Morgunblaðið - 31.03.2021, Side 48

Morgunblaðið - 31.03.2021, Side 48
48 UMRÆÐAN Messur um páska MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021 KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS Grace loftljós 23 cm – 30.900,- 30 cm – 39.900,- Mér finnst Bjarni Benediktsson fjár- málaráðherra hugaður þegar hann vogar sér að fjalla um kosninga- baráttuna 2013. Í apríl það ár sendi hann öldr- uðum bréf þar sem hann gaf fögur loforð um breytingar til handa öldruðum og lof- aði að sjá til þess að það fólk nyti afraksturs erfiðis síns. „Það á ekki að íþyngja öldruðum með ósanngjarnri skattlagningu, það á að afturkalla skerðingar ellilífeyr- isþega, afnema tekjutengingar ellilíf- eyris,“ og sitthvað annað stóð í bréf- inu fræga sem Bjarni sendi öllum öldruðum fyrir kosningar 2013. Bjarni er því miður ekki eini stjórn- málamaðurinn sem lofar bættum kjörum og aðbúnaði fyrir kosningar sem síðan er svikið, það er að verða sóðalegur ósiður þessarar stéttar því miður. Nú skulum við rýna aðeins í launabreytingar aldraðra í tíð Bjarna Benediktssonar sem fjár- málaráðherra á árunum 2013-2019 og bera þau saman við aðrar stéttir. Bjarni skrifaði grein um þessar launabreytingar laugardaginn 13. mars 2021. Í grein sinni segir hann að eldri hjón í eigin húsnæði hafi haft 512 þúsund í mánaðartekjur árið 2013 og voru tekjurnar orðnar 700 þúsund árið 2019, þetta þýðir að tekjurnar hafa hækkað um 36,7%. Ef skoðuð er launavísitala Hagstofunnar sést að launavísitalan var í janúar 2013 439,2 stig en í desember 2019 var hún 700,7 stig, almenn hækkun tekna á þessu tímabili var því 59,5%. Í þessu launameðaltali Hagstofunnar eru 45.200 eða 11,6% þjóðarinnar eldri en 67 ára (samkvæmt Vísindavefn- um) sem draga meðaltal Hagstof- unnar verulega niður og því mætti ætla að laun fólks, annarra en aldr- aðra, hefðu hækkað um 70-80% á því tímabili sem Bjarni er að fjalla um. Eftir lestur þessa samanburðar virð- ist Bjarni hafa verið að benda les- endum Morgunblaðsins á hve mikið aldraðir hafi dregist aftur úr á tekju- sviðinu. Staðreyndir sýna að „kraft- mikið hagvaxtarskeið landsins“ hafi ekki náð til tekjulágra þann tíma frá því Sjálf- stæðisflokkurinn tók sæti í ríkisstjórn eins og Bjarni taldi í grein sinni að gerst hefði. Hvað olli þessum óeðlilegu launahækk- unum og hverjar urðu afleiðingarnar? Fyr- irbærið kjararáð var búið til á ábyrgð fjár- málaráðuneytisins. Síð- asti kjaradómur ráðs- ins hækkaði laun ráðherra og þingmanna um yfir 50% og auðvitað var sú ákvörðun látin vera afturvirk um nokkra mánuði og þarna hófst höfrungahlaupið mikla. Enginn þingmanna gerði at- hugasemdir við hækkunina né gerði sér í hugarlund hverjar afleiðing- arnar gætu orðið, gott að fá aur í vas- ann. Reyndar reyndi einn þingmaður Pírata að fara í mál við ríkið til að fá þessu breytt en þekking hans var ekki meiri en svo að málinu var vísað frá þar sem hann var ekki talinn aðili að málinu, sneypuför. Eðlilegar af- leiðingar urðu að verkalýðsfélögin vildu vera með í höfrungahlaupinu og gerðu kröfur um ofurhækkun launa sinna félaga og þar var ekki heldur hugsað um afleiðingarnar. Foringjar verkalýðsins fóru í ábyrgðarlaust kapphlaup með kröfur til að afla sér hylli launþega og festa sig í sessi sem foringjarnir miklu. Önnur alvarleg afleiðing er sú að Ís- land er núna hálaunaland og íbúar láglaunalanda streyma nú til lands- ins og í gegnum verkamannaleigur fá þeir vinnu og