Morgunblaðið - 27.03.2021, Qupperneq 39
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Embætti héraðsdómara
laust til umsóknar
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi
Norðurlands eystra. Skipað verður í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um
dómaraembætti hefur lokið störfum.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 29. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010
er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum,
3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og
öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra
o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum
við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í
vinnubrögðum og 10) tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði
munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr.
620/2010 og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli
skiptir fyrir störf héraðsdómara.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlega fluttum
málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum
sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem
umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjanda.
Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi
á faglega færni umsækjanda til starfa sem héraðsdómari.
Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 12. apríl nk. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna
og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með
rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Dómsmálaráðuneytinu,
26. mars 2021.
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐGJÖF
RÁÐNINGAR
RANNSÓKNIR