Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Side 7
Afhending svæðisins.
Þann 11. febrúar 1964 samþykkti
borgarráð Reykjavikur að gefa
Knattspyrnufélaginu Þrótti kost á
Iþróttasvæði við Sæviðarsund. 17.
október sama ár afhenti svo þáver-
andi borgarstjóri i ReykjavikjGeir
Hallgrimsson, svæðið formlega i 15
ára afmælishófi félagsins, sem
haldið var I Sigtúni við Austurvöll.
Þáverandi formaður félagsins Jón
Asgeirsson veitti svæðinu viðtöku
fyrir hönd félagsins.
Félagssvæðið er um 4 hektarar
að stærð og takmarkast af Sævið-
arsundi að vestan, Holtavegi að
norðan, Elliðavogi að austan og
Brákarsundi að sunnan.
Samkvæmt tyrsta uppdrætti af
svæðinu var gert ráð fyrir malar-
velli, grasvöllum, handknattleiks-
veili, hlaupabraut, iþróttahúsi og
félagsheimili, svo eitthvað sé talið.
Húsið.
Stjórn Þróttar fékk sumarið 1965
gamalt timburhús, járnklætt hjá
Reykjavikurborg, en hús þetta stóð
við Réttarholtsveg, og átti að rifa
það vegna gatnaframkvæmda.
Félagsmenn tóku siðan höndum
saman og önnuðust flutning á hús-
inu i heilu lagi inn á svæðið, þar
sem þao -stendur enn þann dag í
dag.
Margir félagsmenn lögðu hönd á
pióginn við flutning hússins og unnu
þar gott starf, en eftir að búið var
að flytja húsið inneftir og steypa
undirstöður stóð það svo hálfklárað
I nokkuð langan tima, eða þar til
nokkrir félagar tóku sig saman og
unnu I sjálfboðavinnu við að inn-
rétta húsið og lagfæra. Ekki verða
þéír taldir upp hér sem að þessu
unnu, þvi hætt er við að einhver
kynni að gleymast I þeirri upptaln-
ingu, og er þá verr farið en heima
setið, en allir sem að þessu unnu
eiga þakkir skvldar fyrir. Félags-
heirnilíð nefur leyst mikinn vanda
félagsins bæði Iþróttalegan og fé-
lagslegan, þar sem Þróttur átti
engan samastað áður en hús þetta
kom til sögunnar.
En nú 5 árum eftir að húsið var
tekið I notkun er það orðið alltof lit-
ið og úr sér gengið af mikilli notkun
og ónógu viðhaldi og er það félag-
inu lifsnauðsyn að nýtt og fullkomið
búnings- og félagsheimili verði
reist sem fyrst og ætti það mai að
hafa algeran forgang innan stjórn-
arinnar, svo notuð séu þekkt orð úr
stjórnmálabaráttunni og er það
von min að næsta aðalstjórn félags-
ins muni vinna að þessu máli af
Félagssvæðið
Kjartan Kjartansson málarameistari félagsheimilis Þróttar að starfi.