Morgunblaðið - 27.03.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.03.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Í skoðun er að eldgosasýningar í anda Icelandic Lava Show í Vík í Mýrdal verði á næstu misserum og árum opnaðar á eldgosaeynni Havaí í Kyrrahafi, í Japan og á öðrum heitum reitum í heiminum. Þar væri upp- bygging sýningarinnar sérsniðin að eldvirkninni og aðstæðum á hverjum stað. Áhugi á náttúru landsins sem eldgosið í Fagradalsfjalli hefur skap- að birtist með ýmsu móti og segjast eigendur sýningarinnar í Vík finna fyrir því með fjölgun heimsókna á heimasíðu fyrirtækisins. Endurskapa aðstæður „Við höfum fundið aukinn áhuga á hraunsýningunni alveg frá því jarð- skjálftahrinan við Grindavík hófst. Sérstaklega jókst þetta með eldgos- inu,“ segir Júlíus Ingi Jónsson. Þau Ragnhildur Ágústsdóttir eiginkona hans opnuðu sýninguna Icelandic Lava Show haustið 2018 þar sem þau endurskapa aðstæður eldgoss með því að bræða hraun frá Kötlu og hella því inn í sýningarsal, sem er fullur af fólki. Síðan þau opnuðu hefur ekkert raunverulegt eldgos orðið á Íslandi, fyrr en nú. „Við höfum beðið eldgoss með óþreyju. Auðvitað er sérstaklega ánægjulegt nú hve gosið er lítið og ekki þess eðlis að fólk eða mannvirki séu í hættu. Í okkar huga er eldgosið núna auglýsing fyrir land og þjóð. Bara alveg eins og gosið í Eyja- fjallajökli árið 2010. Móðir jörð er með okkur í liði,“ segir Ragnhildur. Ferðaþorsti og fróðleikur „Við fáum skilaboð frá ferðaþyrst- um útlendingum sem geta ekki beðið eftir að koma til landsins. Íslendingar hafa tekið við sér, hvað sem verður nú þegar samkomutakmarkanir hafa verið hertar,“ segir Júlíus. Í síðustu viku, nokkru áður en eld- gosið á Reykjanesskaganum hófst, var á vegum Icelandic Lava show opnaður hópur á Facebook með ýms- um fróðleik um eldvirkni Íslands. Hópurinn heitir Iceland Geology | Seismic & Volcanic Activity in Ice- land. Allt efni síðunnar er á ensku og tilgangurinn er að fræða fólk um eld- virkni Íslands. Aðild að hópnum eiga nú um 5.000 manns sem þarna deila stórbrotnum myndum frá gosstað, miðla alls kyns áhugaverðum upplýs- ingum og skiptast á fréttum og skoð- unum og spyrja spurninga. Fleiri sýningar „Þetta allt gerir okkur eðlilega bjartsýn fyrir eldgosasýninguna. Þetta er búið að vera erfitt ár og það eitt að við, lítið fjölskyldurekið ferða- þjónustufyrirtæki sem var bara rétt í startholunum þegar Covid skall á, skulum hafa náð að þrauka og vera enn á lífi er gott,“ segir Ragnhildur og bætir við: „Við höfum verið stórhuga með fyrirtækið. Fyrsta skrefið var opnun í Vík í Mýrdal og að sýna fram á að það væri mögulegt að endurskapa að- stæður eldgoss og leika sér með bráðið hraun. Einnig að þetta væri mögnuð upplifun og gott viðskipta- módel. Opnun fleiri sýninga í anda þeirrar sem við erum með í Mýrdaln- um er því rökrétt skref.“ Morgunblaðið/Björn Jóhann Hraunelfur Endurskapa aðstæður eldgoss og leika sér með bráðið hraun, segja eigendur sýningarinnar í Víkinni. Eldgosið er auglýsing - Icelandic Lava Show í Vík í Mýrdal - Mögnuð upplifun og móðir jörð er með í liðinu - Til fyrirmyndar á Havaí Eldgosafólkið Júlíus Ingi Jónsson og Ragnhildur Ágústsdóttir. