Morgunblaðið - 31.03.2021, Blaðsíða 57
Því að hvað er það að deyja annað en
standa nakinn í blænum og hverfa
inn í sólskinið?
(Kahlil Gibran)
Góða ferð.
Helga Pálsdóttir.
Elsku Ingi. Þeir voru ekki
margir dagarnir sem liðu innan
fjölskyldunnar áður en ég vissi
hver Ingi bróðir var. Tilhlökk-
unin leyndi sér ekki í hvert sinn
sem von var á þér. Sögurnar
sem þú sagðir og sem sagðar
voru um þig voru stanslaus æv-
intýri. Þær eru ófáar minning-
arnar sem við eigum um þig.
Þú gafst þér alltaf góðan tíma
í spjall og hafðir svo einstaklega
góða nærveru, alltaf kletturinn
sem tengdi alla saman. Og þeg-
ar ég tala um alla þá meina ég
alla, það var alveg sama hvar
við vorum, þú varst alltaf sá
sem allir þekktu. Maður sá
glitta í bros hjá öllum þegar
maður nefndi nafn þitt, „já, ertu
mágkona hans Inga/Inga
Hauks/Ingós“, þú varst tengilið-
urinn.
Stundirnar í Bræðraborginni
voru einstakar. Ég segi oft sög-
una þegar þú komst til ömmu
Dóru, opnaðir skottið á einum
af þínum flottu bílum og við
okkur blöstu pokar með glænýj-
um fötum og svartir ruslapokar
með óhreinum þvotti. Amma
Dóra græjaði nú aldeilis
óhreinu fötin og skilaði þeim til
baka straujuðum og fínum áður
en haldið skyldi í næstu ferð. Í
huganum heyri ég ennþá hlát-
urinn og eftirvæntinguna þegar
von var á þér í Borgina, ykkar
bönd voru órjúfanleg.
Ég leit líka á þig sem Inga
bróður, okkar vinátta var ein-
stök. En samband ykkar systk-
inanna er magnað, í fyrstu
fannst mér þetta yfirþyrmandi
en áttaði mig síðan á mikilvægi
þess að veita hvert öðru stuðn-
ing og nú er það ómetanlegt.
Í 30 ár varstu stór partur af
okkar lífi, erfitt er að hugsa sér
stundirnar án þín en við munum
varðveita allar minningarnar og
segja áfram sögur þínar. Takk
fyrir góðu stundirnar og alla
hjálpina minn kæri vinur, þú lif-
ir alltaf í hjarta okkar.
Við #Svilurnar5, og auðvitað
allir hinir líka, munum veita
styrk og stuðning til yndislegu
fjölskyldunnar þinnar. Takk
fyrir að bæta þeim inn í líf okk-
ar.
Helena.
Elsku Ingó. Í fagra sumar-
landið ertu kominn þar sem
engar áhyggjur eða veikindi eru
til staðar, heldur aðeins söngur
og gleði. Okkur langar að þakka
fyrir allar þær yndislegu stund-
ir sem við fengum að upplifa
með þér í gegnum árin. Það var
alltaf gott og gaman að koma til
ykkar hjóna í kaffibolla og ræða
hlutina, alltaf var gleðin og létt-
leikinn til staðar sem gerði það
að verkum að maður fór alltaf
glaður og brosandi út. Þýska-
landsferðin sem við fjölskyldan
fórum saman verður lengi í
minnum höfð enda var lífið ynd-
islegt og gott á þeim fallega
stað sem Travemünde er. Elsku
Ingó, góður, sanngjarn og hlýr
vinur varstu öllum og verður
þín sárt saknað. Við fjölskyldan
sendum ástvinum og aðstand-
endum, okkar innilegustu sam-
úð. Takk fyrir allt Ingó og við
hittumst síðar.
Öll við færum, elsku vinur,
ástar þökk á kveðjustund.
Gleði veitir grátnu hjarta.
guðleg von um eftirfund.
Drottinn Jesú, sólin sanna,
sigrað hefur dauða og gröf.
