Morgunblaðið - 20.02.2021, Qupperneq 1
Grænt millifjalls og fjöru
Ný röddí útvarpi
Kristjana GuðmundsdóttirMotzfeldt kynntist Grænlandi
ung að árum. Um fertugtgiftist hún forsætisráðherraGrænlands, Jonathan Motz-feldt, og bjó þar næsta aldar-fjórðunginn þar sem húnstarfaði við gróðurrannsóknir.
Kristjana segir Grænland engu
líkt og fólkið gott og glatt.Þar segist hún upplifa aðvera hluti af náttúrunni. 14
21. FEBRÚAR 2021SUNNUDAGUR
Leikkonan ogsöngkonanAnna MaggaKáradóttirer í Helgar-útgáfunniá K100. 2
Nikótín-púðar
taka yfirVinsældir nikótínpúða aukast sífellt.Ungt fólk ánetjast fljótt enda er nikótínálíka ávanabindandi og heróín. 12
Hallar senná karla?
Ein birtingarmynd vanda drengja
í skólakerfinu er sú að mikill
meirihluti þeirra sem ljúkaháskólaprófi er konur. 8L A U G A R D A G U R 2 0. F E B R Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 43. tölublað 109. árgangur
HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · hekla.is/skodasalur
Škoda Superb iV
Allt að 57 km drægni á rafmagni
Verð frá 5.490.000 kr.
STÚLKA
TRÚIR Á
KRAFTAVERK
YRKIR UM
PÍLAGRÍMS-
GÖNGU
MARGRÉT LÓA 14SÝNING 10 FINGRA 48
Átta eru nú í gæsluvarðhaldi vegna
morðs í Rauðagerði um síðustu
helgi. Í gær var karlmaður úrskurð-
aður í fimm daga gæsluvarðhald,
eða til miðvikudagsins 24. febrúar.
Sömuleiðis var gæsluvarðhald fram-
lengt yfir litháískum karlmanni sem
handtekinn var í íbúð í Garðabæ
skömmu eftir morðið. Samkvæmt
heimildum blaðsins er umræddur
aðili grunaður um morðið og hafa
ummerki um skotvopn fundist á
heimili hans. Einstaklingarnir sem
nú eru í haldi eru allir á fertugs-
aldri, að einum undanskildum en
hann er á fimmtugsaldri. Sá síðast-
nefndi er enn fremur eini Íslending-
urinn í haldi. Hann var umsvifamik-
ill í undirheimunum um árabil en
hefur verið í þröngri stöðu eftir að
upp komst um uppljóstranir hans til
lögreglunnar á árum áður. Í smá-
skilaboðum frá meintum uppljóstr-
ara til aðila sem sakaður er um að
hafa lekið skjölum um uppljóstranir
hans kemur fram að tjónið „verði
aldrei bætt“. Skilaboðunum fylgir
jafnframt óbein hótun um líkams-
meiðingar.
Samkvæmt heimildum blaðsins
hafa hótanir gengið á víxl milli
manna sem tengjast morðmálinu.
Ekki er enn vitað hver aðild Íslend-
ingsins að morðmálinu er.
Maðurinn sem skotinn var til
bana utan við heimili sitt í Rauða-
gerði hét Armando Beqirai og lætur
eftir sig ófríska konu og ungt barn.
Fram kemur í albönskum fjölmiðl-
um að hann hafi verið spyrtur við
peningaþvætti. Hér á landi starfaði
hann hjá Top Guard ehf., fyrirtæki
sem sérhæfir sig í dyravörslu og ör-
yggisgæslu. Samkvæmt viðmælend-
um Morgunblaðsins hafa borist hót-
anir um hefndaraðgerðir en
lögreglan hefur sagt að erfitt sé að
segja til um slíkt.
Hótanir um líkamsmeiðingar
Hætta talin á hefndaraðgerðum vegna morðsins Fundu ummerki um skotvopn
Ræst var til keppni í lengsta hundasleðahlaupi á
Íslandi á Húsavík í gærmorgun, Musherice 2021.
Hlaupið er 150 kílómetra langt. Keppendur beita
fimm til sex hundum fyrir sleða sína.
Þrír keppendur höfðu skráð sig til þátttöku í
gær en einn forfallaðist og því lögðu tveir kepp-
endur af stað. Hilmar Freyr Birgisson frá Húsa-
vík beitti sex husky-hundum fyrir sleðann sinn,
eins og sjá má á myndinni. Erna Sofie Árnadóttir
keppti með fimm husky-hunda.
Keppa átti í gær og í dag samkvæmt dagskrá.
Fyrsti leggurinn var frá Húsavík, upp Reykja-
heiði og í Þeistareykjaskála. Svo átti að fara 50
km hring þar og síðan aftur til Húsavíkur. Á
morgun fer fram verðlaunaafhending.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Lengsta hundasleðahlaup á Íslandi
„Ég hef mikla reynslu af notkun
nikótínpúða. Ég hef notað þá síðan í
október 2019, þegar þeir komu fyrst
á markaðinn. Áður notaði ég ís-
lenska neftóbakið í vör,“ segir 28 ára
gamall maður sem segist vera mjög
háður notkun nikótínpúða.
„Ég er 100% háður þessu. Ég nota
fjórar dollur á viku, eða svona 12-15
púða á dag,“ segir hann og segist
vilja hætta notkuninni.
„Ég náði einu sinni þremur dög-
um. Ég fékk hita, uppköst og var
veikur. Þetta voru rosaleg fráhvörf,
eins og eiturlyfjasjúklingar upplifa.
Ég hef lesið lýsingar heróínfíkla í
fráhvörfum, mér leið bara þannig.
Ég fór svo beint upp í búð, keypti
mér dollu og lagaðist á innan við
klukkutíma. Ég hef ekki reynt að
hætta síðan. Þetta er rosalega
sterkt. Þetta er eins og eiturlyf.“
Í Sunnudagsblaði helgarinnar er
nánar fjallað um nikótínpúða og rætt
við lækni og fagaðila.
Morgunblaðið/Eggert
Sterkt Magn nikótíns í púðunum er
oft meira en í tóbaksvörum.
Rosaleg
fráhvörf
Eins og eiturlyf
100% háður
Athafnamaðurinn Kristján Berg
Ásgeirsson, betur þekktur sem
Fiskikóngurinn, gerir sér vonir um
að selja heita potta fyrir milljarð
króna á þessu ári. Hann undirbýr
flutning pottasölunnar frá Höfða-
bakkanum yfir á Fosshálsinn og
kostar til þess hálfum milljarði.
Máli sínu til stuðnings vísar hann
til þess að kórónuveirufaraldrinum
sé ekki lokið, ásamt því sem gæði
pottanna muni spyrjast út.
Nú séu kaldir pottar í tísku, sala
á gufuböðum á uppleið og mikil
þörf skapist fyrir endurnýjun á
heitum pottum. »22
Hálfur milljarður
í heita potta