Morgunblaðið - 20.02.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2021
Allt um sjávarútveg
Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14
Samfellur frá GAIA
Verð 5.990-7.990,-
Fermingar-
myndatökur
Einstök
minning
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Við förum eftir öllum
sóttvarnartilmælum
Skoðið laxdal.is • Fylgið okkur á facebook
Skipholti 29b • S. 551 4422
TRAUST
Í 80 ÁR
FISLÉTTIR HEILSÁRSJAKKAR
MARGIR LITIR
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
ÚTSÖLU
LOK
SÍÐASTI
DAGUR
LAU. 20. FEBRÚAR
60-80%
AFSLÁTTUR
Sendiráð óskar eftir húsnæði
Þýska sendiráðið óskar eftir 3ja-4ra herb. húsnæði án
húsgagna til leigu frá mars í 3-4 ár í Reykjavík eða nágrenni
Upplýsingar sendist vinsamlegast á
info@reykjavik.diplo.de eða í s. 530 1100.
Opið 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
buxur
. .
S r. - 2
a r it r
„Boðar frumvarpið þá stefnu að með-
höndla skuli vanda vímuefnanotenda í
íslensku samfélagi í heilbrigðiskerf-
inu fremur en dómskerfinu,“ segir í
greinargerð frumvarpsdraga um af-
glæpavæðingu neysluskammta sem
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráð-
herra hefur birt í samráðsgátt stjórn-
valda.
Þar eru lagðar til meginbreytingar
á gildandi lögum um ávana- og fíkni-
efni, sem fela í sér að kaup og varsla á
takmörkuðu magni ávana- og fíkni-
efna til eigin nota, svokallaðra neyslu-
skammta, verði heimiluð og ekki
refsiverð.
„Enn fremur er lagt til að ekki skuli
gera upptæk ávana- og fíkniefni sem
eru í vörslu einstaklinga sem eru 18
ára og eldri ef magnið er innan skil-
greindra marka um neysluskammt,“
segir í frétt heilbrigðisráðuneytisins
um frumvarpsdrögin í gær.
Haft er eftir Svandísi að hér sé ver-
ið að feta inn á nýjar brautir í þessum
málum með áherslu á hugmynda-
fræði skaðaminnkunar.
„Þegar hefur verið stigið mikilvægt
skref í þessa átt þar sem nú er heimilt
samkvæmt lögum að stofna og reka
svokölluð neyslurými, líkt og nánar er
kveðið á um í reglugerð sem ég stað-
festi fyrir skömmu,“ er haft eftir
Svandísi.
Gert er ráð fyrir að heilbrigðisráð-
herra skuli í reglugerð kveða á um
hvaða magn ávana- og fíkniefna geti
talist til eigin nota.
Viðhorfsbreyting í samfélaginu
Í greinargerð frumvarpsdraganna
segir að með því að afnema mögulega
refsingu vegna kaupa og vörslu
neysluskammta vímuefna ætlaða til
einkanota væri stigið stórt skref í átt
að viðhorfsbreytingu í íslensku sam-
félagi gagnvart fólki sem notar vímu-
efni, lögleg sem ólögleg.
Vísindarannsóknir hafi sýnt fram á
að refsingar hafa lítil sem engin áhrif
til breytingar á hegðun einstaklinga
heldur séu margir aðrir samverkandi
persónubundnir þættir sem hafi áhrif
á áhugahvöt einstaklings til breyt-
inga. omfr@mbl.is
Leggur til afglæpavæð-
ingu neysluskammta
Frumvarpsdrög birt um breytingar á fíkniefnalöggjöfinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heilbrigðisráðherra Svandís hefur
birt frumvarpsdrög í samráðsgátt.
Þrír þingmenn frá stjórnarflokk-
unum hafa fengið það hlutverk að
rýna lög um Ríkisútvarpið ohf. og
gera tillögur að breytingum til að
„sætta ólík sjónarmið um starfsemi
og hlutverk Ríkisútvarpsins“, eins
og það er orðað í tilkynningu frá
menntamálaráðuneytinu. Full-
trúarnir eru Kolbeinn Óttarsson
Proppé frá VG sem er formaður
hópsins, Silja Dögg Gunnarsdóttir
frá Framsóknarflokknum og Páll
Magnússon frá Sjálfstæðisflokkn-
um. Hörð gagnrýni hefur verið
uppi um umsvif Ríkisútvarpsins á
auglýsingamarkaði, til að mynda í
tengslum við umræðu um frumvarp
um stuðning við einkarekna fjöl-
miðla.
Í tilkynningu kemur fram að full-
trúarnir muni einnig kanna hvort
þörf sé á að endurskilgreina hlut-
verk RÚV, öryggishlutverk og fjár-
mögnun. Ráðgert er að hópurinn
ljúki störfum eigi síðar en 31. mars.
Nefnd þingmanna
rýnir í stöðu RÚV