemmingin er fljót að kólna
þegar einstök atriði skila ekki tilætl-
uðum áhrifum. En þau Árni, Birna
og Vilhjálmur berjast hetjulega og
skila verki sem er alloft fyndið, aug-
ljóslega nostursamlega unnið og
heldur lífi í hefð sem við munum allt-
af þurfa á að halda.
Seinni hálfleikur
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Hefð „Árni, Birna og Vilhjálmur berjast hetjulega og skila verki sem er alloft fyndið, augljóslega nostursamlega
unnið og heldur lífi í hefð sem við munum alltaf þurfa á að halda,“ segir um Fullorðin hjá Leikfélagi Akureyrar.
Menningarhúsið Hof
Fullorðin bbbmn
Eftir Árna Beintein Árnason, Birnu
Pétursdóttur, Vilhjálm B. Bragason og
teymið. Leikstjórn: Hekla Elísabet
Aðalsteinsdóttir og Marta Nordal. Dans-
hreyfingar: Unnur Anna Árnadóttir og
leikhópurinn. Leikmynd: Auður Ösp
Guðmundsdóttir og Jasmina Wojtyla.
Búningar: Björg Marta Gunnarsdóttir.
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson. Hljóð-
mynd: Gunnar Sigurbjörnsson. Leik-
félag Akureyrar frumsýndi í Samkomu-
húsinu á Akureyri föstudaginn 8. janúar
2021, en rýnt í 9. sýningu laugardaginn
13. febrúar 2021 í Hamraborg í menn-
ingarhúsinu Hofi á Akureyri.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Tilnefningar til verðlauna Bresku
kvikmynda- og sjónvarps-
akademíunnar, Bafta, fyrir árið
2021 hafa verið opinberaðar. Í um-
fjöllun bresku pressunnar er sjón-
um sérstaklega beint að því að hlut-
fall kynja í hópi tilnefndra
leikstjóra þetta árið er jafnt. Er
þetta í fyrsta sinn sem tilnefnt er til
verðlaunanna eftir að umfangs-
miklar breytingar voru gerðar á
kosningakerfinu í kjölfar harðrar
gagnrýni á tilnefningar síðasta árs
þar sem þótti bæði halla á konur og
hörundsdökkt fólk.
Myndirnar tuttugu sem til-
nefndar eru fyrir bestu leikstjórn
þetta árið eru: Another Round; The
Assistant; Babyteeth; The Dig; The
Father; The Forty-Year-Old
Version; Mank; The Mauritanian;
Minari; My Octopus Teacher; News
of the World; Nomadland; One
Night in Miami …; Promising
Young Woman; Quo Vadis, Aida?;
Rocks; Saint Maud; Tenet; The
Trial of the Chicago 7 og The White
Tiger.
Konur helmingur tilnefndra leikstjóra
Upprennandi Carey Mulligan í Promising
Young Woman í leikstjórn Emerald Fennell.
Spænska ljóðskáldið, arkitektinn
og prófessorinn Joan Margarit i
Consarnau er látinn 82 ára að
aldri. Banamein hans var krabba-
mein. Joan Margarit fæddist í Sa-
naüja á Spáni og flutti reglulega
milli staða í Katalóníu á tímum
spænsku borgarastyrjaldarinnar
og seinni heimsstyrjaldarinnar.
Árið 1954 flutti fjölskyldan til
Kanaríeyja, en Joan Margarit sneri
aftur til Barcelona til að ljúka
námi í arkitektúr. Hann hóf að
semja ljóð 1963, en frá 1980 skrif-
aði hann aðallega á katalónsku og
sendi frá sér á
þriðja tug ljóða-
bóka. Árið 2019
hlaut hann hin
virtu Miguel de
Cervantes-
verðlaun sem
veitt eru fyrir
ævistarf í bók-
menntum.
Tveimur árum
áður hafði hann hlotið bókmennta-
verðlaun kennd við Pablo Neruda
og 2015 fékk hann Jaume Fuster-
verðlaunin.
Skáldið Joan Margarit látið 82 ára
Joan Margarit
www.borgarsogusafn.is
Sjó
min
jas
afn
ið í
Rey
kja
vík
frá
bæ
rum
Lan
dná
ms
sýn
ing
in
safnE
itt
Árb
æja
rsa
fn
Ljó
sm
ynd
asa
fn R
eyk
jav
íku
r
á fi
mm
Við
ey
stö
ðu
m