Morgunblaðið - 20.02.2021, Side 30
30 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2021
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur er Svavar Alfreð Jónsson. Félagar
úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Ey-
þór Ingi Jónsson
Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11.
Umsjón Sonja Kro og Sigríður Hulda Arnardótt-
ir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Árbæjarkirkju
syngja undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár.
Sunnudagskólinn er á sama tíma í safnaðar-
heimilinu í umsjá Andreu Önnu Arnardóttur og
Thelmu Rósar Arnardóttur. Grímuskylda fyrir
fullorðna og tveggja metra reglan höfð í heiðri.
ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl.
9.30. Athugið nýja messutímann! Jóhanna
María Eyjólfsdóttir, djákni Áskirkju, og séra
Davíð Þór Jónsson, prestur í Laugardals-
prestakalli, þjóna.
BESSASTAÐASÓKN |
Sunnudagaskóli í Brekkuskógum 1 kl. 11.
Umsjón með stundinni hafa Sigrún Ósk, Pétur
og Þórarinn Kr. Konudagsguðsþjónusta í
Bessastaðakirkju í samstarfi við Kvenfélag
Álftaness kl. 17. Lærisveinar hans leiða söng-
inn og organisti Ástvaldur Traustason. Guðrún
Brynjólfsdóttir flytur hugleiðingu og kven-
félagskonur lesa ritingarlestra. Margrét djákni
og sr. Hans Guðberg þjóna fyrir altari.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur er Magnús Björn Björnsson. Org-
anistinn og kórstjórinn Örn Magnússon stjórn-
ar félögum úr Kór Breiðholtskirkju. Sunnu-
dagaskólinn á sama tíma. Steinunn
Leifsdóttir sér um stundina ásamt góðum
upprennandi leiðtogum.
Alþjóðlegi söfnuðurinn. Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur sr. Toshiki Toma.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa og sunnu-
dagaskóli sunnudag kl. 11.
Daníel Ágúst, Sóley Adda og Jónas Þórir leiða
stundina ásamt prestum.
Guðsþjónusta konudaginn kl. 13. Ath. tím-
ann. Vox Gospel syngur undir stjórn Þórdísar
Sævarsdóttur. Kantor Jónas Þórir. Messu-
þjónar aðstoða. Sr. Pálmi Matthíasson mess-
ar.
Munum handþvott, tveggja metra reglu og
grímur.
DIGRANESKIRKJA | Guðsþjónusta með
skírn verður 21. febrúar kl. 11.
Sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti Sólveig
Sigríður Einarsdóttir.
DÓMKIRKJAN | Guðþjónusta kl. 11 og
æðruleysismessa kl. 20.
Í guðþjónustunni kl. 11 mun séra Sveinn Val-
geirsson prédika og þjóna. Dómkórinn syngur
og organisti er Kári Þormar. Æðruleysismessa
kl. 20-21. Séra Díana Ósk, séra Fritz og séra
Sveinn þjóna. Kristján Hrannar leikur á flyg-
ilinn. Virðum sóttvarnareglur, notum grímur og
pössum tveggja metra fjarlægðina frá þeim
sem tilheyra ekki sama sóttvarnahólfi (fjöl-
skylda eða vinnufélagar).
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta á
konudegi kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson
þjónar og prédikar. Konur kórsins syngja í til-
efni dagsins undir stjórn Arnhildar Valgarðs-
dóttur organista. Kaffisopi eftir stundina.
Meðhjálpari er Helga Björg Gunnarsdóttir.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta 21.
febrúar kl. 14.
Konudagurinn. Séra Hjörtur Magni Jóhanns-
son safnaðarprestur leiðir stundina. Hljóm-
sveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina
leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni.
Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött
til að mæta.
GLERÁRKIRKJA | Sunnudagurinn kl. 11.
Guðsþjónusta með kór Glerárkirkju. Sr. Stef-
anía G. Steinsdóttir leiðir stundina. Petra
Björk Pálsdóttir stjórnar kór og leikur á orgel.
GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudaginn 21.
febrúar kl. 11 verður guðsþjónusta. Sr. Guð-
rún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti
er Hákon Leifsson.
