Morgunblaðið - 31.03.2021, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 31.03.2021, Qupperneq 50
50 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Víða um land eru skógar og trjálundir sem gróðursettir hafa verið undanfarna öld og nokkrum árum bet- ur. Trén hafa vaxið þrátt fyrir miklar efa- semdir um ræktun skóga en auðvitað mis- jafnlega. Vantrú á að nokkuð sé unnt að rækta hérlendis tré af erlendum tegundum og uppruna var í áratugi ríkjandi viðhorf. Einkum beindist andstaðan gegn skógrækt við sunnanvert Rauðavatn þar sem skógrækt hófst einna fyrst á höf- uðborgarsvæðinu. Þá er mikil tortryggni gagnvart gróðursetningu trjáa og ýmsu borið við. Oft er bent á að skógurinn og jafnvel einstæð tré eyðileggi útsýni. Samt er nú svo að margt fleira trufl- ar einna meira eins og háspennulínur og stórkarlalegar byggingar eins og stóriðjuver sem flestar eru forljótar og verða seint taldar með þeim æski- legustu hvað þá fegurstu. Við sem áhugasöm erum um skóg- rækt teljum að á einni öld hafi nálægt 60.000 hektarar lands bæst við skóg- lendi landsins, mest birki. Það er rétt rúmlega hálft prósent af yfirborði Ís- lands sem hefur um aldir verið skógfátæk- asta land allrar Evrópu. Við sem ræktum skóg og trjálundi meg- um girða okkar spildur af svo búsmali bænda vaði ekki yfir og skemmi. Mjög sár- grætileg dæmi eru um slíkt þar sem sinnuleysi búfjáreigenda er mjög mikið og meira að segja ámælisvert. Okkur þykir þetta vera mjög ámælisvert þar sem við njótum í raun engrar verndar samfélagsins um ræktunarstörf okkar. Á sama tíma hefur ríkissjóður styrkt eig- endur búfjár um marga milljarða á ári hverju án þess að neinar kvaðir séu settar um vörslu þessa sama bú- fjár. Hvert er efnislegt mat skóglendis? Því miður líta allt of margir á virði skóglendis sem nánast ekkert. Því megi taka skóginn til annarra land- nytja án minnstu efasemda. Í Þýskalandi ber þeim sem tekur skóg undir aðra landnotkun að koma upp skógi að minnsta kosti á jafn- stóru svæði og tekið er. Þetta er mjög góð regla sem við ættum að innleiða á Íslandi. Á sunnanverðum Vestfjörðum hef- ur lengi staðið yfir deila um vega- stæði úr Reykhólasveit og vestur yfir Þorskafjörð. Svo virðist sem ákvörð- un hafi verið tekin um þverun Þorskafjarðar og vestur með strönd hans gegnum Teigsskóg. Fyrir nokkrum árum var fenginn norskur sérfræðingur í vegalagninu til að skoða aðstæður og leggja fram til- lögu. Taldi hann að besta og hag- kvæmasta leiðin væri beint vestur frá Reykhólum frá Stað á Reykjanesi og þar beint í vestur yfir Þorska- fjörð. Þessi leið hefur þann kost að vera snjóléttust og því greiðfærust lengur en aðrar leiðir. Svo virðist sem hagsmunir einhvers séu bundnir við vegagerð um Teigsskóg. Fyrir um aldarfjórðungi var Blika- staðalandið í Mosfellsbæ selt. Kaup- andinn hugðist leggja veg gegnum Hamrahlíðaskóginn og byggja sex stór fjölbýlishús þar sem skógurinn er að vaxa. Þetta var okkur sem þá sátum í stjórn Skógræktarfélags Mosfellsbæjar erfitt en bæjarstjórn Mosfellsbæjar taldi af og frá að þessu svæði væri unnt að þjóna frá Mosfellsbæ og þar við situr. Í Garðabæ hefur Skógrækt- arfélagið unnið mikið og gott starf í Smalaholti við norðanvert