Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Glæsilegar
VORVÖRUR
Kjólar • Vesti • Blússur • Peysur • Bolir • Jakkar
Nýjar
töskur
Sigríður Andersen spurði Katr-ínu Jakobsdóttur út í sóttvarnir
í fyrirspurnatíma á Alþingi í gær.
Þær töluðu dálítið í kross til að
byrja með en spurningarnar og
svörin skiptu þó
máli þegar upp var
staðið. Sigríður
furðaði sig á að fram
hefði komið hjá for-
sætisráðherra „að 1.
maí yrði í raun lítil
breyting á þeirri
sóttkví sem landið
er í raun allt saman í
þessa dagana“. Sig-
ríður vísaði til þess
að stjórnvöld teldu
bólusetningar
ganga afskaplega
vel og þegar 70 ára
og eldri hefðu verið
bólusettir, að ekki sé
talað um 60 ára og
eldri, væri hættan á dauðsföllum
orðin hverfandi.
- - -
Katrín hélt sig fyrst við að horfayrði til þróunar í öðrum lönd-
um og útskýrði litakóða, tvöfalda
skimun og sóttkví frá rauðum lönd-
um og einfalda skimun og PCR-próf
frá grænum og gulum löndum.
- - -
Svo tók hún þó undir með Sigríðiog sagði það „alveg hárrétt“
hjá henni að það yrðu „ákveðin
kaflaskil“ þegar bólusetningu 70
ára og eldri lyki. Og hún bætti því
við að stjórnvöld myndu að sjálf-
sögðu „taka mið af því við áætlanir
sínar og ákvarðanir um sóttvarnir“.
- - -
Auðvitað hlýtur það að vera svoað þegar viðkvæmu hóparnir,
jafnt þeir yngri sem veikir eru fyrir
og hinir eldri, hafa verið bólusettir,
verði slakað á sóttvörnum. Stjórn-
völd þurfa ekki að vera feimin við
að viðurkenna það, þvert á móti.
Það sýnir fólki að nú styttist í að
hægt verði að hefja eðlilegra líf á
ný.
Sigríður
Andersen
Á ekki bólusetning
að hafa áhrif?
STAKSTEINAR
Katrín
Jakobsdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Samkomulag um verkefni til þriggja
ára um að byggja upp atvinnulíf á
Seyðisfirði hefur verið undirritað.
Ríkisstjórnin leggur 215 milljónir til
að styðja þróun atvinnutækifæra og
nýsköpun, greiða fyrir því að óvissa
verði leidd til lykta og einyrkjum og
minni fyrirtækjum verði veitt ráð-
gjöf. Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra
undirritaði samninginn fyrir hönd
ríkisins í heimsókn sinni til Seyðis-
fjarðar í gær.
Austurbrú heldur utan um verk-
efnið og yfir því er verkefnisstjórn
með fulltrúum Múlaþings og íbúum
Seyðisfjarðar, auk Austurbrúar.
Gauti Jóhannesson, forseti sveitar-
stjórnar Múlaþings, er formaður
stjórnar.
Gengið frá samningi um stuðning
- Ríkið leggur 215 milljónir króna til að
byggja upp atvinnulíf á Seyðisfirði
Undirritun Jóna Árný Þórðardóttir, Sigurður Ingi og Björn Ingimarsson.
„Þetta er heilmikil upphefð. Bæði
fyrir mig persónulega en ekki síður
skattinn/tollgæsluna,“ segir Sig-
fríður Gunnlaugsdóttir, fagstjóri al-
þjóðamála hjá tollgæslunni.
Sigfríður var nýverið kjörin for-
maður þekkingaruppbyggingar-
nefndar Alþjóðatollastofnunar-
innar, WCO Capacity Building
Committee. Hún segir í samtali við
Morgunblaðið að það sé krefjandi
verkefni að takast á við formennsku
í jafn mikilvægri nefnd hjá stofnun-
inni. Sigfríður kveðst einnig sann-
færð um að formennska Íslands
falli vel að áherslu íslenskra stjórn-
valda á frjáls og opin alþjóða-
viðskipti, lýðræði, jafnrétti og sjálf-
bæra þróun.
Hlutverk formanns nefndarinnar
er m.a. að stýra fundum hennar og
móta dagskrána fyrir hvern fund
sem fulltrúar 100-120 ríkja sitja
auk annarra. Formaðurinn kemur
auk þess fram fyrir hönd nefndar-
innar, fylgist með starfi stofnunar-
innar og tekur þátt í mótun mála-
flokksins.
Sigfríður hefur lengi gefið sig að
alþjóðastarfi á sínu sviði og hefur
komið sér upp góðu tengslaneti.
Áður en hún kom til starfa hjá toll-
inum var hún verkefnastjóri hjá
Þróunarsam-
vinnustofnun í
Malaví í tvö ár.
Hún segir í sam-
tali við Morg-
unblaðið að starf
þekkingarupp-
byggingar-
nefndar
Alþjóðatolla-
stofnunarinnar
hafi strax heillað
hana enda taki það til 180 landa.
„Þetta er breiður hópur með mis-
jafnar þarfir,“ segir Sigfríður sem
kveðst telja að þróunarríki hafi til að
mynda fengið mikið út úr starfi
nefndarinnar. Þar hafi þau fundið
stuðning og hjálp en einnig verið
lögð áhersla á að sem flest aðild-
arríki komi að starfinu bæði sem
veitendur og þiggjendur.
Nefndin tryggir að veitt sé tækni-
leg aðstoð í ríkjum þar sem þess
gerist þörf og sérfræðingar í tolla-
málum miðla þekkingu sinni. „Ég
hef verið talsvert í því sem fulltrúi
íslensku tollgæslunnar í starfi WCO
að veita fræðslu og þjálfun, meðal
annars á sviði heilinda- og jafnréttis-
mála í ýmsum aðildarríkjum, eink-
um í Afríku og austanverðri Evr-
ópu,“ segir Sigfríður. hdm@mbl.is
Falið að stýra stórri
nefnd hjá WCO
- Upphefð fyrir Sigfríði Gunnlaugsdóttur
Sigfríður
Gunnlaugsdóttir