Morgunblaðið - 27.03.2021, Side 33

Morgunblaðið - 27.03.2021, Side 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021 ✝ Snæbjörn Pét- ursson fæddist í Reykjahlíð við Mývatn 28. ágúst 1928. Hann lést á Öldrunarheimilinu Hlíð á Akureyri 12. mars 2021. Hann var fjórði í röð fimm barna hjónanna Péturs Jónssonar og Þur- íðar Gísladóttur í Reynihlíð, systkini hans voru Gísli, f. 10. maí 1922, d. 25. apríl 1950, Ármann, f. 24. maí 1924, d. 20. ágúst 1924, Hólmfríður, f. 17. júlí 1926, d. 3. nóvember 2004, og Helga Valborg, f. 26. júní 1936, d. 8. maí 2012. Snæbjörn giftist Guðnýju Halldórsdóttur 28. apríl 1951. Hún var dóttir hjónanna Hall- dórs Ólasonar og Þuríðar Árna- dóttur frá Gunnarsstöðum í Þistilfirði. 1967, og eiga þau þrjú börn, Jón Halldór, Snædísi Rán og Áslaugu Ýri. Snæbjörn ólst upp í Reykja- hlíð þar til hann fór á Garð- yrkjuskóla ríkisins og útskrif- aðist þaðan 1948. Guðný og Snæbjörn stofnuðu heimili í Reynihlíð í Mývatns- sveit. Veturna 1951-65 vann hann sem farkennari, mest á Hólsfjöllum. Snæbjörn tók mik- inn þátt í uppbyggingu Kísiliðj- unnar hf., fyrst við rannsóknir á námum með Baldri Líndal verkfræðingi og síðan við bygg- ingu verksmiðjunnar. Hann var gæðamatsstjóri Kísiliðjunnar frá því að framleiðsla hófst 1967 og allt til 1995. Drjúga hönd lagði Snæbjörn einnig að rekstri Hótels Reyni- hlíðar allt þar til þau Guðný fluttu til Akureyrar 2017. Útför Snæbjörns fer fram frá Reykjahlíðarkirkju í dag, 27. mars 2021, klukkan 15. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni, stytt: https://tinyurl.com/4jy52dsc Virkan hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Börn Snæbjarn- ar og Guðnýjar eru: 1) Þuríður, f. 1951, gift Agli Steingrímssyni, f. 1949, og eiga þau þrjú börn, Braga Val, Arnar og Þor- gerði, og sjö barna- börn. 2) Þórunn, f. 1953, og á hún eina dóttur, Margréti Hróarsdóttur, og tvö barnabörn. 3) Pétur, f. 1959, fyrri kona hans er María Rú- riksdóttir, f. 1958, eiga þau tvær dætur, Þuríði og Ástríði. Seinni kona hans er Erna Þór- arinsdóttir, f. 1959, og á hún tvær dætur, Anítu og Katrínu. Pétur á fjögur barnabörn. 4) Halldór, f. 1966, kvæntur Gróu Björk Jóhannesdóttur, f. 1969, og eiga þau tvö börn, Ármann Óla og Guðnýju. 5) Bryndís, f. 1968, gift Hirti Jónssyni, f. Snæbjörn tengdapabbi hefur fengið hvíldina saddur lífdaga 92 ára gamall. Ég minnist hans með þakklæti og virðingu. Snæbjörn hefur verið hluti af lífi mínu, Katrínar og Anítu síðan ég flutti í Mývatnssveit til Péturs fyrir um 20 árum. Snæbjörn tók mér og stelpun- um opnum örmum og aldrei bar skugga þar á. Ég áttaði mig snemma á að hann var maður sinnar eigin rútínu og hafði ekki mörg orð um það. Honum leið best þegar hann gat haldið sínum takti án þess að aðrir væru mikið að skipta sér af. Minnist ég hans sem póstmanns Hótels Reyni- hlíðar þar sem hann sá um að koma pósti á pósthúsið og til baka, gangandi að sjálfsögðu í öllum veðrum. Hann var alltaf mættur á sama tíma og pósturinn átti sama bakkann á borðhorninu á fremsta skrifborðinu. Ef við óvart settum eitthvað annað en póst í þennan bakka lét Snæ- björn vel í sér heyra. Óreiða í hans