Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Síða 43
Fyrstu silfurdrengir Þróttar af nýja svæöinu, Haukur Andrésson, Þorvaldur I. Þor-
valdsson og Arsæll Kristjánsson, ásamt þjálfaranum Helga Þorvaidssyni.
son, Sölvi óskarsson, ólafur
Brynjólfsson og Þorvarður Björns-
son.
1969
Árið 1969 er timamótaár I sögu
knattspyrnunnar hjá félaginu. Fé-
lagið fær þá loksins fastan sama-
stað er völlurinn og félagsheiinilið
við Sæviðarsund eru vigð um vorið.
Einnig var stofnuð knattspyrnu-
deild, en áður hafði aðalstjórn skip-
að knattspyrnunefnd árlega. Strax
og æfingar hófust á nýja vellinum
hópuðust ungir drengir i félagið og
var svo komið að yfir 100 drengir
voru skráðir i 4. og 5. fl. Árangur
flokkanna var ekki sem verstur ef
frá er talinn m.fl. sem var i algjöru
lágmarki. Tapaði flokkurinn öllum
leikjum sinum i Reykjavikurmót-
inu og varð að leika aukaleik um
fallið i 3. deild.
1. flokkur stóð sig allra flokka
bezt og hlaut 15 stig úr leikjum
sumarsins. Þjálfari beggja flokk-
anna var Sölvi Óskarsson.
2. flokkur átti I mikjum erfiðleik-
um þetta árið, og er það mest að
þakka þeim Gunnari Gunnarssyni
og Þór Ottesen, leikmönnum
flokksins, að liðið mætti til leiks I
Reykjavikur- og tslandsmóti, en
liðið var dregið úr haustmótinu.
3. flokkur skipti oft um þjálfara
en að. lokum tóku þeir ólafur
Brynjolfsson og Eysteinn Guð-
mundsson, að sér þjálfun flokksins
og sótti hann sig er leið á sumarið.
Flokkurinn fór 1 vel heppnaða
keppnisferð til Danmerkur I boði
Holbæk og lék þar nokkra leiki.
4. flokkur stóð sig allsæmilega
þegar þess er getið að piltarnir
voru reynslulitlir, en þeir sóttu sig
er leið á sumarið. Þjálfari var Guð-
mundur Vigfússon og naut hann að-
stoðar Sigurðar Sigurðssonar.
Sama má segja um 5. flokk,
reynsluleysi háði honum mikið en
flokkurinn tapaði sjaldan illa og
vann nokkra góða sigra. Þá var í
fyrsta sinn sent lið i B-liðs mót 5.
flokks. Þjálfarar voru þeir: Helgi
Þorvaldsson og Sigurð
ur Pétursson, og höfðu þeir ærinn
starfa.
Deildin hélt 20 ára afmælismót I
innanhússknattspyrnu og var keppt
um grip, sem Albert Guðmundsson
formaður K.S.Í. gaf. Sigurvegari
var I.B.K.
Danska liðið Tasstrup kom hing-
að til lands i boði l.A. og voru dan-
irnir gestir Þróttar I 3 daga og sáu
Magnús V. Pétursson og óskar
Pétursson um móttöku.
Fyrstu stjórn hinnar nýstofnuðu
deildar skipuðu þeir: Jón Magnús-
son, form., Guðmundur Vigfússon,
Guðjón Oddsson, Jens Karlsson og
Ólafur Brynjólfsson.
1970
Loksins kom að þvi, að Þróttarar
gætu farið að bera höfuðið hátt. Ár-
angur sumarsins var slikur að ekk-
ert stóru félaganna gat lengur talið
sig öruggt um sigur fyrir fram i
yngri flokkunum. Hæst ber sigur 5.
flokks A i Reykjavikurmótinu, en
flokkurinn sigraði með miklum yf-
irburðum og tapaði ekki einu stigi
og var 4 stigum á undan næsta liði.
Flokkurinn sigraði einnig með yfir-
burðum i sinum riðli i íslandsmót-
inu, en i úrslitum i Suðurlandsriðli
vann lið K.R. 1-0 en tapaði fyrir Val
1-3 i raunverulegum úrslitaleik
mótsins, þvi Valur burstaði mót-
herja sina i aðalútslitunum. Liðið
tapaði aðeins 2 leikjum af 19 allt
sumarið.
Þá stóðu B og C liðin sig allvel og
var B liðið mjög nálægt sigrum i
mótum sumarsins. Þjálfarar
flokksins voru þeir Helgi Þorvalds-
son og Guðmundur Gislason.
4. flokkur stóð 5. flokki ekki langt
að baki, þó ekki tækist honum að
sigra i neinu móti sumarsins, en
flokkurinn stóð hinum félögunum
ekkert að baki. A-liðið vann 11 leiki
og tapaði aðeins 5, en B-liðið hlaut
13 stig af 30 mögulegum. Þjálfarar
voru þeir: Guðmundur Vigfússon
og Sigurður Sigurðsson.
3. flokkur stóð sig nokkuð sæmi-
lega og hlaut 11 stig af 32 möguleg-
um. B-liðið tók aðeins þátt i
Reykjavlkurmótinu og hlaut 1 stig.
Þjálfari var Ólafur Brynjólfsson.
Annar flokkur stóð sig ekki sem
skyldi og hlaut aðeins 7 stig af 30
mögulegum. Þjálfari var Axel
Axelsson.
Meistara og 1. flokkur voru
þjálfaralausir fram að júnibyrjun
en þá tók Eysteinn Guðmundsson
að sér þjálfunina. Ekki er hægt að
búast við miklum árangri þegar
þjálfari fæst svo seint. Flokkurinn
fékk 3 stig úr Reykjavikurmótinu
og 15 stig úr Islandsmótinu úr 14
leikjum. Þá féll liðið úr bikar-
keppni i fyrsta leik. Aður hafði liðið
tekið þátt i vetrarmótum K.R.R. og
K.R.H. Varð liðið I fyrsta sæti i
K.R.H. mótinu ásamt Breiðabliki
en aldrei var leikið til úrslita. 1
K.R.R. mótinu hlaut liðið 5 stig i 5
leikjum.
Þá fór flokkurinn til Þýzkalands I
mjög vel heppnaða keppnisferð og
þar kom raunveruleg geta flokks-
ins i ljós. Fyrsti flokkur stóð sig
vonum framar og hlaut 14 stig I 20
leikjum.
Knattspyrnudagur Þróttar var
haldinn i fyrsta sinn til að kynna
foreldrum yngri félaganna starf
deildarinnar. Heppnaðist dagurinn
43