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Áður en stjórnvöld gripu til aukinna sóttvarnaráðstafana fyrr í vikunni stóð mikið til á hótelunum á Ísafirði, Siglufirði og Akureyri nú um helgina og út páskavikuna. Von var á fjölda ferðamanna í margs konar afþrey- ingu. „Við áttum von á sextíu konum á skíðagöngunámskeið í gær [á fimmtu- daginn] sem við afboðuðum snarlega þegar samkomutakmarkanir voru hertar. Svo voru hótelin okkar öll full- bókuð í páskavikunni fram undan. Fossavatnsgöngunni hefur verið af- lýst. Ennfremur var tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður aflýst, þannig að hér verður nánast allt tómt,“ segir Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, hót- elstjóri á Hótel Ísafirði, sem einnig rekur Hótel Horn og Gamla gistihúsið á Ísafirði. Högg að missa viðskiptin Hún segir að það sé högg fyrir fyrirtækið að missa þessi viðskipti. „Enn er kannski helmingur bókana inni fyrir páskana en þetta setur strik í reikninginn. Við vonum þó að fólk komi til að fara á gönguskíði og hafi sjálft ofan af fyrir sér. Maður er manns gaman. Fólk getur komið, hreyft sig og haldið sig í sínum „kúl- um“. Veitingastaðurinn okkar verður opinn með takmörkunum. Maður reynir að vinna úr því sem maður hef- ur og gera gott úr því.“ Fyrir utan sumarið er páskavikan aðaltími ársins fyrir Hótel Ísafjörð. „Þá eru venjulega allir gististaðir full- ir, allt upp í fimm daga. Brottfluttir Ísfirðingar streyma að, krakkar koma heim í skólafrí og bærinn fyllist af öðrum gestum. Bærinn iðar af lífi og legið er á öllum fletum um allan bæ.“ Hún segir að hin vinsælu skíða- göngunámskeið sem hótelið hefur staðið að hafi gengið vel frá áramót- um. „Þau halda í okkur lífi á veturna og við getum ekki kvartað þótt þetta sé nú að gerast á síðustu metrunum,“ bætir Hólmfríður við. „Við erum bjartsýn á að það lifni yfir hlutunum þegar fer að vora og við náum að ráða niðurlögum faraldurs- ins. Við stefnum ótrauð á að fylla öll rúmin okkar í sumar.“ Svipað og í upphafinu Aron Pálsson, hótelstjóri á Hótel KEA á Akureyri, segir að upplifunin nú sé svipuð og í upphafi faraldursins fyrir ári. „Þetta hefur kannski ekki áhrif jafn langt fram í tímann og þá var. Helgin núna var fullbókuð en er dottin út. Við áttum von á hátt í 200 gestum.“ Aron segir að vel hafi gengið að undanförnu og mikið hafi selst af „pökkum“ sem hótelið býður og mikil ánægja sé með. „Við höfum afbókað þá pakka sem voru í boði um næstu helgi.“ Pakkarnir sem Aron nefnir eru fjallaskíða-, gönguskíða- og alpa- greinanámskeið, ásamt samstarfi hót- elsins við Bjórböðin á Ársskógssandi. „Það er búið að vera fullbókað í alla pakka í allan vetur. Þetta var í raun síðasta helgin í bili sem við buðum upp á marga pakka um sömu helgi.“ Hann segir Hótel KEA stíla inn á helgarnar í sinni markaðssetningu enda sé minna streymi ferðamanna norður yfir vetrartímann á virkum dögum. „Við höfum boðið mikla dag- skrá fyrir Íslendinginn sem hefur tek- ið henni vel. Við erum stressuð fyrir sumrinu og þurfum á því að halda að allt gangi vel,“ bætir Aron við og segir að hann styðji sóttvarnaaðgerðirnar enda muni vonandi allir njóta góðs af þeim til lengri tíma. Það sama sögðu aðrir hótelstjórar við Morgunblaðið. Spurður um fleiri pakkatilboð í vor og sumar segir Aron að boðið verði upp á fjallaskíðanámskeið í maí og áframhald á samstarfinu við bjórböð- in. „Annars vonumst við bara eftir góðu veðri í sumar. Þá kemur fólk til Akureyrar.“ Gríðarlegt áfall Kristbjörg Edda Jóhannsdóttir, hótelstjóri á Sigló hóteli á Siglufirði, segir að samkomubannið núna sé gríðarlegt áfall fyrir hótelið. „Við sáum fram á góða tíð. Það var full- bókað allar helgar út maí og vel bókað á virkum dögum einnig. Við sjáum þetta núna að miklu leyti fjara út næstu tvær vikur. Það eru samt ein- hverjar bókanir og hótelið verður opið.