Morgunblaðið - 31.03.2021, Síða 27

Morgunblaðið - 31.03.2021, Síða 27
FRÉTTIR 27Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021 Fundarboð Kviku banka hf. Ádagskrá fundarins verða eftirfarandimál. 1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár. 2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2020 og ákvörðun um meðferð hagnaðar félagsins á reikningsárinu. 3. Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf. 4. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins. 5. Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins. 6. Kosning stjórnar og varastjórnar félagsins. 7. Kosning endurskoðenda félagsins. 8. Ákvörðun þóknunar til stjórnarmanna og nefndarmanna í undirnefndum stjórnar. 9. Önnur mál. Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum: Stjórn leggur til breytingu á tilvísun í lög varðandi rafræna eignaskráningu á hlutum í félaginu í gr. 2.5. í samþykktum félagsins. Stjórn leggur til að samræma ákvæði samþykkta félagsins um boðun hluthafafunda við ákvæði laga um hlutafélög sem gildir um boðun hluthafafunda félaga sem hafa hlutabréf sín skráð á skipulegum verðbréfamarkaði, sbr. 88. gr. b. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Stjórn leggur til að nýju ákvæði verði bætt við samþykktir félagsins um heimild til þess að hluthafafundir verði aðeins haldnir rafrænt, sbr. 2. mgr. 80. gr. a laga um hlutafélög nr. 2/1995. Aðalfundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930, verður haldinn miðvikudaginn 21. apríl 2021, kl. 16:00, á Hilton Reykjavík Nordica, 2. hæð, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Stjórn Kviku banka hf. til hluthafafundar 21. apríl 2021 Stjórn leggur til að heimild stjórnar til hlutafjár- aukningar í B-lið bráðabirgðaákvæðis I við sam- þykktir félagsins verði felld úr gildi. Stjórn leggur til að ónýtt heimild stjórnar til útgáfu áskriftarréttinda samkvæmt bráðabirgðaákvæði II í samþykktum félagsins verði, ásamt samsvarandi heimild til hlutafjárhækkunar, framlengd til eins árs. Stjórn leggur til að við samþykktir félagsins bætist heimild stjórnar til þess að hækka hlutafé um 70.000.000 kr. að nafnvirði til þess að uppfylla skyldur stjórnar samkvæmt kaupréttarsamningum á grundvelli almennrar kaupréttaráætlunar. Aðrar upplýsingar Fundarstörf fara fram á íslensku. Fundargögn eru aðgengileg á heimasíðu félagsins á íslensku og ensku utan þess að ársreikningur félagsins er eingöngu aðgengilegur á ensku. Dagskrá, endanlegar tillögur, starfskjarastefna, ársreikningur félagsins og önnur fundargögn munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Katrínartúni 2, Reykjavík, hluthöfum til sýnis í 21 dag fyrir aðalfund. Umrædd gögn, ásamt upplýsingum um frambjóðendur til stjórnar, eru einnig birt á heimasíðu félagsins, https://www.kvika. is/fjarfestaupplysingar/hluthafafundir/. Boðið verður upp á fullgilda rafræna þátttöku á fundinum, án þess að hluthafar séu viðstaddir fundarstað, í gegnum Lumi AGM.Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefstreymi auk þess sem hluthafar geta kosið rafrænt og borið upp skriflegar spurningar í gegnum Lumi snjallforritið eða vefslóð Lumi AGM.Rafræn þátttaka jafngildir mætingu á fundinn og veitir rétt til þátttöku í honum að öðru leyti. Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig á vefsíðunni www.smartagm.com eigi síðar en kl. 16.00 þann 20. apríl, eða degi fyrir fundardag.Með innskráningu þarf að fylgja mynd af gildum skilríkjum og umboð, ef við á. Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram í gegnum Lumi AGM.Allir hluthafar, hvort sem þeir mæta til fundarins á Hilton Reykjavík Nordica eða taka þátt með rafrænum hætti, eru hvattir til að hlaða niður snjallforriti Lumi AGM í eigin snjalltæki, en jafnframt geta þeir greitt atkvæði í gegnum vefslóð Lumi AGM. Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á fundinum ef hann sendir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar á heimilis- fang félagsins eða á netfangið hluthafar@kvika.is. Þeir hluthafar sem óska eftir því að fá tiltekið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum skulu senda beiðni um slíkt eigi síðar en tíu sólarhringum fyrir boðaðan aðalfund, eða í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 þann 11. apríl 2021. Kröfu skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til félagsstjórnar. Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar fyrir aðalfund með því að senda erindi á framangreint netfang eða bera þær upp á aðalfundinum sjálfum. Þeim sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn ber að tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16:00 föstudaginn 16. apríl 2021. Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal geta nafns frambjóðanda, kennitölu, heimilisfangs, menntunar, upplýsinga um aðalstarf og starfsferil, hvenær viðkomandi tók fyrst sæti í stjórn félagsins, ef við á, önnur trúnaðarstörf (t.a.m. stjórnarstörf í öðrum félögum) og hlutafjáreign í félaginu, beint eða í gegnum tengda aðila. Þá skal upplýsa um önnur tengsl við félagið og hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga, einir eða í samstarfi við aðra, meira en 10% hlut í félaginu. Þeir einir eru kjörgengir til setu í stjórn félagsins sem þannig hafa gefið kost á sér. Krafa um hlutfallskosningu eða margfeldiskosningu, sbr. 7. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995, skal hafa borist stjórn félagsins minnst fimm dögum fyrir aðalfundinn þ.e. fyrir kl. 16:00 föstudaginn 16. apríl 2021. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar munu liggja frammi hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins sem og á heimasíðu félagsins, eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn, sbr. 63. gr. a laga um hlutafélög nr. 2/1995. Framboðsform til stjórnarsetu er aðgengilegt á vefsíðu félagsins. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, óháð fundarsókn. Aðilar sem eru skráðir hluthafar í hlutaskrá félagsins þegar hluthafafundur fer fram geta beitt réttindum sínum á hluthafafundinum. Hluthafar geta látið umboðsmann sækja fundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð, en form að umboði er aðgengilegt á vefsíðu félagsins. Fundarboð þetta, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæða á fundarboðsdegi, dagskrá, tillögur stjórnar til hluthafafundar og önnur fundargögn ásamt umboðsformum verða aðgengileg á vefsíðu félagsins. Sé misræmi milli fundargagna á íslensku og ensku, gildir íslenska útgáfan. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Nú er ljóst að yfirstandandi vetur verður ekki sá snjóléttasti í Reykja- vík í þau 100 ár sem mælingar hafa staðið yfir. Um tíma leit út fyrir að metið gæti fallið en svo fór ekki. Alhvítir dagar í Reykjavík hafa verið fimm í mars til þessa og alhvít- ir dagar frá því í haust því 11, einum fleiri en veturinn 1976 til 1977, segir Trausti Jónsson veðurfræðingur. Og hann bætir við að enn sé apríl eftir en meðalfjöldi alhvítra daga í þeim mánuði er þrír. Svokallaður veðurstofuvetur end- ar með mars, þ.e. í dag, en íslenski veturinn með síðasta vetrardegi. Snjóuppgjör ná alveg til sumars, þannig að ef hvítur dagur mælist í maí telst hann með vetrinum á und- an, bætir Trausti við. Síðast að vori varð alhvítt 16. maí samkvæmt mæl- ingum, en flekkótt jörð var einu sinni talin vera 28. maí. Alhvítir dagar flestir 105 Mælingar á snjóhulu og snjódýpt hófust 25. janúar 1921 í Reykjavík, eða fyrir rúmlega einni öld. Á tíma- bilinu hefur snjóhula nær allan tím- ann verið metin kl. 9 að morgni, seg- ir Trausti í pistli á Moggablogginu. Nú er miðað við að tún Veðurstof- unnar við Bústaðaveg sé alhvítt að morgni. Alhvítu dagarnir voru flest- ir í Reykjavík veturinn 1983 til 1984, 105 talsins, næstflestir voru þeir 1988 til 1989, 103. Má af þessum töl- um sjá hve snjónum getur verið mis- skipt milli ára. Á þessari öld voru þeir flestir vet- urinn 2014 til 2015, 75, en fæstir 2009 til 2010, 16. „Við eigum sum sé enn möguleika á að verða undir þeirri tölu – þó við náum ekki vetr- inum 1976 til 1977,“ segir Trausti. Vetraruppgjörið er ekki alveg tilbúið, en þó er hægt að segja að vetrarhiti (desember til mars) í Reykjavík sé nærri meðallagi miðað við síðustu tíu ár og rétt yfir með- allagi síðustu 30 ára, segir Trausti. Mars, sem nú kveður, hefur verið hlýr en þó ekkert nærri metum. Kuldakaflinn að undanförnu hafi auðvitað dregið hitann aðeins niður. Í Reykjavík er marshitinn nú í 7. hlýjasta sæti á öldinni (af 21), en var lengi í því 3. til 5. „Veturinn hefur verið höfuðborgarbúum hagstæður í heildina – held ég að megi segja,“ bætir Trausti við að síðustu. Vegna páskahátíðarinnar kann að verða einhver bið á því að Veður- stofan birti tíðarfarsyfirlitið fyrir mars. Í febrúaryfirlitinu kom fram að meðalhiti í Reykjavík fyrstu tvo mánuði ársins 2021 var 1,1 stig sem er 0,5 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 en jafn meðalhita síð- ustu tíu ára. Meðalhitinn raðast í 25. sæti á lista 151 árs. Á Akureyri var meðalhiti mánaðanna tveggja -1,3 stig. Það er -0,6 stigum undir meðal- lagi áranna 1991 til 2020, en 1,2 stig- um undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn þar raðast í 58. sæti á lista 141 árs. Snjóhulumetið féll ekki í vetur - Vetrarhitinn í Reykjavík nærri meðallagi miðað við síðustu tíu árin Morgunblaðið/Eggert Veturinn Esjan, prýði Reykvíkinga, var venju fremur snjólétt þegar ljósmyndarinn smellti af þessari mynd fyrr í mánuðinum. Snjólétt hefur verið í vetur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.