Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Side 19

Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Side 19
miskunnarlaust yfir landslýðinn. En verst af öllu er þó að knatt- spyrnan skuli vera búin að leggja undir sig sjónvarpið. I sjónvarpinu verður þetta allt svo lifandi að hinn knattspyrnusjúki gleymir stund og stað. Það er aldeilis voðalegt að horfa á sllka menn horfa á knatt- spyrnuleik i sjónvarpinu. Það er engu likara en þeim finnist þeir vera með I leiknum. Hrópin, köllin og stunurnar eru undrunar- og ógn- vekjandi, en eru þó ekkert I saman- burði við handleggjasláttinn og fótaspörkin út 1 loftlð. Það er af sem áður var að knatt- uð úti i bæ, heldur hefur hún nú haldið innreið sina á heimil- ið á þann veg, að henni verður ekki þaðan þokað með neinum tiltækum ráðum. Og það er fjarri þvi að hugtakið knatt- spyrnuekkja sé horfið þó knatt- spyrnumanian sé stunduð inn- an veggja heimilisins. Ef þú les- andi góður trúir mér ekki þá reyndu að komast i samband við á- hugasaman knattspyrnuunnanda, sem er að horfa á leik I sjónvarpinu meö glampandi augu og ljómandi andlit, og ég fullvissa þig að þú get- ur það ekki. Ekkert getur hróflað við hinum sjónvarpssjúka nema að skotist sé fram hjá skjánum. Þá rankar hann um leið við sér og öskrar „hvað er þetta manneskja, þarftu að stilla þér upp beint fyrir sjónvarpinu”. Þetta hlýtur að vera mikið vandamál þar sem ibúðir eru litlar og t.d. klósettið er þannig staðsett, að fólkið verður að ganga fyrir skerminn, nema þá að hinir fjöl- skyldumeðlimirnir leggist hrein- lega á fjóra fætur og skriði undir geislann. Og svo halda köllin á- fram: Vááá maður, sástu þetta, hvllikt spark, og mér sýnist ekki betur en sparkið sé endurtekið úr hægindastólnum. A eftir er svo leikurinn rakinn I smáatriðum, þannig að ekkert fer forgöröum. En þið hinar nýgiftu knattspyrnuekkjur látið ekki hug- fallast, með æfingunni og árunum náiö þið talsverðri leikni i að heyra þetta ekki. En þrátt fyrir allt, þá þykir okkur öllum afskaplega vænt um knatt- spyrnuhetjuna okkar og erum stoltar i laumi ef liðið „hans” sigr- ar. Og þessi „smágalli”, hjá hon- um aö vera svona bandvitlaus I þessa knattspyrnu, ja, — þá skul- um við llta I eigin barm — við höf- um kannski einhverja galla eða á- vana líka, sem okkar heittelskaði ber með stakri þolinmæði. \ | j.s. 19

x

Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur
https://timarit.is/publication/1573

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.