Þróttur 25 ára / Knattspyrnufélagið Þróttur - 01.11.1974, Side 57
sinar raöir slikan mann sem
Bjarna Jónsson og megum viö
væntanlega njóta góðs af hinni
miklu reynslu hans. Aðalstjórn
félagsins mætti fyrir alla muni
vera virkari og láta meira til sin
taka, sérstaklega i málefnum
félagsheimilis, sem auðvitað er
brýn nauðsyn og svo i samskiptum
sinum við hinn almenna félaga, það
fólk sem ber uppi merki félagsins
og stendur i eldlinunni á leikvelli.
Meiri félagsþroska mætti ala með
mönnum, þvi skólarnir hafa alveg
brugðist i þeim efnum. Þegar
félagsþroskinn er kominn á nógu
hátt stig, þá kemur fyrst virðingin
fyrir þvi sepi menn eru að fram-
kvæma og i þessu tilfelli, sem við
ræðum um, I iþróttunum verður
betri ástundun og menn leggja
meira á sig til að ná árangri.
— Að lokum. Hvert er þitt
persónulega takmark I iþróttun-
um?
— Að sýna heiðarlegan leik —
virða Iþróttirnar og komast i lands-
liðið.
Kristinn Hannesson fyrirliði 5.
flokks A 1974, gekk i Þrótt 1971 og
lék sinn fyrsta leik ári seinna.
— Af hverju gekkstu i Þrótt?
— Vinur minn sem var i Þrótti
fékk mig með sér og ég hef kunnað
vel við mig og eignast góða félaga.
— Hver er eftirminnilegasti leik-
urinn?
— Það er leikur gegn Armanni
1973, á Þróttarvellinum, þegar ég
skoraði eina markið sem ég hef
skorað fyrir Þrótt, en ég leik sem
miðvörður.
— Ertu ánægður með aðstöðuna
hjá Þrótti?
— Ekki alveg, það vantar stærra
félagsheimili og góðan grasvöll.
— Ertu ánægður með æfingarn-
ar?
— Já, þó mætti vera betra skipu-
lag á þeim. Æfingabúðirnar að
Laugarvatni hafa verið mjög góðar
og nauðsynlegt að halda þeim á-
fram.
— Hvað fannst þér helst vera að
hjá flokknum?
— Það vantaði meira skipulag I
leikjunum og svo fóru margir
strákanna I sveit og það kom illa
niður á liðinu.
— Hvers óskar þú Þrótti á af-
mælinu?
— Góðs félagsheimilis.
Páll Ólafsson var fyrirliði 4. flokks
keppnistimabilið 1973—4. Hann
vakti mikla athygli fyrir góða
boltameðferð og gott auga fyrir
samspili og átti hann stóran þátt I
velgengni flokksins það timabilið.
Okkur langaði að kynna hann litils-
háttar og fræðast um viðhorf hans
tii starfsins i Þrótti og spjölluðum
við hann stutta stund fyrir
skömmu.
— Hvað vilt þú segja um veru
þína I Þrótti?
— Mér hefur likað mjög vel i
Þrótti og hef átt margar ánægju-
stundir með félögum minum bæði i
handbolta og fótbolta. Við höfum
náð ágætis árangri og vil ég þakka
það góðum félagsanda og góðri æf-
ingasókn, auk þess sem þjálfari
okkar hann Helgi Gunnarsson hef-
ur lagt mikla rækt við okkur og
stundað þjálfunina af miklu kappi.
— Hvað er helzt til úrbóta hjá fé-
laginu til að koma betur til móts við
félagsmennina, þá yngri sérstak-
lega?
— Betra hús þarf fyrir alla
skemmtun svo sem bob, billjard og
borðtennis, einnig mættu vera
kvikmyndakvöld þar sem sýndar
væru íþróttamyndir og skemmti-
myndir og hægt væri að tala sam-
an og hlusta á plötur og svoleiðis.
— Er eitthvað sem þér liggur sér-
staklega á hjarta um málin i Þrótti
svona almennt?
— Ekki nema það, að mér finnst
ég hafa lagt mitt að mörkum fyrir
félagið og mig langar til að fleira
verði gert fyrir okkur, og sam-
skiptin við stjórnirnar verði betri
og skemmtilegri.
Erlingur Hjaltested, 14 ára fyrir-
liði IV. flokks.
— Hvenær byrjaðir þú að æfa
með Þrótti?
— Það var 1969, en ég spilaði
fyrst 1971.
— Hvernig hefur gengið?
— Við höfum unnið 6 mót, þar af
íslandsmót ’73.
— Hver er eftirminnilegasti leik-
ur þinn?
— Leikurinn gegn Fra^ J ~umar.
er við uiuium IV1. flokks bikarmn til
eignar fyrir Þrótt.
— Hverju þakkar þú þennan á-
gæta árangur?
— Fyrst og fremst góðum mæt-
ingum, þjálfaranum og þvi að við
erum ákveðnir i að vinna.
— Ertu ánægður i Þrótti?
— Ég hef verið ánægður I Þrótti
þar til I sumar. Við höfðum góðan
þjálfara fram yfir Reykjavikur-
mót, enda unnum við það. Þá hætti
þjálfarinn, en þrir aðrir voru að
þjálfa okkur i sumar, og mættu illa
á æfingar og við vorum stundum
einir. Enda unnum við ekki mót,
við hefðum unnið þau öll með góð-
um þjálfara. Við spiluðum verri
fótbolta I Haustmótinu, en i
Reykjavikurmótinu, svo ég get
ekki verið ánægður.
Örn Bragason, 18 ára fyririiði II.
flokks.
— Hvenær lékst þú þinn fyrsta
leik fyrir Þrótt?
— Ég lék með Val i 5. flokki, en
gekk yfir i Þrótt 1968 er félagið hðf
starfið hér i Sæviðarsundi.
57