Að hafa átt þig ætíð verður,
okkur dýrmæt lífsins gjöf.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Guðleifur W.
Guðmundsson,
Ingunn María
Guðjónsdóttir.
„Manstu fyrir langa löngu, við
sátum saman í skólastofu.“
Þannig byrjar lag sem minnir
mig alltaf á vin minn Inga Hauk.
Þennan glaðværa, einstaka,
trausta vin sem ég var svo hepp-
in að kynnast á unglingsárum
okkar á Hofsósi. Á þeim árum
gátum við unglingarnir unnið á
sumrin í fiski í frystihúsinu á
Hofsósi og vorum við Ingi Hauk-
ur þar á meðal margra annarra
vina. á var mikla vinnu að hafa,
bæði virka daga og um helgar,
en það var samt alltaf tími fyrir
félagslífið.
Heima á Hofsósi var spilað á
spil, farið á böll með sætaferðum
eða bara rúntað með tónlistina
stillta í hærri kantinum. Enda-
laust gaman eins og lífið á að
vera. ið Ingi Haukur gerðum
margt saman. Við fórum til
dæmis austur til Atlavíkur um
verslunarmannahelgi en líka í
fleiri útilegur og var ein farin
upp í Hólkot. Lengra þurfti ekki
að fara til þess að skipta um um-
hverfi.
Þar var okkur boðið inn til að
borða hangikjöt. Heimilisfólkið
var ekki að pirra sig á háværum
unglingum sem tjölduðu nánast
undir þvottasnúrunni við íbúðar-
húsið. Nei, inn var okkur boðið
og borðuðum við kvöldmat og
hlustuðum á plötu með Ása í bæ
og sungum með „gamla fólkinu“
eins og okkur fannst ábúendur
vera þá.
En við Ingi Haukur ásamt
Hössa og Ella vorum þarna á
ferð í þetta skiptið eins og svo oft
á þessum árum.
Það sem einkenndi fé-
lagsskapinn með Inga var gleði
og hlátur. Hann elskaði
skemmtilegar sögur og frasa
sem voru óspart notaðir og svo
var hlegið, lengi og mikið. Það
vafðist ekki fyrir honum að sjá
jákvæðu hliðarnar á lífinu og
hafa gaman af.
Þegar við hittumst á
Jónsmessuhátíð á Hofsósi fyrir
nokkrum árum, þá birtist hann
upp við svið þar sem ég var að
syngja og bað um óskalag,
Danska lagið. Þetta gerðu hann
og fleiri allt ballið á enda og
komu því svona fimmtíu sinnum
upp að sviði eða sendu einhvern
með miða með áritaðri beiðni um
Danska lagið. Þetta vakti mörg
bros og hlátur allt ballið á enda.
Lagið var auðvitað flutt oftar
en einu sinni. Að ári mættu sömu
félagarnir aftur og titluðu sig
sem „grúppíur“ Þórunnar og
Halla. Þetta lýsir Inga Hauki svo
vel, það var alltaf svo stutt í
gleðina, brosið og hláturinn.
Elsku Ingi Haukur, þín verð-
ur sárt saknað og þegar ég syng
Danska lagið næst verður það
sannarlega sungið fyrir þig.
Þó í okkar feðrafold
falli allt sem lifir
enginn getur mokað mold
minningarnar yfir.
(Bjarni Jónsson frá Gröf)
Kæra Sigrún og fjölskylda, ég
votta ykkur öllum innilega sam-
úð og bið Guð að veita ykkur
styrk á erfiðum tímum.
Minningin um einstakan vin
lifir.
Þórunn
Snorradóttir.
Með hlýju í hjarta og miklum
söknuði kveðjum við nú góðan
vin. Ingó var einstakur á margan
hátt.
Rólegur og yfirvegaður húm-
oristi, gegnheill og sannur vinur
sem töfraði fram það besta í öll-
um.
Hann átti auðvelt með að
tengjast fólki, jafnt ungum sem
öldnum. Minning þín lifir í hjört-
um okkar elsku vinur. Takk fyrir
allt.
