Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Qupperneq 40
Knattspymuannáll
1963-1974
1963
Meistaraflokkur vann einu sigr-
ana, sem félagið vann á árinu þ.e.
II. deildina og afmælismót Víkings
i innanhússknattspyrnu. Þá lék
flokkurinn til úrslita I Reykja-
vikurmótinu gegn Val, en varö aö
lúta i lægra haldi.
Einn Þróttari var valinn I is-
lenska landsliöiö. en þaö var Axel
Axelsson, og er hann eini knatt-
spyrnumaöur félagsins, sem valinn
hefur veriö I A-landsliö. Þá voru 2
aörir leikmenn valdir i úrvalsliö.
Þeir: Jens Karlsson og Jón M.
Björgvinsson.
Þjálfari flokksins var ungverjinn
Simonyi Gabor, og átti hann mik-
inn þátt i velgengni flokksins.
1. flokkur hélt áfram aö vera
vandræöabarn félagsins og hlaut
ekkert stig úr leikjum sumarsins
og skoraöi 12 mörk gegn 49.
2. flokkur var varla til, þvi aðeins
6 piltar mættu á inniæfingar og á-
standiö batnaði ekki þegar útiæf-
ingar hófust, og var þá það ráö tek-
iö aö láta 2. flokk æfa með meistara
og 1. flokk, undir handleiöslu
Gabors, en allt kom fyrir ekki.
Flokkurinn lék aöeins 4 leiki um
sumarið og tapaöi öllum, gaf 4 leiki
og var dreginn úr haustmótinu.
3. flokkur, er sá flokkur, sem
staðið hefur sig bezt af yngri flokk-
unum. Hlaut flokkurinn 12 stig úr
mótum sumarsins og skoraði 21
mark gegn 27. Æfingar voru yfir-
leitt vel sóttar undir stjórn
Þorvaröar Björnssonar. Þá fór
flokkurinn i vel heppnaða ferö til
Danmerkur.
4. flokkur stóö sig öllum vonum
framar. Sölvi óskarsson hefur
þjálfaö þennan flokk með sllkum
ágætum aö undur má kallast, þvi
Reykjavikurmeistarar Þróttar 1966. Aftari röð f.v.: Guöjón S. Sigurösson form. Þrótt-
ar, Kjartan Kjartansson, Jens Karlsson, örn Steinsen sem jafnframt var þjálfari, Axel
Axelsson, Eyjólfur Karlsson, Halldór Bragason, Jón M. Björgvinsson, ólafur Bryn-
jóifsson og Steinþór Ingvarsson form. knattspyrnunefndar.
Fremriröö: Gunnar Ingvarsson, Ómar Magnússon fyrirliði, Guttormur Ólafsson, GIsli
Valtýsson, Eysteinn Guðmundsson, Eövarö Geirsson og Haukur Þorvaldsson.
flokkurinn varö I neðsta sæti I
Reykjavlkurmótinu en I 2. sæti I
haustmótinu. Æfingasókn var góð
allt sumariö.
5. flokkur var þjálfaralaus aö
kalla, þvl nokkrir menn höföu byrj-
að þjálfun en allir gefist upp. Þvl
varö uppskeran eins og til var sáö,
flokkurinn fékk ekkert stig um
sumariö og skoraði 2 mörk og fékk
á sig 78.
Knattspyrnunefnd var þannig
skipuð: Jens Karlsson form.,
Haukur Þorvaldsson, Ómar
Magnússon, Halldór Bachmann, og
Simonyi Gabor.
1964
Ekki er hægt að segja aö
afmælisáriö hafi fært mikla gleði,
til þess var árangur flokkanna allt-
of lélegur en aðeins einn flokkur
stóð upp úr þ.e. 3. flokkur undir
stjórn Sölva Óskarssonar. Meist-
araflokkur lék I fyrstu deild og féll
niður I 2. deild aftur eftir aukaleik
viö Fram.
Þróttur fékk 3 heimsóknir er-
lendra knattspyrnuliöa og skal þar
fyrst telja Middlesex Wanderers
A.F.C., sem er úrvalsliö breskra á-
hugamanna, sem hingaö komu
fyrir tilstilli formanns K.S.l.
Björgvins Schram. Lék liðið hér 3
leiki, hinn fyrsta við 1. deildarliö
Þróttar, tapaði Þróttur þeim leik 1-
5, er það I fyrsta sinn sem m.fl.
Þróttar leikur óstyrktur gegn er-
lendu liði. Þá lék liðiö gegn K.R. og
varð jafntefli 3-3, og siöasta leikinn
gegn úrvali K.S.l. og sigraði
Middlesex Wanderers með 6-1.
Önnur heimsókn var frá Holbæk,
en góö samskipti hafa tekist við
það félag. Léku danirnir 5 leiki hér
á landi, þar af tvo i Vestmannaeyj-
um, þar sem þeir unnu annan en
töpuðu hinum, en I Reykjavik léku
þeir tvo leiki gegn Þrótti, sem end-
uöu 3-3 og 1-0, fyrir Þrótti, og við
Vlking og unnu danirnir þann leik.
Þá tók félagið á móti 3. flokks liði
frá Söborg I Danmörku og lék liðið
einn leik gegn Þrótti á Melavelli og
sigraði Þróttur 3-0.
1965
Arið 1965, varð heldur skemmti-
legrra en árið á undan, tveir móts-