Morgunblaðið - 31.03.2021, Page 32

Morgunblaðið - 31.03.2021, Page 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Pharmarctica framleiðir snyrtivörur og fæðubótarefni í verksmiðju sinni á Grenivík en einnig forskriftarlyf fyrir lækna. Fyrirtækið stefnir að aukningu á öllum sviðum á næstu árum, að því er fram kemur í um- fjöllun Skipulagsstofnunar um um- hverfismat, en framkvæmdastjórinn tekur fram að ekkert hafi verið ákveðið í því efni. Pharmarctica framleiðir mest vörur í verktakavinnu fyrir fyrir- tæki sem eru með snyrtivörur og fæðubótarefni á markaði. Sigur- björn Þór Jakobsson framkvæmda- stjóri segir að fyrirtækið komi inn í ferlið á mismunandi stigum. Í sum- um tilvikum komi það að þróun á vörunum og stundum þrói það vörur frá grunni. Annars annist það blönd- un og áfyllingu á umbúðir. Varan sé ýmist afhent í stórumbúðum eða til- búnum neytendaumbúðum á mark- aði í Reykjavík eða erlendis. Meðal vörumerkja sem Pharm- arctica vinnur fyrir eru Sóley org- anics, Feel Iceland, Eylíf, A&K Pure Skin, Primex, Bioeffect og GeoSilica, svo nokkur þekkt merki séu nefnd. Forskriftarlyf fyrir lækna Pharmarctica hefur takmarkað leyfi til framleiðslu lyfseðilsskyldra lyfja vegna forskriftarlyfja sem framleidd eru eftir pöntun frá lækn- um. Sigurbjörn segir að lyfin séu ekki stór hluti af starfseminni. Þeg- ar þörf sé á lyfjum sem ekki hafi markaðsleyfi hér á landi og því ekki á boðstólum biðji læknar fyrirtækið að framleiða lyfin. Pharmarctica hefur starfað frá árinu 2003 og eru fjórtán starfs- menn á launaskrá. Fyrirtækið er að langmestu leyti í eigu Sæness ehf., félags sem heldur utan um aflaheim- ildir Grýtubakkahrepps. Þreföldun hugsanleg Áform um stækkun húsnæðis fyrirtækisins og aukningu fram- leiðslu koma fram í greinargerð Pharmarctica vegna fyrirspurnar til Skipulagsstofnunar um það hvort starfsemin þurfi að fara í umhverf- ismat. Þar er rætt um þreföldun á húsnæði, fjölgun framleiðsluvara, þreföldun framleiðslunnar á næstu fimm árum og aukna lyfjafram- leiðslu. Tíu starfsmenn myndu bætast við, yrði þessi aukning að veruleika, að því er fram kemur í greinargerð fyrirtækisins. Niðurstaða Skipu- lagsstofnunar var að framkvæmdin væri ekki háð mati á umhverfis- áhrifum. Sigurbjörn segir að þessi fyrir- spurn til Skipulagsstofnunar sé til- komin vegna gildistöku reglugerðar og leyfismála vegna núverandi starf- semi fyrirtækisins. Hann tekur fram að engar ákvarðanir hafi verið tekn- ar um stækkun húsnæðis eða aukna framleiðslu á þessu stigi málsins. Vörur til snyrtingar og fæðubótar - Pharmarctica á Grenivík framleiðir vörur fyrir mörg þekkt íslensk vörumerki - Snyrtivör- ur, fæðubótarefni og lyf í verktöku - Áformum um allt að þreföldun framleiðslu lýst í umsókn Morgunblaðið/Ingó Grenivík Sveitarfélagið notar fjármuni sem það fær út úr kvóta sínum meðal annars til að koma á fót framleiðslufyrirtæki til að skapa störf. Ljósmynd/aðsend Pharmarctica Efnum er blandað saman og búnar til vörur sem jafnframt er pakkað í verksmiðju fyrirtækisins. Á skírdag og páskadag kl. 15 báða dagana sendir Bakkastofa á Eyr- arbakka, bæði á YouTube og Facebo- ok, út tvo þætti þar sem fuglar verða í öndvegi. Yfirskriftin að þáttunum er Bakkastofa. Hjónin Ásta Kristrún Ragnarsdóttir og Valgeir Guðjóns- son stýra þáttunum sem þau helga fuglum í söng, kveðskap, frásögnum og viðtölum við þá sem þekkja. Á Ís- landi eru fuglar á páskaeggjum og -skreytingum og eggin ýmist fyllt með góðgæti eða málsháttum. Upp- runi þessa er ræddur, en líka mik- ilvægi hreinnar náttúru til að við- halda og vernda fugla, segir í tilkynningu og enn fremur: „Ætíð eða allt frá landnámi hafa fuglar verið þekktir fyrir að tengjast mönnum og beita merkjasendingum mannfólkinu í hag. Fuglar og þjóðtrú koma við sögu í þáttunum en efni um fugla er alveg óþrjótandi og því væri unnt að gera mun fleiri þætti.“ Bakkastofuhjónin hófu útsend- ingar á rafrænum þáttum á aðvent- unni, einn á hverjum sunnudegi, en vinnuheiti Bakkastofuþáttanna er Bjartir sunnudagar á Eyrarbakka. Þegar farsóttin setti hömlur á sam- komur fóru Ásta og Valgeir þessa leið en annars hafa bæði fugla- tónleikar og annað verið í boði í Bakkastofu. Ljósmynd/Aðsend Fuglar Ásta Kristín og Valgeir Guðjónsson á góðri stundu í Bakkastofu. Þættir um fuglana - Egg og skreytingar - Sögur frá Eyrarbakka - Þjóðtrúin verður rædd

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.