Morgunblaðið - 27.03.2021, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021
ÁRBÆJARKIRKJA | Pálmasunnudagur, 28.
mars. Fermingarguðsþjónusta kl. 10.30
Sunnudagaskólinn í safnaðarheimili kirkjunn-
ar kl. 11.
Fermingarguðsþjónusta kl. 13.30.
ÁSKIRKJA | Fermingarguðsþjónustur kl. 10,
11 og 12. Vegna fjöldatakmarkana rúmast
aðeins fermingarbörnin og nánustu vanda-
menn þeirra við athafnirnar.
ÁSTJARNARKIRKJA | Pálmasunnudagur.
Guðsþjónusta kl. 17. Gospeltríó Ástjarnar-
kirkju syngur við undirleik og stjórn Davíðs
Sigurgeirssonar. Prestur er Arnór Bjarki
Blomsterberg og meðhjálpari Inga Rut Hlöð-
versdóttir.
BÚSTAÐAKIRKJA |
Fermingarmessur pálmasunnudag 28. mars
kl. 10.30 og 13.
Kór Bústaðakirkju syngur ásamt kantor Jón-
asi Þóri. Messuþjónar og sr. Eva Björk Valdi-
marsdóttir og sr. Pálmi Matthíasson þjóna.
DÓMKIRKJAN | Messa klukkan 11. Fermd
verða fjögur börn. Dómkirkjuprestar, dómorg-
anistinn og Dómkórinn.
FELLA- og Hólakirkja | Pálmasunnudagur.
Ferming. Sr. Jón Ómar Gunnarsson og sr.
Pétur Ragnhildarsson þjóna. Kór kirkjunnar
syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur
organista. Matthías Stefánsson leikur á
fiðlu. Grímuskylda er í kirkjunni. Virðum sótt-
varnir.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingarmessa
sunnudag 28. mars kl. 14
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprest-
ur þjónar fyrir altari. Hljómsveitin Mantra og
Sönghópurinn við Tjörnina leiða sönginn
ásamt Gunnari Gunnarssyni.
HÁTEIGSKIRKJA | Fermingu sem vera átti
kl. 10.30 hefur verið frestað af sóttvarnar-
ástæðum.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Pálmasunnudags-
kvöld kl. 20. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju
syngja við kvöldmessu undir stjórn Arnórs Vil-
bergssonar, organista. Garðar Snorri Guð-
mundsson er messuþjónn. Sr. Erla Guð-
mundsdóttir þjónar.
KOTSTRANDARKIRKJA | Fermingarguðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Ninna Sif Svav-
arsdóttir, Kirkjukór Hveragerðis- og Kot-
strandarsókna syngur, organisti er Miklós
Dalmay.
NESKIRKJA | Í ljósi nýrra samkomutakmark-
ana hefur verið ákveðið að fella niður allt
helgihald í Neskirkju á pálmasunnudag.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Fermingarmessa
sunnudaginn 28. mars kl. 14. Séra Pétur
Þorsteinsson þjónar fyrir altari, Kristján
Hrannar sér um tónlistina. Vegna sóttvarn-
arreglna verður messan því miður ekki opin
almenningi, aðeins fermingarbörn sem ferm-
ast og aðstandendur þeirra geta mætt. Skrá
þarf nöfn og kennitölu allra er mæta. Skylt
verður að nota andlitsgrímu og tryggja
tveggja metra regluna. Ólafur Kristjánsson
mun taka á móti kirkjugestum og sjá um
skráningu.
SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 með
söng og gleði í safnaðarsal kirkjunnar.
Ferming kl. 10.30 og kl. 13, prestar kirkj-
unnar þjóna og Kór Seljakirkju syngur.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg-
unn kl. 10 í streymi á fésbókarsíðu Seltjarn-
arneskirkju á sunnudag. Karl Sigurbjörnsson,
biskup, talar um dymbilvikuna /kyrruvikuna.
30 manns mega vera viðstaddir samkvæmt
sóttvarnarreglum. Kirkjugestir þurfa að
hringja og skrá sig í síma 561-1550 frá kl. 9.
Helgistund kl. 11 í streymi á facebooksíðu
Seltjarnarneskirkju. Karl Sigurbjörnsson,
biskup, flytur hugleiðingu. Bjarni Þór Bjarna-
son, sóknarprestur stýrir stundinni. Guð-
mundur Einarsson og Margrét Albertsdóttir
lesa ritningarlestra og bænir. Þorsteinn Freyr
Sigurðsson syngur. Organisti er Friðrik Vignir
Stefánsson. Tæknimaður í báðum athöfnum
er Sveinn Bjarki Tómasson. Kirkjugestir þurfa
að hringja og skrá sig vegna gildandi sótt-
varnarreglna í síma 561-1550 frá kl. 10.
VÍDALÍNSKIRKJA | Allt helgihald fellur nið-
ur í kirkjunni til 13. apríl nk.
Sunnudagur kl. 11: Sunnudagaskólanum
streymt á facebook- og youtubesíðum
Vídalínskirkju. Biblíusögur, brúðuleikhús og
söngur.