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Hvíl í friði kæri vinur.
Hjalti og Elliði.
MINNINGAR 57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021
✝
Benedikt Vil-
hjálmsson
fæddist á Branda-
skarði 15. febrúar
1935. Hann lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Sóltúni 23.
mars 2021.
Foreldrar Bene-
dikts voru Vil-
hjálmur Bene-
diktsson, bóndi á
Brandaskarði, f.
1894, d. 1955, og Jensína Hall-
grímsdóttir, húsmóðir á
Brandaskarði, f. 4. október
1892, d. 4. febrúar 1963.
Systkini Benedikts eru Sigríð-
ur Hjaltberg, Jón Margeir,
Brynhildur Ingibjörg og Páll
Ísleifur.
Benedikt giftist Sigurborgu
Guðmundsdóttir, f. 25. apríl
1940. Börn þeirra
eru: 1) Bára Mar-
grét, f. 22. mars
1966, börn hennar
eru Birna Íris,
Irma Gná, Auður
Ilona, Styrmir
Eero, Hekla Toini
og stjúpsonur
Daníel. 2) Jenný
Eygló, f. 19. mars
1968, börn hennar
eru Benedikt Arn-
ar og Theodór Páll. Barna-
barnabörn Benedikts og
Sigurborgar eru Margrét Ylfa
og Úlfur Ari.
Útför Benedikts fer fram
frá Mosfellskirkju í dag, 31.
mars 2021. Vegna fjöldatak-
markana er útförin eingöngu
opin fyrir nánustu aðstand-
endur.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Jæja elsku pabbi, þá ertu
kominn til foreldra þinna og
systkina. Við vissum að það
væri stutt í þetta en erum aldr-
ei tilbúin að kveðja ástvin. Var
svo þakklát að eyða afmælis-
deginum mínum hjá þér og
stjana við þig. Það síðasta sem
þú baðst mig um var þegar þú
sagðir að þig langaði í slátur og
ég ætlaði að redda því en þú
færð það bara vonandi í
Draumalandinu.
Skal passa álfana þína vel og
hugsa vel um mömmu.
Bára Margrét.
Afi Benni var einn af þeim
sem var alltaf til staðar, for-
dómalaus og tilbúinn að hlusta.
Hann átti alltaf til kandís fyrir
okkur barnabörnin og lagði sig
fram við að kenna okkur að
spila. Við vorum álfarnir hans,
„álfurinn minn“ sagði hann og
strauk okkur um kollinn.
Í seinni tíð þótti mér vænt
um hvað hann var forvitinn um
nútímasamfélag og gátum við
setið saman í eldhúskróknum
og spjallað um heima og geima.
Hann var spenntur að kynna
sér nýjustu tæknina og undir
það síðasta var hann kominn
með snjallsíma í hendurnar og
var orðinn nokkuð lunkinn með
hann eftir að við systkinin vor-
um búin að fara yfir þetta með
honum.
Það er sárt að kveðja og vita
til þess að geta ekki setið aftur
með afa í eldhúskróknum í
trúnó en hann var mjög saddur
sinna lífdaga og sáttur við guð
og menn og tilbúinn að fara á
„sjóinn“ aftur.
Ég veit að hann er einhvers
staðar á sjó núna, þar sem hon-
um leið best, með Páli heitnum
bróður sínum, að súpa á viskíi
með sól í vanga að skiptast á
klámbröndurum. Ég kveð þig
afi minn,
Birna Íris.
Afi minn Brandaskarði kom hann frá,
bæinn hann flutti eftir smá.
Marga góða hluti gerði hann
og góður við hvern einasta mann.
Hann var sjómaður í eina stund
og ávallt léttur í lund.
Hnúta batt hann marga
og hraustmenni var hann.
Þetta er hann afi minn góði,
fallegi og fróði.
(AI-2005)
Auður Ilona (álfurinn).
Benedikt
Vilhjálmsson
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýju við andlát og útför
elskulegs sonar okkar og bróður,
SIGURÐAR JÓHANNS RUI
HELGASONAR.