Vífils- staðavatn, fyrsta athafnasvæði fé- lagsins. Nú stendur til að taka nokkra tugi hektara af þessum elsta skógi Garðabæjar til golfvall- argerðar. Nokkru vestar og norðan Vífilsstaða er mikil mýri þar sem golfvöllur var lagður en varð að þoka vegna byggingar íþróttahúss sem reynst hefur mun dýrara en upp var lagt með. Til að bæta félaginu miss- inn á að taka væna sneið af Smala- holtsskóginum sem er dapurlegt. Golfvellir eru víða á höfuðborg- arsvæðinu og margir hverjir á mjög fögrum stöðum. Margir hefðu viljað hafa þar íbúðabyggð með góðu út- sýni. Auðvitað er skilningur fyrir því að margir vilja golfvelli, önnur hugð- arefni sem við skiljum ekki er hvers vegna vellir þessir þurfa að vera sett- ir niður þar sem fyrir er skynsamleg landnotkun sem skógrækt sem er öll- um til yndi. Þegar litið er á greiðslur fyrir skóglendi sem tekið hefur verið und- ir aðra landnýtingu þá er að mörgu að huga. Ég minnist þess að þegar svonefnt Krikahverfi var byggt í Mosfellsbæ fékk félagið greiddar tvær milljónir í bætur um aldamótin fyrir skerðingu landgræðsluskógar um tvo hektara. Nokkru síðar átti þáverandi fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins í deilu við Reykjavíkurborg vegna 36.000 fermetra spildu hans sunnan við Rauðavatn þar sem hann hafði nokkru kostað til vegna skógrækt- ar.*) Þessi deila stóð um nokkur ár en júristinn fékk rúmlega 200 milljónir í greiðslu fyrir og þótti ýmsum það nokkuð bratt en hann hafði farið fram á nær tvöfalda þá fjárhæð. Oft höfum við þurft að horfa á eftir fögrum skógarlundum sem hafa þrátt fyrir allt dafnað vel. Nú stend- ur yfir breikkun Suðurlandsvegar sem hefur verið framkvæmd í mörg- um áföngum. Sunnan við Rauðavatn vilja hagsmunaaðilar taka væna sneið af gamla skóginum við Rauða- vatn svo komast megi hjá færslu bensínstöðvar sunnan við veginn. Hvernig væri að snúa þessu við með því að og hlífa skóginum en færa bensínstöðina sem unnt er að end- urreisa á nokkrum mánuðum en skógurinn þarf marga áratugi að vaxa? *) Heimild: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/ frettir/stok-frett/2006/03/29/ Matsnefnd-eignarnamsbota-urskurdur-29.- mars-2006/ Gildi skógræktar Eftir Guðjón Jensson »Hvert er verðmæti skóglendis? Í þess- ari grein er farið yfir stöðu mála. Ǵuðjón Jensson Höfundur er leiðsögumaður og eldri borgari í Mosfellsbæ. arnartangi43@gmail.com Nú hefur meirihluti borgarráðs fallist á að sett verði upp aparóla í Öskjuhlíð til þess að fólk geti rólað sér þar að hætti apa. Þetta telst vera hið þarfasta mál þrátt fyrir skrýtna and- stöðu skipulagsstjór- ans, sem telur að fram- angreind róla samrýmist ekki deili- skipulagi svæðisins og deila megi um að róla af þessu tagi sé Öskjuhlíðinni til hagsbóta eða auki á notkun hennar til útivistar og afþreyingar. Höfundur þessa pistils telur þessa skoðun skipulagsstjórans vera með því vitrænasta sem frá hans kontór hefur komið í seinni tíð. Engu að síð- ur ákvað meirihlutinn að hunsa álit hans, samþykkti aparóluna til eins árs, ákvað að það væri í góðu lagi að sniðganga skipulagið þar sem þetta ráðslag væri aðeins til bráðabirgða og síðan mætti framlengja það enda- laust til skamms tíma í senn. Þannig er sem sagt hægt að fara fram