rútínu var ekki að hans skapi og það virtum við. Hann fór sínar eigin leiðir og hugsaði lítið um hvað öðrum fannst. Vorið kom þegar Snæ- björn mætti í stuttbuxum, stutt- ermabol, berfættur í sandölunum sínum með sumarlegt höfuðfat til að ná í póstinn. Það var nóg að sólin léti sjá sig þótt hitastigið væri ekki hátt. Eitt sinn færði ég honum mjög skrautlegt höfuðfat þegar við Pétur komum frá Ja- maíku, spanjólu í fánalitum Ja- maíku, mjög skrautlega og skæra, og Snæbjörn setti hana upp strax það vor, hæstánægður. Ég minnist „Föstudaganna“ okk- ar með mikilli væntumþykju og þökk. Það skapaðist sú hefð að við Pétur, barnabörn og vinir Snæbjarnar og Guðnýjar sem voru á staðnum eftir vinnu á föstudögum komu upp í Reyni- hlíð, fengu romm, íslenskt brennivín eða eitthvað annað í staup og var skálað fyrir vikunni. Þetta var dýrmæt samvera sem oftar en ekki endaði á að Snæ- björn flutti viðstöddum ljóð eða jafnvel ljóðabálk. Hann flutti ljóðin alltaf utanbókar og með mikilli innlifun. Einar Ben var þar efstur á lista en margt annað fengum við að heyra. Fyrir þessa „Föstudaga“ verð ég ævinlega þakklát og geymi í hjarta mínu. Eftir að Snæbjörn og Guðný fluttu á Hlíð myndaðist sterk vin- átta milli þeirra og mömmu sem var þeim mikils virði ekki síður en okkur fjölskyldunum. Hin heilaga þrenning kom sér upp sinni samverurútínu þar sem Snæbjörn sótti mömmu og keyrði hana til Guðnýjar, skenkti þeim sérrí og leyfði þeim svo að eiga sinn tíma að hlusta á hljóð- bækur. Á rúmu einu ári er hin heilaga þrenning öll komin í Sumarlandið og skálar þar. Takk fyrir allt og allt kæri Snæbjörn. Erna. Í dag kveðjum við afa Snæ- björn, afa sem kenndi mér margt. Líklega er frá honum kominn áhugi minn á útivist og fjallgöngum. Ég minnist fyrstu alvöruferðar minnar með afa en þá gengum við ásamt fleirum úr Reynihlíð og upp í Leirhnjúk. Eitthvað var ég nú ekki alveg rétt skóaður í þessa ferð og fékk þvílíkt hælsæri að sækja varð mig í Kröflu. Líklega hefur afa fundist þetta aumingjaskapur en lét nú ekki á neinu bera. Hann var jú alltaf að reyna að herða upp í drengnum. Alla vega bauð hann mér síðar með á Herðu- breið, þá orðinn 60 ára, það er eftirminnileg ferð og mér mjög dýrmæt í minningunni. Afi hafði gaman af því að ferðast og líklega fáir staðir á Ís- landi sem hann hefur ekki komið á. Einnig náði hann að heim- sækja marga staði fyrir utan landsteinana og reyndi m.a.s. við Fjallið hvíta. Því var oft gott að hringja í hann seinni árin og fá frá honum fróðleiksmola um staði sem ég hafði áætlanir um að skoða. Afi tók margar myndir hér áð- ur fyrr og var kominn með gott lag á að skanna þær á tölvutækt form og kom það í minn hlut að vera honum innan handar við tæknina, það voru stundum skrautleg símtöl en alltaf hafðist þetta að lokum. Takk fyrir samfylgdina afi. Þinn Arnar. Þú ert farinn, elsku afi minn. Mættur í Sumarlandið til ömmu Guðnýjar og ömmu Ellu sem hafa eflaust skálað í sérríi með þér þann föstudag sem þú fórst. Þakklæti er efst í huga þessa dagana en þú bauðst mig innilega velkomna í fjölskylduna í Reyni- hlíð rétt fyrir sex ára aldur, þótt við værum ekki