Þ
að reynir
á
mennsku
okkar,
vilja-
styrk og vænt-
ingastjórnun, eins
og það heitir jú á
fyrirtækjamáli sam-
tímans um þessar
mundir. Að vænta
þýðir að vona, jafn-
vel vona svo heitt
að viljastyrkur og
kraftur leggst með
því sem vonað er á.
Aðventan – biðin
eftir jólum, henni
svipar til þessara
daga; það er enn
föstutími í hringrás
hins trúarlega tíma-
tals. Vonbrigðin eru í kortunum
þar, eins og hér og nú þar sem
öllu sem við ætluðum er í einni
svipan sópað af borðunum – ferða-
lögin, samveran með vinum og
fjölskyldu; það sem við ætluðum
að gera síðustu páska, síðustu jól;
þetta sem hefur okkur upp úr
hversdeginum og minnir okkur á
„sérleik sálar“ eins og Matthías
Jochumsson kallaði það, að við
eigum okkur hvert og eitt sögu og
vitund, sérstöðu og sjálf. Við erum
ekki bara fljótandi dropar af hafi
alheimsvitundar sem streymir um
tómið. Ekki bara hverfandi
bylgjuhreyfingar á yfirborði þess
Geldingadalshrauns sem að eilífu
streymir upp úr möttli jarðar-
kvikunnar. Við eigum stað og
stund, vonir og væntingar, jafnvel
takmark og tilgang. Við lærum að
hlaða líf okkar merkingu – nú eða
lifum í angist þeirrar tilveru sem
þykir rúin merkingu. Og and-
spænis því að hafa ekki stjórn á
eigin örlögum, aðstæðum eða lífs-
kreppum, þá missum við stundum
kjarkinn.
Að vera manneskja er
að geta ekki alltaf allt
Nú dynur á, ekki bara með af-
boðunum og frestunum, heldur
kröfum um sveigjanleika, auð-
mýkt, hugrekki. Fallvaltleikinn ið-
ar undir yfirborðinu og hríslast
upp bakið en spekin réttir úr
hryggnum þó að óttinn læðist
undir handarkrikana. Við svitnum
við tilhugsunina um að þessi ógn-
valdur geti læst klónum í börnin,
unga fólkið sem er í blóma lífsins
á þroskabraut. Hið
óviðráðanlega setur
varnarkerfin á fullt.
Skynjunin eykst, for-
vitnin og gleðin yfir
undri eins og elds-
umbrotum við höf-
uðborgina skerpa
fegurðarskynið, við
tökum sköpunarverkið
inn agndofa. Ekki jafn
óþægilegt og þegar
þaulskipulögð ferming-
arveisla sem lengi hef-
ur verið beðið, verður
að búblupartíi í barn-
vænni skilningi þess
orðs. Jú, kannski
koma gjafirnar samt,
en samfélagið, tengsl-
in, trúnaðurinn við
gildi, ræktarsemin við
þá hefð að hér standi
barn á tímamótum og
horfi fram til sjálfs-
ábyrgðar og þroska;
það er svo miklu,
miklu, miklu meira en
gjafirnar. Það er gjöf-
in. Að fá að standa á
þessum þröskuldi og finna að til
þín er horft, og með einhverjum
undarlega öðrum hætti en áður er
þín vænst. Megi Guð blessa það
að börnin sem fermast, þau sem
áttu að fermast en urðu að bregð-
ast við í skyndi, nú um miðja viku,
og þau sem munu fermast, hvort
sem þau staðfesta trú sína í kirkju
eða tilvist sína í samfélagi manna
með öðrum skapandi hætti, megi
þau öll hvert og eitt vita að þeirra
er vænst. Við vonum á þau, og
óskum þeim þess að þau beri von í
brjósti, til halds og trausts, sem
veganesti út í lífið.
Staðföst von sem reisir
frá deyfð og depurð
„Hvar varstu Kristur, þá?“ spyr
Marta, systir Maríu, þegar Laz-
arus, bróðir þeirra, féll í valinn
fyrir hverri þeirri veirunni sem þá
geisaði í Betaníu og um 101 Jerú-
salem, eins og sagt er, þegar lýsa
þarf fjarlægðinni frá því litla
þorpi „á Laugarnestanganum“ til
höfuðmusterisins á Skólavörðu-
holtinu. Pálmasunnudagur er á
morgun. „Varstu að bíða eftir
strætó í Skeifunni?“ Gæti hún
hafa bætt við, eftir því hversu
virkt varnarkerfið var; því sekt-
arkennd og skömm verða að vopn-
um þegar berjast þarf við sorg,
áföll og missi. „Gastu ekki verið
með grímu?“ „Þvoðirðu þér ekki
um hendurnar?“ Í óttanum kvikn-
ar örvæntingin svo auðveldlega,
við erum jú skepnur og skriðdýrs-
heilinn framleiðir þessa aflgjafa
mannlegra tilfinninga, hormónin
og boðefnin sem kenna okkur að
berjast fyrir lífinu, flýja dauðann,
frjósa og gleyma þegar angistin
lamar okkur. Þúsundir ára af
merkingarleit hafa fært okkur
mennskuna að auki, öryggið,
skjólið og kærleikann, þetta sem
við höfum getað hvílt í um stund,
á meðan við áttum okkur á því að
það er eitthvað kunnuglegt hérna,
einhver kjarni. Já, einhver vitibor-
in hringrás, jörð að standa á, him-
inn að horfa til, hreyfing í átt til
ljóssins; og í austri – þar sem alt-
ari kristinnar kirkju stendur – þar
kemur sólin upp með vorið í
skauti sér og í vestri sest hún nið-
ur. Kistan er borin út um þær dyr
og haustið, það er æði langt og
sjaldan lengra en á föstudaginn
langa. Eða hvað?