hjá því sem er í skipulaginu. Reyndar ekkert flókið og bara snið- ugt. Höfundur þessa pistils er inn- fæddur Reykvíkingur af foreldrum sem báðir eru innfæddir Reykvík- ingar, sem er fátítt um fólk á hans aldri. Hon- um hefur til þessa verið heldur hlýtt til fæðing- arstaðar síns og kosið að búa þar öðrum stöð- um fremur. Nú er hins vegar svo komið, að apakattarlæti borg- arstjórnarmeirihlutans hafa keyrt svo um þver- bak, að kærleikar hans til borgarinnar eru úr sögunni og kysi hann að búa alls staðar annars staðar en þar fengi hann því við kom- ið. Úrlausnarefni, sem ættu að hafa meiri forgang en aparólan, eru til dæmis: Skipulagsmál borgarinnar eru í ógöngum. Ríkjandi viðhorf virðist vera að þröngva ákveðnum lifn- aðarháttum upp á borgarbúa svo sem að búa eingöngu í blokkum í stað sér- býlis og ferðast um í seinfara sístopp- andi strætisvögnum. Hér þarf að laga sig að raunhæfum óskum borgarbúa. Þétting byggðar er misheppnað fyrirbæri, sem veldur auknum sam- gönguvanda í stað þess að leysa hann. Þarf að skoða frá grunni. Borgarlína leysir engan vanda í samgöngumálum eins og henni er ætlað. Hún skapar aðeins nýjan vanda, kostar allt of mikið og eykur umferðaröngþveitið og þar með mengun eins og fjöldi valinkunnra sómamanna hefur bent á. Eins og í öðrum borgum leysist umferðaröng- þveitið ekki nema umferð fari ofan í jörðina að einhverju leyti. Því eru ekki grafin jarðgöng á höfuðborg- arsvæðinu eins og úti á landi? Næstu jarðgöng ættu öll að vera þar sem fólkið býr, sem greiðir fyrir ganga- gerðina. Reykjavíkurborg stendur tæpast undir nafni lengur sem höfuðborg. Skipulag miðast við ímyndaðar innri þarfir í stað landsþarfa, órökstuddan sértrúnað meirihlutans og jafnvel hreinar hégiljur. Komið hefur verið í veg fyrir gerð Sundabrautar árum saman og óvíst að þeirri andstöðu sé lokið. Ný byggingarsvæði hafa komið í veg fyrir hagkvæma útfærslu henn- ar, allt í krafti þéttingar byggðar. Byggð umhverfis flugvöllinn rýrir gildi hans og gerir hann jafnvel vara- saman, ef eftir gengur. Í ljósi nýjustu atburða virðist það eitt blasa við að hann ber að festa í endanlega í sessi og hætta bullinu þótt svipta þurfi höf- uðborgina skipulagsvaldinu að þessu leyti, sem hún augljóslega er ekki fær um að fara með sem höfuðborg allra landsmanna. Tveggja áratuga óstjórn samfylk- ingarflokkanna hefur leitt af sér hvers kyns óráðsíu og óþörf verkefni. Afleiðingin er að rekstur borgarinnar er til muna óhagkvæmari en ná- grannasveitarfélaganna. Í ljósi fjöldans ætti hann að vera mun hag- kvæmari. Hér er þörf á rækilegri til- tekt. Skattpíning er í hámarki, sukkið og forgangur gæluverkefna halda áfram. Það er gömul saga og ný að vinstristjórn leiðir til ófarnaðar. Virð- ing fyrir peningum er í lágmarki eins og þeir vaxi á trjánum. Hér þurfa að verða umskipti, sem ekki eru í aug- sýn. Heilvita mönnum rennur til rifja málflutningur sumra kjörinna full- trúa um að fjárhagur borgarinnar sé í góðu lagi þegar því er öfugt farið. Fjárhagsvandi borgarinnar verður ekki leystur með bókhaldsbrellum. Í ljósi sívaxandi skuldasöfnunar kann sjálf höfuðborgin innan skamms að verða ósjálfbær í rekstri. Fjölgun kjörinna fulltrúa hefur engu skilað og þarf að færa