blóðtengd. Reynihlíðarfjölskyldan hefur verið mitt nánasta umhverfi og helsta bakland, og það er að mestu leyti þér að þakka. Þar man ég eftir þér röltandi inn í starfsmannarými til að sækja póstinn og oftast þagnaði salur- inn. Þín nærvera var heillandi og svo sannarlega alltaf athyglis- verð. Á sumrin beið ég spennt eftir að sjá þig á sandölum á vappinu þar sem þú lést gjarnan lakka á þér táneglurnar í regn- bogans litum. Þér leiddist aldrei og síst inni í tölvuherbergi að lesa en þú virtist geta lesið enda- laust. Þá minnist ég þess þegar þú stóðst inni í eldhúsi að skera nýbakað brauð úr brauðvélinni þinni sem þú bauðst gestum gjarnan upp á. Einu sinni hvatti pabbi Pétur mig til þess að fara með þér á gönguskíði í fyrsta sinn, sem væri ekki frásögur færandi nema vegna þess að þú fórst á svo ógn- armiklum hraða að vegalengdin á milli okkar lengdist og mér leið eins og þú værir kílómetrum á undan. Þú fórst þínar eigin leiðir í lífinu, elsku afi minn, og beiðst sko ekki eftir tækifærum og tókst svo sannarlega engan þátt í neinu hangsi. Það lærði ég þenn- an dag á gönguskíðum með þér. Til afa Þakklæti sýndir þú daglega Fyrir gærdaginn, ávallt svo fallega Fyrir stundina hérna, svo velkomna Fyrir allt sem að verður og er Yndisleg tilveran umvafði þig Í sveitinni sem að gat umvafið mig Þar minningin lifir og þín verður minnst Ég er fegin að hafa þér kynnst Hvíldu í friði, elsku afi minn, og þakka þér fyrir að taka svona vel á móti mér. Takk fyrir allt og allt. Katrín. Afi minn, Snæbjörn Pétursson í Reynihlíð, lést þann 12. mars síðastliðinn á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri. Þegar ég horfi yfir farinn veg eru ótal minning- ar frá mismunandi tímum sem mér þykir dýrmætar. Gufuböð á fallegum vetrarkvöldum í sveit- inni. Ógleymanlegar kaupstaðar- ferðir til Húsavíkur. Volgt afa- brauð með smjöri þegar hann passaði okkur systkinin á Akur- eyri. Píslarganga í Mývatnssveit með okkur Ármann í eftirdragi. Sunnudagshádegi á Hlíð svona í seinni tíð. Allt saman minningar sem höfðu sinn sjarma og sinn tíma. Það er ekki erfitt að finna orð til að lýsa afa, það held ég að allir sem hann þekktu geti verið mér sammála um. Hann var hlýr eins og amma. Hann var líka sérlund- aður og sem lítið afabarn þótti manni margt skrítið sem hann tók sér fyrir hendur. Þrjóskur var hann og fylginn sér, eigin- leikar sem voru honum frekar til tekna, enda voru ýmsar áskor- anir á leiðinni. Skemmtilega hvatvís þegar svo bar við, þó að stundum væri hann kominn skrefi á undan sjálfum sér. Lík- lega var það nokkuð oftar hin síð- ari ár. Honum þótti vænt um fólkið sitt og ef einhvern vanhag- aði um eitthvað þá var gengið í málið, gjarnan bókstaflega. Lítandi upp til hans þótti mér hann líka mikið hraustmenni og fyrirmynd. „Afi ísbjörn“ sem gekk á fjöll fram á gamals aldur, lærði ítölsku og ferðaðist reglu- lega til Ítalíu. Hann virtist ekki bara þekkja öll möguleg og ómöguleg örnefni heldur átti hann líka til kvæði um flest þeirra, sem hann fór með eftir minni. Það var líka áberandi hve margir könnuðust eitthvað við Snæbjörn í Reynihlíð þegar farið var að rekja ættir manns á förn- um