Morgunblaðið - 31.03.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 31.03.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021 Góður gangur er á vinnu við upp- steypu og undirstöður í grunni með- ferðarkjarnans við byggingu nýs Landspítala. Unnið er meðal annars af fullum krafti þessa dagana að mótaupp- slætti og járnabendingu en und- irstöðurnar voru steyptar í síðustu viku að því er fram kemur í Fram- kvæmdafréttum NLSH um stöðu og framgang verkefnisins. Haft er eftir Eysteini Einarssyni, staðarverkfræðingi hjá NLSH, að helstu verkþættir sem nú eru í gangi við uppsteypuna séu áframhaldandi þrif á klöpp og þrifalagssteypur. Samhliða þessu standi yfir vinna við jarðskaut og fljótlega hefjist síðan vinna við fyllingar og lagnir í grunn- inum. Haft er eftir Kai Westphal, fram- kvæmdastjóra steypu, framleiðslu og dreifingu hjá Steypustöðinni, að gengið hafi vel að steypa fyrstu al- vöru undirstöðurnar sem sé stór áfangi í verkefninu. Nú er Steypu- stöðin búin að afgreiða milli 1.800 og 1.900 rúmmetra frá upphafi í þetta verkefni við Landspítalann. omfr@mbl.is Framkvæmdum miðar vel í grunni meðferðarkjarna nýs Landspítala Uppsteypa í fullum gangi Morgunblaðið/Eggert Morgunþátturinn á K100, Ísland vaknar, verður sendur út í beinni út- sendingu frá eldgosinu í Geldinga- dölum, bæði með hljóði og mynd. Út- sendingin hefst kl 7, klukkutíma síðar en vanalega, og verður í beinni um allt land á FM-tíðni og einnig á k100.is, mbl.is og Rás 9 í Sjónvarpi Símans. „Í vikunni var ákveðið að láta á það reyna að senda heilan þátt út frá virkri eldstöð. Eftir mikla leit á net- inu hefur ekki tekist að finna einn útvarpsþátt sem beinlínis er með eldgos í bakgrunni,“ segir Jón Axel Ólafsson, einn þáttastjórnenda ásamt Ásgeiri Páli og Kristínu Sif. „Fjöldi manns kemur að verkefn- inu ásamt okkur, tæknimenn, að- stoðarfólk, fjarskiptasérfræðingar, ljósmyndarar og fleiri,“ segir Jón Axel en Völundur Snær mat- reiðslumeistari verður með í hópn- um og ætlar að miðla af reynslu sinni. Jón Axel segir Völund einmitt þekktan fyrir að fara ekki troðnar slóðir þegar kemur að matseld við eldstöðvar. „Tæknilega er verkefnið snúið, þar sem þátturinn er frekar hraður og gerir út á gleði en ekki alvarleg málefni, þótt oft sé einnig tekið á slíku í Ísland vaknar. Útsending- arstjórn fer fram bæði við gosstað- inn og í höfuðstöðvunum í Hádeg- ismóum. Markmiðið er að halda sérstöðu K100 og morgunþáttarins alla leið, þótt þetta skemmtilega um- hverfi sé valið,“ segir Jón Axel að endingu. Ísland vaknar við eldgosið - Bein útsending frá Geldingadölum í morgunþætti K100 - Sent út um allt land á K100, mbl.is og í Sjónvarpi Símans Ísland vaknar Jón Axel, Kristín Sif og Ásgeir Páll í beinni frá gosinu. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Helgi Björns og hljómsveitin Reið- menn vindanna verða með aukaþátt í beinni útsendingu í opinni dag- skrá í Sjónvarpi Símans næstkom- andi laugardagskvöld. Framhaldið er óráðið en hugsanlega verður þráðurinn tekinn upp síðar. Frá því í mars í fyrra hafa tón- listarmennirnir gert 29 þætti í samvinnu við Sjónvarp Símans og lauk síðustu þáttaröðinni á laug- ardag. Helgi segir að í kjölfarið hafi verið mikill utanaðkomandi þrýstingur, meðal annars á sér- stakri Facebook-síðu, um að vera með aukaþátt og að vel athuguðu máli hafi verið ákveðið að verða við þeirri ósk. Þættirnir urðu til samfara sam- komutakmörkunum vegna kór- ónuveirufaraldursins í fyrra og hafa fylgt veirunni síðan. Helgi segir að útlit hafi verið fyrir að fólk færi á ferðina um páskana og lok þáttaraðarinnar hafi verið ákveðin með það í huga. Miðað við stöðuna í faraldrinum fyrir skömmu hafi sennilega fáir átt von á sam- komutakmörkunum um páskana, en annað hafi komið á daginn. „Í ljósi þessara aðstæðna og fjöl- margra áskorana ákváðum við að telja í einn páskaþátt.“ Þættirnir hafa notið mikilla vin- sælda. Helgi segir að enginn hafi vitað út í hvað þeir voru að fara fyrir rúmu ári og því síður að þeir væru enn með skemmtiþátt rúmu ári síðar. „Eitt hefur leitt af öðru og þessi ferð hefur verið mjög ánægjuleg fyrir okkur auk þess sem við höfum fundið fyrir miklu þakklæti frá áhorfendum.“ Margir gestir, jafnt reyndir sem efnilegir, hafa komið fram í þátt- unum og samtals hafa verið flutt um 400 íslensk lög í þeim. „Það er mjög skemmtilegt að hafa getað sýnt breiddina í íslensku söngbókinni, ekki síst þegar lítið hefur verið um tækifæri fyrir tón- listarfólk til þess að koma fram,“ segir Helgi. Aukaþáttur með Helga og félögum - Létu undan miklum þrýstingi - Bein útsending verður næsta laugardag Ljósmynd/Mummi Lú Gaman Bubbi Morthens og Helgi Björns fóru á kostum um síðustu helgi. Landsréttur staðfesti í gær að karl- maður, sem grunaður er um skipu- lagða brotastarfsemi, þurfi að af- plána 400 daga eftirstöðvar af fangelsisrefsingum en maðurinn fékk reynslulausn í júní í fyrra. Fram kemur í greinargerð lög- reglu að maðurinn sé talinn tengj- ast skipulagðri brotastarfsemi sem snúi meðal annars að innflutningi, framleiðslu, sölu og dreifingu fíkni- efna ásamt alls kyns fjármálagjörn- ingum og peningaþvætti. Lögregla handtók manninn 12. mars eftir að hafa fylgst með hon- um. Í bíl mannsins fundust hlaðin skammbyssa, mikið af reiðufé og rúmlega hálft kíló af amfetamíni. Hann var í kjölfarið úrskurðaður í gærsluvarðhald og síðan gert að af- plána fyrri refsingar enda talinn hafa brotið gróflega almenn skil- yrði reynslulausnar. Dómshús Hús Landsréttar við Vesturvör. Var með fíkniefni, byssu og fé í bílnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.