Morgunblaðið - 31.03.2021, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021
Eik fasteignafélag hf.
Aðalfundur
26. apríl 2021
Eik fasteignafélag hf. // Sóltún 26, 105 Reykjavík // www.eik.is
Aðrar upplýsingar:
Vefstreymi verður frá fundinum en hluthafar munu geta sótt fundinn í eigin persónu, ef samkomu-
takmarkanir leyfa. Rafræn þátttaka jafngildir mætingu á fundinn og veitir rétt til þátttöku í honum að
öðru leyti. Atkvæðagreiðsla mun alfarið fara fram rafrænt í gegnum Lumi AGM án tillits til þess hvort
hluthafar mæta á fundarstað eða taka þátt rafrænt. Hægt verður að bera upp skriflegar spurningar í
gegnum snjallforrit eða heimasíðu Lumi AGM.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á
staðnum, eru beðnir um að skrá sig tímanlega á heimasíðunni www.smartagm.com og ekki seinna en
kl. 16.00 þann 25. apríl 2021. Opnað verður fyrir skráningu þriðjudaginn 6. apríl 2021. Með innskráningu
þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á. Hluthafar eru hvattir til að hlaða niður smáforriti
Lumi AGM í eigin snjalltæki, en jafnframt geta þeir greitt atkvæði í gegnum heimasíðu Lumi AGM.
Hluthafi getur falið umboðsmanni að sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja
fram dagsett og skriflegt umboð, en form að umboði er aðgengilegt á heimasíðu félagsins. Á hlut-
hafafundi fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.
Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum og leggja fram ályktunar-
tillögur ef hann gerir skriflega eða rafræna kröfu um það til stjórnar félagsins eigi síðar en föstudaginn
16. apríl 2021. Hægt er að senda tillögur fyrir fundinn á netfangið stjornun@eik.is. Hafi hluthafi krafist
þess að fá mál tekin til meðferðar á fundinum eða lagt fram ályktunartillögur fyrir framangreindan tíma,
verða dagskrá og tillögur uppfærðar á heimasíðu félagsins eins fljótt og auðið er eftir móttöku þeirra.
Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar eigi síðar en mánudaginn 19. apríl 2021. Mál sem ekki hafa
verið greind í endanlegri dagskrá aðalfundar er ekki unnt að taka til endanlegrar úrlausnar á fundinum
nema með samþykki allra hluthafa en gera má um þau ályktun til leiðbeiningar fyrir félagsstjórn.
Tillögur tilnefningarnefndar koma fram í skýrslu nefndarinnar sem er aðgengileg hluthöfum á heimasíðu
félagsins. Fresti til að tilkynna um framboð til stjórnar á netfangið stjornun@eik.is lýkur sjö sólar-
hringum fyrir aðalfund, nánar tiltekið kl. 16.00 mánudaginn 19. apríl 2021. Eyðublöð vegna framboðs
til stjórnarsetu er að finna á heimasíðu félagsins og verða upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar
birtar þar og verða til sýnis á skrifstofu þess eigi síðar en sólarhring eftir að framboðsfrestur rennur út.
Aðalfundur er lögmætur án tillits til fundarsóknar ef hann er löglega boðaður, sbr. 11. gr. samþykkta
félagsins. Aðalfundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn og atkvæðaseðlar einnig á íslensku.
Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa og annað sem varðar aðalfundinn, svo sem endanleg dagskrá,
tillögur stjórnar og hluthafa, starfskjarastefna, skýrsla tilnefningarnefndar félagsins, eyðublöð vegna
umboðs og framboðs til stjórnar, upplýsingar um atkvæðagreiðslu, skjöl sem verða lögð fram á aðal-
fundi, upplýsingar um frambjóðendur, upplýsingar um fjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu, er – eða
verður eftir því sem þau verða til – að finna á heimasíðu félagsins, www.eik.is/hluthafar. Auk þess
munu viðeigandi gögn liggja frammi í höfuðstöðvum félagsins, að Sóltúni 26, 105 Reykjavík, þremur
vikum fyrir aðalfundinn.
Drög að dagskrá fundarins eru svohljóðandi:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið starfsár
2. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagðir fram til
staðfestingar
3. Ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu og greiðslu arðs
4. Ákvörðun um þóknun til stjórnar og nefnda fyrir störf þeirra fyrir komandi starfsár
5. Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins
6. Kosning félagsstjórnar
7. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarfélags
8. Heimild til kaupa á eigin hlutum
9. Önnur mál sem löglega eru fram borin
Reykjavík, 30. mars 2021
Stjórn Eikar fasteignafélags hf.
Stjórn Eikar fasteignafélags hf. boðar til aðalfundar í félaginu kl. 16.00
mánudaginn 26. apríl 2021. Fundurinn verður haldinn rafrænt og, ef
aðstæður leyfa, í Norðurljósum, Hörpu.