keppa þar við landann sem getur valdið auknu atvinnuleysi og við hinir sem greiðum skatta sjáum fyrir fólki sem lendir í slíkum erfiðleikum. Alvarlegasta afleiðingin er að Ísland á orðið erfitt á sam- keppnismarkaði Evrópu. Vörur okk- ar og þjónusta verður dýrari en hjá öðrum þjóðum og við eigum í erf- iðleikum með að taka þátt í útboðum verka sem eru undir ákvæðum um útboð vegna stærðar sinnar. Forseta Íslands virðist hafa orðið óglatt vegna þeirra launa sem kjararáð ætl- aði honum og sagt er að hann gefi hluta launa sinna til góðgerðarmála. Hvað varð svo um kjararáð? Hæst- virtur fjármálaráðherra lagði kjar- aráð niður og í lögum um það var ákvæði um að öllum gögnum ráðsins yrði eytt snarlega. Jóhanna og Stein- grímur létu sér duga að setja bann við að nokkur sæi gögn stjórnar sinnar næstu 110 árin, þau eru víst vel varðveitt. Var verið að fela eitt- hvað? Bjarna til fróðleiks get ég upplýst hann um að eftirlaun mín hjá Lífeyr- issjóði verslunarmanna hafa hækkað um 17,6% frá árinu 2013 til ársins 2020. Í júlí 2010 skerðir sjóðurinn eftirlaun um 10% og var hrunið 2008 sögð ástæðan. Ítrekað var auglýst og upplýst í miðlum að forstjóri sjóðsins hefði verið lækkaður í launum um sömu prósentu og félagar sjóðsins en það stóð ekki lengi og er hann núna á margföldum launum skerðingarárs- ins. Samkvæmt ársreikningum þessa sjóðs hefur ávöxtun undanfarinna ára verið töluvert hærri en talið er þurfa til að standa við sínar skuld- bindingar en eftirlaunaskertir fé- lagar sjóðsins hafa ekki verið látnir njóta þess. Að þingmenn skuli hafa sett það í lög að ákveðinn hópur laun- þega skuli greiða ákveðna prósentu í lífeyrissjóð síns stéttarfélags er hörð skattlagning. Um viðskipti mín við Lífeyrissjóð verslunarmanna dettur mér bara ósvífin eignaupptaka í hug. En hafa skal í huga að þingmenn, ráðherrar og opinberir starfsmenn þurfa ekki að hafa áhyggjur því þeir fá lífeyrisgreiðslur sem nemur ákveðinni prósentu af launum þeirra þegar þeir hætta störfum, þar eru ekki skerðingar. Þingmenn njóta eft- irlauna sem fylgja því sem kalla má opinberir starfsmenn. Þeir gera aft- ur á móti starfsfólki einkafyrirtækja skylt að greiða í lífeyrissjóði sem ráða ekki við höfrungahlaup kjara- dóms og önnur afglöp. Eftir Gunnar Kr. Gunnarsson » Grein mín fjallar um launaskrið frá árinu 2013 til 2019 og er til frekari upplýsingar við grein Bjarna Benediktssonar sem birt var í Morgun- blaðinu 13. mars sl. Gunnar Kr. Gunnarsson Höfundur er eftirlaunaþegi. gunnikg@simnet.is Fólkið sem ól okkur upp Svo mæltist Gunnari á Hlíðarenda, en hann sagði víst: Fögur er hlíðin. Þetta er með þekkt- ustu tilvitnunum ís- lenskum og fellur seint úr gildi þótt margt sé á hverfanda hveli og óvíst að ís- lenskan hafi það af. Hún hefur breyst gríðarlega á síðustu áratugum, eins og má sjá á „gömlu fréttinni“ sem Mogginn birtir. Þar kemur oft fram „vandaðra“ mál en sést í dag. Stundum eru viðmælendur þér- aðir og nóg pláss þótt blöðin hafi verið minni. Það var sagt að blaðamenn hefðu stundum fengið í staupinu þegar fyrirtæki buðu heim, en það liggur í loftinu að skrifararnir hafi verið með hálstau og í pússuðum skóm í vinnunni. Þess vegna verður textinn hjá þeim kannski snurfus- aðri en ella. Þetta er alveg eins ef 50 ára bók er lesin. Unglinga rekur í vörðurnar og spyrja hvað sé að „slá í brýnu“ og hvort „roskinn“ sé húð- sjúkdómur eða eitthvað. Þau komast ekki einu sinni fram úr orðinu „hörk- unorðangarður“. En þeim finnst ótrúlega spennandi og mikil áskorun og tækifæri að kíkja á fornald- armálið hans afa. Sunnlendingur Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Hlíðin er smart Áður fyrr „…það liggur í loftinu að skrifararnir hafi verið með hálstau og í pússuðum skóm í vinnunni.