Morgunblaðið - 31.03.2021, Side 60

Morgunblaðið - 31.03.2021, Side 60
60 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 2021 Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti. Nánar á dyrabaer.is HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ 40 ára Harpa er Hafnfirðingur og hef- ur alltaf búið í Hafn- arfirði. Hún er leik- skólakennari að mennt og er deildar- stjóri á Stekkjarási í Hafnarfirði. Harpa er í stjórn Skátafélagsins Hraunbúa. Maki: Jökull Guðmundsson, f. 1981, rafvirki að mennt og vinnur hjá Mar- el. Börn: Logi Jökulsson, f. 2007, og Auður Jökulsdóttir, f. 2013. Foreldrar: Kolbeinn Árnason, f. 1949, smiður, og Hjördís Sigurbjörnsdóttir, f. 1958, kjólameistari í Þjóðleikhús- inu. Þau eru búsett í Hafnarfirði. Harpa Kolbeinsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þetta er ekki verri dagur en hver annar til að reyna eitthvað nýtt í eldhús- inu. Mikil ákefð býr undir sakleysislegu yfirbragði nýs vinar. 20. apríl - 20. maí + Naut Flanaðu ekki að neinu, heldur tékk- aðu af alla hluti og hafðu þitt á hreinu þegar þú grípur til aðgerða. Settu skoð- anir þínar fram með glöggum og grein- argóðum hætti. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Stundum eru hlutirnir hreint ekki þar sem þér finnst þú hafa skilið þá eftir. Mundu að maður er manns gaman. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú getur ekki bætt samband þitt við vin þinn með því að reyna að breyta honum/henni. Eflaust er best að treysta á eigið innsæi þegar ástamálin eru annars vegar. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Gefðu þér tíma til þess að sinna vandamálum þeirra sem til þín leita. Slak- aðu á í kvöld yfir góðri bók og reyndu að gleyma öðru smástund. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þótt veraldleg gæði séu nauðsyn- leg snýst lífið um fleira en þau. Það hefur aldrei sakað að sýna kurteisi. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú hefur þurft að taka á honum stóra þínum til þess að ráða fram úr hlutunum. Sæktu styrk til þeirra sem eru þér nán- astir. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú ert gæddur góðum hæfi- leikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Skráðu þig á námskeið sem þig hefur lengi langað á. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Svarið við spurningunni þinni berst í formi persónu. Þér eru allir vegir færir ef þú vilt. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Nú stefnir í að þú hittir fyrir þá sem eru sama sinnis og þú og reiðubúnir að vinna málstað ykkar brautargengi. Ekki er víst að allir sjái lífið sömu augum og þú. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Gerðu draum þinn að veruleika og leitaðu á vit ævintýranna. Þú kynnist einhverjum spennandi sem á eftir að auðga líf þitt. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Sýndu öðrum tillitssemi. Fólk sem hugsar vel um sig er að þínu skapi. 1993 var hún skipuð deildarstjóri í ráðuneytinu. „Það tímabil sem ég gegndi störfum ráðherraritara var vissulega krefjandi en afar skemmti- legt, átta tíma vinnudagur þekktist ekki þá, stundum jafnvel unnið fram yfir miðnætti og um helgar ef þörf krafði. Þeirra tæplega 20 ára sem ég sá um ráðherrana mína, Guðmund Bjarnason, Sighvat Björgvinsson, Guðmund Árna Stefánsson, Ingi- björgu Pálmadóttur, Jón Kristjáns- son, Siv Friðleifsdóttur og Guðlaug Þór Þórðarson, minnist ég sem minna bestu starfsára með ein- stökum yfirmönnum. Ingibjörg frönskum bókmenntum. „Á síðari árum hef ég reynt að viðhalda frönskukunnáttunni, meðal annars með því að sækja frönskunámskeið um nokkurra vikna skeið í Perpign- an í suðvesturhluta Frakklands. Tæplega fertug tók ég upp þráðinn og hóf aftur nám í píanóleik í Tón- listarskóla Kópavogs og lauk sex stigum af átta.