Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Síða 26
Trausti Þorgrimsson i dauöafæri.
Helstu atburðir i starfi
handknattleiksdeildar
’72-’74
ÞaB helsta sem við minnumst á
stðastliðnum tveim árum eru með-
al annars leikirnir i annari deild
stðastliðinn vetur þegar við höfðum
forystu I deildinni allt fram á sið-
ustu leiki en töpuðum þá úrslitaleik
við Gróttu um sætið i fyrstu deild.
Nokkrir leikmenn I meistara-
flokki’náðu þeim árangri að spila
sinn hundraðasta leik fyrir félagið i
handbolta á siðustu árum. Eru
þetta eftirtaldir leikmenn: Helgi
Þorvaldsson, Gunnar Gunnarsson,
Jóhann Frimannsson og Sveinlaug-
ur Kristjánsson. Einnig náði fyrsti
maðurinn þeim merka áfanga að
spila sinn tvöhundruðasta leik I
m.fl. I handbolta. Þessi maður er
Halldór Bragason. Halldór hefur
verið einn helsti leikmaðurinn i
Þrótti I báðum deildum á siðustu
árum. Eínnig hefur Halldór spilað I
urvalsliðum fyrir Þrótt.
Þá náði einn af ungu mönnunum
að komast i unglingalandslið og
spilaði á Norðurlandamóti siðast-
liðinn vetur. Fékk hann mjög góða
dóma fyrir sina frammistöðu.
Þessi ungi maður heitir Friðrik
Friðriksson og hef ég þá trú að við
eigum eftir að heyra mikið frá hon-
um á næstu árum.
Þá var á siðastliðnu sumri ráðist
I að senda f jóra menn i æfingabúðir
I Danmörku og voru þeir þar undir
handleiðslu Bjarna Jónssonar I
fjórar vikur. Þetta voru allt ungir
menn i félaginu og munum við
örugglega sjá árangur af þessari
ferð á næstu árum.
A siðasta vetri unnum við eitt
mót, sem var i 2. fl. karla I
Reykjavikurmóti og er þetta I ann-
að sinn, sem við vinnum þetta mót.
Flestir leikmenn úr þessu liði eru
nú leikmenn með meistaraflokki.
A þessu ári verður það i fyrsta
sinn sem Þróttur tekur þátt i öllum
flokkum íslandsmóts i handbolta.
A siðastliðnu vori tókum við þátt I
svokölluðu þrihyrningsmóti. Þátt-
tökuliðin varu frá Þrótti. Haukum
og Gróttu. Unnum við i sex flokk-
um, sem er mjög góður árangur og
fáum við sex bikara til varðveizlu,
sem er meira en nokkru sinni áður.
Félagslífið er ekki nógu gott og er
það vegna þess að timaleysið er
mikið hjá forráðamönnum deildar-
innar við að afla peninga og stjórna
daglegum rekstri deildarinnar.
Nú hefur handknattleiksdeildin
farið út I mikinn kostnað, með
ráðningu á dýrum leiðbeinanda.
Þessi maður, er sem öllum er
kunnugt Bjarni Jónsson, sem hefur
leikið marga leiki með landsliðinu
og hefur i siðastliðin þrjú ár leikið
með Danmerkurmeisturunum Ar-
hus K.F.U.M. Verðum við þvi að
heita á alla velunnara Þróttar að
styðja við bakið á okkur til að afla
tekna. Þvi að i dag er eini mögu-
leikinn að hafa góða leiðbeinendur
og kunnáttumenn til að ná árangri.
Eins ber að geta að aldrei hefur
meira verið gert fyrir keppendur
deildarinnar og aldrei hefur sam-
starfið verið betra. Þessvegna bið-
um við spenntir eftir að sjá árang-
ur deildarinnar i vetur.
Þá ber að geta þeirrar velvildar,
sem við höfum notið frá Davið
Thorsteinsson með auglýsinga-
samningi við deildina á búningum
m.fl. karla. Og kemur það sér vel
fyrir rýra pyngju deildarinnar.
Þá ber þess einnig að geta, að á
siðustu tveim árum hefur déildin
sent 5 flokka til annarra landa og
eru þetta fyrstu flokkarnir sem
fara til annarra landa frá deildinni.
Einnig var tekin upp sú nýjung að
leyfa yngri flokkum deildarinnar
að fara með og spila forleik þegar
m.fl. karla fer norður i keppni.
Óli K. Sigurðsson