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Verið er að ganga frá tveimur litlum
einbýlishúsum í Sandgerðisbót á Ak-
ureyri sem ætluð eru fyrir heimilis-
lausa. Framkvæmdir við húsin eru
langt komnar og segir Heimir Har-
aldsson, formaður velferðarráðs Ak-
ureyrarbæjar, að vonast sé til að þau
verði tekin í notkun í næsta mánuði.
Á skipulagi er rými fyrir fjögur
hús en ekki hefur verið tekin ákvörð-
un um hvenær síðari tvö húsin verða
sett upp. Heimir segir að til viðbótar
við húsin tvö í Sandgerðisbót verði á
næstu vikum tekin í notkun þrjú
rými sem hugsuð eru sem sértæk
húsnæðisúrræði.
Breytir miklu um framboðið
Heimir segir að samkvæmt upp-
lýsingum frá velferðarsviði bæjarins
liggi ekki fyrir nú hvort einhver íbúi
á Akureyri flokkist undir það að vera
heimilislaus.
„En þessi úrræði sem brátt verða
tekin í notkun breyta miklu fyrir bæ-
inn þegar kemur að framboði á hús-
næði,“ segir hann.
Húsin í Sandgerðisbót eru 55 fer-
metrar að stærð. Kostnaður nemur
56 milljónum fyrir tvö fullbúin hús.
Húsin eru byggð úr krosslímdum
timbureiningum, einangruð að utan
og klædd með álklæðningu.
Löng umræða
Umræða hefur um langt skeið ver-
ið um skort á úrræðum fyrir heim-
ilislausa Akureyringa, einkum stað-
setning þeirra. Fyrst stóð til að reisa
smáhýsi á iðnaðarlóð við Norður-
tanga en sú hugmynd féll ekki í góð-
an jarðveg og var fallið frá áformum
um að koma heimilislausum fyrir á
jaðarsvæði. Þá var varpað fram hug-
mynd um smáhýsi í Naustahverfi.
Íbúar í hverfinu tóku illa í þá stað-
setningu og var því einnig hætt við
að reisa húsin þar. Ágætur hljóm-
grunnur var hins vegar fyrir stað-
setningu smáhýsanna ofan við Sand-
gerðisbót, en þar í kring mun á
næstu árum rísa nýtt hverfi, Holta-
hverfi norður.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Akureyri Verið er að ganga frá tveimur litlum einbýlishúsum í Sandgerð-
isbót sem ætluð eru fyrir heimilislausa. Verða þau tekin í notkun í apríl.
Húsnæði fyrir heim-
ilislausa á Akureyri
- Fyrstu litlu einbýlin tekin í notkun í
apríl - Kostnaður nemur 56 milljónum
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Tónlistarmaðurinn Aron Kristinn
Jónasson, gjarnan kallaður Geitin
Sjálf, er óánægður með verkefnis-
stjórn Reykjavíkurborgar, sem fer
fyrir verkefninu Hverfið mitt. Aron
sendi inn tillögu í
hverfakosningu
um að reisa
styttu af rapp-
aranum banda-
ríska Kanye
West við inngang
Vesturbæjar-
laugar. Tillaga
Arons hlaut ekki
brautargengi og
var rökstuðning-
ur verkefnis-
stjórnar Hverfisins míns á þá leið,
að sérstök tengsl Kanye West við
Vesturbæ séu lítil sem engin og fel-
ist aðeins í nafninu West.
Fara á svig við vilja íbúanna
„Þetta er bara lélegt,“ segir Aron
við Morgunblaðið. „Þarna gafst
Reykjavíkurborg tækifæri á að gera
eitthvað skemmtilegt í Vestur-
bænum og fara eftir vilja íbúanna
hér. Það er bara mjög lélegt að
halda hugmyndasamkeppni og ekki
einu sinni taka til umræðu það sem
fékk flest atkvæði íbúanna.“
Alls voru 772 sem greiddu at-
kvæði með tillögu Arons og eru það
langtum fleiri en greiddu atkvæði
með tillögunum sem fóru í frekara
úrvinnsluferli innan Reykjavíkur-
borgar. Flestar þær tillögur sem
eru nú í ferli innan borgarinnar,
fengu um og yfir 100 atkvæði.
Vesturbær hefði gott af styttu
Tillaga Arons hefur áður vakið
athygli fjölmiðla, bæði hér heima og
erlendis. Hann segir að ef af tillög-
unni hefði orðið, hefði það þýtt
ómetanlega heimsathygli fyrir Vest-
urbæ Reykjavíkur og Ísland.
„Ég vissi alveg að hugmyndin
hefði ákveðinn shock-factor, en mér
er samt sem áður alvara. Hvort sem
það er stytta af Kanye West eða
einhver róló, þá á að senda þær
hugmyndir, sem flest atkvæði fá, í
úrvinnslu. Það er það sem fólkið
vill.“
Kanye West rís
ekki í Vesturbæ
- „Lélegt“ að virða ekki vilja fólksins
AFP
Kanye West Stytta af rapparanum
fræga fær ekki að rísa í Vesturbæ.
Aron Kristinn
Jónasson
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?