Morgunblaðið - 27.03.2021, Page 49

Morgunblaðið - 27.03.2021, Page 49
ÍÞRÓTTIR 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2021 Eins og öðrum sem hafa mikinn áhuga á íþróttum þótti mér að sjálfsögðu leiðinlegt þeg- ar lokað var á allt íþróttastarf hér á landi á einu augabragði. Dagskráin hefur verið mikil og þétt síðan íþróttir voru leyfð- ar á nýjan leik og maður hefur verið ofdrekraður. Ég vorkenni sjálfum mér minnst þegar kem- ur að þessu nýjasta íþrótta- banni. Ég finn töluvert meira til með íþróttafólkinu sjálfu. Það er eitt að mega ekki spila leiki. Senni- lega geta flestir íþróttamenn lif- að ágætlega með því í þrjár vik- ur, en að mega ekki æfa er allt annað mál. Hinn 36 ára gamli Einar Ingi Hrafnsson, handboltamaður hjá Aftureldingu, lýsti yfir áhyggjum sínum á Twitter. Í fjórða sinn á einu ári má hann hvorki spila né æfa handbolta. Hann viðurkennir að það sé erfiðara í hvert skipti. Þetta gæti á endanum kostað hann síðustu ár ferilsins. Einar kallar eftir meiri skiln- ingi í garð íþróttafólks og spyr hver sé að tala þeirra máli. Einar sýnir því skilning að ekki megi spila handbolta þegar harðar sóttvarnaaðgerðir eru í gangi, en erfiðara sé að sætta sig við að ekki megi æfa og þá sérstaklega þegar smitin í samfélaginu eru ekki fleiri en raun ber vitni. Ég verð að taka undir þessi orð Einars. Smitin í kringum keppnisíþróttir hér á landi hafa verið örfá. Það er eitt að taka leiki af íþróttafólki, en annað að taka af því æfingar með nánast engum fyrirvara hvað eftir ann- að. Lítið sem ekkert er hugað að andlegri heilsu íþróttafólks á þessari stundu. Það er hvorki flókið né hættulegt að halda uppi æfingum í litlum hópum. BAKVÖRÐUR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Svíþjóð 8-liða úrslit, þriðji leikur: Malmö – Kristianstad.......................... 29:27 - Teitur Örn Einarsson eitt mark fyrir Kristianstad en Ólafur Andrés Guðmunds- son sat allan tímann á bekknum. _ Staðan er 2:1 Kristianstad í vil. Danmörk Tvis Holstebro – Kolding ................... 30:24 - Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði tvö mörk fyrir Tvis Holstebro. - Ágúst Elí Björgvinsson varði 8 skot í marki Kolding og skoraði eitt mark. Staða efstu liða: Aalborg 39, GOG 39, Tvis Holstebro 38, Bjerringbro/Silkeborg 31, SönderjyskE 29, Skanderborg 26, Skjern 25, Kolding 23. Frakkland B-deild: Valence – Nice ..................................... 31:29 - Grétar Ari Guðjónsson varði 14 skot í marki Nice. Sélestat – Nancy .................................. 31:32 - Elvar Ásgeirsson skoraði 7 mörk fyrir Nancy. Staða efstu liða: Nancy 28, Pontault 28, Saran 26, Cherbo- urg 26, Dijon 22, Massy Essonne 20, Nice 18, Sélestat 16, Valence 15. %$.62)0-# Þýskaland Leverkusen – Eintracht Frankfurt....... 3:2 - Sandra María Jessen hjá Leverkusen er í barneignarfríi. - Alexandra Jóhannsdóttir var allan tím- ann á varamannabekk Frankfurt. Staðan: Bayern München 48, Wolfsburg 43, Hof- fenheim 34, Turbine Potsdam 29, Lever- kusen 29, Freiburg 21, Eintracht Frank- furt 18, Essen 18, Werder Bremen 13, Sand 8, Meppen 7, Duisburg 4. 4.$--3795.