Morgunblaðið - 12.03.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 12.03.2021, Qupperneq 12
BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Guðjón Már Guðjónsson, forstjóri tæknifyrirtækisins OZ, segir í sam- tali við Morgunblaðið að fyrirtækið muni byrja að bjóða almenningi að prófa nýja tækni fyrirtækisins í byrjun næsta sumars, en tæknin gengur út á að færa upplifunina við að horfa á íþróttakappleik heim í stofu. „Við ætlum að rúlla þessu út fyrir almenning í nokkrum skrefum í byrjun sumarsins og verðum komin á fulla keyrslu fyrir HM í fótbolta í Katar í lok árs 2022,“ segir Guðjón. Eins og sagt var frá í Morgun- blaðinu fyrr í vikunni hefur hið þekkta viðskiptarit Fast Company útnefnt OZ sem eitt af tíu fram- sæknustu fyrirtækjum í heimi á sviði íþróttatækni. Guðjón segir að útnefningin sé mikill heiður. „Við erum kampakát með þessa viður- kenningu.“ Stór markhópur Eins og Guðjón útskýrir kemst aðeins lítið brot íþróttaáhugamanna á kappleiki sem eru í boði í eðlilegu árferði, eins og til dæmis úrslitaleik bandaríska hafnaboltans, ofurskál- ina, eða á leik í úrvalsdeildinni í fót- bolta í Englandi. Við þessu hefur OZ fundið lausn, en með því að opna smáforrit fyrirtækisins þegar mað- ur horfir á leik í sjónvarpinu er hægt að bjóða allt að átta vinum að „upplifa“ leikinn með sér. Hróp og köll, gleði og sorgir enduróma þá í heyrnartólum vinanna, rétt eins og þeir sætu saman á vellinum í eigin persónu. „Ef við tökum ofurskálina sem dæmi þá komast kannski sextíu þúsund manns á völlinn en sextíu milljónir eru að horfa heima hjá sér. Það er sá markaður sem við erum að horfa til. Við erum að bjóða fólki að komast nær upplifuninni sem þessi sextíu þúsund eru að njóta á vellinum. Að auki sérðu sjálfan þig og vini þína á vellinum í gegnum appið sem manngerving (e. avatar).“ Tekjur af varningi Notkun forritsins verður ókeypis en tekjur ætlar OZ að fá í gegnum sölu á margvíslegum stafrænum varningi, eins og liðstreyjum sem þú getur klætt manngervinginn þinn í meðan á leik stendur, fánum eða öðru. „Við vinnum þetta í samstarfi við deildirnar og klúbbana. Þetta mun breikka út tekjumöguleika þeirra til muna.“ Áður en OZ ákvað á síðasta ári að beina athyglinni í auknum mæli að þróun upplifunarappsins var áhersl- an meiri á þróun á upptökutækni fyrir íþróttakappleiki, en félagið hefur verið með þá tækni í smíðum síðustu ár. Þar kemur OZ mynda- vélum fyrir allan hringinn í kringum íþróttavelli og tekur svo upp með hjálp gervigreindar til að geta fjar- stýrt. Guðjón segir að OZ sé búið að framleiða hundruð íþróttaviðburða með tækninni. Viðskiptamódelið gengur út á greiðslur frá íþrótta- deildum fyrir sýningarrétti. Um ástæðu þess að fyrirtækið ákvað að söðla um og efla áherslu á neytandann segir Guðjón að þegar veirufaraldurinn fór af stað hafi kappleikir lagst í dvala. Þá hafi góð ráð verið dýr. „Við urðum fyrir ákveðnu áfalli í byrjun faraldursins og tekjufalli. En veirufaraldurinn gaf okkur stækkunargler til að rýna inn á við og sjá hvar mestu mögu- leikarnir væru. Það leiddi okkur inn á núverandi braut. Fyrst hugsuðum við þetta fyrir fótboltaleiki, en sáum síðan að hægt væri að nýta lausnina fyrir allar gerðir kappleikja. Það opnaði augu samstarfsaðila okkar, starfsfólks og hluthafa á að við gæt- um herjað á mun stærri markaði.“ Feta í fótspor Fortnite Spurður um viðtökur deilda og klúbba við hugmyndinni segir Guð- jón að þær hafi komið ánægjulega á óvart. „Ástæðan er sú að þetta er ný tekjuleið þar sem ekki er verið að brjóta neina skilmála í flóknustu samningum. Það er búið að vera okkar helsta áskorun undanfarin ár að búa til nýja tekjuleið fyrir klúbb- ana sem ekki gengur í berhögg við dreifi- og útsendingarsamninga við sjónvarpsstöðvar og leikmenn o.s.frv. Við erum þarna að feta í fót- spor tölvuleikjafyrirtækja eins og Fortnite, sem hafa einmitt gert svona samninga við íþróttafélög og keppnisdeildir.