Sérstakar þakkir færum við
Björgunarsveitinni Ársæli og Mjölni fyrir einstakan virðingarvott
sem minningu Sigurðar Jóhanns var sýndur við útför hans.
Anna María Sigurðardóttir
Helgi Jóhannesson Þórný Jónsdóttir
Anna Lucia Helgadóttir Jóhannes L.L. Helgason
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem
sýndu fjölskyldunni samúð, vinarhug og
virðingu við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HRANNAR ARNHEIÐAR
BJÖRNSDÓTTUR
frá Dalvík.
Sérstakar þakkir frá okkur fær starfsfólk Sjúkrahússins á
Akureyri fyrir frábæra og alúðlega umönnun.
Björn Mikaelsson Sveinsína Guðrún Steindórsd.
Jóhannes Mikaelsson Guðrún Gísladóttir
Sigurður Mikaelsson Inga Þorbjörg Steindórsdóttir
Sigrún Alda Mikaelsdóttir Sigurður Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur frændi okkar,
SIGURGEIR MAGNÚSSON
frá Vigdísarstöðum,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á
Hvammstanga laugardaginn 20. mars.
Útförin fer fram frá Melstaðarkirkju
laugardaginn 3. apríl klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða einungis
nánustu aðstandendur viðstaddir en jarðarförinni verður streymt
á fésbókarsíðu Melstaðarprestakalls.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingibjörg Sigurðardóttir
Magnús Guðmundsson
Ragnar Bjarni Gröndal
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
systir, amma og langamma,
BJÖRK MÝRDAL
hjúkrunarfræðingur,
lést á heimili sínu sunnudaginn 21. mars.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju
þriðjudaginn 6. apríl klukkan 14. Í ljósi aðstæðna verða aðeins
nánustu ástvinir viðstaddir.
Streymt verður frá útförinni á vef Selfosskirkju:
https://selfosskirkja.is/?page_id=4153.
Árni Marz Friðgeirsson
Ruth Guðmundsdóttir Guðjón Ingi Guðmundsson
Sigríður Una Árnadóttir
Njáll Mýrdal Árnason Inga Lára Sigurjónsdóttir
Þórey Rakel Mýrdal
Sigursteinn Mýrdal
barnabörn og barnabarnabarn
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og sendu hlýjar kveðjur vegna
andláts og útfarar heittelskaðrar eiginkonu,
móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÓLAFAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Norðurgötu 40, Akureyri.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk SAk og
lögmannshlíðar sem kom að umönnun Ólafar síðustu mánuði.
Minning þín er ljós í lífi okkar.
Friðrik Sigurjónsson
Kristján Viktor Kristjánsson Laufey Ingadóttir
Jóhanna María Friðriksdóttir Gunnar Vigfússon
Heiðbjört Ída Friðriksdóttir Jón Sigtryggsson
barnabörn og langömmubörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HALLGRÍMUR ÞÓR HALLGRÍMSSON
bryti,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Heilbrigðis-
stofnun Vesturlands föstudaginn 26. mars.
Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju
í Hafnarfirði fimmtudaginn 8. apríl klukkan 11.
Vegna samkomutakmarkana verða einungis nánustu ættingjar
og vinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt.
Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat
Emil Birgir Hallgrímsson Edda Svavarsdóttir
Guðfinna Björk Hallgrímsd. Brynjólfur Hrafn Úlfarsson
Þóra Björg Hallgrímsdóttir Tjörvi Einarsson
Óðinn Páll, Inga Bjartey, Una Rán,
Urður Ása og Hekla Gná
Okkar ástkæri
ALBERT ÓLAFSSON,
Austurbyggð 17, Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð mánudaginn
29. mars. Útförin fer fram í kyrrþey
þriðjudaginn 6. apríl. Sérstakar þakkir
til starfsfólks Reyni- og Skógarhlíðar fyrir frábæra umönnun
og hlýhug.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Björg, Guðný, María, Þorgerður
og fjölskyldur