Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 37

Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ sýnd með íslensKu og ensKu talı FRÁBÆR MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI. FRANCESMcDORMAND MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO PEOPLE’S CHOICE AWARD TORONTO FILM FESTIVAL SIGURVERARI GOLDEN LION BEST FILM VENICE FILM FESTIVAL SEARCHLIGHT PICTURES PRESENTS A HIGHWAYMAN HEAR/SAY COR CORDIUM PRODUCTION "NOMADLAND" DAVID STRATHAIRN LINDA MAY SWANKIEFRANCES MCDORMAND TAYLOR AVA SHUNG EMILY JADE FOLEY GEOFF LINVILLECO-PRODUCERS JOSHUA JAMES RICHARDSDIRECTOR OFPHOTOGRAPHY FRANCES MCDORMAND PETER SPEARS MOLLYE ASHER DAN JANVEY CHLOÉ ZHAOPRODUCEDBY JESSICA BRUDERBASED ON THEBOOK BY CHLOÉ ZHAOWRITTEN FOR THE SCREEN,DIRECTED, AND EDITED BY SIGURVERARI EVENING STANDARDTHE GUARDIAN TOTAL FILM THE DAILY TELEGRAPH TIME OUTEMPIRE 7 TILNEFNINGAR TIL BAFTA VERÐLAUNA M.A. BESTA MYND ÁRSINS 94% 95% 72% Rithöfundurinn og myndlistarmað- urinn Hallgrímur Helgason var á miðvikudag sæmdur hinni frönsku heiðursorðu lista og bókmennta, L’Ordre des Arts et des Lettre, sem er ein æðsta viðurkenning sem veitt er af hálfu hins opinbera í Frakk- landi á sviði menningar og lista. Er orðan veitt til þess að heiðra þá sem skara fram úr í list- eða bókmennta- sköpun jafnt í Frakklandi sem ann- ars staðar. Sendiherra Frakklands, Graham Paul, afhenti Hallgrími orð- una í sendiherrabústað Frakklands að viðstöddum vinum og fjölskyldu listamannsins. Sendiherrann hélt ræðu af þessu tilefni og kom m.a. fram í henni að orða lista og bókmennta hafi fyrst verið veitt árið 1957 og tilgangur hennar að heiðra þá sem skarað hafi fram úr í list- eða bókmenntasköpun jafnt í Frakklandi sem annars stað- ar. Sagði hann Hallgrím hafa vakið athygli fyrst sem listmálari og seinna meir fundið „hraunstreymi sköpunarmáttar síns“ farveg í bók- menntum. Fyrir verk sín hefði Hall- grímur hlotið fjölda verðlauna og þeirra á meðal Íslensku bókmennta- verðlaunin í tvígang. Sagði sendi- herrann einnig að sköpunargáfa Hallgríms ætti sér engin takmörk og nefndi til viðbótar þýðingar hans á leikritum, ljóðabækur og uppi- stand. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sómi Sendiherra Frakklands, Graham Paul, afhenti Hallgrími Helgasyni heiðursorðu lista og bókmennta í sendiherrabústað Frakklands. Ræða Hallgrímur þakkaði fyrir sig í ræðu og viðstaddir hlýddu á af athygli. Hallgrímur sæmdur heiðursorðu Frakka Samsýningin Blindhæð verður opnuð í Borgarbókasafn- inu í Grófinni á morgun, laugardag, klukkan 17 í tengslum við Evrópuviku gegn kynþáttamisrétti. List- ræn stjórnun sýningarinnar er í höndum Daríu Sól And- rews (IS). Verkin á sýningunni eiga listamennirnir Salad Hilowle (SE), Nayab Ikram (FI), Hugo Llanes (IS) og Claire Paugam (IS). Þau sýna ljósmyndir, kvikmyndir og innsetningu tengda persónulegri reynslu af rasisma. Verkin eru sett upp í hinum ýmsu útibúum Borgar- bókasafnsins. „Listaverkin vísa í persónulegar upplifanir listamannanna af rasisma í Evrópu og þá sérstaklega í skandi- navísku samhengi,“ segir Daría Sól. „Hér birtist einstök sýn á viðfangs- efnið út frá reynsluheimi listafólksins, sem býður áhorfandanum upp á leiðir til að horfast í augu við eigin fordóma frá ólíkum sjónarhornum. Flestir reyna að sneiða hjá samtölum um ör- áreitni, samfélagslega útskúfun og kerfisbundinn rasisma. Við stillum áleitnum raunveruleikanum upp bak við persónulega blindhæð, sem við forðumst. Staðreyndin er þó sú að kerfisbundinn rasismi er til staðar innan stofnana okkar, hann er hluti af tengslum okkar á milli og birtist í fram- komu, stundum óbeint og ómeðvitað. Sýningin, rétt eins og Evrópuvikan gegn kynþáttamisrétti, eru tækifæri fyrir okkur sem samfélag til að koma saman og viður- kenna í hvaða rýmum þörf er á auknum sýnileika og vernd þeirra sem eru ekki hvítir á hörund. Hvernig get- um við unnið gegn samfélags- og stofnanagerð sem byggir á rasisma og forréttindastöðu sumra? Hvar eig- um við að byrja? Hvernig er hægt að kalla fólk til ábyrgðar? Nauðsynlegt er að byrja á að viðurkenna vandann og móta skýra stefnu gegn rasisma,“ segir hún. Höfundar verkanna ólíkir listamenn Salad Hilowle fæst við sjálfsmyndir, minningar og rými í listsköpun og kvikmyndagerð sinni. Hann býr og starfar í Svíþjóð og á rætur að rekja til Sómalíu og Gävle. Nayab Ikram er ljósmyndari og myndlistarmaður frá Álandseyjum í Finnlandi og starfar í Turku. Verk henn- ar, „In Between“, kannar tilfinningar tengdar þeirri stöðu að vera á milli (e. in-betweenship), þar sem tákn- ræn merking hárs er skoðuð í sögulegu samhengi. Listsköpun Hugos Llanes, sem er frá Mexíkó en býr á Íslandi, felur í sér rannsókn á pólitískum og félagslegum sprungum og fagurfræði sem streymir frá þeim. Til verka hans teljast afleiður málverka, staðbundnir gjörn- ingar og innsetningar. Hann lítur til félagslegra kringumstæðna í verkum sínum, eins og flutnings fólks milli landa, misbeitingu valds og áhrifa nýlenduhyggju á þróun sjálfsmynda og persónusérkenna. Verk hans hvetja áhorfandann til íhugunar sem og þátttöku. Claire Paugam er franskur listamaður sem býr og starfar í Reykjavík. Í myndlistarverkum sínum vinnur hún þverfaglega og sinnir einnig fjölbreyttum verk- efnum á sviði sýningarstjórnunar, sviðshönnunar og kennslu. Daría Sól Andrews er sjálfstætt starfandi listrænn stjórnandi og listgagnrýnandi, sem býr og starfar í Reykjavík. Við opnun sýningarinnar á morgun ræðir hún við tvo listamannanna um verk þeirra á sýningunni. Öll listaverk sýningarinnar verða jafnframt kynnt á opn- uninni. Sýna verk tengd reynslu af rasisma - Verk fjögurra listamanna á Blindhæð í Borgarbókasafni Á milli Eitt verka sýningarinnar, „In Between“ eftir Nayab Ikram frá Finnlandi. Ljósmyndaverk, 70 x 100 cm. Daría Sól Andrews

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.