vegi. Ég áttaði mig þó ekki á því fyrr en á fullorðinsárum hvað það var sem einkenndi afa um- fram annað. Mér þótti hann nefnilega umfram allt lífsglaður. Hann kunni að njóta líðandi stundar og var félagsvera. Svolít- ið eins og amma, en á sinn ein- staka hátt. Kannski var það eitt- hvað sem kom með ellinni, en ég hef samt á tilfinningunni að svona hafi afi alltaf verið. Alveg fram að hinstu stund hafði hann eitthvað til að hlakka til, var uppátækjasamur og dreif fólkið í kringum sig með. Hann var líka stoltur af afabörnunum sínum og fór ekki leynt með það. Það lifn- aði alltaf yfir honum þegar verið var að ræða afrek okkar eða fyr- irætlanir í lífinu og þótti mér það afar dýrmætt, eins og örugglega okkur öllum. Elsku afi, takk fyrir allar góðu stundirnar. Nú tekur amma á móti þér í Reynihlíð á eilífðar sumardegi. Alveg eins og ég man eftir ykkur. Jón Halldór. Við lát Mývetningsins Snæ- björns Péturssonar viljum við minnast vinar okkar með nokkr- um orðum. Snæbirni kynntist Sverrir fyrst er hann vann sumarið 1965 við að byggja dælustöðina í Helguvogi fyrir Kísiliðjuna og leggja þaðan leiðslu upp í Bjarn- arflag. Hann var síðan ráðinn 1969, nýútskrifaður verkfræðing- ur, til verksmiðjunnar sem þá hafði verið í rekstri í eitt og hálft ár. Verksmiðjan var mönnuð 30 Mývetningum, en álíka margir starfsmenn voru „aðfluttir“ eins og við. Snæbjörn annaðist rann- sóknarstofuna og sá sjálfur um að mæla hlutfall eldfjallaösku í kísilgúrleðjunni, en hana þurfti að hreinsa frá hráefninu í skilj- um. Var snefilefnið mangan mælt og þurfti að leysa gúrinn upp með flúrsýru í platínudeiglu, ná- kvæmnisverk. Tók ég fljótlega eftir því að hann framkvæmdi alla útreikninga með hugarreikn- ingi. Snæbjörn var vel að sér og hafði að loknu námi við Garð- yrkjuskólann verið farandkenn- ari á Fjöllum á veturna en á sumrin vann hann m.a. á jarð- hitabor austan Námaskarðs, í framhaldi af því með Baldri Lín- dal við tilraunavinnslu á brenni- steini, hann starfaði við Hótel Reynihlíð sem fjölskyldan rak, annaðist miðstöð sveitasímans, og var veðurathugunarmaður í Reykjahlíð til fjölda ára. Þau fimm ár sem ég var við Kísiliðj- una var hann formaður starfs- mannafélagsins og gjarna nefndur „leiðtoginn“. Átti hann frumkvæði að því að starfsmenn byggðu fjallaskála í Gæsadal sem var nokkrum árum síðar dreginn í Kröflu þar sem hann er nú við skíðalyftuna. Snæbjörn stóð að stofnun Baðfélags Mývetninga sem með sjálfboðaliðum byggði fyrstu aðstöðuna til gufubaða yfir sprungu í Jarðbaðshólum og síðar nýtt lón. Framhaldið þekkja menn sem Jarðböðin við Mývatn sem virka sem segull á ferðamenn. Snæbjörn var mikill áhugamaður um gönguferðir sem hann stundaði reglulega og þannig kynntist ég honum betur því hann var duglegur að drífa mig með sér í dagsferðir á fjöll og um nærliggjandi sveitir. Eftir Mývatnsdvölina höfum við farið í stuttar ferðir og dáð- ist maður ávallt að frásögnum hans um menn, landið og dæg- urmál. Hann hafði gaman af umræðum og kom oft með inn- legg á eftir síðasta ræðumanni, þannig að ókunnugir gátu hald- ið að væri þras. Svo var alls ekki, því Snæ- björn sagði mér að með