Morgunblaðið - 20.02.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 20.02.2021, Blaðsíða 26
SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Verslunin blómstraði hér álandi á síðasta ári og jókstsala stórlega í flestumvöruflokkum á tímum veirufaraldursins. Í heild jókst versl- unin um 11% í fyrra og mikill upp- gangur varð í vefverslun sem óx um 152% á milli ára og mælist nú 7% af allri hérlendri verslun. Velta í hefð- bundnum verslunum jókst um 13%. Þessar upplýsingar koma fram í nýútkomnu ítarlegu yfirliti Rann- sóknaseturs verslunarinnar (RSV). Samanburðurinn er byggður á tölum um kortaveltu. Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, rifjar upp að útlitið í ís- lenskri verslun var afar dökkt á fyrstu vikunum eftir að faraldurinn tók að breiðast út eða frá því fyrir miðjan mars og fram yfir páska. „Það var skuggalegur samdráttur þá í smásölu og mjög fáir á ferli,“ seg- ir hann, en þetta breyttist strax eftir páska og það sem eftir lifði ársins var frábær tími í verslun heilt yfir, að sögn Andrésar. Tölur um samanlagða verslun á síð- asta ári leiða í ljós að innlend korta- velta jókst um 72 milljarða kr. og varð samtals 481 milljarður kr. en erlend kortavelta dróst saman um 22 millj- arða og var 14,5 milljarðar. Dróst er- lend verslun saman yfir árið um 60%. Landsmenn keyptu í stórmörk- uðum og dagvöruverslunum fyrir 206 milljarða kr. í fyrra, og eyddu 32 millj- örðum kr. meira en á árinu á undan. Sala áfengis í verslunum ÁTVR jókst um 40% í fyrra eða um 10 milljarða kr. og telja skýrsluhöfundar að rekja megi aukninguna til minni toll- frjálsrar verslunar og samkomutak- markana á börum, skemmtistöðum og veitingahúsum sem og ferðalaga til út- landa, sem nánast þurrkuðust út. Sala byggingarverslana jókst um níu milljarða eða 29% frá árinu á und- an. Hlutfallslega varð þó mest aukn- ing í íþróttaverslunum en kaup lands- manna í íþróttavöruverslunum jukust í fyrra um 49% eða 2,8 milljarða kr. frá árinu á undan. Sala í verslunum með húsgögn og heimilisbúnað jókst um fjóra milljarða eða 13% og gælu- dýraverslanir juku sölu sína um 43% milli ára. Aftur á móti dróst tollfrjáls verslun saman í fyrra um sex millj- arða eða 75%. Þá dróst bóka-, blaða- og hljómplötuverslun saman um 13%. Netverslun tók stórt stökk í fyrra og varð strax vart mikillar aukn- ingar í apríl en mesta velta og aukn- ing milli ára átti sér stað í nóvember skv. yfirlitinu, sem talið er að rekja megi einkum til tilboðsdaganna þriggja í þeim sama mánuði sem eru dagur einhleypra, svartur föstudag- ur og stafrænn mánudagur. Yfir árið óx vefverslun um 19 milljarða og var heildarveltan 32 milljarðar. Í nóvember var veltan í vefversluninni 7,6 milljarðar kr. Fram kemur að af heildarveltu í vef- verslun eyddu Íslendingar lang- mestu í stórmörkuðum og dagvöru- verslunum á seinasta ári eða fyrir 6,2 milljarða og var vöxturinn 273%. Kaup á netinu í verslunum með hús- gögn og heimilisbúnað jukust um þrjá milljarða eða um 258% milli ára. Vefverslun hjá byggingarvöruversl- unum jókst um 181%, í fataversl- unum um 165% og um 185% í raf- og heimilistækjaverslunum. Andrés segir að vöxtinn í verslun megi annars vegar rekja til þess að ferðalög til útlanda féllu niður, en Ís- lendingar verja að jafnaði 150-200 milljörðum á ferðum erlendis á ári, auk þess sem kaupmáttur þeirra sem höfðu vinnu á síðasta ári jókst- verulega. Stórmarkaðir og dagvöru- verslanir Áfengis- verslanir Bygginga rvöru- verslanir Raf- og heimilistækja- verslanir Fataverslanir Verslanir með húsgögn og heimilisbúnað Lyfja-, heilsu- og snyrtivöru- verslanir Íþróttavöru- verslanir Gjafa- og minja- gripaverslanir Gæludýra- verslanir 32 10 9 9 4 4 3 2,8 0,6 0.6 19% 40% 29% 40% 13% 13% 15% 49% 18% 43% Neysla árið 2020: 206 ma.kr. 35 ma.kr. 39 ma.kr. 31 