$ Danska liðið mun ekki síður refsa en það rússneska. „Eftir fyrsta markið urðum við óþolinmóðir og þá kom stress í menn. Það fór allt í vesen á síðustu mín- útunum í fyrri hálfleik,“ útskýrði Sveinn Aron Guð- johnsen, markaskorari Íslands gegn Rússlandi, um hvað hefði farið úrskeiðis í fyrsta leik. Tvö efstu lið riðilsins tryggja sér sæti í átta liða úr- slitum og gilda innbyrðisviðureignir. Íslendingar eiga ekki möguleika á að fara upp úr riðlinum ef leikurinn gegn Dönum tapast. Þá fara Danir áfram ásamt ann- aðhvort Rússum eða Frökkum. Ef leikur Dana og Ís- lendinga endar með jafntefli er staða Íslands erfið en ekki vonlaus. Þá verður Ísland að vinna Frakkland í lokaleiknum til að eiga einhvern möguleika á að fara áfram. johanningi@mbl.is Íslenska U21 árs landslið karla í fótbolta leikur við frændur sína í því danska í öðrum leik sínum í C-riðli á lokamóti EM á morgun í Györ í Ungverjalandi klukkan 13. Liðin áttu ólíku gengi að fagna í fyrsta leik því Ísland fékk skell á móti Rússlandi, 1:4, á meðan Danmörk vann frækinn sigur á Frakklandi, 1:0. Ljóst er að danska liðið er afar sterkt en það hefur ekki tapað leik síðan sumarið 2019. Síðan þá hafa Danir spilað 14 leiki, unnið 11 og gert þrjú jafntefli. Sigurinn gegn sterku liði Frakka sýndi hvers Danir eru megnugir. Ísland verður að spila miklu betur en gegn Rúss- landi þar sem liðið skapaði sér fá færi og var varn- arleikurinn á stórum köflum ekki upp á marga fiska. Ærið verkefni gegn Danmörku Ljósmynd/Szilvia Micheller Fyrirliði Jón Dagur Þorsteinsson er fyrirliði íslenska U21 liðsins. ARMENÍA Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þegar flautað verður til leiks á há- sléttunni við Kákasusfjöllin, í einni elstu borg heims, Jerevan, klukkan 16 á morgun að íslenskum tíma, hittir íslenska karlalandsliðið í fót- bolta á einhvern versta tímann til að mæta liði Armeníu. Armenska landsliðið hefur frá því í september gengið í gegnum sinn besta kafla í sögunni en eftir 1:0 sigur gegn Liechtenstein á útivelli í Vaduz í fyrrakvöld í fyrstu umferð undankeppni heimsmeistaramóts- ins eru Armenar ósigraðir í sex leikjum í röð frá 8. september og hafa unnið fjóra þeirra. Sjálfs- traustið er því væntanlega eins og best getur verið í þeirra röðum. Sigurmarkið í Vaduz í fyrrakvöld var sjálfsmark á 83. mínútu og sig- urinn því naumur en kærkominn fyrir armenska liðið. Komnir í B-deildina Armenar unnu sér í nóvember mjög óvænt sæti í B-deild Þjóða- deildarinnar, þar sem þeir gætu þá einmitt mætt Íslendingum, með því að vinna sinn riðil í C-deildinni eftir tvísýna baráttu við Norður- Makedóníu, Georgíu og Eistland. Þeir sigruðu Norður-Makedóníu, 1:0, í hreinum úrslitaleik í loka- umferðinni með marki frá Hov- hannes Hambardzumyan, leik- manni Anorthosis á Kýpur, og þurftu þó að spila þann heimaleik sinn á Kýpur vegna stríðs- ástandsins í landinu. Aðeins einn af þessum sex síðustu leikjum Ar- mena hefur verið leikinn í Jerevan af sömu sökum en þeir hafa átt í langvarandi stríðsátökum við granna sína í Aserbaídsjan vegna héraðsins umdeilda Nagorno- Karabakh, sem er innan landa- mæra Aserbaídsjans. Sakna hins armenska Gylfa Armenar eru í svipuðum sporum og Íslendingar þessa dagana. Ís- land leikur án Gylfa Þórs Sigurðs- sonar og Armenar leika án síns langbesta manns, Henrikhs Mkhit- aryan, sem er fyrirliði liðsins, og langmarkahæstur í sögu landsliðs- ins með 30 mörk í 88 landsleikjum. Hann er væntanlega eini leikmaður Armena sem Íslendingar kannast almennt við eftir feril hans með Dortmund, Manchester United og Arsenal, en hann leikur nú með Roma sem lánsmaður frá Arsenal. Lykilmaður Armena og þeirra reyndastur í þessari lands- leikjatörn er Gevorg Gharzaryan, 32 ára miðjumaður sem lék sinn 73. landsleik í fyrrakvöld og er jafn- framt markahæstur þeirra sem taka þátt í þessari landsleikjahrinu með 14 mörk. Reyndar næst- markahæstur í sögu landsliðsins. Hann er samherji Theódórs Elmars Bjarnasonar hjá Lamia í Grikk- landi. Sá eini í liði Armena sem leikur með sterku liði í vesturhluta Evr- ópu er framherjinn Sargis Ada- myan, leikmaður Hoffenheim í Þýskalandi. Þrettán