þessu vildi hann skerpa á umræðunni og fá menn til að skoða fleiri hliðar á málum. Þessara samskipta og símtala á maður nú eftir að sakna. Snæ- björn og kona hans Guðný opn- uðu heimili sitt fyrir okkur Ingu og svo mörgum öðrum, því hjá þeim var stöðugur gestagangur. Oft bar Snæbjörn eigin bakstur á borð því hann gerði ljúffeng brauð úr heilhveiti sem hann malaði sjálfur og einnig var hann iðinn við að baka hvera- brauð. Samskipti við þau hjónin og fjölskyldu í gegnum árin hafa gefið okkur Ingu mikið sem við minnumst með hlýju. Sendum við aðstandendum, okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Með hinstu kveðju, Sverrir Þórhallsson og Inga Helgadóttir. Snæbjörn Pétursson HINSTA KVEÐJA Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Innilegar samúðarkveðjur, Birgir og Helga. Tilkynning frá Kirkju- görðum Reykjavíkur- prófastsdæma (KGRP) Samningsbundin stytting vinnuvikunnar, úr40 tímum í 36 tíma, tók gildi hjá KGRPeins og mörgum öðrum fyrirtækjum í ársbyrjun 2021. Frá ogmeð föstudeginum 9. apríl munu starfsmenn KGRP ljúka vinnudegi kl. 12:00 á hádegi og verður það fyrirkomulag áfram á föstudögum. Þetta fyrirkomulag hefur lítil sem engin áhrif á útfarartímana semverða áfram kl. 11:00; 13:00 og 15:00 alla virka daga, einnig á föstudögum. Það sem breytist á föstudögum er þetta:  Ekki verður hægt að bóka útför í athafnarýmum hjá KGRP í Fossvogi.  Ekki verður tekið ámóti kistum til jarðsetningar á föstudögum. Tekið verður ámóti duftkerum til jarðsetningar til 11:30 á föstudagsmorgnum og athafnarými verða opin fyrir kistulagningarbænir til kl. 11:00. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 585 2700 og á slóðinni: kirkjugardar.is/fostudagur Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, GESTUR FRIÐRIK GUÐMUNDSSON, myndlistarmaður og kennari, lést laugardaginn 20. mars á Landspítalanum. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 31. mars klukkan 15. Í ljósi aðstæðna verða eingöngu nánustu ástvinir viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni og hægt er að nálgast það á: mbl.is/andlat/minningar/utfarastreymi/ Sylvía Kristjánsdóttir Helga Gestsdóttir Hjörvar Jónsson Guðmundur Helgi Gestsson Ásta Bjarndís Bjarnadóttir Óskar Atli Gestsson Adda Þóra Bjarnadóttir Anna Guðmundsdóttir Logi Egilsson og afabörn Ástkær móðir okkar, amma og langamma, MARGRÉT GUNNARSDÓTTIR, Gautlandi 11, Reykjavík, sem lést á Vífilsstöðum 16. mars, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 30. mars klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða því miður einungis nánustu ástvinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt og hægt er að nálgast útsendinguna á streyma.is. Gunnar Magnússon Margrét Halldórsdóttir Magnús Magnússon Sandra Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN STEINGRÍMSDÓTTIR, Sléttuvegi 25, lést föstudaginn 26. mars á hjúkrunarheimili Hrafnistu við Sléttuveg. Jónína B. Grétarsdóttir Þóroddur Sveinsson Hannes Svanur Grétarsson Helga Marta Helgadóttir Ingvar Grétarsson Vigdís Þórisdóttir Margrét Grétarsdóttir Guðjón Guðjónsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.