Sunnudagaskóli verður á neðri hæð kirkjunn-
ar sama dag kl. 11. Umsjón hafa Ásta Jó-
hanna Harðardóttir, Hólmfríður Frostadóttir og
sr. Sigurður Grétar Helgason. Undirleikari er
Stefán Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Guðbjörg Hulda Einarsdóttir djáknanemi flytur
hugleiðingu. Fermingarbörn og fjölskyldur
þeirra boðin sérstaklega velkomin. Ásta Har-
aldsdóttir kantor og Kirkjukór Grensáskirkju
leiða söng. Sr. María Guðrúnar Ágústsdóttir
þjónar ásamt messuþjónum og fermingar-
börnum. Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl. 12.
Fimmtudagur: Núvitundarstund kl. 18.15,
hvort tveggja opið öllum, einnig á netinu.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðs-
þjónusta og barnastarf sunnudaginn kl. 11.
Prestar eru Karl V. Matthíasson. Organisti
Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syng-
ur. Barnastarf í safnaðarheimilinu í umsjá sr.
Péturs Ragnhildarsonar og Ástu Guðrúnar.
Hvetjum fermingarbörn og foreldra til að koma
í kirkju. Meðhjálpari Guðný Aradóttir og kirkju-
vörður Lovísa Guðmundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Sighvatur Karls-
son leiðir stundina í kirkjunni. Organisti er
Guðmundur Sigurðsson og félagar í Barböru-
kórnum syngja. Bylgja Dís sér um sunnudaga-
skólann sem verður í Vonarhöfn í safnaðar-
heimili kirkjunnar. Öll börn velkomin ásamt
foreldrum sem og öfum og ömmum. Við gæt-
um að gildandi sóttvarnareglum, m.a. grímu-
skyldu fyrir fullorðna.
HALLGRÍMSKIRKJA | Guðsþjónusta sunnu-
dag kl. 11.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt messuþjónum. Félagar úr
Móttettukór Hallgrímskirkju syngja og leiða
söng. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Barnastarfið er í umsjá Rósu Árnadóttur.
HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari. Félagar úr Kordíu, kór Háteigs-
kirkju, syngja. Organisti er Guðný Einarsdóttir.
Miðvikudagur 24. febrúar kl. 20. Passíusálm-
arnir í fortíð og nútíð. Kordía, kór Háteigs-
kirkju og Bára Grímsdóttir flytja Passíusálma
sr. Hallgríms Péturssonar. Prestarnir lesa ritn-
ingarlestra á undan hverjum sálmi. Dagskrá
flutt hvert miðvikudagskvöld fram á föstudag-
inn langa.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sunnudaginn
21. febrúar kl. 17 verður guðsþjónusta. Sr.
Sunna Dóra Möller leiðir guðsþjónustuna
ásamt Láru Bryndísi Eggertsdóttur organista.
Ekki verður boðið upp á veitingar að guðsþjón-
ustu lokinni að svo stöddu. Það er grímu-
skylda og fólk er beðið að forðast hópamynd-
un í anddyri, fyrir og eftir guðsþjónustu.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn sam-
koma kl. 13 með fyrirbænum, lofgjörð og leikj-
um fyrir börnin. Ólafur H. Knútsson prédikar.
Athugið að frá og með sunnudeginum 21.
febrúar 2021 kemst allt safnaðarstarf í réttar
skorður aftur að teknu tilliti til sóttvarna-
reglna, en ekki verður boðið upp á kaffi og
samveru eftir samkomur enn sem komið er.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudaginn 21.
febrúar kl. 11 verður konudagsmessa og
sunnudagaskóli. Séra Fritz Már Jörgensson
þjónar fyrir altari. Kór Keflavíkurkirkju undir
stjórn Arnórs Vilbergssonar organista leiðir
okkur í söng og tónum. Jóhanna, Helga og Ingi
leiða sunnudagaskólann á sama tíma í Kirkju-
lundi. Munum grímurnar og tveggja metra regl-
una.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari. Félagar úr kór Kópavogskirkju
syngja undir stjórn Lenku Mátéová kantors
kirkjunnar sem leikur á orgel. Sunnudagaskól-
inn í safnaðarheimilinu Borgum á sama tíma.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Íris
Björk Gunnarsdóttir söngkona syngur ein-
söng. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur
þjónar. Félagar úr Kór Langholtskirkju syngja
undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar organ-
ista. Marta og Pétur taka á móti börnunum í
sunnudagaskólanum með söng og sögu.
