Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Blaðsíða 12

Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Blaðsíða 12
Þróttaríjölskyldan Að koma á heimili þeirra Þor- valdar Helgasonar og Ásfrfðar Gfsladóttur að Ásgarði var ákaf- lega áhrifarikt fyrir undirritaðan. Kynslóðabil hvað er nú það mundi fólkið sem þar býr eflaust spyrja, ef það heyrði þetta útslitna tiskuorð nútímans. Mér er til efs að unglingavandamál hafi þekkst á þvi heimili, og eru þó búnir að vera unglingar þar I 20 ár. Það voru þrjár kynslóðir staddar I stofunni meðan ég rabbaði við heimilis- fólkið einn eftirmiðdag yfir kaffi og pönnukökum. Já vel á minnst, pönnukökurnar hennar frú Ás- frlðar eiga einnig sína sögu. Hún var vön að baka pönnukökur, meðan synirnir léku kappleiki i von um að hægt væri að halda upp á sigur. En þær fóru nú víst sömu leiðina þó leikurinn tapaðist. Sam- eiginlegt áhugamál heimilisins lýsir sér vel, er talið berst að íþróttaiðkunum fjölskyldumeðlim- anna, þar vissu bæði hjónin mæta vel um sigrana frá þvl Haukur, elsti sonurinn var I einu af fyrstu sigurliðum Þróttar IIV. fl. 1956. Is- lands- og Reykjavíkurmeistari ’61 i II. fl. 2 sigrar i II. deild Reykja- víkurmeistari meistaraflokks ’66. Þá lék hann nokkra leiki með úr- valsliðum, sér einkenni hans voru frábær vinstri fótarskot. Helgi er næstur I röðinni, hann er sá þeirra bræðra sem ekki hefur unnið mót þrátt fyrir yfir 100 leiki með meistaraflokki. En hann hefur fært 1 Þróttarheimilið fleiri bikara en nokkur annar þjálfari félagsins. Hann hefur unnið frábær s'törf við unglingaþjálfun hjá Þrótti. í félagsmálum er vart til það starf er hann hefur ekki lagt hönd á á undanförnum árum. Hann er nú- verandi formaður knattspyrnu- deildar. Þá erum við komin að Þor- valdi, sem er aðeins 16 ára. Hann hefur unnið 6 mótasigra með Þrótti og er mjög efnilegur knattspyrnu- maður, sem hefur sýnt frábæra ástundun við æfingar. Ég vona svo sannarlega að hann haldi áfram á sömu braut. Sigurður er yngstur þeirra bræðra, en hefur þó verið i sigurliði Þróttar I 4. flokki. Eitthvað er fjöl- skyldan óánægð, með aðeins einn mótasigur hjá honum 14 ára. Og við fjölskyldurannsókn kom I ljós að botnlanginn angraði unga manninn og var hann fjarlægður nýverið og verður nú ekki unað við neitt hálf- kák hér eftir hjá Sigurði. Nú halda víst flestir að upp sé talið, en svo er ekki, þvl þau hjón eiga tvær dætur og er sú yngri Margrét gift Guð- mundi Gíslasyni fyrirliða meist- araflokks'Þróttar i ár. Þegar ég spurði frúna hvernig henni hefði fundist sú sending inn I fjöl- skylduna sagði hún ágæt, en það er verst að hinn tengdasonurinn er ekki i keppni fyrir Þrótt. Ég hef nú aldrei skilið hvernig hann komst inn I fjölskylduna sagði Helgi þá. Hann er góður skákmaður sagði Siggi og þá var lausnin fundin þar var hægt að keppa við hann. Dóttir- in heitir Málfríður og er gift skák- manni fjölskyldunnar Stefáni Páls- syni. — Segðu mér Þorvaldur hver eru þín fyrstu kynni af Þrótti? — Þau ná langt aftur fyrir stofn- dag Knattspyrnufélagsins Þróttar, þó undarlegt megi virðast. Það er á árunum 1936-’45, sem við erum með fótboltafélag með þessu nafni á Grímstaðarholtinu en þar er ég uppalinn frá 4 ára aldri. Undir nafni Þróttar lékum við strákarnir af Grímstaðarholtinu við ýmis hverfafélög I Reykjavik. Mér er alltaf minnisstæður einn leikurinn við Gammana, en svo hét félag þeirra á Framnesveginum og þar I kring. Við höfðum undantekningar- laust unnið þá, og ekki virtist ætla að ganga ver nú en áður 6-2 I hálfleik. En I hálfleik skiptu þeir inná, nýjum félögum sem gengið höfðu I félagið meðan fyrri hálf- leikur var spilaður, og voru þar komnir Bommi, Jón á 11, Óskar Sig. og ég held bara allt KR-liðið frá þeim tlma. Þarna fengum við á okkur 10 mörk I seinni hálfleik og töpuðum 12-6. Þá var nú orðið heitt I kolunum undir lokin. Margir okkar af Grímstaðarholtinu léku með Val og Fram á þessum árum, og urðu meistaraflokksmenn. Þetta voru skinandi strákar á Holt- inu i þá daga, þó að einn og einn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur
https://timarit.is/publication/1573

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.