Morgunblaðið - 27.03.2021, Side 48
48 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021
Spánn
B-deild:
Real Canoe – Melilla............................ 70:79
- Sigtryggur Arnar Björnsson skoraði 12
stig, tók tvö fráköst og gaf sex stoðsend-
ingar hjá Real Canoe á 25 mínútum.
NBA-deildin
Miami – Portland.............................. 122:125
New York – Washington.................. 106:102
San Antonio – LA Clippers ................. 85:98
LA Lakers – Philadelphia ............... 101:109
Sacramento – Golden State ............. 141:119
Efstu lið í Austurdeild:
Philadelphia 32/13, Milwaukee 29/14, Bro-
oklyn 30/15, Charlotte 22/21, N-York 23/22,
Atlanta 22/22, Miami 22/23, Boston 21/23.
Efstu lið í Vesturdeild:
Utah 32/11, Phoenix 29/14, LA Clippers 30/
16, LA Lakers 28/17, Denver 26/18, Port-
land 26/18, Dallas 23/19, San Antonio 22/20.
57+36!)49,
_ Handknattleiksmaðurinn Theodór
Sigurbjörnsson hefur framlengt
samning sinn við ÍBV um tvö ár. Theo-
dór hefur verið lykilmaður í liði ÍBV
undanfarin ár og verið einn besti
hornamaður íslensku deildarinnar.
Theodór hefur skorað 45 mörk í 13
leikjum með ÍBV á leiktíðinni.
_ Knattspyrnumaðurinn Alexander
Freyr Sindrason er kominn til 1. deild-
ar liðs Fjölnis í láni frá úrvalsdeildarliði
HK. Alexander er 27 ára gamall varn-
armaður sem kom til HK frá Haukum á
miðju tímabilinu 2019 og hefur spilað
tíu úrvalsdeildarleiki með Kópavogs-
liðinu en ekki náð að vinna sér fast
sæti í liðinu. Hann lék áður með meist-
araflokki Hauka í átta ár og var um
skeið fyrirliði liðsins.
_ Tveimur fyrirhuguðum vináttu-
landsleikjum Noregs og Frakklands í
handbolta í kvennaflokki hefur verið
aflýst vegna kórónuveirunnar. Sam-
komutakmarkanir eru harðar í Noregi
og sömuleiðis að hluta í Frakklandi.
Þórir Hergeirsson er landsliðsþjálfari
Noregs. Þjóðirnar áttu að mætast
tvisvar um miðjan apríl í undirbúningi
fyrir Ólympíuleikana í sumar. Allir þeir
sem heimsækja Noreg þurfa hins veg-
ar að fara í tíu daga sóttkví. Í kjölfarið
var reynt að færa leikina til Frakk-
lands, en það gekk ekki eftir.
_ Oscar Borg, 23 ára gamall enskur
knattspyrnumaður, er kominn til liðs
við Stjörnuna frá spænska C-
deildarliðinu Arenas. Borg var áður í
röðum Aston Villa og West Ham. Hann
er vinstri bakvörður og mun vænt-
anlega koma í stað Jósefs Kristins
Jósefssonar sem lagði skóna á hilluna
í vetur.
_ Alfreð Finnbogason landsliðs-
maður í knattspyrnu lék í gær sinn
fyrsta leik í tvo mánuði þegar hann
kom við sögu í æfingaleik Augsburg
gegn Heidenheim. Alfreð hefur verið
frá keppni síðan í lok janúar og misst
af átta deildarleikjum Augsburg. Þá
var hann
ekki í
lands-
liðshópi
Íslands í
yfirstand-
andi verkefni
vegna
meiðslanna.
Alfreð lék síð-
ustu 20 mín-
úturnar í 3:1-sigri.
Eitt
ogannað
Sveindís Jane Jónsdóttir er í þriðja
sæti á lista Damallsvenskan Nyhet-
er yfir bestu félagaskipti ársins í
sænsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu. Sveindís, sem er 19 ára
gömul, gekk til liðs við þýska
fyrstudeildarfélagið Wolfsburg í
desember á síðasta ári en var lánuð
til Kristianstand fyrir komandi
keppnistímabil.
Sveindís er ekki eini Íslending-
urinn á listanum því Hallbera
Guðný Gísladóttir er í fimmtánda
sæti listans, en hún gekk til liðs við
nýliða AIK frá Val í desember.
Sveindís í þriðja
sæti í Svíþjóð
Morgunblaðið/Eggert
Mörk Sveindís hefur raðað inn
mörkum undanfarin ár.