Eldriborgarastarfið hefst miðvikudaginn 24.
febrúar kl. 12.10 með helgistund í kirkjunni
og allt barnastarfið er í sinni rútínu virka daga.
LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Kór Laugarneskirkju og Kristján Hrannar Páls-
son er organisti. Sr. Davíð Þór Jónsson prédik-
ar og þjónar fyrir altari.
22. 2. Kyrrðarkvöld. Kristin íhugun. Kirkjan
opnuð kl. 19.30.
24.2. Foreldrasamvera kl. 10-12.
25.2. Opið hús í Áskirkju kl. 12.
Virðum fjöldatakmarkanir og sóttvarnir!
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudaga-
skóli kl. 11, 6-9 ára starf á sama tíma. Guðs-
þjónusta kl. 20. Félagar úr kór Lindakirkju
leiða lofgjörð undir stjórn Óskars Einarssonar.
Sr. Dís Gylfadóttir þjónar.
NESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur
er Skúli S. Ólafsson. Félagar úr Kór Neskirkju
leiða safnaðarsöng. Organisti er Steingrímur
Þórhallsson. Gengið er beint inn í kirkjuna um
aðaldyr kirkjunnar. Sunnudagskóli á sama
tíma í safnaðarheimilinu. Söngur, leikir, sögur
og gleði. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir,
Sóley Anna Benónýsdóttir og Ari Agnarsson.
Gengið er beint inn í safnaðarheimilið.
Sandgerðiskirkja | Messa kl. 16. Félagar úr
kirkjukórnum syngja og leiða almennan söng.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Sunnudagaskóli
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjukórinn leið-
ir söng. Organisti er Rögnvaldur Valbergsson,
prestur er Sigríður Gunnarsdóttir.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Óli og Bára leiða stundina. Guðsþjónusta kl.
13. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson predikar.
Félagar úr Kór Seljakirkju leiða safnaðarsöng.
Organisti: Tómas Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg-
unn kl. 10. Eintal sálarinnar við sjálfa sig eftir
Martin Moller. Þórunn Sigurðardóttir, rann-
sóknarprófessor við Stofnun Árna Magnús-
sonar, talar. Sunnudagaskóli og guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar.
Elísabet Jónsdóttir flytur hugleiðingu. Konur í
Kvenfélaginu Seltjörn lesa ritningarlestra og
bænir. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti.
Þorsteinn Freyr Sigurðsson syngur einsöng.
Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju
syngja. Leiðtogar sjá um sunnudagaskólann.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnu-
dag kl. 11. Prestur er Egill Hallgrímsson. Org-
anisti er Jón Bjarnason. Hægt er að skrá sig
fyrirfram í gegnum vefsíðuna sregill.net og
tryggja þannig pláss í kirkjunni ef aðsókn fer
yfir gildandi fjöldatakmarkanir.
STÓRUBORGARKIRKJA Grímsnesi |
Guðsþjónusta sunnudag kl. 14. Prestur er Eg-
ill Hallgrímsson. Organisti er Jón Bjarnason.
Hægt er að skrá sig fyrirfram í gegnum vefsíð-
una sregill.net og tryggja þannig pláss í kirkj-
unni ef aðsókn fer yfir gildandi fjöldatakmark-
anir.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Messa kl. 14. Félagar úr
kirkjukórnum syngja og leiða almennan söng.
VÍDALÍNSKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta kl.
11. Útvarpað á rás 1 á RÚV. Alma Möller land-
læknir flytur ávarp. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
þjónar fyrir altari ásamt Ellen Sigurðardóttur
messuþjóni. Gospelkór Jóns Vídalíns syngur
og kórstjóri er Davíð Sigurgeirsson. Jóhanna
Guðrún Jónsdóttir syngur einsöng og Ingvar
Alfreðsson leikur á píanó. Sunnudagaskóli í
Urriðaholtsskóla kl. 10 og kl. 11 er sunnu-
dagaskóli í safnaðarheimili Vídalínskirkju.