“ Spurður um tekjumöguleika í framtíðinni segist Guðjón engu vilja spá enda óvissan ávallt til staðar. „Það byggist algjörlega á hvað okk- ur tekst að gera þetta einfalt og að- gengið gott. Ef vel tekst til gæti þetta orðið stórt, en við gætum líka auðveldlega klúðrað þessu,“ segir Guðjón og brosir. Tuttugu og fimm manns vinna hjá OZ í fullu starfi, en að auki vinnur fjöldi sérfræðinga fyrir fyrirtækið í fjarvinnu víða um heiminn í hluta- starfi. Sígildar fjármögnunaraðferðir Eins og áður hefur verið sagt frá í Morgunblaðinu hefur fyrirtækið safnað um milljarði króna í hlutafé. Guðjón segir að meðal hluthafa sé til dæmis einn af höfundum tölvu- leiksins vinsæla League of Legends og einnig er toppstjórnandi frá kín- verska risafyrirtækinu Tencent í hluthafahópnum m.a. „Félagið er fjármagnað eftir sígildum aðferðum nýsköpunarfyrirtækja þar til við náum að komast yfir núllið í rekstr- inum. Það ríkir bjartsýni um að sú aðferð muni ganga vel og vonandi komumst við réttum megin við núll- ið á undan áætlun, eða sem allra fyrst.“ Ný tækni í boði næsta sumar Tækni Notendur sjá sjálfa sig og vini sína á vellinum í gegnum appið sem manngervinga (e. avatar). Nýsköpun » Tæknin komin á fullan skrið fyrir heimsmeistarakeppnina í fótbolta í Katar árið 2022. » 25 manns auk fjölda sér- fræðinga í hlutastarfi vinna við þróun forritsins. » Urðu fyrir ákveðnu áfalli í byrjun faraldursins og miklu tekjufalli. » Ný tekjuleið fyrir íþrótta- félög og keppnisdeildir. » Fast Company valdi Oz á dögunum sem eitt af tíu frum- legustu fyrirtækjum í heimi á sviði íþróttatækni. - Hægt verður að bjóða átta vinum að upplifa íþróttakappleiki með sér heima í stofu - Fá tekjur í gegnum sölu á stafrænum varningi - Risastór markaður - 1% kemst á leikina, aðrir heima í stofu 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 Aðalfundur Marel hf. verður haldinn 17. mars 2021 klukkan 16:00 og er fundurinn eingöngu rafrænn. Hluthöfum er bent á að nauðsynlegt er að skrá þátttöku á aðalfundinn fyrirfram. Skráning fer fram áwww.smartagm.com vegna hlutabréfa sem skráð eru á Nasdaq Íslandi og hjá viðkomandi vörsluaðila vegna hlutabréfa sem skráð eru á Euronext Amsterdam. Nánari upplýsingar og fundargögn má nálgast á aðalfundarvef Marel, www.marel.com/agm Rafrænn aðalfundur Marel Samþykkt var á aðalfundi Íslands- pósts síðastliðinn föstudag að hækka laun stjórnarmanna úr 172 þúsund á mánuði í 177 þús- und. Formaður stjórnar fær tvö- föld laun stjórn- armanns. Þetta kom fram á fundinum. Þá kemur fram í nýbirtum árs- reikningi að laun og hlunnindi stjórnar, for- stjóra og lykilstjórnenda hafi numið 207,6 milljónum árið 2019 en 153,6 milljónum árið 2020. Laun forstjóra 28,3 milljónir Þá hafi laun forstjóra verið 41,6 milljónir árið 2019 en 28,3 milljónir í fyrra. Þá lækkuðu laun stjórnar- manna úr 14 milljónum 2019 í 12,3 milljónir króna 2020. Bent er á að hluta af ári voru tveir forstjórar á launum hjá félaginu auk stjórnenda sem létu af störfum á árinu. En til upprifjunar urðu miklar breytingar á stjórn félagsins árið 2019 þegar Birgir Jónsson varð for- stjóri. Benda tölurnar til að stjórn- endaskiptin hafi kostað tugi millj- óna. Þá kemur fram í fundargerð stjórnar Póstsins 30. nóvember sl. að Thomas Möller stjórnarmaður fór fram á að fá greiningu á öllum gjald- skrárbreytingum og ítrekaði hann að þær skyldu lagðar fyrir stjórn til samþykktar samkvæmt samþykkt- um félagsins. Bjarni Jónsson, for- maður stjórnar, lagði við það tilefni til að stjórn fengi frekari greiningar og fyndi því farveg hvernig verð- breytingar yrðu lagðar fyrir stjórn til samþykktar í framtíðinni. Gagnrýndu fv. forstjóra Athygli vekur að 7. desember í fyrra gagnrýnir stjórn Póstsins sam- ráðsleysi Birgis, fv. forstjóra, við gjaldskrárlækkun 1.1. 2020. Þ.e. við þá ákvörðun að hafa eitt verð á öllu landinu fyrir sendingar upp að 10 kg. Sömuleiðis vekur athygli að Thomasi var vikið úr stjórn á aðalfundinum en hann hafði spurt margra spurninga um reksturinn. Skv. ársreikningi skilaði Pósturinn 104 milljóna hagn- aði í fyrra en Póst- og fjarskipta- stofnun úrskurðaði að hann skyldi fá 509 milljóna framlag vegna ársins. Pósturinn hækk- ar stjórnarlaunin - Stjórnendaskipti fyrir tugi milljóna - Stjórnarmaður áréttaði starfsreglur Bjarni Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.