Hlauparinn efnilegi Baldvin Þór
Magnússon setti sitt annað Íslands-
met í langhlaupum í þessum mán-
uði í fyrrakvöld þegar hann hljóp
5.000 metra á fyrsta utanhússmóti
bandaríska háskólatímabilsins í Ra-
leigh í Norður-Karólínu. Hann
bætti Íslandsmet Hlyns Andrés-
sonar frá 2019 um heilar 12 sek-
úndur, hljóp á 13:45,66 mínútum.
Fyrir hlaupið var Baldvin, sem er
21 árs gamall, aðeins í 10. sæti á af-
rekaskrá FRÍ í greininni en hann
bætti sinn besta tíma utanhúss frá
árinu 2018 um tæpar 55 sekúndur.
Ótrúleg bæting
hjá Baldvini
Met Baldvin Þór Magnússon á nú
Íslandsmet í tveimur greinum.
LANDSLIÐIÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari ís-
lenska kvennalandsliðsins í knatt-
spyrnu, valdi tvo nýliða í 23 manna
landsliðshóp sinn sem mætir Ítalíu
13. apríl í vináttulandsleik á Ítalíu en
hópurinn var opinberaður á blaða-
mannafundi í gær.
Báðir nýliðarnir koma úr röðum
Breiðabliks, þær Hafrún Rakel Hall-
dórsdóttir og markvörðurinn Telma
Ívarsdóttir, en saman eiga þær að
baki 50 leiki fyrir yngri landslið Ís-
lands.
Ingibjörg Sigurðardóttir, ríkjandi
bikar- og Noregsmeistari með Våle-
renga, fékk ekki leyfi frá félagsliði
sínu til þess að taka þátt í verkefninu
vegna strangra sóttvarnareglna í
Noregi en hún á að baki 35 A-
landsleiki og hefur verið fastakona í
íslenska liðinu undanfarin ár.
Berglind og Guðrún
Valið er nokkuð hefðbundið, að
undanskildum nýliðunum tveimur, en
þó eru leikmenn á borð við Berglindi
Rós Agústsdóttur og Guðrúnu Arn-
ardóttur sem hafa verið inn og út úr
hópnum undanfarin ár.
Berglind hefur verið besti leik-
maður Fylkis í úrvalsdeild kvenna
undanfarin tímabil og á að baki einn
A-landsleik en hún gekk til liðs við
sænska úrvalsdeildarfélagið Örebro í
desember á síðasta ári.
Guðrún Arnardóttir hefur leikið
með Djurgården í Svíþjóð frá 2019
en hún gekk til liðs við sænska
félagið frá Breiðabliki þar sem
hún varð tvívegis Íslandsmeist-
ari og þrívegis bikarmeistari frá 2012
til 2018.
Hún á að baki 8 A-landsleiki en hún
lék síðast með íslenska kvennalands-
liðinu í vináttulandsleik gegn Suður-
Kóreu í Chuncheon, 9. apríl 2019, en
leiknum lauk með 1:1-jafntefli.
Á blaðamannafundi gærdagsins til-
kynnti Þorsteinn einnig að íslenska
liðið myndi mæta öðrum andstæðingi
hinn 10. apríl á Ítalíu en að ósk knatt-
spyrnusambands mótherja íslenska
liðsins verður ekki tilkynnt hverjir
andstæðingarnir verða fyrr en eftir
helgi.
Hefur alla burði
Hafrún Rakel, sem er 18 ára göm-
ul, gekk til liðs við Breiðablik haustið
2019 eftir þrjú tímabil með uppeldis-
félagi sínu Aftureldingu í 1. og 2.
deildinni.
Þar skoraði hún 8 mörk í 42 deilda-
leikjum áður en hún samdi við
Breiðablik en hún lék alla fimmtán
leiki Breiðabliks á síðustu leiktíð þeg-
ar liðið varð Íslandsmeistari í
sautjánda sinn í sögu félagsins undir
stjórn Þorsteins.
„Ég þekki Hafrúnu vel sem leik-
mann og hún hefur alla burði til þess
að verða framtíðarleikmaður í ís-
lenska landsliðinu,“ sagði Þorsteinn
meðal annars um val sitt á leikmann-
inum í gær. Hafrún var sjálf í skýj-
unum með valið þegar Morgunblaðið
sló á þráðinn til hennar í gær en valið
kom henni sjálfri á óvart.