“ Allir sem væntanlegir voru í stærri hópum hafa afboðað sig og eins þeir sem ætluðu að sækja skíðasvæðið. „Það koma kannski hjón og minni fjöl- skyldur. Þetta er högg. Hótelið var fullbókað nú um helgina. Við eigum enn eftir að sjá hvernig páskarnir verða.“ Hún segir að hótelið hafi verið búið undir annasama tíma á næstunni og ráðið inn fólk. Nú verður einhver bið á að það geti hafið störf. „Við tökum þessu samt eins og hverju öðru hundsbiti og erum bjartsýn á vorið og sumarið. Ég hvet bara fólk til að ferðast innanlands í sumar og hjálpa okkur þannig í gegnum þetta þegar aðstæður leyfa.“ Hótelin tæmast á landsbyggðinni - Allt var uppbókað um helgina og í páskavikunni á Ísafirði, Akureyri og Siglufirði - Skilningur á stöð- unni - Sextíu konur áttu að vera á gönguskíðanámskeði á Ísafirði - Fólk bíður eftir að hefja störf Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Skíði Hægt er að virða tveggja metra regluna á gönguskíðum. Bekanntmachung für Deutsche zur Wahl zum Deutschen Bundestag Am 26. September 2021 findet die Wahl zum Deutschen Bundestag statt. Deutsche, die außerhalb der Bundesrepublik Deutschland leben und im Bundesgebiet keine Wohnung mehr innehaben, können bei Vorliegen der sonstigen wahlrechtlichen Voraussetzungen an der Wahl teilnehmen. Für ihre Wahlteilnahme ist u. a. Voraussetzung, dass sie 1. entweder nach Vollendung ihres 14. Lebensjahres mindestens drei Monate ununterbrochen in der Bundesrepublik Deutschland1) eine Wohnung innegehabt oder sich sonst gewöhnlich aufgehalten haben und dieser Aufenthalt nicht länger als 25 Jahre zurückliegt, oder aus anderen Gründen persönlich und unmittelbar Vertrautheit mit den politischen Verhältnissen in der Bundesrepublik Deutschland erworben haben und von ihnen betroffen sind; sowie 2. in ein Wählerverzeichnis in der Bundesrepublik Deutschland einget- ragen sind. Diese Eintragung erfolgt nur auf Antrag. Der Antrag ist auf einem Formblatt zu stellen; er soll bald nach dieser Bekanntmachung abgesandt werden. Einem Antrag, der erst am 04. September 2021 oder später bei der zuständigen Gemeinde- behörde eingeht, kann nicht mehr entsprochen werden (§ 18 Abs. 1 der Bundeswahlordnung). Antragsvordrucke (Formblätter) sowie informierende Merkblätter sind online auf der Seite des Bundeswahlleiters (www.bundeswahlleiter.de) erhältlich. Sie können auch bei - den diplomatischen und berufskonsularischen Vertretungen der Bundesrepublik Deutschland, - dem Bundeswahlleiter, Statistisches Bundesamt, Zweigstelle Bonn, Postfach 17 03 77, 53029 BONN, GERMANY, oder per E-Mail <bundeswahlleiter-bonn@destatis.de>, - den Kreiswahlleitern in der Bundesrepublik Deutschland angefordert werden. Weitere Auskünfte erteilen die Botschaften und berufskonsularischen Vertretungen der Bundesrepublik Deutschland. Reykjavik, 16.03.2021 Botschaft der Bundesrepublik Deutschland (www.reykjavik.diplo.de) Laufásvegur 31, 101 Reykjavik Öffnungszeiten: Montag-Freitag 09.00 bis 12.00 Uhr 1) Zu berücksichtigen ist auch eine frühere Wohnung oder ein früherer Aufenthalt in dem in Artikel 3 des Einigungsvertrages genannten Gebiet (Brandenburg, Mecklenburg-Vorpommern, Sachsen, Sachsen-Anhalt und Thüringen zuzüglich des Gebietes des früheren Berlin (Ost)).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.