Hvernig getum við lýst heil-
ögum tíma og samhengi ef við
missum hæfileikann til að skilja
tákn og inntak þeirra, arfleifð sem
trú, hefð og siðir hafa markað
okkur með, svo úr varð menning
þar sem við berum ábyrgð hvert á
öðru, styðjum hvert annað í
þrengingum rétt eins og við fögn-
um saman, með „pálmann í hönd-
unum“. Hvernig bólusetjum við
þjóðina sem hraðast við veirunni,
spyrja margir en núið spyr;
hvernig höldum við tengslum við
okkur sjálf og aðra, þegar við
megum ekki gera það sem við vilj-
um, veljum, gætum, ættum; já, að
eiga og mega? „Að deyja; hvað er
það?“ má vænta að Lazarus hafi
spurt, upp risinn. Það er ekki
nema von að í Betaníu hafi María
hlustað og fræðst, Marta þjónað
og þakkað, Lazarus safnað saman
greinum og sótt asna, hann sem
þau héldu dauðan. Og er það
nema von að sungið hafi verið,
Hósanna; sjá hér kemur hinn
smurði, sem spádómarnir segja
frá. Sá sem mun í kærleika með-
taka kossinn, þegar hans er leitað
og hann merktur í myrkum garði,
nóttina sem hann var svikinn. Hví
reynir hin blinda öld æ að grafa
honum gröf, spyr Jóhannes úr
Kötlum, fyrst Jesús son gengur
alltaf aftur?
Hér og nú, og alltaf
Fortíð og framtíð eru í sístæð-
um skurðpunkti minnis og
reynslu, sem er svo miklu, miklu
eilífari en við í allri okkar dýrð.
En minni snúast ekki bara um
gagnamagn, heldur skilning og
þekking byggir á trausti en ekki
tálsýnum. Ekki ætluðum gróða ef
og þegar; heldur því æðruleysi
sem mætir sannleikanum þótt
hann líði með hægð á asnabaki yf-
ir pálmagreinar í fornri helgisögn.
Minni snýst um að hafa vit til að
greina á milli þess sem má fórna
um stund og þess sem er nauð-
synlegt þegar maður stefnir að
æðra marki. Og kjarkur í samtíma
okkar snýst um það sama og fyrr,
og alltaf og eilíflega; við verðum
að skilja þær vörður sem eru
vegvísar á réttri leið. Við þurfum
ekki að blása út, svo búblurnar
springi, heldur „verða minni“ –
eins og Jóhannes sem boðaði
komu þess sem var „elskan sú
sem altrygg lifir hel“ – eins og
Steingrímur Thorsteinsson orti
upp úr Byro. Ef við þekkjum
„minnin“ sem menningin okkar er
úr, vefnað hringrásar og reynslu,
þá er örskot bara á héðan í frá og
til þess dýrðarríkis sem skín, að
morgni upprisudagsins sem er í
vændum. Þá koma þær að gröf
innan skamms, Máríurnar en
steinninn er frá svo allur ótti dvín.
Já, ef við trúum þá mun áður
hnigin páskalilja aftur taka kipp
og spekin gleðja þann sem eggið
brýtur. Við eigum von á nammi
jú, og njótum þess – en mætum af
heilindum helgum stundum.
Andi samkenndar, vors og
mennsku sé nærverandi okkur öll-
um á komandi páskatíð.
Kirkjan til fólksins
Pálmasunnudagur „Minni snýst um að hafa vit til að greina á milli þess
sem má fórna um stund og þess sem er nauðsynlegt …“
Mennskan, vorið og samkenndin
Hugvekja
Eftir Arnald
Mána
Finnsson
Höfundur er sóknarprestur á
Staðastað.
Arnaldur Máni
Finnsson
Hvernig bólusetj-
um við þjóðina
sem hraðast við
veirunni, spyrja
margir en núið
spyr; hvernig
höldum við
tengslum við okk-
ur sjálf og aðra?
MIKIÐ ÚRVAL AF FLOTTUM BARNASKÓM
- NÝ SENDING -
Magical Rainbows
Verð: 8.995.-
Stærðir: 21 - 35
Heartsland
Verð: 8.995.-
Stærðir: 27 - 35
Optico
Verð: 7.995.-
Stærðir: 27 - 35
Thermo Flash
Verð: 8.995.-
Stærðir: 27 - 35
with Light-Up t ight-Up pwith Light-U
SMÁRALIND - KRINGLAN - SKÓR.IS