„Ég er bara mjög ánægð,“ sagði
Hafrún Rakel. „Það hefur verið
markmiðið hjá mér að spila fyrir ís-
lenska landsliðið alveg frá því ég var
lítil stelpa og þetta kom mjög
skemmtilega á óvart. Ég vissi í raun
ekki að ég yrði í hópnum fyrr en hann
var opinberaður á heimasíðu KSÍ
þannig að þetta kom mér alveg jafn
mikið á óvart og öðrum,“ bætti hún
við.
Hafrún Rakel var hluti af mjög
sterku U19-ára landsliði Íslands sem
lagði meðal annars Þýskaland og Ítal-
íu að velli á alþjóðlegu móti á La
Manga í mars 2020 en vegna kórónu-
veirufaraldursins var keppni í milli-
riðlum fyrir EM 2020, sem átti að
fara fram í Hollandi, aflýst.
Dýrmæt reynsla með U19
„Ég fékk dýrmæta reynslu með
U19-ára landsliðinu á sínum tíma og
maður þekkir því aðeins þetta lands-
liðsumhverfi. Þetta er verkefni á veg-
um landsliðsins núna og ég fer inn í
það eins og öll önnur verkefni með
það að leiðarljósi að gera mitt besta
og standa mig vel.
Steini er frábær þjálfari og hann
hjálpaði mér mikið á síðustu leiktíð.
Hann treysti mér strax á fyrsta degi
og það er gríðarlega mikilvægt sem
leikmaður að finna fyrir trausti hjá
þjálfaranum. Ég hlakka mikið til að
vinna með honum á nýjan leik.“
England er stóra markmiðið
Ísland tekur þátt í lokakeppni EM
2022 sem fram fer á Englandi og er
eitt af markmiðum Hafrúnar að vera í
lokahópnum sem fer til Englands.
„Þetta val gefur mér klárlega auka
kraft, farandi inn í næsta tímabil með
Breiðabliki, og þetta sýnir mér svart
á hvítu að ég þarf að halda áfram á
sömu braut.
Það þýðir ekkert að hætta núna og
auðvitað er eitt af stóru markmið-
unum að vera í lokahópnum sem fer á
EM á Englandi. Hvort það mun tak-
ast þarf svo bara að koma í ljós.
Núna er ég bæði spennt og stress-
uð í bland en fyrst og fremst spennt
að takast á við þetta verkefni með A-
landsliðinu,“ bætti Hafrún við í sam-
tali við Morgunblaðið.
Markmið mitt síðan
ég var lítil stelpa
- Blikinn Hafrún Rakel Halldórsdóttir gæti spilað sína fyrstu A-landsleiki í apríl
Morgunblaðið/Eggert
Landsleikur Hafrún Rakel Halldórsdóttir í leik með U17 ára landsliðinu
gegn Írum fyrir tveimur árum. Nú er hún í A-landsliðshópnum.
MARK:
Sandra Sigurðardóttir, Val........................................................................... 34/0
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Örebro, Svíþjóð................................................... 1/0
Telma Ívarsdóttir, Breiðabliki ....................................................................... 0/0
VÖRN:
Hallbera Guðný Gísladóttir, AIK ............................................................... 117/3
Glódís Perla Viggósdóttir, Rosengård, Svíþjóð ......................................... 89/6
Anna Björk Kristjánsdóttir, Le Havre, Frakklandi................................... 43/0
Elísa Viðarsdóttir, Val ................................................................................... 38/0
Guðrún Arnardóttir, Djurgården .................................................................. 8/0
Guðný Árnadóttir, Napoli, Ítalíu.................................................................... 8/0
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, Breiðabliki................................................ 2/0
Hafrún Rakel Halldórsdóttir, Breiðabliki..................................................... 0/0
MIÐJA:
Sara Björk Gunnarsdóttir, Lyon, Frakklandi ........................................ 136/22
Dagný Brynjarsdóttir, West Ham, Englandi............................................ 90/29
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Orlando Pride, Bandaríkjunum............... 76/10
Alexandra Jóhannsdóttir, Eintracht Frankfurt, Þýskalandi................... 10/2
Andrea Rán Hauksdóttir, Le Havre, Frakklandi....................................... 10/2
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Bayern München, Þýskalandi .................... 4/1
Berglind Rós Ágústsdóttir, Örebro, Svíþjóð................................................. 1/0
SÓKN:
Elín Metta Jensen, Val ................................................................................. 54/16
Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Le Havre, Frakklandi............................. 48/6
Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki......................................................... 33/2
Hlín Eiríksdóttir, Piteå, Svíþjóð................................................................... 18/3
Sveindís Jane Jónsdóttir, Kristianstad, Svíþjóð........................................... 5/2
Hópurinn fyrir Ítalíuferðina