Morgunblaðið - 12.03.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
Veitir
náttúrulega
og milda
umhirðu
Inniheldur
flúor
ferskt
mintubragð
vegan
Styrkir tannhold
og tennur
Inniheldur 99%
náttúruleg efni
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við teljum að það vanti skýrari sýn
á umfang þessa ofbeldis,“ segir Run-
ólfur Þórhallsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn hjá embætti ríkislög-
reglustjóra.
Í gær var kynnt ný skýrsla um of-
beldi gegn öldruðum sem unnin var
af greiningardeild ríkislögreglu-
stjóra. Þar kemur fram að þörf sé á
að rannsaka ofbeldi gegn öldruðum
sérstaklega, enda bendi rannsóknir
til þess að það sé falið, sjaldan til-
kynnt og einkenni þess oft ekki
þekkt. Vitnað er í tölur Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar sem
áætlar að tæp 16% fólk yfir sextugu
verði fyrir ofbeldi. „Það er erfitt að
byggja einvörðungu á tölulegum
upplýsingum. Lögreglan hefur verið
með mikið átak varðandi heimilis-
ofbeldi. Það er samfélagslegt vanda-
mál og við þurfum að fá fleiri aðila að
borðinu til að fá skýrari sýn. Reykja-
víkurborg og háskólasamfélagið hafa
gert rannsóknir og það væri gott að
fá fleiri slíkar til að geta horft betur
til framtíðar,“ segir Runólfur. Hann
vísar til þess að öldruðum muni
fjölga umtalsvert á næstu áratugum
og því mikilvægt að grípa inn í.
Rakið er í skýrslunni að lögregla
hér á landi hafi lýst yfir áhyggjum af
auknu heimilisofbeldi vegna við-
bragða við kórónuveirufaraldrinum
og bendi fyrirliggjandi tölur til 10%
aukningar. Einkum sé þar um að
ræða konur og börn en aldraðir Ís-
lendingar í viðkvæmri stöðu hljóta
ekki síður að hafa talist sérstakur
áhættuhópur hvað ofbeldi varðar
þegar aðgerðir á þeim tímum voru
ákveðnar.
Ofbeldi sem aldraðir kunna að
sæta er skipt í nokkra flokka; lík-
amlegt ofbeldi svo sem áverka og
skurði, tilfinningalegt ofbeldi svo
sem bjargarleysi eða ótta, fjárhags-
legt ofbeldi svo sem að peninga
skorti fyrir nauðsynjum og van-
rækslu svo sem að aldraður sé illa
klæddur eða vannærður.
Meðal þess sem lagt er til í skýrslu
ríkislögreglustjóra er að bakgrunnur
starfsfólks á dvalar- og hjúkr-
unarheimilum verði kannaður með
tilliti til ofbeldishegðunar, gerðar
verði frekari rannsóknir á ofbeldi
gagnvart öldruðum á Íslandi og
þekking lögreglu og almennings á
einkennum ofbeldis gegn öldruðum
verði efld. „Við erum til að mynda að
fara af stað með Neyðarlínunni og
fleiri aðilum að reyna að koma af stað
vitundarvakningu. Það er mikilvægt
að koma umræðunni af stað,“ segir
Runólfur.
Vilja rannsaka
betur ofbeldi
gegn öldruðum
- Ný skýrsla ríkislögreglustjóra kynnt
- Kanna þurfi bakgrunn starfsfólks
Morgunblaðið/Ómar
Eldri borgarar Fjölga mun hratt í
þeirra hópi á næstu áratugum.
Guðrún Vala Elísdóttir
Borgarnesi
Skóflustunga var tekin í gær að
fyrsta áfanga nýs íbúðahverfis í
Bjargslandi í Borgarnesi. Áætlað er
að framkvæmdir hefjist um leið og
allar leyfisveitingar liggja fyrir.