ma.kr. 36 ma.kr. 31 ma.kr. 22 ma.kr. 9 ma.kr. 4 ma.kr. 2 ma.kr. Breyting á neyslu Íslendinga frá 2019 til 2020 Innlend kortavelta á breytilegu verðlagi í nokkrum vörufl okkum BEER BEER Vitamin COMPLEX Heimild: Rannsóknarsetur verslunarinnar Aukning 2019-2020: Milljarðar kr. Hlutfallsleg aukning Vefverslunin jókst um 19 milljarða eða 152% 26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Notkun nikó-tínpúðahefur rokið upp hér á landi á undanförnum miss- erum. Neysla púð- anna hefur orðið til þess að verulega hefur dregið úr þeim sið að setja íslenskt neftóbak í vörina. Ástæðan fyr- ir þessu er sú að púðarnir eru mun ódýrari en neftóbakið. Að auki er notkun þeirra hreinlegri þannig að þeir njóta vinsælda hjá kvenfólki. Reykingar hafa verið á hröðu undanhaldi og nú er svo komið að aðeins 7,3% þjóðarinnar reykja. Hlutfall þeirra sem nota púðana er miklu hærra og í ald- urshópnum 18 til 24 ára nær það 25% karla og 21% kvenna, auk þess sem könnun í fyrra- haust sýndi að tæp 10% barna í 10. bekk notuðu þá. Morgunblaðið hefur und- anfarið fjallað um þetta mál og í Sunnudagsblaði Morgunblaðs- ins nú um helgina er rætt við ungan mann á þrítugsaldi, sem hefur verið í viðjum nikótínpúða frá því þeir komu á markað hér haustið 2019. Hann segist orð- inn algerlega háður púðunum og ógerningur sé að hætta. „Ég náði einu sinni þremur dögum,“ segir hann. „Ég fékk hita, uppköst og var veikur. Þetta voru rosaleg fráhvörf eins og eiturlyfjasjúklingar upp- lifa.“ Í blaðinu er rætt við Láru G. Sigurðardóttur, lækni og dokt- or í lýðheilsuvís- indum, sem segir einmitt að nikótín sé „álíka ávana- bindandi og heró- ín“. Nú stendur til að setja lög með skýrum reglum um sölu, markaðssetningu og notkun nikótínvara, þar á meðal að einungis verði leyft að selja þær þeim, sem eru 18 ára og eldri. Við frumvarpið hafa komið ýmsar athugasemdir eins og sagt var frá í Morgunblaðinu á fimmtudag. Lára G. Sigurð- ardóttir er þar á meðal. Hún vill að aldurstakmarkið verði 25 ár, þegar heilinn sé fullþroskaður. Í viðtalinu í sunnudagsblaðinu segir hún að styrkleiki nikótín- varanna, sem fáist á almennum markaði í dag, sé slíkur að þær breyti hratt taugatengingum í óþroskuðum heila og valdi því að barn ánetjist jafnvel fyrr en hefði það byrjað að reykja. Sterkustu púðarnir jafngildi því að reykja þrjár sígarettur í einu. Mikið hefur verið lagt í að draga úr neyslu tóbaks og hefur það tekist vel. Nikótínpúðarnir eru síður en svo hættulausir og mjög ávanabindandi. Það er eðlilegt að reynt sé að takmarka útbreiðslu slíkrar vöru meðal ungs fólks. Það er erfitt að rétt- læta púðana með því að þeir hjálpi fólki að hætta að reykja þegar þorri þeirra, sem neyta þeirra, hefur aldrei reykt. Nikótínpúðar eru síður en svo hættu- lausir og mjög ávanabindandi} Vanabindandi púðar Á ður fyrr var talað um veikt og fá- tækt fólk og eldri borgara sem ómagafólk, þurfalinga, niður- setninga, ölmusumenn, bein- ingafólk, smælingja og bón- bjargamenn og núna er talað um þennan hóp sem „þiggjandi bótaþega“ og það á Alþingi. Eigum við Íslendingar að vera stolt af al- mannatryggingakerfinu eins og fjármála- og efnahagsráðherra sagði í viðræðum við mig um lífeyrissjóðsmál á Alþingi nýlega? Eigum við að vera stolt af kerfi sem skattar og skerðir stóran hóp öryrkja og eldri borgara ekki bara í fátækt heldur í sárafátækt og gerir þá þar með að „þiggjandi bótaþegum“ í boði fjármálaráðherra og ríkisstjórnarinnar? Lífeyrissjóðslaun eru lögþvingaður og eigna- upptökuvarinn sparnaður, að stærstum hluta fjármagnstekjur. Aðrar greiðslur almanna- trygginga eru áunnin réttindi, ekki bætur. Þá segir fjármálaráðherra að kjör þeirra sem minnst hafa milli handanna og fá „bætur“ frá almannatrygg- ingum hafi batnað hraðast á undanförnum árum. Kjör þeirra hafi batnað hraðar