Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 1

Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 2. M A R S 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 60. tölublað . 109. árgangur . Baldur Arnarson baldura@mbl.is Stjórn Íslandspósts gagnrýndi Birgi Jónsson, fyrrverandi forstjóra fyrir- tækisins, fyrir að fara gegn sam- þykktum við lækkun gjaldskrár. Þetta kemur fram í fundargerð stjórnarinnar 7. desember 2020 sem Morgunblaðið hefur undir höndum. „Ákvarðanir um taxtalækkun póstsendinga um áramótin 2019/ 2020 og hækkun í ágúst sl. voru ekki bornar undir stjórn og staðfestar í félagsins,“ sagði þar m.a. Til upprifj- unar varðar málið þá breytingu að miða við eitt gjaldsvæði en ekki fjög- ur í innlendum pakkasendingum upp að 10 kg. Hafði það í för með sér að verð úti á landi lækkaði mikið. Jafngilti niðurgreiðslum Hafa Samtök verslunar og þjón- ustu sakað Póstinn um að niður- greiða þannig þjónustuna og með því grafa undan samkeppninni. Athygli vekur að sama dag og Pósturinn tilkynnti Póst- og fjar- skiptastofnun um lækkunina – hinn 16. desember 2019 – undirritaði fyrr- verandi forstjóri samþykktir fyrir Íslandspóst ohf. Kváðu þær meðal annars á um skyldustörf stjórnar en meðal þeirra var að setja gjaldskrá fyrir félagið í samræmi við lög. Þá kemur fram í fundargerð 30. nóvember sl. að Thomas Möller stjórnarmaður fór fram á að fá greiningu á öllum breytingum á gjaldskrá og ítrekaði að þær skyldu lagðar fyrir stjórn. Thomasi var vik- ið úr stjórn á síðasta aðalfundi. »12 fundargerð í sam- ræmi við sam- þykktir félagsins. Forstjóri félags- ins bar fulla ábyrgð á þessum ákvörðunum. Stjórn harmar þessa málsmeð- ferð og er sam- mála um að eftir- leiðis verði þess gætt að upplýsingagjöf og form ákvörðunar- töku séu í samræmi við samþykktir Forstjóri fór fram hjá stjórn Birgir Jónsson - Stjórnarmenn í Póstinum gagnrýna samráðsleysi forstjóra við verðlækkun Fermingarbörn í Grindavík fóru í gær með rútu í Sandgerði og áttu þar stund með þeim jafnöldrum sínum sem einnig fermast nú í vor. Samhristingur var stund þessi kölluð, það er að blanda geði og finna það jákvæða í lífinu eins og ungt fólk „Krakkarnir taka jarðskjálftunum alveg eins og hetjur og minnast raunar ekki á þá við mig,“ segir sr. Elínborg Gísla- dóttir, sóknarprestur í Grindavík. Henni finnst sem bæj- arbúar taki umbrotunum af þolgæði og æðruleysi. »4 kann vel. Að tala um samhristing vísar einnig til jarðhræring- anna sem skekið hafa Suðurnesin að undanförnu. Snarpur jarðskjálfti sem mældist 4,5 reið yfir í gærmorgun, einn af mörgum þúsunda skjálfta á Suðurnesjum síðustu vikurnar. Morgunblaðið/Eggert Samhristingur fermingarbarna í Grindavík _ „Ég skil ekkert í þessu, næ ekki upp í það hvaða rugl þetta er í þessu hyski. Þetta er ekki þjófnaður, þetta er rán. Munurinn á þjófi og ræn- ingja er sá að ræninginn kemur á daginn en þjóf- urinn um nóttina,“ segir Pétur Guð- mundsson, aðaleigandi jarðarinnar Ófeigsfjarðar á Ströndum, um kröfu ríkisins um að meginhluti Ófeigs- fjarðarheiðar verði þjóðlenda. Hann segist munu verjast. »16 Mun verjast kröfu ríkis um þjóðlendu Pétur Guðmundsson Snorri Másson snorrim@mbl.is Allt leit út fyrir að tuttugu farþegar myndu verja nóttinni um borð í ferj- unni Baldri á Breiðafirði eftir að önnur túrbínan í bátnum brast. Áhöfnin telur átta manns og fjöldi viðbragðsaðila fylgdi ferjunni suður á bóginn, þar sem hún var dregin að Stykkishólmi. Samkvæmt upplýs- ingum frá Landhelgisgæslunni, sem fengust í gærkvöldi, var ráðgert að dráttarbátur frá Faxaflóahöfnum kæmi að ferjunni í morgunsárið og drægi hana þá inn að bryggju á Stykkishólmi. Varðskipið Þór og rannsóknarskipið Árni Friðriksson þóttu of stór til verksins. Vel fór um flesta í ferjunni þar sem ljósavélar voru virkar, hlýtt um borð og lambalæri og síðar heitt kakó á boðstólnum fyrir farþegana. Landhelgisgæsluna og nokkra far- þega greindi þó á um hvort öllum hefði verið boðið að þiggja far með þyrlunni í land í gær en Landhelg- isgæslan sagði frá því í tilkynningu. Ljóst var þó að hluti farþega var einnig með bifreiðar eða varning um borð, þannig að marklaust hefði ver- ið að komast í land á undan þeim far- angri. Baldur brást af sömu ástæðu í júní í fyrra og framkvæmdastjóri Sæferða, sem reka ferjuna, harmaði í gær að það endurtæki sig nú. Baldur dreginn í land - Vélarvana ferja með 20 farþega dregin til Stykkishólms Ljósmynd/Landhelgisgæslan Björgun Rannsóknarskipið Árni Friðriksson dró Baldur í átt að Stykkishólmi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.