Morgunblaðið - 31.03.2021, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021
arionbanki.is Þægilegri bankaþjónusta Arion banka
Með því að velja 4 þegar hringt er í þjónustuverið í síma 444 7000 fá
eldri borgarar forgang að þjónusturáðgjöfum sem aðstoða við hvaðeina
sem snýr að bankaþjónustu.
Tökumst á við þetta saman
Hraðþjónusta
fyrir eldri borgara
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Við viljum með þessu láta gott af okkur leiða á Skagaströnd,“
segir Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri en Kaupfélag Skag-
firðinga hefur gefið sveitarfélaginu Skagaströnd þrjár hús-
eignir, alls um 4.000 fermetra, sem hafa verið í eigu dóttur-
félagsins FISK Seafood. Húseignirnar sem um ræðir eru 600
fermetra skrifstofubygging að Túnbraut 1-3, sem hefur hýst
Greiðslustofu Vinnumálastofnunar og skrifstofur sveitarfé-
lagsins, og 3.400 fermetra atvinnuhúsnæði í tveimur bygg-
ingum, annars vegar síldarverksmiðjuna á hafnarsvæðinu og
hins vegar gömlu rækjuvinnsluna.
Kaupfélagið eignaðist þessar fasteignir árið 2004 með kaup-
um á Skagstrendingi af eignarhaldsfélagi Eimskips, Burðarási.
Viðræður hafa staðið yfir við sveitarfélagið að undanförnu um
eignirnar, sem enduðu með því að skrifað var undir gjafaafsal
17. mars síðastliðinn, sem þýðir að sveitarfélagið greiðir ekkert
fyrir fasteignirnar.
„Við erum mjög sáttir við hvernig þetta fór og ánægðir með
aðkomu sveitarfélagsins, höfum átt gott samstarf við sveit-
arstjóra um málið. Við vonumst til að þetta geti styrkt sveitar-
félagið, sem er að fara í sameining-
arviðræður í Austur-Húnavatnssýslu, og
þetta húsnæði getur gefið þeim tækifæri til
frekari atvinnusköpunar,“ segir Þórólfur.
Í ráðhúsinu að Túnbraut 1-3 fer heilmikil
starfsemi fram eins og fyrr greinir. Vinnu-
málastofnun hefur verið þar í leiguhúsnæði
með 20-30 manns í vinnu, auk þess sem skrif-
stofur sveitarfélagsins eru þar til húsa.
„Það er góð vinnuaðstaða í ráðhúsinu og
myndast hefur umgjörð um starfsemi
Vinnumálastofnunar. Við vonum að sú stofnun haldi áfram sinni
starfsstöð á Skagaströnd, hún skiptir samfélagið miklu máli,“
segir Þórólfur enn fremur.
Sóknarfæri skapast
„Með breytingu á eignarhaldi skapast ýmis sóknarfæri fyrir
sveitarfélagið til þess að stuðla að uppbyggingu og styrkingu
innviða ásamt því að hlúa að þeirri mikilvægu starfsemi sem nú
þegar er starfrækt á Skagaströnd,“ segir á vef sveitarfélagsins
um samninginn við Skagfirðinga.
Þar segir enn fremur að fyrsta verkefnið á teikniborði
sveitarfélagsins verði að búa 26 starfsmönnum Vinnu-
málastofnunar betri aðbúnað á Túnbrautinni.
„Mikilvægi þeirrar starfsemi hefur heldur betur sýnt sig á
Covid-tímum, en starfsfólk býr yfir gríðarlega mikilvægri
þekkingu og reynslu. Í því augnamiði að bæta aðstöðu Greiðslu-
stofu á Skagaströnd til frambúðar hefur á síðustu mánuðum
verið unnið að tillögum að breytingu á húsnæðinu. Er það m.a.
gert til þess að mæta þörfum vaxandi vinnustaðar þar sem sí-
fellt bætist við starfafjöldann á Greiðslustofu,“ segir á vef sveit-
arfélagsins.
Breytingar á húsnæðinu að Túnbraut munu einnig taka mið
af því að skapa aðstöðu fyrir störf án staðsetningar og aðra op-
inbera starfsemi ef skapast tækifæri til slíkrar uppbyggingar.
Þá nefnir sveitarfélagið að búa þurfi starfsmönnum á skrifstofu
þess betri aðstöðu.
Um aðrar byggingar sem KS gefur segir sveitarfélagið að
unnið sé að því að finna rækjuvinnslunni og síldarverksmiðj-
unni hlutverk. Spennandi verði að vinna að þeim verkefnum
áfram. Kaupfélagið er með tímabundinn leigusamning á gömlu
síldarverksmiðjunni fram í maí 2024 en fram að þeim tíma verð-
ur unnið að því að finna húsnæðinu framtíðarverkefni, segir
jafnframt á vefnum skagastrond.is.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Skagaströnd Húseignirnar sem Kaupfélag Skagfirðinga gaf sveitarfélaginu. Lengst t.v. er síldarverksmiðjan, síðan rækjuvinnslan og loks Túnbraut 1-3, þar sem Vinnumálastofnun og sveitarfélagið eru með skrifstofur.
„Viljum láta gott af okkur leiða“
- Kaupfélag Skagfirðinga gefur Sveitarfélaginu Skagaströnd þrjár fasteignir - 4.000 fermetrar
Þórólfur Gíslason