Skráning í hátíðarguðsþjónustuna á hlekk
skraning.gardasokn.is.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Ingjaldshólskirkja á Snæfellsnesi.
Hinn 7. janúar sl.
var birt grein í Morg-
unblaðinu þar sem
undirritaður var að
kvarta yfir stjórnsýslu
Hafnarfjarðar og þar á
meðal bæjarstjórans.
Meðal þess sem und-
irritaður kvartaði yfir
var að bæjarstjórinn
virti hann ekki viðlits,
sem kom í ljós að var
misskilningur. Þannig er mál með
vexti að rétt fyrir jól sendi undirrit-
aður tölvupóst til bæjarstjóra Hafn-
arfjarðar þar sem hann óskaði eftir
að bæjarstjórinn leiðrétti tiltekna
stjórnsýslu þar sem starfsmenn bæj-
arins höfðu ekki farið rétt að við af-
greiðslu tiltekins máls. Bæjarstjór-
inn svaraði ekki tölvupóstinum og
gerði undirritaður þá ráð fyrir að
hann teldi ekki þörf á leiðréttingu.
Þegar greinin birtist í Morg-
unblaðinu kom í ljós að umræddur
tölvupóstur hafði farið fram hjá bæj-
arstjóranum og kannast undirrit-
aður einnig við að slíkt
hafi gerst hjá undirrit-
uðum. Þegar bæj-
arstjóranum var orðið
kunnugt um málið
skoðaði hún málið með
starfsmönnum bæj-
arins og komst að
þeirri niðurstöðu að
leiðrétta bæri þau mis-
tök sem voru gerð.
Öll gerum við mistök
og þannig mun það
verða áfram en á með-
an við erum tilbúin að leiðrétta mis-
tök ef möguleiki er á og læra af þeim
erum við enn á réttri braut. Það átti
við í þessu máli og verður að segja að
stjórnsýsla bæjarstjórans hafi verið
til fyrirmyndar.
Stjórnsýsla bæjar-
stjóra Hafnarfjarð-
ar til fyrirmyndar
Eftir Berg
Hauksson
Bergur Hauksson
» Verður að segja
að stjórnsýsla
bæjarstjórans hafi
verið til fyrirmyndar.
Höfundur er lögmaður.
Það er verið að bólusetja
við pestinni út um allan
heim og þykir ganga mis-
jafnlega. ESB segir að þar
verði allir sem vilji búnir
að fá bólusetningu í lok
sumars. Það tekur sem sé
tímann sinn og hvað með
þá sem eru svo heppnir að
vera framarlega í röðinni?
Eru þeir þá í forrétt-
indahópi, sem væri frjáls-
ari en aðrir?
Um þetta eru deildar
meiningar á meginlandinu.
Þeir sem neita að bólusetning sé
forréttindi segja takmarkanirnar
vera neyðarráðstöfun, og þegar for-
sendur bresti með bólusetningu fái
menn réttindi sín aftur og geti um
frjálst höfuð strokið.
Aðrir segja jafnræðisreglunni
fórnað ef einn má fara á konsert en
annar ekki, svo lengi sem bóluefni sé
takmörkuð auðlind.
Þannig virðist vera að rætast sem
margur spáði, þegar bóluefnin komu
fram, að ekki yrði tóm gleði, heldur
væri þarna komið fóður í mikið
sundurlyndi, a.m.k. tímabundið.
Í restina verður það vonandi eins
og þegar valið er í boltaleik í frímín-
útum að allir komist í liðið. Megi það
verða sem fyrst.
Sunnlendingur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
(For-)réttindi eða jafnræði?
Ásberg ehf
Fasteignasala
Hafnargata 27
421 1420
asberg.is
Hrauntún 1, 230 Reykjanesbær
Ásberg fasteignasala kynnir glæsilegt 310 m² einbýlishús á tveimur
hæðum við Hrauntún 1, Keflavík. Frábært útsýni. Húsið stendur á
eignarlóð, vel staðsett gagnvart skóla og fleira.
V. 108 m.