en þeirra sem hafa meira á milli handanna og „þiggja“ þó eitthvað úr almannatrygg- ingakerfinu. Öryrkjar og eldri borgarar séu því „þiggjandi bótaþegar“, í boði ríkisins. Lífeyrislaun ellilífeyrisþega eru sköttuð og skert um 60- 80%, sem veldur því að allt of stór hópur þeirra lendir und- ir fátæktarviðmiðum og sumir í sárafátækt. Á sama tíma er verið að rífast um hvort verið sé að skatta arðgreiðslur hjá útgerðarfyrirtækjum um 10% eða 20%. Arðgreiðslur upp á milljarða króna. Er þetta eðlileg skipting? Ætti ekki að snúa þessu algjörlega við? Er sanngjarnt að þeir sem fá milljarða króna arðgreiðslur borgi bara 10- 20% skatt af arðinum sínum, en á sama tíma er lögþvingaður eignarréttarvarinn lífeyrissjóður skattaður og keðjuverkandi skertur til fátækt- ar? Fjármálaráðherra sagði einnig að stigin hefðu verið risastór skref á nánast hverju ári undanfarin ár þannig að t.d. frá árinu 2015 hefði verið aukið við ráðstöfunartekjur þeirra sem „þiggja bætur“ frá almannatryggingum að meðaltali um u.þ.b. 25% og þar segist hann vera að tala um kaupmátt ráðstöfunartekna og það séu auðvitað ótrúlegar framfarir á ekki lengri tíma. En auðvitað lifir enginn á meðaltali af ein- hverju mjög lágu sem hefur viðgengist áratug- um saman í boði þessarar ríkisstjórnar og annarra rík- isstjórna þar á undan sem skertu lífeyrislaun almannatrygginga með beinum skerðingum og neyslu- vísitöluhækkunum í stað lögbundinnar launavísitöluhækk- unar. Þarna vantar upp á á fimmta tug prósenta, sem hef- ur skilað stórum hópi þeirra sem fá lífeyrislaun frá almannatryggingum í fátækt eða sárafátækt. Flokkur fólksins berst fyrir því á Alþingi að hætt verði skerðingum á lífeyrislaunum og vinnulaunum veiks fólk og eldri borgara sem hafa verið stundaðar áratugum saman. gudmundurk@althingi.is Guðmundur Ingi Kristinsson Pistill Þiggjandi bótaþegar Höfundur er þingflokksformaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Það var mikilfagnaðarstund í höfuðstöðvum bandarísku geim- ferðastofnunar- innar NASA á fimmtudagskvöldið þegar stað- fest var að Perseverance- geimfarið, sem á íslensku má kalla Þrautseigju, hefði lent heilu og höldnu á yfirborði Mars. Gleði geimvísindamannanna var fölskvalaus, enda markaði lendingin lok sjö mánaða ferða- lags, sem kostað hefur um 2,4 milljarða bandaríkjadala, eða um 307 milljarða íslenskra króna. Allt það erfiði og fjár- magn hefði vel getað verið unn- ið fyrir gýg á einungis sjö mín- útum meðan farið lækkaði flugið á ógnarhraða. En svo fór ekki, og þó að þessar „sjö mín- útur af ógn“ virtust heil eilífð hafði þrautseigjan að endingu betur. Verkefni farsins er ekki síður mikilvægt, en það mun nú keyra um yfirborð rauðu plán- etunnar og safna þar jarðvegs- sýnum og greina. Er leiðangr- inum meðal annars ætlað að leita að ummerkj- um um örverur, sem mögulega lifðu á Mars fyrir millj- örðum ára, þegar aðstæður þar voru betur fallnar til lífs en nú. Hvort sem þau ummerki finn- ast eða ekki mun rannsóknin engu að síður færa mannkyninu mikilvægar vísbendingar um lífið og þróun sólkerfisins. Til að fá þau svör mun þurfa að senda sýnin aftur til jarðar þar sem þau verða rannsökuð og greind nánar, en það er hæg- ara sagt en gert. NASA og evr- ópska geimferðastofnunin hyggjast vinna saman að leið- angri síðar á árinu sem muni sækja sýnin, og verður það með erfiðari verkefnum sem geim- könnuðir mannkyns hafa tekið sér fyrir hendur. Hins vegar er vel þess virði að ráðast í þessa þraut, ekki síst ef það tekst loksins að fá svar við spurningunni hvort líf hafi einhvern tímann þrifist ut- an jarðar. Af mörgum risa- skrefum sem stigin hafa verið í könnun sólkerfisins yrði það mögulega hið stærsta. Lending Perseverance vísar veginn áfram} Innrásin til Mars
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.