“ ÁRBÆJARKIRKJA | Vegna samkomutak- markana verður helgistund á föstudaginn langa streymt á heimasíðu og facebook-síðu kirkjunnar kl. 11. Helgihaldi á páskadagsmorgunn kl. 8.00 ár- degis verður einnig streymt á heimasíðu og fa- cebook-síðu kirkjunnar. Prestur sr. Þór Hauks- son, organisti Krizstina K. Szklenár. Félagar úr kór Árbæjarkirkju syngja. ÁSTJARNARKIRKJA | 1. apríl, Föstudagurinn langi: Lestur valinna Passíusálma. Lagboðar sálmanna leiknir á milli lestra. Þessu verður streymt á facebook-síðu Ástjarnarkirkju og Kálfatjarnarkirkju kl. 14. Páskadagur, 4. apríl kl. 11: Guðsþjónustu verð- ur streymt á facebook-síðu Ástjarnarkirkju og Kálfatjarnarkirkju. Gospeltríó Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Davíðs Sigurgeirssonar tón- listarstjóra. Prestar verða sr. Arnór Bjarki Blomsterberg og sr. Kjartan Jónsson. HÁTEIGSKIRKJA | Helgihald hátíðarinnar á facebook-síðu kirkjunnar: Skírdagur. Tónlistarguðsþjónusta. Ræðumaður er sr. Karl Sigurbjörnsson biskup. Flutt verður Pange Lingua e. Arngerði Maríu Árnad. og La- mentatio e. Jan Dismas Zelenka. Flytjendur eru Lilja Dögg Gunnarsd., alt; Auður Hafsteinsd., fiðla; Grímur Helgas., klarínett; Bryndís Þórsd., fagott; Guðný Einarsd., orgel. Sr. Eiríkur Jó- hannsson. Föstudagurinn langi. Guðsþjónusta, píslarsag- an lesin. Sr. Eiríkur Jóhannss. Kordía, Diljá Sveinsd., fiðla, og Gréta Rún Snorrad., selló, flytja Passíusálma nr. 43-50 við íslensk lög úr munnlegri geymd, úr sálmasöngbók til kirkju- og heimasöngs 1936 og eftir íslensk tónskáld. Stjórnandi er Guðný Einarsdóttir organisti. Páskadagur. Helgistund í umsjá sr. Eiríks Jó- hannssonar. Kordía syngur páskasálma og Guðný Einarsd. leikur á orgel. Jón Guðmundss. og Hafdís Vigfúsd. leika á flautur. Jón Haf- steinn Guðmundss. leikur á trompet. Annar í páskum. Fyrirhugaðri fermingu sem vera átti kl. 10.30 hefur verið frestað. HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Á föstu- daginn langa kl. 14 verður Píslarsagan sam- kvæmt Jóhannesarguðspjalli, Jóhannesar- passía, flutt af leshópi sóknarbarna, sem einnig les valda Passíusálma. Íhugunartónlist er í höndum Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur og Vanessu. Við gætum að sóttvörnum og skrán- ingu. 30 manns mega vera í kirkjunni. KÓPAVOGSKIRKJA | Páskadag kl. 8.00. Há- tíðarhelgistund páska á face-book-síðu Kópa- vogskirkju. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og sr. Sjöfn Jóhannesdóttir þjónar fyrir altari. Fé- lagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. Föstudag- inn langa verður útsending á facebook-síðu safnaðarins. Hanna María Karlsdóttir leikkona og Laufey Brá Jónsdóttir, guðfræðinemi og leik- kona, lesa valda Passíusálma Hallgríms Pét- urssonar. Félagar úr kór kirkjunnar syngja undir stjórn Lenku Mátéová. NESKIRKJA | Messur og sunnudagaskóli fell- ur niður bænadagana og páska 2021 vegna samkomutakmarkana. Annað hefðbundið safnaðarstarf í páskaviku fellur einnig niður. Hugvekjur verða sendar út á facebook-síðu kirkjunnar. Morgunblaðið/Kristinn Háteigskirkja og Hallgrímskirkja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.