Um er að ræða um það bil 80 par-,
fjöl- og einbýlishús í heildina. Loka-
fjöldi íbúða liggur ekki fyrir að svo
stöddu þar sem verið er að vinna við
gerð deiliskipulags fyrir hluta af
seinni áfanga verkefnisins. Í fyrsta
áfanga verða byggð sex fjölbýlishús,
í hverju húsi verða fjórar 90 fer-
metra íbúðir, 2-3 herbergja, og ein
50 fermetra og tveggja herbergja.
Miðað er við að hægt verði að
kaupa íbúðirnar með hlutdeildar-
lánum.
Viljayfirlýsing um samstarf við
uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í
Bjargslandi var undirrituð fyrir
rúmu ári af byggðarráði Borgar-
byggðar og fulltrúum þriggja verk-
takafyrirtækja í Borgarbyggð.
Nú ári síðar er búið að stofna
hlutafélag sem heitir Slatti ehf. og
er í eigu þessara þriggja fyrirtækja
sem munu halda utan um verkefnið.
Búið er að undirrita rammasamning
um verkefnið. Markmið samningsins
er að auka framboð á nýju og fjöl-
breyttu húsnæði í Borgarnesi og að
efla og þróa byggð í Borgarbyggð til
hagsbóta fyrir sveitarfélagið, íbúa
þess og atvinnulíf á svæðinu.
Með undirritun samningsins
skuldbinda framkvæmdaaðilar sig
til þess að sjá um uppbyggingu
svæðisins í heild sinni, en um er að
ræða heilt íbúðahverfi með fjöl-
býlis-, par- og raðhúsum. Jafnframt
liggur fyrir að hluti lóða í hverfinu
verður boðinn til úthlutunar á al-
mennum markaði og verður fyrir-
komulag úthlutunar auglýst síðar.
Framlag sveitarfélagsins felst meðal
annars í því að veita vilyrði fyrir út-
hlutun lóða á tilgreindu deiliskipu-
lagssvæði.
Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitar-
stjóri Borgarbyggðar, ávarpaði við-
stadda og lýsti ánægju sinni með
framtakið. Hún sagði það ánægju-
legt að sjá þetta samstarfsverkefni
verða að veruleika. Blómleg upp-
bygging í Bjargslandi myndi hafa já-
kvæð áhrif á sveitarfélagið í heild
sinni og standa vonir til þess að
þetta leiði til þess að fleiri fyrirtæki
fari af stað með byggingarfram-
kvæmdir í Borgarbyggð. Þórdís
steig síðan upp í gröfu og tók fyrstu
skóflustunguna með glæsibrag.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Borgarnes Frá athöfninni í gær þegar skóflustunga var tekin að nýju íbúðahverfi í Bjargslandi.
Fyrsta skóflustunga
tekin í Bjargslandi
- Nýtt 80 húsa íbúðahverfi mun rísa í Borgarnesi á næstunni
12. mars 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 127.91
Sterlingspund 177.51
Kanadadalur 101.11
Dönsk króna 20.453
Norsk króna 15.081
Sænsk króna 15.009
Svissn. franki 137.39
Japanskt jen 1.1775
SDR 182.58
Evra 152.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 186.6101
Hrávöruverð
Gull 1711.5 ($/únsa)
Ál 2141.0 ($/tonn) LME
Hráolía 67.46 ($/fatið) Brent
Verkefnið Römpum upp Reykjavík
var kynnt við hátíðlega athöfn í
gær. Með því er stefnt að því að
setja upp hundrað rampa fyrir fólk
í hjólastól eins fljótt og auðið er á
árinu 2021 í miðbæ Reykjavíkur.
Um er að ræða sjóð með aðkomu
fjölmargra fyrirtækja og aðila sem
mun standa straum af meginkostn-
aði fyrir þá verslunar- og veitinga-
húsaeigendur sem taka þátt í verk-
efninu.
Morgunblaðið/Eggert
Athöfn Hvatamaðurinn Haraldur Þorleifsson kynnti verkefnið í gær.
Munu setja
upp hundrað
nýja rampa