af 23 í hópnum leika utan Armeníu og spila með lið- um í Kasakstan, Grikklandi, Kýpur, Rússlandi, Slóvakíu, Argentínu og Lettlandi. Tapa fyrir Gíbraltar og Möltu og bursta Danmörku Armenar áttu mjög köflótta und- ankeppni EM á árinu 2019. Þeir unnu góða sigra á Grikkjum á úti- velli, 3:2, og á Bosníumönnum á heimavelli, 4:2, en gerðu jafntefli í Liechtenstein, töpuðu tvisvar fyrir Finnum og fengu hrikalegan skell, 9:1, gegn Ítölum. Þeir hafa í gegn- um tíðina verið óútreiknanlegir, unnið óvænta sigra en svo tapað á ólíklegum stundum, t.d. fyrir Gíbr- altar á heimavelli fyrir tveimur ár- um. Armenar unnu einhvern sinn fræknasta sigur þegar þeir lögðu Dani 4:0 á Parken sumarið 2013, fjórum dögum eftir 0:1 tap gegn Möltu á heimavelli. Eftir þann sigur á Dönum klifr- uðu Armenar upp í 35. sæti heims- lista FIFA og hafa aldrei fyrr eða síðar komist svo ofarlega. Þeir hafa oft verið í kringum 100. sætið og sitja einmitt núna í 99. sæti listans, 53 sætum fyrir aftan Ísland. Það þýðir að þeir eru í 41. sæti af 55 Evrópuþjóðum en Ísland er þar í 27. sæti. Þjálfari Armeníu er Joaquín Cap- arrós, 65 ára gamall Spánverji, sem tók við liðinu sumarið 2020 og hefur aðeins tapað einu sinni með því í sjö leikjum. Caparrós hefur áður m.a. stýrt spænsku liðunum Villarreal, Sevilla, Deportivo La Coruna, Athletic Bilbao, Levante, Granada og Osasuna. Tveir sigrar og jafntefli gegn Armeníu Ísland og Armenía hafa einu sinni áður verið saman í undanriðli stórmóts, fyrir EM árið 2000. Liðin gerðu jafntefli, 0:0, í Jerevan í októ- ber 1998, en íslenska liðið, undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar, vann seinni leikinn 2:0 á Laugardalsvell- inum í júní 1999 þar sem Ríkharður Daðason og Rúnar Kristinsson skoruðu mörkin. Eftir þann sigur var Ísland taplaust í öðru sæti und- anriðilsins eftir sex umferðir og stigi á undan ríkjandi heimsmeist- urum Frakka. Þá mættust Ísland og Armenía á alþjóðlegu móti á Möltu í febrúar 2008. Tryggvi Guðmundsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson tryggðu þar Íslandi sigur, 2:0. Tveir þeirra sem nú eru í hópi Íslands voru í byrjunarliðinu í þeim leik, Birkir Már Sævarsson og Ragnar Sigurðsson. Armenarnir aldrei betri - Ósigraðir í sex leikjum síðan í september undir stjórn reynds Spánverja - Óútreiknanlegir mótherjar - Aðalstjarna Armena leikur ekki með AFAP Duisburg Albert Guðmundsson kom inn á í fyrri hálfleik gegn Þýskalandi þegar Rúnar Már Sigurjónsson meiddist og á hér í höggi við Lukas Klostermann. Íslenska liðið kom til Jerevan í gær og mætir Armeníu á morgun. Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu æfði í Düsseldorf í gærmorgun áður en það hélt til Jerevan í Armeníu fyrir leikinn í undankeppni heimsmeist- aramótsins sem hefst þar klukkan 16 á morgun. Íslenska liðið ferðast með leiguflugi í þessari landsleikjatörn og það ein- faldar mjög löng ferðalög. Liðið flaug frá Düsseldorf til Jerevan klukkan 14 að íslenskum tíma í gær og lenti klukkan 18.30 en vegna tímamismun- arins var klukkan þá orðin 22.30 að staðartíma. Leikurinn á morgun fer fram að kvöldlagi þarna austur frá en klukkan verður 20 í Jerevan þegar flautað verður til leiks. Samkvæmt landafræðinni er Armenía í Asíu þótt landið teljist til Evr- ópuríkja á flestum sviðum og eigi aðild að margs konar evrópskum stofn- unum og samtökum, þar á meðal UEFA, Knattspyrnusambandi Evrópu. Armenía, sem tilheyrði Sovétríkjunum til 1992, liggur að Íran til suðurs, Aserbaídsjan til austurs, Georgíu til norðurs og Tyrklandi til vesturs. Langt flug austur í Asíu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.