Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Page 5
Knattspyrnufélagið
Þróttur 25 ára
Á merkum tímamótum hefur það gjarnan verið vani manna að
líta yfir farinn veg og um leið að draga ályktanir af þeirri niður-
stöðu til lærdóms og þá til að eiga hægara með að gera sér grein
fyrir því hvað f ramtíðin ber í skauti sér og hvernig vinna beri að
þeim málaflokkum sem framundan eru.
Nú á tuttugu og f imm ára af mælisári Þróttar verður ekki annað
sagt en félagið sé búið að festa sig í sessi og sanna tilverurétt sinn.
Sem að líkum lætur eiga margir mætir menn og konur þar stór-
an þátt í. Þessu fólki verður seint þakkað sem skyldi fyrir fórn-
fúst og mikilsvert starf.
Fyrstu ár Þróttar á Grímstaðarholtinu minnist maður sem ára
mikils félagslffs og stórra vona, sém sumar rættust ekki og aðrar
miklu seinna en maður hafði vonast eftir.
Það tóksem sagt f immtán áraðfá fastan samastað fyrir félagið
fimm ár að koma þeirri aðstöðu í nothæft ástand og það gengur
grátlega seint að koma íþróttasvæði okkar í ástand sem viðunandi
er.
Það hefur verið eindregin stefna stjórnarinnar að félagið ætti
sjálft íþróttasvæðið og þ'au mannvirki er á því væru. Nú er svo
komið að félagið þarf að gera upp við sig hvort breyting verður á
því, þar sem allt starf stjórna félagsins beinist að því að halda
gangandi rekstri félagsins er verður umsvifameiri með
hverju ári sem líður og þær framkvæmdir sem framundan eru
geysif járfrekar. En þær eru að byggja félagsheimili, búningsher-
bergi og íþróttahús svo að f ullgera grasvöll og handknattleiksvöll.
Á íþróttasviðinu á félagið dýrmætan fjársjóð sem eru öflugir
yngri f lokkar bæði í handknattleik og knattspyrnu einnig nýstofn-
aða blakdeild, er ég ekki í nokkrum vafa að þetta unga fólk á eftir
að halda merki Þróttar hátt á lof ti um ókomin ár.
Guðjón Oddsson