fjölda þeirra til fyrra horfs í ljósi þess forn- kveðna að því verr gefast heimskra manna ráð sem þeir koma fleiri sam- an. Til skamms tíma voru borg- arstjórar höfuðborgarinnar í góðu sambandi við fólkið í borginni með sína föstu viðtalstíma, sem gjarna leiddu til skjótra viðbragða. Nú er þessu öfugt farið. Borgarstjórinn er ósýnilegur og ósnertanlegur, falinn bak við tafamiðað stjórnapparat. Helst er hann að finna við sögun jóla- trjáa, ýmsar minniháttar skóflu- stungur og daður við einhver trú- félög. Tími góðra tengsla við borgarbúa er liðinn. En það ótrúlega gerist. Borg- arbúar virðast vera hæstánægðir með stjórn höfuðborgarinnar ef marka má skoðanakönnun Gallups sem birtist í Fréttablaðinu 2. mars sl. Það skyldi þó aldrei vera að það væri eitthvað bogið við hæstvirta kjós- endur eða að þeir hafi ekki hugmynd um hvernig ástandið er í málum höf- uðborgarinnar. Í stuttu máli finnst pistilhöfundi nóg komið af ruglinu. Meirihlutinn þarf að víkja og ábyrgt fólk veljast til forystu og nauðsynlegrar tiltektar í borgarkerfinu. Eftir Sverri Ólafsson »Reykjavíkurborg stendur tæpast undir nafni lengur sem höfuðborg. Sverrir Ólafsson Höfundur er viðskiptafræðingur. sverrirolafs@simnet.is Aparóla í Öskjuhlíð Þau stórtíðindi gerðust nýlega, að ut- anríkisráðherrar bæði Rússlands og Kína mættu saman í Ör- yggisráð Sameinuðu þjóðanna, til að mót- mæla því að Vest- urveldin virtust hafa sameinast í því að beita þá efnahags- þvingunum, vegna meintra afbrota þeirra í mannréttindamálum! Stærstu undirliggjandi tíðindin þykja mér þó vera, að þeir séu líkast jafnframt að benda á, að það beri áfram að líta þeirra framferði í mannréttindamálum umburð- arlyndum augum, líkt og tíðkast hef- ur mjög við önnur stórveldi utan Vesturlanda, af því slík yfirgangsleg dómhörku-sérviska Vesturlanda síð- ustu öldina sé í sjálfu sér merki um henti- stefnu, sem eigi ekki að líðast, sem dólga- hugsjónamennska í mannlegum sam- félögum, nú frekar en áður! Þessu til áréttingar eru þeir líkast til að und- irstrika það um leið, að þeir séu í sameiningu einmitt fulltrúar hinna tveggja stærstu kjarn- orkuvopna utan Vesturlanda, sem gætu þannig boðið þeim og Nató aft- ur birginn, í endurnýjuðu köldu stríði, ef þau sæju nú ekki að sér! Ég treysti lesendum mínum nú til að fylla upp í eyðurnar um þær ályktanir sem draga megi af máli þessu, nú á kosningaári! Mín kynslóð ólst upp við hryll- ingssögur af harðneskjulegum yf- irheyrslum í stríðshrjáðum löndum, svo sem í Rómönsku Ameríku, sem og fyrr og síðar. Það varð til að ég orti svo nýlega langan ljóðabálk um yfirheyrslu-heimspeki þessa, sem heitir: Yfirheyrslukennarinn segir. Þar yrki ég þetta tæpitungulega brot svo á einum stað: En tungurnar koma einmitt á framfæri því sem stjórnendur vilja helst ráða yfir, en það er hugsanamergðin og minning- arnar, og allar fleygu setningarnar stjórn- arinnar, sem flestir vildu sagt hafa að lokum! Eftir Tryggva V. Líndal Tryggvi V. Líndal »Ég treysti lesendum mínum nú til að fylla upp í eyðurnar um þær ályktanir sem draga megi af máli þessu. Höfundur er skáld og menningar- mannfræðingur. Endurkoma kaldastríðs-landslagsins?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.