“ Ingiríður hefur lengst af unnið sem ríkisstarfsmaður, fyrst um tveggja ára skeið í utanríkisráðu- neytinu og nokkrum árum síðar sem ritari heilbrigðis- og trygginga- ráðherra, eða frá árinu 1988. Árið I ngiríður Hanna Þorkels- dóttir er fædd 31. mars 1951 í Reykjavík og ólst þar upp fyrstu fimm ár ævinnar eða þar til foreldrar hennar festu kaup árið 1956 á húsi á Kárs- nesbraut 13 í Kópavogi. „Í Kópavogi liggja rætur bernsku minnar og þar var gott að alast upp sem barn og unglingur. Segja má að við höfum verið frumbyggjar í Kópavogi og notið þess að búa við það mikla frelsi sem einkenndi vaxandi bæ á þessum árum. Við systkinin vorum gjarnan send niður að sjó til þess að kaupa nýveidda bátaýsu eða nýorpin egg á Brúarósi. Um það bil síðustu tíu ár ævi sinnar bjó móðuramma mín, Ingiríður Kristín, hjá okkur og það er ljúft að minnast þess tíma þegar þrjár kynslóðir bjuggu undir sama þaki. Á uppvaxtarárum mínum var faðir minn endurskoðandi Samvinnu- bankans og fylgdi því starfi að ferðast árlega um landið og endur- skoða útibú bankans. Í þessar ferðir fór öll fjölskyldan saman og ein- kenndust árin af mörgum og skemmtilegum ferðum um landið, enda voru foreldrar mínir fróðir um örnefni, land og þjóð. Þegar farið var á æskuslóðir pabba í Suður- Þingeyjarsýslu var gist í Hólsgerði hjá Jakobínu föðurömmu, auk þess sem frændgarðurinn í Ytri-Tungu á Tjörnesi og Fjalli í Aðaldal var ævinlega heimsóttur. Enn fremur var gjarnan farið til Siglufjarðar en þar bjó ein systir pabba ásamt fjöl- skyldu sinni. Þetta eru ár ljúfra bernskuminninga.“ Ingiríður gekk í Kársnesskóla og að honum loknum fór hún í Gagn- fræðaskóla Kópavogs þaðan sem hún lauk landsprófi vorið 1967. Á æsku- og uppvaxtarárunum var hún í tónlistarnámi, fyrst í Barnamúsík- skólanum, síðar í Tónlistarskóla Kópavogs. Auk þess lagði Ingiríður stund á ballett um nokkurra ára skeið og var félagi í Skátafélaginu Kópum í Kópavogi. Að loknu lands- prófi lá leiðin í Menntaskólann í Reykjavík og útskrifaðist hún þaðan vorið 1973. Árin 1974-1976 bjó hún í Strasbourg og stundaði nám við Há- skólann í Strasbourg í frönsku og Pálmadóttir treysti mér svo vel að eitt sinn fól hún mér að finna og velja fyrir sig kjóla og annað og það gerðist gjarnan að ef hún týndi eða gleymdi sínum eigin gleraugum fékk hún mín lánuð. Jón Kristjánsson byrjaði vinnudagana ævinlega á því að drekka með okkur morgunkaffi og segja skemmtilegar sögur úr póli- tíkinni sem hann lauk gjarnan með orðunum „og þá varð þessi vísa til“.“ Við sameiningu ráðuneyta heil- brigðis- og félagsmála í nýtt ráðu- neyti, velferðarráðuneyti, sem tók til starfa 1. janúar 2011 vann Ingiríður á skrifstofu velferðarmála, auk þess sem hún vann fyrir kærunefndir ráðuneytisins. Frá árinu 2008 vann hún um 12 ára skeið í aukastarfi á kvöldin og um helgar sem læknarit- ari. „Þegar lög um úrskurðarnefnd velferðarmála nr. 85/2015 tóku gildi þann 1. janúar 2016 bauðst mér að ganga til liðs við nefndina og ákvað ég þá að venda mínu kvæði í kross og skipta um starfsvettvang. Hjá úr- skurðarnefndinni hefur starf mitt einkum verið prófarkalestur. Ef frá er talin dýrmæt samvera með barnabörnunum mínum og fjöl- skyldunni stendur hugur minn eink- um til ferðalaga, útivistar og göngu- ferða, jafnt innan lands sem utan. Kemur þá í hugann ógleymanleg pílagrímaganga í júní 2019 í Austur- ríki með einstökum gönguvinum. Ingiríður Hanna Þorkelsdóttir, fv. ritari heilbrigðis- og tryggingaráðherra – 70 ára Á Tenerife Ingiríður, Sigurður Grétar heldur á Ylfu Matthildi og Úlfhildur, fremst á myndinni eru Kristín Hanna og Skarphéðinn Krummi árið 2018. Góðar minningar úr ráðuneytinu Í Austurríki Ingiríður á tíu daga göngu í Alpafjöllum í júní 2019. Í baksýn má sjá Pillersee-dal sem gengið var meðfram. Skírn Ingiríður fjögurra mánaða með móðurömmu sinni og nöfnu. 30 ára Kristín er Kópavogsbúi og ólst þar upp. Hún er sjúkraliði að mennt og er að klára annað árið í hjúkrunarfræði við HA. Kristín er sjúkra- liði á sambýlinu Roða- sölum. Maki: Ramandeep Singh, f. 1985 á Ind- landi, stöðvarstjóri hjá N1. Börn: Jakob Rayan Singh, f. 2015, og Kimaya Ósk Singh, f. 2017. Foreldrar: Jakob Ólafsson, f. 1958, flug- stjóri hjá Landhelgisgæslunni, og Violeta Tolo Torres, f. 1967 á Filippseyjum, verk- efnastjóri á fjármálasviði hjá HÍ. Þau eru búsett í Kópavogi. Kristín Margrét Jakobsdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.