Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Page 53
Skotlandsferð
3. f lokks 1974
Um mánaðamótin júll-ágúst
héldu Reykjavikurmeistarar
Þróttar I 3. flokki til Skotlands til
að endurgjalda heimsókn skoska
liðsins Drumchapel til íslands fyrr
um sumarið.
A meðan á dvölinni stóð bjó
flokkurinn, sem taldi 19 leikmenn
og 3 fararstjóra, I Anniesland
College I Glasgow, en allan veg og
vanda af dvölinni hafði David
Moyes sem er mörgum Islend-
ingum kunnur fyrir frábær störf sln
að samskiptum Islenskra og
skoskra unglingaliða, og var alveg
furðulegt hvað hann komst yfir á
einum degi, en fyrir utan að sjá um
móttökurnar, þá þjálfaði hann liðið
og mátti strax sjá framfarir hjá
þvl.
Flokkurinn lék 4 leiki I ferðinni
og var sá fyrsti gegn Campbeltown
og var það eini leikurinn á grasi.
Sigraði Þróttur með 1-0.
Annar leikurinn var gegn Drum-
chapel sem hafði harma aö hefna
frá íslandi, en þar hafði liðið tapað
3-5 og gert jafnt 2-2 gegn Þrótti.
Ekki var útlitið gott þegar 15
mlnútur voru eftir, þvl þá höfðu
skotarnir yfir 3-0, en þessar mlnút-
ur dugðu til að jafna 3-3.
Næst var leikið gegn Motherwell
sem var langsterkasta liðið sem
leikið var gegn, en þeir piltar hljóta
sömu þjálfun og 1. deildarlið fé-
lagsins. Þróttararnir létu það ekki
á sig fá, heldur léku sinn besta leik
á sumrinu og komust I 2-0 áður en
skotarnir áttuðu sig, en skoskir
knattspyrnumenn gefast ekki upp
fyrr en dómarinn flautar af og tókst
þeim að jafna fyrir leikslok.
Slðasti leikurinn var svo gegn úr-
valsliði frá Glasgow og var hann
jafn fram á siðustu mínúturnar en
þá sigldu skotarnir framúr og sigr-
uðu 4-2.
Eftir leikinn gegn Motherwell
hringdu forráðamenn nokkurra fé-
laga I David og báðu um leiki við
Þróttarana, því þaö þótti mikið af-
rek að gera jafntefli við þetta
sterka lið.
Milli þess sem piltarnir léku var
farið með hópinn I ýmsar ferðir,
t.d. var farið upp I Hálöndin þar
sem siglt var á Lock Katrine, farið
I dýragarð þar sem dýrin ganga
laus, og ekið til Edinborgar og
kastalinn skoðaður. Þá var flokkn-
um boðið ,að skoða leikvelli Celtic
og Rangers, og rúslnan I pylsuend-
anum var svo leikur milli þessara
erkifjenda á Hampden Park þar
sem Celtic sigraði eftir vltaspyrnu-
keppni.
Einn daginn var farið I heimsókn
I Pollok House, en þar er mikið
listaverkasafn. Eftir nokkur ræðu-
höld úti undir berum himni var
lagið tekið og tveir hópar af þjóð-
verjum kveðnir I kútinn. Á eftir
voru þegnar veitingar og safnið
skoðað.
Næst slðasta kvöldið sem dvalist
var I Skotlandi að þessu sinni var
efnt til kveðjuhófs I skólanum og
var þar margt um manninn þvl
piltarnir höföu eignast marga vini.
Var skipst á gjöfum og var skólan-
um afhent málverk af Vestmanna-
eyjum frá Þrótti og Stjörnunni I
Garöahreppi sem var með 3.
flokkslið sitt I heimsókn á sama
tlma. Til að sýna David Moyes
þakklæti sitt keyptu piltarnir fall-
egan bakka sem þeir létu grafa I
kveðju til hans og afhentu honum I
kveðjuhófinu. Þá voru honum færð-
ar gjafir frá fararstjórum og félög-
unum.
Fararstjórar I ferðinni voru:
Júllus Óskarsson, Helgi Gunnars-
son og Helgi Þorvaldsson.
H.Þ.
Reykjavíkurmeistarar 3. flokks 1974.
Standandi f.v. Helgi Þorvaldsson þjálfari, Rúnar M. Sverrisson, Kristinn Erlendsson,
Haukur Hafsteinsson, Haukur Andrésson, Baldur Hannesson, Ottó Hreinsson, Siguröur
K. Pálsson, Már Jóhannsson.
Sitjandi f.v. Stefán Stefánsson, Magnús B. Magnússon, Ársæll Kristjánsson, Sigurgeir
Sigmundsson, Siguröúr Pétursson, Þorvaldur t. Þorvaldsson fyrirl. Sverrir Einarsson
og Baidur Guögeirsson.
53