Morgunblaðið - 20.02.2021, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.02.2021, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2021 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla Casa býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. L 206 cm Áklæði ct. 70 Verð 609.000,- L 206 cm Leður ct. 15 Verð 749.000,- STAN Model 3035 rafmagn Eftir góða loðnuveiði við Landeyja- höfn í fyrradag var rólegra yfir veið- um um miðjan dag í gær, en þó eitt- hvað misjafnt. Loðnan hafði gengið vestur á bóginn á hefðbundinni leið sinni á hrygningarstöðvarnar, en virtist vera víða við suðurströndina. Loðnan stóð í gær dýpra en í fyrra- dag og voru skipin komin vestur fyr- ir Eyjar. Jón Kjartansson SU var meðal skipa á miðunum og sagði Grétar Rögnvarsson skipstjóri að nóg væri að sjá af loðnu, en hún væri tætings- leg og ekki góðar torfur til að kasta á. Þeir fengu 450 tonn í fyrradag og var Grétar að vonast eftir góðu kasti til að geta haldið heim til Eskifjarð- ar með þúsund tonna skammt áður en brældi á miðunum. Frysting er í fullum gangi í Vest- mannaeyjum, Hornafirði, Fáskrúðs- firði, Eskifirði, Neskaupstað, Vopnafirði og Þórshöfn. Kvóti ársins er ekki mikill í sögulegu samhengi og verður kapp lagt á að hámarka verðmæti á nokkurra vikna vertíð. Í ár mega íslensk skip veiða samtals tæp 70 þúsund tonn, en heildarkvót- inn er 127.300 tonn. Hrognafylling er nú um 18% og hentar hrygnan vel fyrir frystingu á Japansmarkað, en hængurinn fer frekar til Austur-Evrópu. aij@mbl.is Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Samvinna Gott veður var og góð veiði út af Landeyjahöfn á fimmtudag og voru allmörg íslensk skip þar að veiðum. Þegar um 900 tonn voru komin um borð í Víking AK var um 260 tonnum dælt yfir í Jónu Eðvalds SF. Víkingur hélt síðan með skammtinn til Vopnafjarðar þar sem löndun hófst síðdegis í gær. Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Vertíð Sigurður VE og Aðalsteinn Jónsson SU skammt frá Landeyjahöfn. Loðna virðist vera víða við suðurströndina og fyrir austan hafa norsk skip aflað ágætlega, en vertíð þeirra er að ljúka. Loðna víða við suðurströndina Þórshöfn – Norska skipið Hard- haus kom til Þórhafnar í gær- morgun með um 470 tonn af loðnu af Austfjarðamiðum. Þetta er fyrsta loðnan sem landað er á Þórshöfn á vertíðinni og tekur um tvo sólarhringa að vinna aflann. Hrognafylling er um 15% og fer loðnan í frystingu. Eftir löndun á Þórshöfn er plan- ið að setja nótina á nótahótel á Eskifirði og sigla síðan til Vestmannaeyja þar sem skipið verður afhent Ísfélaginu á mánu- dag, að sögn Jóns Axelssonar, sem var um borð í síðasta túrnum, en Ole Inge Møgster var með skipið. Skipið fær nafnið Álsey. Jón lætur vel af skipinu og segir það gott sjóskip, lipurt og kraftmikið, og búið fullkomnasta búnaði sem völ sé á til uppsjávarveiða. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Löndun Hardhaus við bryggju á Þórshöfn, eftir helgi fær skipið nafnið Álsey. Hardhaus landaði loðnu á Þórshöfn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.