Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
Töfrar eldamennskunnar
byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara
herbergi, heldur upplifun
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
„ÉG ÆTTI LÍKLEGA AÐ FARA AÐ TYGJA
MIG. ÉG FÉKK REYNSLULAUSN.”
„ÉG DREG TVÖ STIG FRÁ EINKUNNINNI
FYRIR ÞAÐ AÐ FARA BEYGJUNA Á TVEIMUR
HJÓLUM.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að falla gersamlega
fyrir honum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ODDI… EKKI STANDA SVONA
NÁLÆGT MÉR
JÆJA?ÆTLAR ÞÚ
EKKI AÐ SVARA
SPURNINGUNNI?
VERTU
ÞOLIN-
MÓÐUR.
ÉG VIL VELJA SKYNSAMLEGA FJARVISTASRÖNNUN!
DÆS
ÖKUSKÓLI
2008, var varaformaður útvarpsráðs
og síðar stjórnar RÚV 2003-2008.
Hann var stjórnarformaður Fjárfest-
ingastofu Íslands 1999-2006 og á
sama tímabili varamaður í stjórn
Norræna fjárfestingabankans (NIB).
Hann hefur setið í stjórnum Vímu-
lausrar æsku, Umhyggju – félags
langveikra barna og Sjónarhóls –
ráðgjafarmiðstöðvar.
Helstu áhugamál Páls í seinni tíð
eru golf og veiðimennska. „Ég hef
reynt að spila reglulega golf, en
komst bara tvisvar síðasta sumar
sem segir svolítið um ástandið út af
Covid. Í veiðinni er ég bæði í laxi og
fugli, hef reynt að fara einu sinni á ári
á Affallið í Landeyjunum, og svo
skaut ég hreindýr síðasta haust. Ég
er ekki stórtækur í þessu, en mér
finnst þetta mjög gaman. Mér finnst
gaman að fara að veiða rjúpu þótt ég
veiði enga rjúpu. Það er náttúran og
útiveran sem er heillandi í þessu. Við
fjölskyldan förum líka í útilegur á
sumrin og eigum hjólhýsi sem við
notum mjög mikið. Svo er ég forfall-
inn Liverpool-maður, þótt maður vilji
lítið tala um það þessa dagana.“
Fjölskylda
Eiginkona Páls er Hulda Kristín
Sigmarsdóttir, f. 21.12. 1977, við-
skiptafræðingur á menntasviði Kópa-
vogsbæjar. Þau eru búsett í Smára-
hverfi í Kópavogi. Foreldrar Huldu:
Ólöf Ásgeirsdóttir, f. 22.1. 1959, bak-
ari, gift Hauki Hermannssyni mat-
reiðslumeistara, búsett í Kópavogi.
Faðir Huldu er Sigmar Björnsson, f.
22.5. 1954, d. 29.3. 1994, húsasmiður.
Börn: Magnús Már, f. 21.12. 1998,
Haukur Darri, f. 24.2. 2001, Pétur
Arnar, f. 5.2. 2004, Sigmar Atli, f.
17.6. 2009, og Ragnhildur Edda, f.
15.2. 2011.
Systkini Páls eru Guðjón, sam-
feðra, f. 16.5. 1960, sérfræðingur, bú-
settur í Reykjavík, Árni, f. 4.6. 1965,
forstjóri, búsettur í Garðabæ, og
Ingibjörg, f. 28.12. 1973, búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Páls: Magnús Bjarn-
freðsson, f. 9.2. 1934, d. 30.8. 2012,
frétta- og dagskrárgerðarmaður, og
Guðrún Árnadóttir, f. 15.5. 1937,
bókavörður. Þau voru gift og bjuggu
lengst af í Kópavogi.
Páll Magnússon
Rósa María Gísladóttir
húsfreyja á Varmalandi í Sæmundarhlíð, Skag.
Einar Jónsson
bóndi á Varmalandi
Sólveig Einarsdóttir
húsfreyja á Stóra-Vatnsskarði
Árni Árnasson
bóndi á Stóra-Vatnsskarði á Skörðum í Skag.
Guðrún Árnadóttir
bókavörður í Kópavogi
Guðrún Þorvaldsdóttir
húsfreyja á Stóra-Vatnsskarði
Árni Jónsson
bóndi á Stóra-Vatnsskarði
Árný Eiríksdóttir
húsfreyja í Fjósakoti í Meðallandi, V-Skaft.
Sigurbergur Einarsson
bóndi í Fjósakoti
Ingibjörg Sigurbergsdóttir
húsfreyja á Efri-Steinsmýri
Bjarnfreður Ingimundarson
bóndi á Efri-Steinsmýri í Meðallandi, V-Skaft.
Sigurveig Vigfúsdóttir
húsfreyja í Vík í Mýrdal
Ingimundur Árnason
sjómaður í Vestmannaeyjum
Úr frændgarði Páls Magnússonar
Magnús Bjarnfreðsson
frétta- og dagskrárgerðarmaður,
bjó í Kópavogi
Það er alltaf skemmtilegt að rifjaupp Heiðrek Guðmundsson
skáld og blaða í vísum hans og stök-
um. Hér eru „Eftirmæli“:
Hve þungur harmur Sovét-sálir nísti,
er sótti dauðinn þeirra höfuðprest.
En niðri þar sem fjandinn Hitler hýsti,
var hópast kringum nýja tignargest.
Líkn með þraut:
Að ellin sé þrautseig og þoki sér nær
slíkt þýðir víst ekki að dylja.
– En glöpunum fylgir sú guðlega náð
að greina þau ekki né skilja.
Kokhreysti
Gott er að standa á gömlum merg,
geta haldið velli,
sterkur eins og stuðlaberg,
stoltur fram í elli.
Heilsað skáldbróður í hríð og
frosti:
Þó að skyggi og skefli í spor
skáld mun ekki saka.
Af sér bræðir andi vor
allan snjó og klaka.
Einar Kárason rithöfundur skrif-
aði á facebooksíðu sína:
„Það var núna áðan í Lestinni á
Rás 1 verið að tala, af velþóknun
heyrðist mér, um baráttu fyrir
„slaufun“ á verkum J.K. Rowling
(höf. Harry Potter), vegna „haturs“
hennar og „herferðar“ gegn trans-
fólki. Mig minnir að þetta byggist á
því að hún hafi einhverntíma sagst
aðspurð telja að kynin væru bara
tvö. Getur verið að heimurinn sé
orðinn svona galinn?“
– Og uppskar miklar og á köflum
harðorðar umræður.
Anton Helgi Jónsson orti af þessu
tilefni:
Það örlar á fússi í fasinu.
Um fjandann er losnað í masinu.
Já, tíðin er breytt,
fólk töluvert heitt
og tekið að hvessa í glasinu.
Helgi Ingólfsson bætti við:
Oft háværast glymur í hrogninu
og húsið er opið að Sogninu
Hér stendur í rasi
sem stormur í glasi
uns latté-ið fýkur í logninu.
Ingólfur Ómar Ármannsson segir
að meðan ekki sé farið að gjósa
skulum við una sæl:
Gleymist öng við gleðisvall
gamansöng og hlátur.
Öls við föng og ástabrall
uni ég löngum kátur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Eftir Heiðrek og
af transfólki